Morgunblaðið - 10.04.2003, Page 24
AKUREYRI
24 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VW Passat árg. ´97
Ekinn 87 þús. km, sjálfsk., vindskeið,
dráttarkúla. Lán ca 320 þús.
Verð 890 þús. Uppl. í síma 899 1041.
Helst ekki skipti.
Til sölu
VW Passat árg. ´01
Ekinn 31 þús. km, sjálfsk., vindskeið.
Lán ca 1.470 þús. Verð 2030 þús.
Uppl. í síma 899 1041.
Helst ekki skipti.
Til sölu
SUÐURNES
GRINDVÍKINGARNIR sem stóðu
sig svo vel í stærðfræðikeppni
grunnskólanna á Suðurnesjum
vinna á eigin forsendum í stærð-
fræðinni í Grunnskóla Grindavíkur
og njóta til þess sérstaks stuðnings
til að fara fram úr hefðbundinni
stærðfræðiáætlun árganganna.
Kemur þetta fram í samtali við
deildarstjóra í Grunnskóla Grinda-
víkur.
Eins og fram hefur komið í
blaðinu voru nemendur úr Grunn-
skóla Grindavíkur áberandi á verð-
launaafhendingu stærðfræðikeppn-
innar sem Fjölbrautaskóli
Suðurnesja hélt fyrir nemendur
þriggja efstu bekkja grunnskólanna.
Nemendur úr Grindavík sigruðu í
tveimur af þremur árgöngum, Sara
Sigurðardóttir varð efst nemenda í
8. bekk og Alexander Þórarinsson
varð efstur í níunda bekk. Þegar lit-
ið er á hóp verðlaunahafa, það er að
segja þrjá efstu í hverjum flokki,
sést að fimm af þessum níu nem-
endum eru úr Grindavík. Þá átti
skólinn samtals níu fulltrúa í hópi tíu
efstu í þessum þremur bekkjum.
„Þetta er náttúrlega frábær ár-
angur hjá nemendum okkar í 8.–10.
bekk. Við höfum verið að vinna sam-
kvæmt aðalnámskrá og þessir
krakkar eru að vinna á eigin for-
sendum í stærðfræðinni og njóta til
þess sérstaks stuðnings til að fara
fram úr hefðbundinni stærð-
fræðiáætlun árganganna. Þetta væri
ekki hægt ef ekki væru sérstakir
tímar áætlaðir á þessa krakka sem
fara fram úr jafnöldrum sínum. Auk
þess er góð samvinna við foreldra og
góður stöðugleiki í kennaramálum
stór þáttur. Síðast en ekki síst ræðst
svona árangur af áhuga, vinnusemi
og elju nemendanna sjálfra,“ sagði
Pálmi Ingólfsson, deildastjóri í
Grunnskóla Grindavíkur.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Átta af þeim níu nemendum Grunnskóla Grindavíkur sem fengu við-
urkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræðikeppninni.
Áhugi, vinnusemi og elja
Grindavík
ALLIR starfsmenn SBK hf. í Kefla-
vík hafa lokið námskeiði í vistakstri.
Þá fóru bílstjórar fyrirtækisins á
námskeið í Ökuskólanum í Mjódd.
Vistakstur stuðlar að því að öku-
menn dragi úr losun mengandi efna
með því að minnka eldsneytisnotkun.
Með vistakstri dregur ökumaðurinn
úr álagi á umhverfið og sparar um
leið verulegt fé og slit á ökutækinu.
Jafnframt minnkar hættan á óhöpp-
um og slysum því að vistakstur er tal-
inn öruggari. Samkvæmt upplýsing-
um Friðriks Árnasonar,
markaðsstjóra SBK, minnkar elds-
neytisnotkun um 10–12% að meðal-
tali með vistakstri.
Flestir bílar SBK hf. eru búnir
Euro 2 eða Euro 3 og uppfylla því
ströngustu mengunarkröfur.
