Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 25
Fyrstaflokks ferðatilboð!
www.nordur.is
PÁSKAR FYRIR NORÐAN!
Útivist! Skíði Sundlaugarfjör! Huggulegheit! Rómantík!Vélsleðaferðir!
ógleymanlegt!
BÆJARSTJÓRN Fjarðabyggðar
hélt sinn 100. fund í Félagslundi á
Reyðarfirði í síðustu viku en sveitar-
félagið varð til árið 1998 við samein-
ingu Eskifjarðarkaupstaðar, Reyðar-
fjarðarhrepps og Neskaupstaðar. Á
fundinum fór fram fyrri umræða um
ársreikninga sveitarfélagsins, sem
sýna betri afkomu en áætlanir gerðu
ráð fyrir. Jafnframt var ákveðið að
flýta framkvæmdum við grunn-
skólana í Neskaupstað og á Eskifirði
þannig að þeim yrði lokið í síðasta lagi
sumarið 2004. Áætlaður kostnaður
við þær framkvæmdir er 215 millj-
ónir króna.
Samkvæmt ársreikningi námu
tekjur Fjarðabyggðar síðasta ár 1,4
milljörðum króna og gjöldin voru lítið
eitt hærri. Af A-hluta bæjarsjóðs var
afgangur upp á um 60 milljónir króna
en 12 milljóna kr. tap af samanlögð-
um A- og B-hluta. Eigið fé Fjarða-
byggðar í árslok 2002 nam tæpum
800 milljónum og fjárfestingar síð-
asta árs námu 289 milljónum. Síðari
umræða um ársreikninginn fer fram
8. maí næstkomandi.
Fjarðabyggð er fjölmennasta
sveitarfélag Austurlands og næstfjöl-
mennasta sveitarfélagið í Norðaust-
urkjördæmi á eftir Akureyri. Fjöldi
íbúa er um 3.100 og þar af búa um
1.400 í Neskaupstað, um 1.000 á Eski-
firði og 650 manns á Reyðarfirði.
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar, sagði við
Morgunblaðið að reynslan af samein-
ingu sveitarfélaganna þriggja væri
mjög góð. Menn þyrftu þó lengri tíma
til að aðlagast nýjum aðstæðum.
Hann sagði samkomulag innan bæj-
arstjórnar vera gott og menn hefðu
t.d. allan tímann verið einhuga varð-
andi álversframkvæmdir í Reyðar-
firði. Hefðu sveitarfélögin ekki verið
búin að sameinast hefði það mál ekki
komist í höfn. Guðmundur sagðist
hins vegar enn finna fyrir hrepparíg
milli bæjarhluta sem þyrfti að leggja
af með tíð og tíma. Rígurinn væri
ekki til stórra trafala en menn þyrftu
að venjast því að hugsa sem eitt sam-
huga sveitarfélag. Aðspurður hvort
bæjarstjórnin hefði gert sér daga-
mun vegna 100. fundarins sagði Guð-
mundur að um kvöldið hefðu bæjar-
fulltrúar í fyrsta sinn farið út að borða
saman.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar á sínum 100. fundi
Framkvæmdum við
grunnskóla flýtt
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar á sínum 100. fundi í Félagslundi á Reyðarfirði.
Frá vinstri Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri, Þorbergur Hauksson, for-
seti bæjarstjórnar, Framsóknarflokki, Guðmundur R. Gíslason, Fjarða-
lista, Ásbjörn Guðjónsson, Fjarðalista, Eiður Ragnarsson, Framsókn-
arflokki, Guðný Björg Hauksdóttir, Fjarðalista, Smári Geirsson, formaður
bæjarráðs, Fjarðalista, Magni Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki, Smári Jón-
asson, varamaður á Biðlista, og Andrés Elísson, Sjálfstæðisflokki.
