Morgunblaðið - 10.04.2003, Page 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 43
Málþing um holdafar, líkams-
ástand, hreyfimynstur og lifn-
aðarhætti 9 ára barna í Reykjavík. Í
dag, 10. apríl, kl. 15 verða kynntar á
málþingi í Laugarnesskóla nið-
urstöður rannsóknar sem fræðimenn
frá Kennaraháskóla Íslands og Há-
skóla Íslands gerðu sl. haust í fjórum
grunnskólum í Reykjavík. Markmið
rannsóknarinnar var að kanna holda-
far, líkamsástand og líkamshreyf-
ingu, svo og íþróttaiðkun, tóm-
stundaiðkun, lífsvenjur og aðra
félagsfræðilega þætti sem tengjast
velferð 9 ára barna.
Spurningakeppni úr Biblíunni í
Suðurhlíðaskóla verður haldin í
dag, 10. apríl, kl. 16. Í keppninni
svara krakkar, á aldrinum 10–13 ára,
úr hinum ýmsu kirkjum spurningum
úr Biblíunni. Spyrill keppninnar er
Garðar Cortes og dómari er Hreiðar
Örn Stefánsson.
Allir eru velkomnir að koma og fylgj-
ast með krökkunum.
Aðalfundur Styrktarfélags Perth-
es-sjúkra verður haldinn í Sjálfs-
bjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykjavík,
í kvöld, 10. apríl, kl. 20 í Rauða saln-
um á 1. hæð, gengið inn að vest-
anverðu. Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf. Starfsemi félagsins
hefur um nokkurra ára skeið legið að
mestu niðri. Nokkrir einstaklingar
eru tilbúnir að setjast í stjórn félags-
ins fái þeir til þess stuðning, segir í
fréttatilkynningu. Allir velkomnir.
Fræðslufundur Keldna verður í dag,
10. apríl, kl. 12.20 í bókasafni Keldna,
í húsi 2. Fyrirlesari er Ólafur S.
Andrésson, líffræðingur á Keldum,
og ber erindi hans yfirskriftina
„Framleiðsla fjölketíðefna í ger-
sveppum“.
Fyrir þá sem ekki vita hvar Keldur
liggja má benda á kort á heimasíðu
Keldna.
Kynningarfundur um MBA-nám við
Háskóla Íslands verður haldinn í
dag, 10. apríl, kl. 8.30–10, í hátíðarsal
í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Á
kynningunni verður leitast við að
svara eftirfarandi spurningum: Hvert
er inntak MBA-námsins? Hver er
sérstaða þess? Hver er ávinning-
urinn?
Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála og Félag stjórnmála-
fræðinga, í samstarfi við sænska
sendiráðið á Íslandi standa fyrir síð-
degismálþingi í dag, 10. apríl, kl. 16–
18 í Lögbergi, stofu 101. Yfirskrift
þingsins er: „Leiðtogar, lýðræði og
stjórnmálaþátttaka – Eru stjórnmál
að verða áhorfendaíþrótt?“ Málþingið
er öllum opið og fer fram á ensku. Að-
alfyrirlesari verður Sören Holmberg
prófessor í stjórnmálafræði við há-
skólann í Gautaborg. Auk hans mun
Ólafur Þ. Harðarson prófessor flytja
erindi. Fundarstjóri verður Stefanía
Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur.
Í DAG
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar
heldur nemendasýningu laug-
ardaginn 12. apríl kl. 15–17, í
íþróttahúsi Hafnarfjarðar við
Strandgötu. Nemendur allt frá
þriggja ára aldri sýna dans og
verða sýndir samkvæmisdansar,
línudans, barnadansar, freestyle
og break. Verðlaun verða veitt 16
ára og yngri fyrir besta fótaburð-
inn í samkvæmisdönsum, einum
herra og einni dömu. Húsið opnað
kl. 14.45. Enginn aðgangseyrir og
eru allir velkomnir.
Dansíþróttafélagið býður nem-
endum upp á vornámskeið í maí
sem lýkur með óvissuferð. Sér
hópar verða fyrir byrjendur í sam-
kvæmisdönsum. Námskeiðið
stendur yfir í þrjár vikur og verð-
ur kennt tvisvar í viku. Innritun
og upplýsingar eru hjá Dans-
íþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Á NÆSTUNNI
Opið hús á Reykjalundi Í tilefni
Parkinsondagsins á morgun, 11. apr-
íl verður opið hús á Reykjalundi kl
13–15. Fræðsluerindi halda: Svava
Guðmundsdóttir iðjuþjálfi, Guðfinna
Björnsdóttir sjúkraþjálfari og El-
ísabet Arnardóttir talmeinafræð-
ingur. Boðið verður uppá kaffi og
meðlæti. Allir einstaklingar með
Parkinsonveiki og aðstandendur
þeirra velkomnir.