Bílstjórar fyrirtækisins fóru einnig
á námskeið í Ökuskólanum í Mjódd
þar sem farið var yfir þjónustu, fram-
komu, snyrtimennsku og almenna
fagmennsku bílstjóra. Námskeiðið er
liður í því að endurmennta starfsfólk
SBK hf. til þess að fyrirtækið geti
ávallt boðið viðskiptavinum sínum
upp á sem besta þjónustu, að því er
fram kemur hjá Friðriki, einnig er
námskeiðshaldið þáttur í undirbún-
ingi að upptöku gæðakerfis.
Sigurður Steindórsson, þjónustustjóri SBK, með skjal sem staðfestir þátt-
töku í námskeiði í vistakstri. Með honum á myndinni eru Hrönn Bjargar
ökukennari og Sigurður Steinsson, skólastjóri Ökuskólans í Mjódd.
Starfsmenn SBK
læra vistakstur
Keflavík
FARÞEGUM í strætisvögnum
Reykjanesbæjar hefur fjölgað um-
talsvert eftir að bæjarstjórn ákvað
að veita þjónustuna gjaldfrjálst til
barna og unglinga átján ára og
yngri, aldraðra og öryrkja.
Sérstaklega hefur orðið fjölgun í
vagninum sem ekur Keflavíkur-
hringinn á morgnana, ekki síst hjá
skólafólki. Í fréttatilkynningu frá
Reykjanesbæ kemur fram að SBK
hefur þurft að stækka vagninn sem
ekur þennan hring.
Farþegum
fjölgar í strætó
Reykjanesbær
HLJÓMSVEITIN Ókyrrð kemur
fram á tónleikum á Græna hattinum
í kvöld, fimmtudagskvöldið 10. apríl,
kl. 21. Húsfyllir varð á tónleikum
hljómsveitarinnar í lok febrúar síð-
astliðins og verða þeir því endur-
teknir nú, en ekki er áformað að
flytja efni tónleikanna nema í þetta
eina sinn. Hljómsveitin flytur 12 ný
lög eftir Bjarna Hafþór Helgason en
þau eru flest samin við ljóð eftir móð-
urbræður hans, Ragnar Inga Aðal-
steinsson og Hákon Aðalsteinsson.
Ljóðin eru með ýmsum bragarhátt-
um, t.d. fornyrðislagi sem afar sjald-
gæft er að samin sé tónlist við.
Í hljómsveitinni eru Arna Vals-
dóttir og Inga Dagný Eydal, söngur,
Stefán Ingólfsson, bassi, Karl Pet-
ersen, trommur, Ingimar Davíðsson,
röddun og ásláttur, Eiríkur Bóasson
og Baldvin Ringsetd, gítar, og Bjarni
Hafþór Helgason, flygill.
Ókyrrð á
tónleikum
HAGNAÐUR af rekstri Knatt-
spyrnufélags Akureyrar, KA, á
síðasta ári nam rúmum 7 milljón-
um króna fyrir fjármagnsliði og er
það verulegur bati frá árinu áður.
Að teknu tilliti til fjármagnsliða
var hagnaður ársins 800 þúsund
krónur. Nettó skuldir félagsins
námu 33 milljónum króna í árslok
2002, sem er svipuð fjárhæð í árs-
lok 2001.
Aðalfundur KA var haldinn í síð-
ustu viku og þar var Helga Stein-
unn Guðmundsdóttir endurkjörin
formaður. Í fréttatilkynningu frá
KA kemur fram að félagið hefur í
samráði við stjórn ÍBA óskað eftir
viðræðum við Akureyrarbæ um
hugsanlega aðstoð við það að
breyta óhagkvæmum skammtíma-
skuldum félagsins í lán til lengri
tíma á hagstæðum kjörum. Stefna
félagsins er að vinna sig sjálft út úr
fjárhagsvandræðum og greiða nið-
ur skuldir.
Fram kom á aðalfundinum að á
árinu 2002 hafi félagsmenn notið
ríkulegs „arðs“ í formi gífurlega
öflugs starfs yngri flokka en hjá fé-
laginu eru um 800 iðkendur 18 ára
og yngri. Einnig í góðum árangri
meistaraflokka félagsins en þar má
nefna Íslandsmeistaratitlil í hand-
knattleik karla, 4. sæti í úrvals-
deild í knattspyrnu, svo og fjölda
Íslandsmeistaratitla í yngri flokk-
um karla og kvenna.
