Morgunblaðið - 10.04.2003, Síða 42
FRÉTTIR
42 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Biskup Íslands
auglýsir laust til umsóknar
embætti prests
í Seltjarnarnesprestakalli Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra í 50% starfshlutfalli frá 1. ágúst
2003.
Biskup skipar í embætti presta til fimm ára.
Óskað er eftir því að umsækjendur geri í
umsókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að
taka fram.
Umsóknarfrestur rennur út 23. apríl 2003.
Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Lögð er sérstök áhersla á hæfni og reynslu á
sviði æskulýðsstarfs.
Með vísan til jafnréttislaga eru konur, jafnt
sem karlar, hvattar til að sækja um ofangreint
embætti.
Allar nánari upplýsingar um embættið
er að finna á vef Þjóðkirkjunnar
http://www.kirkjan.is/biskupsstofa og
á Biskupsstofu.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
SUMARHÚS/LÓÐIR
Orlofshús/land
Félagasamtök óska eftir að kaupa nýtt eða
nýlegt orlofshús á Suður- eða Vesturlandi.
Æskilegt að rafmagn og hiti sé til staðar.
Tilboð skilist inn til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
23. apríl nk., merkt: „1958“.
TILKYNNINGAR
Mat á umhverfisáhrifum
— Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum
nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum:
Eldi á þorski í sjókvíum innan og utan við
Hauganes í Eyjafirði. Allt að 2.000 tonn
á ári.
Hringvegur, Borgarfjarðarbraut - Brekka,
Borgarbyggð.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
8. maí 2003.
Skipulagsstofnun.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur
í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur
þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um
leið af hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í
jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og
starfa í Hafnarfirði.
Auglýsing um afgreiðslu
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
á skipulagsáætlun
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar.
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, m.s.br., er hér með auglýst af-
greiðsla bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á eftirfarandi
skipulagsáætlunum:
Breyting á deiliskipulagi fyrir „Suðurhöfn“ vegna Ós-
eyrarbrautar 10B og 12B í Hafnarfirði. Breytingin var
samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 18. febrúar
2003, engar athugasemdir bárust. Auglýsing um gild-
istöku deiliskipulagsins verður birt í B-deild Stjórnartíð-
inda þann 10. apríl.
Breyting á deiliskipulagi fyrir „Kirkjugarðinn í Hafnar-
firði“ vegna lóðar fyrir dreifistöð við Kaldárselsveg.
Breytingin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann
21. janúar 2003, engar athugasemdir bárust. Auglýs-
ing um gildistöku deiliskipulagsins verður birt í B-deild
Stjórnartíðinda þann 10. apríl.
Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskipulagi Hafn-
arfjarðar á Strandgötu 8-10, 3. hæð, Hafnarfirði.
ÝMISLEGT
Ekta íkonar?
Yuri Bobrov, prófessor við Listaháskólann í
St. Pétursborg, metur íkona og ákvarðar upp-
runa þeirra og aldur í Morkinskinnu, Hvefisgötu
54, sunnudaginn 13. apríl frá kl. 13.00.
Upplýsingar í síma 551 7390 og 562 3390.
Stýrihópur verkefnisins Campylo-
bacteriosis — faraldsfræði og íhlutandi
aðgerðir, sem styrkt var af Rannís, boðar
málþing um
Campylobacter
faraldsfræði og íhlutandi aðgerðir
föstudaginn 11. apríl kl. 13:00—16:30
á Hótel Loftleiðum, sal 5.
Dagskrá:
13:00 Setning.
13:05 Ávarp: Siv Friðleifsdóttir,
umhverfisráðherra.
13:20 Eggert Gunnarsson, Tilraunastöð H.Í.
í meinafræði að Keldum: Útbreiðsla
Campylobacter í dýrum.
13:40 Franklín Georgsson, Umhverfisstofnun:
Campylobacter í matvælum og áhrif
frystingar á fjölda Campylobacter í
kjúklingum.
14:00 Hjördís Harðardóttir, sýklafræðideild
Landspítala-Háskólasjúkrahúss:
Campylobacter-sýkingar í mönnum.
14:20 Kaffi.
14:50 Jarle Reiersen, embætti yfirdýralæknis:
Campylobacter í kjúklingum —
íhlutandi aðgerðir.
15:10 Sigrún Guðmundsdóttir, Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins: Greining
Campylobacter með sameindafræði-
legum aðferðum.
15:40 Elín Guðmundsdóttir, Umhverfis-
stofnun: Samantekt.
16:00 Umræður.
Fundarstjóri: Karl Kristinsson.
Allir velkomnir — Ókeypis aðgangur.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 11 1834108 Bk.
Landsst. 6003041019 VIII GÞ
Í kvöld kl. 20.00
Lofgjörðarsamkoma.
Umsjón Fanney Sigurðardóttir
og Guðmundur Guðjónsson.
Einar Gíslason talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fimmtudagur 10. apríl
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Predikun: Freddy Filmore.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Dagskráin næstu viku:
Föstudagur 11. apríl
Opinn AA-fundur kl. 20.00.
Mánudagur 7. apríl
UNGSAM kl. 19.00.
www.samhjalp.is
I.O.O.F. 5 1834108 Vk.
ÞAÐ ER fremur fátt að frétta af
bökkum vatnanna í bili, en þó ber-
ast fregnir af „einhverri veiði“ á
helstu sjóbirtingsslóðum. Lítið er
þó stunduð veiðimennskan á sum-
um stöðum, t.d. í Geirlandsá. Morg-
unblaðið fregnaði þó af veiðimanni
sem fékk fimm bleikjur, 1–2 punda,
á aðeins klukkustund í Vífilsstaða-
vatni fyrir skömmu. Kom aflinn á
svokallaðan blóðorm, sem er rauð
púpa með kúluhaus.
Stangaveiðifélag Akureyrar
Nk. laugardag verður haldinn
undirbúningsfundur að stofnun
Stangaveiðifélags Akureyrar.
Fundurinn verður á Hótel KEA og
hefst klukkan 15. Að sögn Ragnars
Hólm Ragnarssonar, sem er hvata-
maður að fundi þessum, er tilgang-
urinn með stofnun félagsins að „efla
samkennd meðal veiðimanna á Ak-
ureyri, fá þá til að sameina krafta
sína í einu stóru félagi, stuðla að
auknu félagsstarfi meðal veiði-
manna, bæta umgengni við náttúr-
una, efla unglingastarf og horfa til
þess að taka á leigu veiðisvæði í ná-
inni framtíð,“ eins og hann kemst
að orði.
Fluguhátíð
Fluguhátíð verður í versluninni
Útivist og veiði í kvöld milli klukk-
an 20 og 23. Sams konar hátíð var
haldin í versluninni í fyrra, en ætl-
unin er að hafa hana árvissa. Bene-
dikt Ragnarsson, eigandi Útivistar
og veiði, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að mikil og góð mæting
hefði verið í fyrra og stemningin
eftir því, enda hefði þá, eins og nú,
verið boðið upp á fjölbreytta og
spennandi dagskrá. Á hátíðinni í
kvöld verða fluguhnýtingar, mynda-
sýningar, lifandi tónlist og vöru-
kynningar auk þess sem leiðsögu-
menn og sölumenn frá Lax-á verði
á staðnum til að svara fyrirspurn-
um.
Stangaveiði-
félag Akureyrar
að fæðast?
Ragnar Johansen, leigutaki Vatnamótanna í Skaftá, er hér með fallegan 75
sentimetra sjóbirting sem hann sleppti skömmu síðar.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?