Samtökin ’78 halda fyrirlestur á
morgun, 11. apríl kl. 12, í stofu 101 í
Odda í Háskóla Íslands. Erindi held-
ur Dagný Kristjánsdóttir prófessor.
Að honum loknum gefst áheyr-
endum kostur á að bera fram spurn-
ingar og taka þátt í stuttum um-
ræðum. Fyrirlesturinn er í
samvinnu við félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands, Mannréttinda-
skrifstofu Íslands og FSS, Félag
samkynhneigðra og tvíkynhneigðra
stúdenta.
Tölvumiðstöð sparisjóðanna
heldur ráðstefnu á Grand Hótel á
morgun, 11. apríl frá kl. 10–17.
Fjallað verður um mál er tengjast
stjórnun viðskiptatengsla (CRM) og
framtíðarmál í fjármálaheiminum
eins og útibú framtíðarinnar, snjall-
kort og tæknimál fjármálafyrirtækja
í nánustu framtíð. Nánari upplýs-
ingar eru á heimasíðu Tölvu-
miðstöðvar sparisjóðanna www.-
tolvumidstod.is.
Fyrirlestur á sviði neytenda-
verndar verður haldinn á morgun,
11. apríl kl. 12.15–13.15, í stofu 101 í
Lögbergi. Fyrirlesturinn er á vegum
Lagastofnunar Háskóla Íslands þar
sem próf. dr. Bernhard Eccher frá
háskólanum í Innsbruck í Austurríki
mun flytja fyrirlestur á ensku og
fjalla um tilskipun 1999/44EC „um
tiltekna þætti í sölu neysluvara og
ábyrgð þar að lútandi“.
Hagsmunagæsla innan EES Utan-
ríkisráðuneytið stendur fyrir ráð-
stefnu um betri og markvissari hags-
munagæslu innan Evrópska
efnahagsvæðisins (EES). Ráð-
stefnan verður haldin á morgun, 11.
apríl kl. 13, í utanríksráðuneytinu.
Markmið ráðstefnunnar er að kynna
þær aðferðir sem einstakir hópar
beita við að koma málefnum sínum á
framfæri innan Evrópusambands-
ins. Þátttökugjald er kr. 12.500 og
fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Þátttöku má staðfesta á netfangið
asta.rut.jonasdottir@utn.stjr.is.
Songkran hátíð Taílensk-íslenska
félagsins verður haldin á Broad-
way, Hótel Íslandi á morgun, 11 apr-
íl kl. 19. Boðið er uppá fimm rétta
taílenska máltíð. Skemmtiatriði þar
sem taílenskur dans og söngur verð-
ur í fyrirrúmi. Happdrætti, m.a. í
vinning ferð fyrir tvo, til áfanga-
staðar Flugleiða í Evrópu að eigin
vali og ferð fyrir tvo til London eða
Kaupmannahafnar með Iceland Ex-
press. Verð miða er kr. 2.500. Upp-
lýsingar í miðasölu Broadway.
Alþjóðlegi Parkinsondagurinn er
á morgun, 11. apríl. Af því tilefni
boða Parkinsonsamtökin á Íslandi til
móttöku kl. 15–17 í húsnæði samtak-
anna að Hátúni 10 B, 9. hæð. M.a.
verður leikið á gítar og lesið úr bók-
inni „Heilbrigði býr í huganum“ eftir
danska sálfræðinginn Svend And-
ersen sem kemur út á íslensku hjá
samtökunum innan skamms. Park-
insonsamtökin eru hagsmunasamtök
Parkinsonsjúklinga og aðstandenda
þeirra. Félagsmenn, velunnarar og
aðrir sem áhuga hafa á málefnum
samtakanna eru velkomnir.
Á MORGUN
Verk eignað röngum listamanni
Ekki var rétt farið með nafn lista-
manns í blaðinu á laugardag undir
mynd af verki sem sýnt er í Galleríi
Skugga um þessar mundir. Verkið er
eftir Kristínu Pálmadóttur. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Röng höfundarmynd
Röng mynd birtist
með grein Guðmundar
Þorsteinssonar, kúa-
bónda á Skálpastöðum, í
blaðinu í gær.
Um leið og rétt mynd
er birt biðst Morgun-
blaðið velvirðingar á mistökunum.