Aðalfundurinn ályktaði einnig
vegna hugmynda um svokallaða
Dalsbraut sem liggja myndi
framhjá KA-svæðinu og Lundar-
skóla. Fundurinn telur að Dals-
braut í gegnum Lundahverfi sé af-
ar óæskilegur valkostur og leggst
eindregið gegn þeirri hugmynd.
Auk Helgu Steinunnar voru
Árni Jóhannsson, Bjarni Áskels-
son, Hallur Stefánsson og Hrefna
G. Torfadóttir kjörin í stjórn en
auk þess sitja formenn deilda inn-
an félagsins í aðalstjórn.
Hagnaður af rekstri KA á síðasta ári
Félagsmenn nutu ríku-
legs „arðs“ á árinu
SKÍÐAMÓT Íslands hefst í Hlíð-
arfjalli við Akureyri í dag og stend-
ur fram á sunnudag. Allt besta
skíðafólk landsins, bæði í alpa-
greinum og norrænum greinum,
hefur boðað komu sína á mótið.
Samhliða Skíðamóti Íslands verða
haldin tvö alþjóðleg mót (FIS-mót)
í stórsvigi og eitt FIS-mót í svigi.
Tíðarfarið í vetur hefur sem
kunnugt er verið óhagstætt skíða-
fólki en þrátt fyrir það hefur
lengstum verið hægt að hafa stór-
an hluta af skíðasvæðinu í Hlíð-
arfalli opinn, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Skíðafélagi Akureyrar,
sem hefur umsjón með mótinu.
Undirbúningsnefnd hefur unnið
hörðum höndum undanfarnar vikur
og ljóst er að í dag verður allt til
reiðu þannig að hægt verði að
halda glæsilegt mót. Þá hefur
starfsfólk skíðastaða lagt á sig
mikla vinnu til að búa svæðið sem
best úr garði.
Mótið hefst kl. 16 í dag með
keppni í sprettgöngu en öll keppni
í göngu fer fram ofan við svokall-
aða Stórhæð, beint upp af göngu-
húsinu í Hlíðarfjalli.
Mótið verður formlega sett kl. 20
í kvöld í Ketilhúsinu í Listagilinu.
Keppni í alpagreinum hefst kl. 9 í
fyrramálið með stórsvigi karla og
svig kvenna er kl. 10.15. Bæði mót-
in gefa jafnframt stig sem alþjóð-
leg FIS-mót. Á undanförnum árum
hefur jafnan nokkur hópur er-
lendra keppenda komið á FIS-mót-
in en svo er ekki nú. Keppni í
göngu hefst kl. 16 á morgun og
verður gengið með frjálsri aðferð.
Á laugardaginn er komið að stór-
svigi kvenna og svigi karla, sem
jafnframt eru FIS-mót, og göngu
með hefðbundinni aðferð. Keppni
lýkur síðan á sunnudaginn þegar
fram fara FIS-mót í stórsvigi hjá
bæði körlum og konum og boð-
ganga hjá báðum kynjum. Sam-
hliða Íslandsmótinu verður keppt í
göngu í flokkum 35–49 ára og 50
ára og eldri karla og í kvennaflokki
35 ára og eldri.
Allt kapp verður lagt á að koma
upplýsingum frá mótinu sem best
til skila. Heimasíða Skíðafélags Ak-
ureyrar www.skidi.is verður upp-
færð stöðugt á meðan keppni
stendur þannig að hægt verður að
fylgjast með gangi mótsins nánast í
„beinni útsendingu.“
Skíðamót Íslands hefst í Hlíðarfjalli í dag
Allt besta skíðafólk
landsins mætir til leiks
Morgunblaðið/Kristján
Smári Einarsson, starfsmaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli, var að ýta til snjó í
gær við rásmarkið í stórsviginu en snjóleysi í fjallinu hefur gert undirbún-
ing Skíðamóts Íslands erfiðari en ella.
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