Morgunblaðið - 10.04.2003, Síða 21
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 21
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
1092,5 fm glæsilegt og vel staðsett verslunarhúsnæði á jarðhæð á einum besta verslunarstaðnum í
Hafnarfirði. Húsnæðið er í dag leigt í langtímaleigu til Kaupáss hf. Í húsnæðinu er rekin stór matvöru-
verslun. Húsnæðið hefur allt verið endurnýjað og er í góðu ásigkomulagi. Fjöldi bílastæða. Áhvílandi
eru hagstæð langtímalán. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu. Verð 159 millj. 3546
Topp fjárfesting
!"! ##$ "
%!"!&'()* ##*&++,"-"
#."%/!0%! $+122) *
TALSMAÐUR rússneska utanríkis-
ráðuneytisins vísaði í gær á bug orð-
rómi um að Saddam Hussein Íraks-
forseti hefði leitað hælis í rússneska
sendiráðinu í Bagdad. „Það er ekkert
hæft í slíkum fréttaflutningi,“ sagði
Alexander Jakovenko, talsmaður
ráðuneytisins í Moskvu. „Slíkar yfir-
lýsingar eru ekki og geta ekki verið í
samræmi við raunveruleikann.“ Sagði
hann slíkar sögusagnir vera „enn eina
tilraunina til að ógna öryggi rúss-
neska sendiráðsins í Bagdad“. Tals-
menn stjórnvalda í Bandaríkjunum
vísuðu þessum orðrómi einnig á bug.
Tyrknesk stofnun er fæst við her-
mál, SESAR, sagði í yfirlýsingu í gær
að „trúverðugir heimildarmenn“ í
Bagdad segðu að íraski forsetinn
væri í felum í rússneska sendiráðinu.
Rússar og Bandaríkjamenn væru að
semja um örlög Saddams og peninga-
hagsmuni Rússa í Írak eftir hrun
stjórnarinnar. Írakar skulda Rússum
milljarða dollara vegna vopnakaupa,
einnig hafa Rússar reynt að gera olíu-
samninga við stjórn Saddams en
óljóst er um gildi þeirra eftir stríðið.
Annast CIA milligöngu?
Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jaz-
eera í Katar sagði að verið væri að
semja um vopnahlé gegn því að Sadd-
am fengi að fara úr landi og skipaði
mönnum sínum að leggja niður vopn.
Nokkrir starfsmenn bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, sem verið
hafi í felum Bagdad frá því fyrir stríð-
ið, væru milligöngumenn í þessum
viðræðum.
Nabih Berri, forseti líbanska
þingsins, greindi frá því á líbanska
þinginu fyrr í gær, að Íraksforseti
væri hugsanlega í rússneska sendi-
ráðinu í Bagdad. Gaf hann í skyn að
um væri að ræða leynilegan samning
sem Rússar og Bandaríkjamenn
hefðu gert um framtíð Saddams.
Fyrir nokkrum dögum var skotið á
bílalest sendiráðsmanna er var á leið
til Sýrlands undir rússneskum fána.
Ekki er vitað hvort þar voru að verki
bandarískir eða íraskir hermenn en
fimm manns særðust. Sendiherrann,
Vladímír Títorenko, særðist sjálfur
lítillega en hann ákvað að snúa aftur
til Bagdad eftir komuna til Sýrlands.
Nabih Berri furðaði sig í gær á því að
sendiherrann skyldi snúa aftur til
Íraks og bera því við að hann þyrfti að
sækja særðan bílstjóra sem væri á
sjúkrahúsi í Bagdad. „Hvers vegna
sneri rússneski sendiherrann aftur til
Bagdad? Hvað var Condoleezza Rice
[þjóðaröryggisráðgjafi George W.
Bush Bandaríkjaforseta] að gera í
Moskvu? Er Saddam Hussein í rúss-
neska sendiráðinu í Bagdad?“ spurði
Berri á blaðamannafundi.
Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, hvatti í gær bandarískan
starfsbróður sinn, Colin Powell, til að
sjá til þess að öryggi rússneskra
sendiráðsmanna í Bagdad yrði ekki
ógnað. Breska Sky-sjónvarpsstöðin
sagði frá orðrómnum um verustað
Saddams og bætti því við að Rússar
reyndu ákaft að fá bandamenn til að
semja um vopnahlé. Fyrir nokkru
sögðu leiðtogar bandamanna að of
seint væri fyrir Saddam að reyna að
semja um að fá að fara úr landi. Stefnt
væri að því að handsama hann eða
fella ef hann gæfist ekki upp.
Ýmsar sögur hafa verið á kreiki um
afdrif Saddams, sona hans tveggja,
Udays og Qusays, og annarra úr
innsta hring. Margir Kúrdar í norður-
hluta landsins segja að þessir menn
hafi, þegar átökin í Bagdad fóru að
harðna, flúið til heimaborgar Sadd-
ams og margra annarra ráðamanna,
Tikrit, sem er skammt norðan við höf-
uðborgina. Er bent á að þar eigi
Íraksforseti vísan stuðning og að
hann gæti varist þar lengi í geysilega
umfangsmiklum neðanjarðarbyrgj-
um og jarðgöngum. Enn aðrir töldu
hugsanlegt að Saddam og Uday hefði
verið komið undan alla leið til Mósúl í
jaðri Kúrdasvæðanna í norðri en þar
verjast Írakar enn Kúrdum og banda-
rískum sérsveitum. Loks er sagt að
liðsmenn Lýðveldisvarðarins hafi ef
til vill komið forsetanum til Sýrlands.
„Efnavopna-Ali“ enn á lífi?
Íraski útlaginn Ahmed Chalabi
sagðist í gær vantrúaður á að Saddam
Hussein hefði fallið í loftárás banda-
manna á veitingastað í Bagdad á
þriðjudag, eins og bandarískir leyni-
þjónustumenn hafa fullyrt. Einnig
sagði Chalabi að öruggt væri að
Qusay Hussein væri enn á lífi. Taldi
Chalabi jafnframt að alls óvíst væri
hvort frændi forsetans, hinn alræmdi
Ali Hassan al-Majid, „Efnavopna-
Ali“, hefði fallið í Basra, eins og Bret-
ar telja nær öruggt að hafi gerst sl.
laugardag.
Margvíslegur orðrómur
um verustað Saddams
Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins vísar á bug
getgátum um að Íraksforseti leynist í sendiráði Rússa
New York, Moskvu, London. AFP, AP.