Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 47
DAGBÓK
Vorið nálgast óðfluga í Remedíu
Nýlent stór skósending
Sendum í
póstkröfu.
SJÚKRAVÖRUR EHF. Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen, sími 553 6511.
Ný gerð af
dúnmjúkum klossum.
Hinar sívinsælu
heilsubætandi mokkasínur
í hvítu, beige og svörtu.
Einnig svartar í extrabreidd.
Einstakir reimalausir
fjaðurvigtar íþróttaskór.
Einnig eigum við úrval
af þýskum, handunnum
sandölum.
TILBOÐ
15% afsláttur
á Samson og Delilah
flugsokkum.
20% afsláttur
af frábærum aðhalds-
sokkum frá FUTURO.
20% afsláttur
af Aloa Vera fótakremi
við fótapirringi.
Hlíða- og
Holtahverfi
Kosningaskrifstofa sjálfstæðismanna í
Hlíða- og Holtahverfi verður opnuð í dag,
fimmtudaginn 10. apríl kl. 20.00.
Skrifstofan er að Lönguhlíð 70 á horni
Miklubrautar og Lönguhlíðar.
X-D bandið spilar, blöðrur og kaffiveitingar.
Allir velkomnir, stjórnin
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
hugrakkt og næstum því fífl-
djarft. Það stendur fast á
sínu en forðast þó árekstra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Varastu að eyða of miklum
fjármunum í nautnir og aðra
skemmtan í dag. Þér hættir
til að fara yfir strikið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Passaðu þig á að lofa ekki
upp í ermina, síst fjölskyld-
unni. Þú gætir þurft að
kyngja meiru en þú ræður
við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Áhrifavaldur þinn Merkúr er
undir miklum krafti frá Júp-
iter í dag og vegna þess kann
þér að hætta til að bjóða öllu
byrginn, þótt þú sért ekki
maður til þess.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu vini þína ekki eggja þig
til eyðslusemi. Að upplagi
ertu sparsamur og nýtinn og
færð alltaf peninganna virði.
Láttu það duga þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir hlaupið á þig í
ákefðinni í að ganga í augun á
fyrirmennum. Viltu nokkuð
sitja eftir með sárt enni á
morgun?
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ferðalög er upplagt að skipu-
leggja í dag en þær áætlanir
geta þó átt eftir að breytast,
heimurinn verður annar á
morgun en hann er í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ætlastu ekki til of mikils af
vinum þínum í dag, nú er ekki
rétti tíminn til lántöku, allra
síst peninga. Vellíðan þín
gæti leitt þig út í gjörninga
sem þú iðrast síðar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert bjartsýn(n) og jákvæð
(ur) í dag. Þú vilt helst gera
langtímaáætlanir og setja
þér markmið í dag. Spenntu
bogann bara ekki of hátt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú er bjartsýnismaður að
eðlisfari og ef þú ætlar að
áætla fram í tímann í dag
skaltu ekki gleyma smáatrið-
unum. Þér hættir of mikið til
að hugsa í heildum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Rómantíkin blómstrar um
þessar mundir. Þér finnst þú
aðlaðandi en gangi einhver
sambönd ekki upp þá próf-
arðu bara einhver ný.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Viðræður við fjölskyldu-
meðlimi eru einkar hvetjandi
og gleðigefandi í dag. Það er
gott og jákvæðni er alltaf til
bóta.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð tækifæri til að auka
tekjur þínar í dag, en að sama
skapi hættir þér til að eyða
umfram efni. Reyndu að fara
meðalveginn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KRUMMAVÍSUR
Krummi svaf í kletta gjá, –
kaldri vetrar nóttu á,
verður margt að meini;
fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
undan stórum steini.
Allt er frosið úti gor,
ekkert fæst við ströndu mor,
svengd er metti mína;
ef að húsum heim ég fer,
heimafrakkur bannar mér
seppi’ úr sorpi’ að tína.