Nafn dómara féll niður
Nafn eins dómaranna í keppninni
um Íslandsmeistara matreiðslu-
meistara féll niður í frétt blaðsins um
úrslit keppninnar. Nafn hans er
Friðrik Valur Karlsson sem starfar á
veitingastaðnum Friðrik V. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Leiðrétting höfunda vegna
mistaka við birtingu
greinarinnar „Megrun með
Atkins – kúr eða lífsstíll?“
Leið mistök urðu við birtingu
greinar okkar „Megrun með Atkins –
kúr eða lífsstíll?“ í Morgunblaðinu
hinn 9. apríl. Inntak greinarinnar
breyttist í meðförum blaðsins, þar
sem setningabrot var tekið úr sam-
hengi, því breytt lítillega og það jafn-
framt feitletrað. Með því móti
breyttust áhersluatriði greinarinnar
gjörsamlega. Eins varð misritun í
titli greinarinnar. Þeir sem lásu alla
greinina sáu hins vegar að þar var
lögð áhersla á að Atkins-kúrinn er
fyrst og fremst strangur og einhæfur
megrunarkúr en getur ekki talist
heilbrigður lífsstíll. Þar er bent á að
einstrengingslegir megrunarkúrar á
borð við Atkins-kúrinn geti komið
sumum að gagni, og þá einkum þeim
sem eiga við mikla offitu að stríða. Þá
skiptir máli að fólk sé stutt til að við-
halda árangri með heilsusamlegra
mataræði þegar fram í sækir. Offita
er alvarlegur heilsuvandi og þeir sem
eru tugum kílóa of þungir þurfa að-
stoð og stuðning til að sigrast á mat-
arfíkninni ekki síður en þeir sem eru
haldnir annars konar fíkn. Í því efni
duga sjaldnast einföld ráð eða hvatn-
ing um heilbrigðan lífsstíl. Þar skipt-
ir mestu máli að ná tökum á ofneysl-
unni með öllum tiltækum ráðum og
er engin ein leið réttari að því marki.
Vandi alls þorra þjóðarinnar sem
hefur verið að þyngjast smám saman
síðustu ár er hins vegar af allt öðrum
toga. Þar geta einfaldar breytingar á
lífsháttum og venjum gert gæfumun-
inn, og þar eiga öfgakenndir megr-
unarkúrar á borð við Atkins-kúrinn
ekkert erindi. Dagleg hreyfing, regla
á máltíðum og hollur matur, þar sem
skammtastærð, fitu og sykri er stillt í
hóf, er tvímælalaust ákjósanlegasta
leiðin til að hemja þyngdina fyrir
flesta.
Laufey Steingrímsdóttir,
forstöðumaður Manneldisráðs,
Sigurður Guðmundsson,
landlæknir.
LEIÐRÉTT
Verk eftir Kristínu Pálmadóttur í
Galleríi Skugga.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Grétar Kjartansson
sölumaður - sími 696 1126
EFTIRTALDAR EIGNIR
ÓSKAST
Ég hef verið beðinn um að útvega fyrir
fjársterkan aðila sérbýli/sérhæð miðsvæðis
í Reykjavík, verð allt að 25,0 millj. Einnig
vantar raðhús eða einbýli í Fosssvogi fyrir
tvo aðra kaupendur, verð frá 25-35 millj.
Um er að ræða trausta kaupendur sem
geta gefið langan afhendingartíma.
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband
við mig í síma 696 1126.
Hafðu samband - það kostar ekkert
!"! ##$ "
%!"!&'()* ##*&++,"-"
#."%/!0%! $+122) *
EXPRESSIONIST
SJÁANLEGA FALLEGRI HÚÐ - DREGUR ÚR
ÁHERSLULÍNUM
Vísindaleg áskorun: nýjasta tækni sem er notuð í lýtaaðgerðum,
til að draga úr áherslulínum og koma í veg fyrir að þær verði
dýpri, var innblásturinn að þessari nýjung.
Kynning í dag og á morgun föstudag.
Sérfræðingur frá Helena Rubinstein ráðleggur um val á
snyrtivörum. Kynntar verða nýjar vörur:
Nýtt krem, vorlitirnir, nýir geislandi varalitir o.fl.
Glæsilegir kaupaukar.
Strandgötu 32,
Hafnarfirði, sími 555 2615.
DRAUMKENND FEGURÐ
www.helenarubinstein.com
Dregur úr áherslulínum án inngrips
NÝTT
alltaf á föstudögum
Frambjóðendafundur í Háskól-
anum á Akureyri. Stjórn Arco Iris
félags stúdenta við Háskólann á Ak-
ureyri efnir til fundar með ungum
frambjóðendum í dag, fimmtudaginn
10. apríl kl. 16, í stofu L203 í HA.
Frambjóðendurnir, Bergur Guð-
mundsson af D-lista, Brynjar Sindri
Sigurðarson F-lista, Dagný Jóns-
dóttir B-lista, Hlynur Hallsson U-
lista og Lára Stefánsdóttir S-lista,
flytja stuttar framsögur og svara
spurningum.
Ný heimasíða Sambands ungra
framsóknarmanna, www.suf.is,
hefur verið opnuð. Vefnum er ætlað
að vera frétta- og upplýsingamiðill
fyrir unga framsóknarmenn, auk
þess að endurspegla stefnu og mark-
mið samtakanna. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður síðunnar verður
Sigfús Ingi Sigfússon en um reglu-
leg frétta- og greinaskrif munu ung-
ir framsóknarmenn sjá um.
STJÓRNMÁL