Morgunblaðið - 10.04.2003, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
$% &
' '
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞAÐ hvarflar óneitanlega að manni
þegar gengið er um götur höfuð-
borgar Íslendinga að maður sé
staddur á ein-
hverri breiðgötu í
stórborg erlend-
is, jafnvel á stór-
markaði, þar sem
auglýsingarnar
æpa á mann með
allskonar erlend-
um slagorðum!
En við erum nú
einu sinni stödd á
Íslandi og að
hverjum er þeim
þá beint og til hverra eiga þær að
höfða, en þær eru oftast á erlendu
máli, aðallega ensku.
Okkar ástsæli þulur til margra
ára, sá þjóðholli maður Pétur Pét-
ursson, fjallar um þessi slæmu er-
lendu áhrif í blaðagrein og varar ein-
dregið við þeim sem óheillaþróun og
að við verðum að halda vöku okkar
ef hún á ekki að skaða tungu okkar,
sjálfstæði og þjóðerni!
Hér er um að ræða erlendar
óæskilegar nafngiftir á verslunum
og fyrirtækjum, sem ég ætla ekki að
tíunda, þær blasa við öllum hvert
sem litið er. Þá færist það sífellt í
aukana að reynt er að þröngva upp á
okkur erlendum siðum og siðvenj-
um, sérstaklega bandarískum. Og í
seinni tíð er mikill þrýstingur á að
við göngum í Evrópusambandið, það
mikla bákn sérhagsmunaríkja, sem
hafa það eitt að markmiði að smeigja
sér inná fiskveiðisvæði okkar og
landhelgi. Þarna er vegið að fjöreggi
og um leið sjálfstæði okkar Íslend-
inga en sjávarútvegurinn er og verð-
ur grundvöllurinn að tilveru okkar
og efnahagslegu sjálfstæði!
Annar kunnur og þjóðhollur Ís-
lendingur, Jóhannes R. Snorrason
fyrrv. flugstjóri, hefur í ræðu og riti
varað eindregið við að Íslendingar
gangi í Evrópusambandið og færir
fyrir því mörg rök sem felast í
mörgu af því sem greint er hér að
framan.
Að síðustu er svo það sem er að
gerast á vettvangi heimsmálanna og
snertir hernaðarátökin í Írak. Það er
óneitanlega óvænt og sorglegt að
okkur Íslendingum skuli berast þær
fréttir frá Bandaríkjunum að við
séum í hópi þjóða sem styðja hern-
aðarátökin í Írak en allur þorri þjóð-
arinnar sem ávallt hefur verið frið-
elskandi er algjörlega á móti hernaði
og að vera bendlaður við slíkt.
GUÐMUNDUR J.
MIKAELSSON,
ellilífeyrisþegi.
Er þjóðhollusta
og þjóðerniskennd
á undanhaldi?
Frá Guðmundi J. Mikaelssyni:
Guðmundur J.
Mikaelsson
SÚ STAÐHÆFING hefur mjög ver-
ið í tízku að undanförnu, bæði í blöð-
um og ljósvakafjölmiðlum, að það sé
hræsni af Bandaríkjamönnum að
hneykslast yfir vígvæðingu og hern-
aðarstefnu Íraksforseta, af því að það
hafi verið Bandaríkjamenn sjálfu
sem seldu honum vopnin. Þau geti
því sjálfum sér um kennt, ef þessar
vopnabirgðir hafi orðið að vandamáli
sem ógnaði nágrannalöndunum.
Í bréfi frá prófessor Andrew J.
Hamilton í London í The Times 14.
marz kemur fram að þessi fullyrðing
á ekki við rök að styðjast. Heimild
hans er skýrsla A.H. Cordesmans ár-
ið 1998 fyrir hina virtu stofnun Cent-
er for Strategic and International
Studies (CSIS).
Allt tímabilið 1973–1991, þ.e. fram
til þess að innrás Íraka í Kúveit var
hrundið, fluttu Bandaríkin út vopn
fyrir fimm milljónir dollara til Íraks,
sem er sáralítið miðað við það sem
Bretar gerðu á sama tíma: fyrir 330
milljónir dala. Hitt vekur þó sýnu
meiri athygli að fjögur lönd, sem hafa
ýft sig upp gegn innrás í Írak nú,
höfðu öll staðið í stórfelldri vopnasölu
þangað á nefndu 18 ára tímabili:
Þýzkaland seldi þangað vopn fyrir
995 milljónir dala, Kína fyrir 5.500
millj. dala, Frakkland fyrir 9.240
millj. dala (28 -falt á við Bandaríkin!)
og Sovétríkin fyrir hvorki meira né
minna en 31.800 milljónir dollara!
Því segir Hamilton, að „þeirri full-
yrðingu að við fengum Saddam vopn-
in í hendur verði að taka með gát, en
sérstaklega ættu þeir að gera það,
sem telja að leiðtogar Þýzkalands,
Frakklands og Rússlands hafi sið-
ferðislega yfirburði í því deilumáli“
sem allur heimurinn hefur fylgzt með
á vettvangi SÞ.
Hér má skjóta því inn í, að Chalabi,
leiðtogi Íraska þjóðarráðsins (útlaga-
samtaka), segir að það hafi verið
Þjóðverjar sem útveguðu Saddam
efnavopn á 9. áratugnum og að gömlu
vinstrimennirnir á valdastólunum í
Þýzkalandi séu því að reyna að
hreinsa samvizku sína með andstöðu
sinni við stríðið, en á kostnað Íraka,
sem vilji að Bandaríkin losi þá við
Saddam (The Observer, 16. febr.).
Hver upptökin átti að þessum
grófa áburði á hendur Bandaríkjun-
um, kemur ekki fram í skrifi Hamil-
tons. Eitt er víst, að hin upplogna
„röksemd“ á eftir að bergmála í
skrafi manna eins og annað skaðsem-
isbull sem skammsýnir menn ala á
hér í heimi.
En á þessu þrífst sú andúð á
Bandaríkjunum, sem hefur verið
hindrun fyrir því að við Vesturlanda-
menn tækjum skynsamlega afstöðu
með okkar eigin öryggi og Miðaust-
urlanda, að ógleymdum mannrétt-
indum hinnar kúguðu Íraksþjóðar.
JÓN VALUR JENSSON,
cand. theol.
Var Saddam vopnvædd-
ur af Bandaríkjunum?
Frá Jóni Vali Jenssyni: