Morgunblaðið - 10.04.2003, Síða 46
DAGBÓK
46 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ak-
ureyrin kemur og fer í
dag. Helgafell, Áskell
og Dettifoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Vasiliy Zaytsev og Vit-
jas koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Páska-
bingó kl. 14 á morgun.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 9–12.30 bókband og
öskjugerð, kl. 9.45–10
helgistund, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13–16.30 opin smíða
og handavinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna,kl. 13 bók-
band, kl. 14–15 dans.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós. Kl.
13 tréskurður, kl. 14
bókasafnið, kl. 15–16
bókaspjall, kl. 17–19
æfing kór eldri borg-
ara í Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 íkonagerð, kl. 10–
13, verslunin opin, kl.
13–16 spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 opin
handavinnustofa, kl. 14
söngstund.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 13.30 söngtími.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 10.30 guðs-
þjónusta, prestur sr.
Kristín Pálsdóttir.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 20 Vor-
fagnaður í Kirkjuhvoli
í umsjá Oddfellow í
Garðabæ. Rútuferðir
frá Álftanesi, Hleinum
og Holtsbúð kl. 19.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Glerlist
kl. 13 bingó kl. 13.30,
kvöldvaka í boði Lions
kl. 20.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Gerðuberg, félagsstarf
Kl. 10.30 helgistund,
frá hádegi spilasalur
opinn.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handavinnu-
stofan opin, kl. 13
brids.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.05 og 9.50 og
kl. 10.50 leikfimi, kl.
9.30 klippimyndir, kl.
12.30 vefnaður, kl. 13
gler og postulíns-
málun, kl. 14. nem-
endur úr Snælands-
skóla syngja undir
stjórn Heiðrúnar Há-
konardóttur, kl. 17
myndlist, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og perlu-
saumur, og hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 9.05 leikfimi, kl.
10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 bútasaumur, kl. 10
boccia, kl.13 handa-
vinna, 13.30 félagsvist.
Korpúlfar, Graf-
arvogi, hittast á
fimmtudögum kl. 10,
aðra hverja viku er
púttað á Korpúlfs-
stöðum en hina vikuna
er keila í Keilu í
Mjódd.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa
og tréskurður, kl. 13–
16.45 leir, kl. 10–11
ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
15.30, handavinna, kl.
10–11 boccia, kl. 10.15–
11.45 enska, kl. 13–14
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing og mósaik. Á
morgun kl.15 kemur
Guðrún Ögmunds-
dóttir alþingismaður í
heimsókn.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9. 30 gler-
skurður og morg-
unstund, kl. 10 boccia
æfing, kl. 13 hand-
mennt og spilað. Fé-
lagsvist kl. 20.
ÍAK, Leikfimi kl. 11.15
í Digraneskirkju.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12. Kl.
19.30 tafl.
Kristniboðsfélag
Kvenna, Háaleit-
isbraut 58–60. Bibl-
íulestur kl. 17 í umsjá
Skúla Svavarssonar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13. Skrán-
ing kl. 12.45.
Safnaðarfélag Ás-
kirkju. Páskaeggja-
bingó verður 11. apríl
kl. 20 í safnaðarheim-
ilinu.
Barðstrendinga-
félagið heldur
skemmtun, félagsvist
og dansleik, í Breið-
firðingabúð 12. apríl.
Félagsvistin hefst kl.
20.30.
Kvenfélag Kópavogs.
Fundur verður 10. apr-
íl kl. 20 í Hamraborg
10. Páskaföndur
Kvenfélagið Seltjörn.
Kökusala verður 12.
apríl, frá kl. 10 á Eið-
istorgi, Seltjarnarnesi.
Í dag er fimmtudagur 10. apríl,
100. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Ég hefi elskað yður,
eins og faðirinn hefur elskað mig.
Verið stöðugir í elsku minni.
(Jóh. 15, 9.) Bolli Skúlason Thor-oddsen lýsir yfir
óánægju með skipan líf-
eyrismála í pistli á deigl-
an.com. Honum þykir
ekki við hæfi, að eig-
endur lífeyris í landinu
skuli ekki geta haft
áhrif á stjórnun sjóð-
anna.
Þeir sem borga í líf-eyrissjóði, sem rekn-
ir eru af samtökum
launafólks og atvinnu-
rekenda, geta engin
áhrif haft á stjórnun
þeirra,“ segir Bolli.
„Ævisparnaður flestra
landsmanna liggur ann-
ars vegar í eigin íbúðar-
húsnæði, en hins vegar í
inneign í þessum lífeyr-
issjóðum. Saman eiga
landsmenn hundruð
milljarða í lífeyris-
sjóðum, en þeir hafa
engin áhrif á meðferð
eða vörslu þess fjár.
Lífeyrissjóðirnir eruumsvifamiklir á
hluta- og verðbréfa-
mörkuðum hér á landi
og þeim ráðstöfunum
fylgja gífurleg völd en
líka mikil ábyrgð. Frétt-
ir í dagblöðum undan-
farna mánuði sýna að
margir sjóðir hafa tapað
stórfé á fjárfestingum
liðinna ára. Ekki hefur
þó farið mikið fyrir
fréttum af því að stjórn-
endur sjóðanna séu látn-
ir axla ábyrgð á því tapi.
Ábyrgðina axla hinir
áhrifalausu sjóðsfélagar,
því tapið hlýtur að tak-
marka getu lífeyrissjóð-
anna til að greiða þeim
lífeyri þegar fram í sæk-
ir. Ennfremur sýna
fréttir af átökum um
stórfyrirtæki landsins að
þar eru fulltrúar lífeyr-
issjóða orðnir áhrifa-
miklir aðilar.
Pétur Blöndal þing-maður Sjálfstæðis-
flokksins hefur löngum
barist fyrir því að al-
mennir sjóðsfélagar
kjósi stjórnir lífeyris-
sjóðanna, en í dag eru
það samtök atvinnurek-
enda og launþega í sam-
einingu.
Nú hafa þau tíðindi
gerst, fyrst á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins og
viku síðar á vorþingi
Samfylkingarinnar, að
tveir af áhrifamestu
þingmönnum þessara
flokka, þau Geir H.
Haarde og Jóhanna Sig-
urðardóttir, hafa bæði
lýst því yfir í fyrir-
spurnartímum þinganna
að þau muni beita sér
fyrir því að sjóðsfélagar
fái aukin áhrif á stjórn
lífeyrissjóða.
Þetta eru stórtíðindi,því annar hvor þess-
ara einstaklinga, ef ekki
báðir, eru líklegir til að
verða áhrifamiklir ráð-
herrar í næstu ríkis-
stjórn. Aukið lýðræði í
vali á stjórnum lífeyris-
sjóða er eitt helsta rétt-
lætismál okkar tíma. Að
örfáir einstaklingar ráði
ævisparnaði þjóðarinnar
án hennar eigin afskipta
samræmist ekki nútíma-
lýðræðiskröfum.“
STAKSTEINAR
Eiga félagar að hafa
meiri áhrif innan
lífeyrissjóða?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er einn af þessumóheppnu mönnum sem passa
ekki í buxur. Eða öllu heldur, bux-
urnar passa ekki á hann, a.m.k.
ekki eins og þær koma frá fram-
leiðanda. Það bregst varla að þegar
Víkverji mátar buxur þá eru þær
ýmist of síðar eða of stuttar og þarf
hann næstum alltaf að láta laga
þær til með tilheyrandi kostnaði.
Breyting á buxunum kostar hátt í
1.000 krónur og munar nú um
minna. Verð á tískubuxum eins og
Víkverji vill ganga í er sjaldan
lægra en um 9.000 krónur þannig
að vaxtarlag Víkverja veldur því að
hann greiðir oft rúmlega 10%
hærra verð fyrir buxur en þeir sem
passa í þær. Þetta er auðvitað
hróplegt óréttlæti og í rauninni
óskiljanlegt að einhver stjórn-
málaflokkanna hafi ekki lofað að
rétta hlut þessa minnihlutahóps,
„þeirra sem passa ekki í buxur“, í
samfélaginu. t.d. með einhvers kon-
ar skattaívilnun. Það er ekki nóg
með að buxurnar passi ekki heldur
glímir Víkverji við annað hvimleitt
vandamál sem lýtur að fatainn-
kaupum. Hann gerir nefnilega
ótrúlega oft mistök við innkaupin.
En auðvitað áttar hann sig ekki á
mistökunum fyrr en hann er búinn
að ganga í flíkinni nokkrum sinnum
og of seint orðið að skila. Mistökin
felast fyrst og fremst í því að
kaupa of stórar flíkur, aðallega boli
en buxur koma líka æði oft við
sögu. Dæmi eru um að Víkverji
hafi keypt buxur, fundist þær of
stórar þegar heim var komið, skil-
að þeim og fengið aðrar. En síðan
fundist nýju buxurnar of stórar
líka og skilað þeim og í þriðju til-
raun loksins rambað á réttu stærð-
ina. Að sjálfsögðu þurfti að stytta
en þær pössuðu þó a.m.k. í mittið.
Þeir eru síðan ófáir stutt-
ermabolirnir sem eru a.m.k. einu
númeri of stórir og hafa lengi feng-
ið að hvíla ónotaðir í kommóðunni.
Víkverji áttar sig ekki á ástæðunni
fyrir þessari áráttu sinni að kaupa
vitlausar stærðir. Hann afskrifar á
hinn bóginn með öllu þá skýringu
kunningja síns að þetta sé merki
um minnimáttarkennd vegna þess
að Víkverji sé ekki ýkja hár í loft-
inu. Það er í fyrsta lagi ekki rétt að
Víkverji sé lágvaxinn.
x x x
VÍKVERJI las með athygli frá-sögn af málþingi sem haldið
var í Réttarholtsskóla fyrir
skömmu. Þar ræddu unglingar um
ýmsar augljósar mótsagnir í lögum
og reglum varðandi réttindi og
skyldur ungs fólks. Einn fund-
armanna benti á að unglingar undir
18 ára aldri borguðu skatt en hefðu
á hinn bóginn ekki kosningarétt og
gætu því ekki haft áhrif á í hvað
peningarnir væru notaðir. Ann-
aðhvort ætti að fella niður skattinn
eða gefa þeim hlut í kosningarétti.
Þetta er auðvitað hárrétt ábending.
Samhljóða krafa, lögráða manna
þó, átti stóran þátt í að hrinda af
stað byltingu í Bandaríkjunum árið
1775. Það er bara að vona að
stjórnmálamenn átti sig áður en
kemur til þess.
Morgunblaðið/Jim Smart
Buxurnar
passa örugg-
lega ekki og
sjálfsagt er
bolurinn of
stór.
ENGINN hefur reiknað út
hvað gróði hinna ríku kost-
ar. En því fleiri útreikning-
ar hafa birst um kostnað
vegna aflagningar skatta af
fátækum, þ.e. hækkun
skattfrelsismarka. Minnir
það helst á búreikninga þar
sem bændur reikna út
kostnað við ásetningu bú-
fjár.
Allir eru þessir útreikn-
ingar rangir því að þeir
mæla einungis kostnaðinn.
Auknar tekjur fátækra eru
ekki bara kostnaður. Ef
manni eru greiddar 74 þús.
kr. í laun kaupir hann ekk-
ert. Fái hann hins vegar 150
þús. á mánuði þá kaupir
hann, eykur veltuna í þjóð-
félaginu og greiðir virðis-
aukaskatt af því sem hann
kaupir. Hann leggur til
samfélagsins eins og aðrir.