Fjarðabyggð
ÁRLEG stærðfræðikeppni Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra og
grunnskólanna á svæðinu fór fram
síðastliðinn laugardag, í sjötta sinn, í
tengslum við kynningardag skólans.
Stærðfræðikeppnin er samstarfs-
verkefni FNV, grunnskóla og fyr-
irtækja á Norðurlandi vestra auk
þess sem fyrirtæki utan skólasvæð-
isins koma að þessu verkefni.
Efstar og jafnar í fyrsta sæti urðu
þær: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir
frá Höfðaskóla og Signý Ósk Sig-
urjónsdóttir frá Árskóla, og var
dregið um fyrsta sætið sem kom í
hlut Signýjar, en í þriðja sæti varð
Jónas Logi Sigurbjörnsson frá
Varmahlíðarskóla.
Kristján Bjarni Halldórsson, fags-
tjóri FNV í stærðfræði, bar hitann
og þungann af samningu og yfirferð
keppnisgagna, en grunnskólarnir
önnuðust fyrirlögn undankeppn-
innar, sem fram fór 13. mars síðast-
liðinn. Þá tóku þátt tæplega eitt
hundrað nemendur úr níunda bekk
grunnskólanna á svæðinu, og að
þessu sinni komust sautján áfram í
úrslitakeppnina.
Á meðan á keppninni stóð var
boðið upp á kynningu á Fjölbrauta-
skólanum, ljóðalestur, stutt-
myndasýningu nemenda af starfs-
braut og tónlistarflutning nemenda
úr Tónlistarskóla Skagafjarðar og
fylgdust fjölmargir aðstandendur
keppenda og gestir með dagskránni.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin og voru þau að venju
verulega glæsileg, auk þess sem all-
ir þátttakendur sem í úrslit komust
fengu að launum fyrir þátttökuna
peningaverðlaun, vasareikni, far-
síma, og myndbandið Lífið í tölum. Í
sinn hlut fékk sigurvegarinn eign-
arbikar frá KLM verðlaunagripum,
tölvuorðabók frá Eddu útgáfu, Cas-
io FX- 9750 reiknivél frá Heim-
ilistækjum, Sony Erikson T200
GSM-síma, flugfarmiða frá Íslands-
flugi, auk ostakörfu frá Mjólk-
ursamlagi Kaupfélags Skafirðinga.
Auk þeirra sem að ofan greinir
komu að verðlaunaveitingunni:
Landssíminn hf. Námsgagnastofn-
un, Búnaðarbankinn, Element, Fisk-
iðjan Skagfirðingur, Húnaþing
vestra, Höfðahreppur, Landsbank-
inn, Rarik, Siglufjarðarbær, Sjóvá-
Almennar, Sveitarfélagið Skaga-
fjörður, Skagstrendingur, Spari-
sjóður Hólahrepps, Sparisjóður
Siglufjarðar, SR-mjöl, Steinull-
arverksmiðjan, Þormóður rammi,
Trésmiðjan Borg, Verkfræðistofan
Stoð og VÍS.
Að sögn Þorkels Þorsteinssonar,
aðstoðarskólameistara Fjölbrauta-
skólans, hefðu þessi veglegu verð-
laun verið óhugsandi án höfðinglegs
stuðnings frá þeim tæplega þrjátíu
fyrirtækjum og stofnunum sem að
keppninni komu og vildi hann koma
á framfæri sérstökum þökkum til
allra þessara aðila.
Glæsilegur
FNV dag-
ur í Fjöl-
brauta-
skólanum
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Verðlaunahafar. Frá vinstri Signý, Ragnheiður og Jónas.Sauðárkrókur
SUÐURNES
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA,
Guðni Ágústsson, afhenti í gær
fulltrúum skógræktarfélagsins
Skógfells og Fjáreigendafélags
Vatnsleysustrandarhrepps styrki
til að bæta aðgengi að skógrækt-
arsvæðinu á Háabjalla og til að
gera við Strandarrétt.
Skógfell hefur nýlega eignast
svæðið við Háabjalla sem er ofan
Reykjanesbrautar og í landi
Vatnsleysustrandarhrepps. Þar er
skógarlundur sem byrjað var að
planta í 1948 og í honum eru
hæstu tré á Suðurnesjum, þau
hæstu yfir 13 metrar. Við athöfn
á svæðinu í gær afhenti Guðni
Ágústsson Oktavíu J. Ragn-
arsdóttur, formanni Skógfells, 100
þúsund króna styrk frá ríkinu, en
peningarnir eru teknir af ráðstöf-
unarfé landbúnaðarráðherra.
Oktavía sagði að næg verkefni
væru þarna á svæðinu. Pening-
unum verður varið til að að bæta
aðgengi að því, meðal annars til
að loka fyrir bílaumferð sem spillt
hefur umhverfinu.
Af þessu tilefni gróðursetti
Guðni tvö tré á svæðinu og fengu
þau á staðnum nöfnin Oktavía og
Guðni.
Ráðherra afhenti Fjáreigenda-
félagi Vatnsleysustrandarhrepps
jafnháa fjárhæð í styrk frá ríkinu
til endurbóta á Strandarrétt.
Birgir Þórarinsson, forsvarsmaður
félagsins, segir að hrunið hafi úr
réttinni og sé hún ónothæf. Áhugi
sé á að endurbyggja réttina og
koma aftur á réttarstemningu til
að göfga mannlífið.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Oktavía, Guðni og Birgir á skógræktarsvæði Skógfells við Háabjalla.
Styrkja skógrækt og
uppbyggingu réttar
Vatnsleysuströnd
LIST- og handverkssýning verður
haldin í Íþróttamiðstöðinni við
Sunnubraut í Keflavík dagana 10. til
11. maí, ef næg þátttaka fæst. Skrán-
ing stendur yfir.
Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundasvið Reykjanesbæjar undirbýr
sýninguna en slík sýning var einnig
haldin á síðasta ári. Hugmyndin er að
fá alla þá sem vinna við listir og hand-
verk á Reykjanesi, íbúa í Reykja-
nesbæ, einstaklinga og félagasamtök,
Vogabúa, Grindvíkinga, Sandgerð-
inga, Garðbúa og einnig nágrannana
á Keflavíkurflugvelli til að sameinast
um eina stóra sölusýningu. Sýnendur
annars staðar af landinu eru vel-
komnir svo framarlega sem rými er
nægt en heimamenn verða látnir
ganga fyrir, segir í frétt á upplýsinga-
vef Reykjanesbæjar.
Hægt er að nálgast skráningarblöð
á upplýsingavef Reykjanesbæjar,
www.reykjanesbaer.is, og hjá menn-
ingarfulltrúa. Skráningu lýkur 15.
apríl nk.
List- og handverks-
sýning undirbúin
Keflavík
KARLAKÓR Keflavíkur heldur
tónleika í Bústaðakirkju í
Reykjavík í kvöld, fimmtudag,
klukkan 20.30. Kórinn syngur
síðan í Ytri-Njarðvíkurkirkju á
morgun, kl. 20.30, og eru það síð-
ustu skipulögðu tónleikar kórsins
á þessu vori.
Að vanda er efnisskrá kórsins
fjölbreytt, hún samanstendur af
íslenskum og erlendum alþýðu-
lögum.
Stjórnandi er Vilberg Viggós-
son. Undirleikari á píanó er Est-
er Ólafsdóttir og þar að auki
annast undirleik Ásgeir Gunn-
arsson á harmonikku, Þórólfur
Þórsson og Rebekka B. Björns-
dóttir á bassa.
Einsöngvarar á tónleikunum
eru Steinn Erlingsson barítón og
Haukur Ingimarsson tenór.
Syngja í Bústaðakirkju
Keflavík