Þá er sagt að engin skatt-
frelsismörk séu í nágranna-
löndum. Þetta er villandi
því yfirleitt er þar fjöl-
þrepakerfi sem gegnir
sama hlutverki. Þar eru
tekjurnar yfirleitt hærri og
þar er félagslegt húsnæðis-
kerfi og öflugur leigumark-
aður sem lýtur lögum sem
vernda fólk. Þar er fólk ekki
skyldað til að gerast skulda-
þrælar. Hér er vinnudagur
kvæntra karla um 98 stund-
ir á viku og 1/3 launanna fer
bara í vexti. Og það kalla
menn góðæri.
Ég heyri frambjóðendur
sjaldan ræða skuldirnar
sem þó eru eitt stærsta
vandamálið í þjóðfélaginu
enda fylgja skuldunum
skattar. Prófessor Þorvald-
ur Gylfason hefur ritað um
það efni af skynsemi. Af-
nám skuldsetninga er því
ekki síður kjaramál en
lækkun skatta.
Ég fagna því að lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins
ályktaði um nauðsynlega
uppbyggingu leigu-
markaðar.
Jón Kjartansson
frá Pálmholti.
Þakklæti til BSR
ÉG vil senda bílstjórum og
starfsfólki leigubílastöðvar-
innar BSR þakklæti mitt.
Ég lenti í slysi og þarf
vegna þess að fara í sjúkra-
þjálfun tvisvar í viku. Bíl-
stjórarnir á BSR keyra mig
þangað og eru þeir einstak-
lega liðlegir og leiða mig inn
og vilja allt fyrir mig gera.
Kærar þakkir,
Magnea Þórarinsdóttir.
Messan sem gleymdist
Í VELVAKANDA sl. laug-
ardag var pistill um mess-
una sem gleymdist. Er ég
hjartanlega sammála
pistlahöfundi. Ég var ekki
hrifin af messunni sem var
útvarpað frá Sandgerði og
veit ég að það voru margir
ákaflega hneykslaðir á
þessari messu.
Anna.
Tapað/fundið
Gleraugu týndust
SVÖRT DG kassagleraugu,
kvenmanns, týndust sl.
fimmtudagskvöld, líklega
við Austurvöll. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
867 0722.
Frakki tekinn
í misgripum
FRAKKI var tekinn í mis-
gripum í Golfskálanum í
Grafarvogi sl. laugardags-
kvöld. Í frakkanum var m.a.
sími, lyklakippa o.fl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 565 1297.
Peningaveski týndist
GRÆNT peningaveski með
sebrastrípum týndist sl.
föstudag á Grensásvegi eða
Sogavegi. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
661 8022.
Dýrahald
Stjóri er týndur
STJÓRI, sem er hvítur
fress með svört eyru og
svarta flekki á baki, hvarf
frá Klettagörðum 1 fimmtu-
daginn 3. apríl sl. Þeir sem
vita um afdrif hans eru vin-
samlegast beðnir að hafa
samband við Sendibílastöð-
ina í síma 553 5050.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Skattar
og skuldir
Morgunblaðið/Golli
LÁRÉTT
1 skólasveinninn, 8 lag-
hent, 9 fjöldi, 10 tek, 11
ganga þyngslalega, 13
sleifin, 15 högni, 18
lægja, 21 legil, 22 námu,
23 áana, 24 rangla.
LÓÐRÉTT
2 brýna, 3 örlög, 4 myrk-
ur, 5 snaga, 6 rekald, 7
heiðurinn, 12 stelpu-
trippi, 14 reyfi, 15 jörð,
16 skynfæra, 17 örlaga-
gyðja, 18 syllu, 19 klamp-
ans, 20 einkenni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 háátt, 4 hafna, 7 dubba, 8 úlfúð, 9 fet, 11 sótt,
13 ásar, 14 útlát, 15 horn, 17 trog, 20 err, 22 fúsum, 23
örlát, 24 remma, 25 dunur.
Lóðrétt: 1 hadds, 2 árbít, 3 traf, 4 hrút, 5 fífls, 6 auður,
10 eflir, 12 tún, 13 átt, 15 háfur, 16 rósum, 18 rolan, 19
gítar, 20 emja, 21 rödd.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16