Öll er þakin ísi jörð,
ekki séð á holta börð
fleygir fuglar geta;
en þó leiti út um mó,
auða hvergi lítur tó;
hvað á hrafn að éta?
Á sér krummi ýfði stél,
einnig brýndi gogginn vel,
flaug úr fjalla gjótum;
lítur yfir byggð og bú,
á bæjum fyrr en vakna hjú;
veifar vængjum skjótum.
Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá,
fyrrum frár á velli.
„Krúnk, krúnk! nafnar, komið hér!
krúnk, krúnk! því oss búin er
krás á köldu svelli.
Jón Thoroddsen
LJÓÐABROT
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5
4. Rf3 Rc6 5. Bc4 Rb6 6.
Bb3 c4 7. Bc2 Dc7 8. De2
g5 9. h3 Bg7 10. O-O Rxe5
11. Rxg5 h6 12. Rf3 Rg6 13.
He1 Bf6 14. d4 d6 15. a4
Hg8 16. a5 Rd5 17. De4
Be6 18. Bxh6 O-O-O 19. a6
Hh8 20. Rg5 Bxg5 21. Bxg5
Hdg8 22. Rd2 b5 23. Rf3
Hh5 24. Kf1 Rf8 25. Bc1
Dd7 26. Rg1 Rh7 27. Df3
Rhf6 28. b3 cxb3 29. Bxb3
Hf5 30. Dd3
Staðan kom upp á Dos
Hermanas mótinu
sem lauk fyrir
skömmu á Spáni.
Skærasta stjarna
heimamanna, Franc-
isco Vallejo Pons
(2629) hafði svart
gegn Sergei Tivja-
kov (2635). 30...
Re3+! Eftir þetta
verða hvítu reitirnir
of veikir hjá hvítum
til að kóngsstaðan
hans þoli það til
lengdar. 31. Dxe3
Bxb3 32. f3 Bc4+
33. Kf2 e6 34. Dh6
Dd8 35. Dd2 Rh5 36. He4
d5 37. Hg4 Hxg4 38. hxg4
Dh4+ 39. Ke3 Rg3 40. Df2
Rf1+ 41. Dxf1 Bxf1 42.
gxf5 De1+ 43. Kf4 Dxc3 og
hvítur gafst upp. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1.–2.
Alexander Rustemov (2604)
og Alexey Dreev (2690) 6
vinninga af 9 mögulegum.
3.–4. Alexander Khalifman
(2702) og Francisco Vallejo
Pons (2629) 5½ v. 5.–6.
Vladimir Epishin (2626) og
Alexei Shirov (2723) 5 v. 7.
Sergei Karjakin (2547) 3½
v. 8.-9. Miguel Illescas Cor-
doba (2595) og Daniel Cam-
pora (2505) 3 v. 10. Sergei
Tivjakov (2635) 2½ v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
TVEIR nílitir sáust á
Íslandsmótinu í Borgar-
nesi og litu báðir eins út –
ÁDG109xxxx. Í öðru til-
fellinu var góð slemma í
spilunum:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ DG8763
♥ Á74
♦ 7
♣ÁG7
Suður
♠ Á10
♥ --
♦ ÁDG1096543
♣53
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 spaði Pass 2 tíglar
2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu 6 tíglar
Pass Pass Pass
Sagnir voru víða á þess-
um nótum. Hvernig á að
spila sex tígla með litlu
laufi út?
Laufásinn er eina inn-
koma blinds og hana verð-
ur að nýta til að svína í
spaða eða tígli. Og auðvit-
að er betra að svína spaða-
tíunni. Þar á vörnin fimm
spil, en aðeins þrjú í tígli.
Samkvæmt líkindafræð-
inni er kóngur blankur í
26% tilfella þegar þrjú spil
eru út, en líkur á kóng
stökum af fimm spilum úti
eru aðeins 5,65%.
Norður
♠ DG8763
♥ Á74
♦ 7
♣ÁG7
Vestur Austur
♠ 95 ♠ K42
♥ KD10932 ♥ G865
♦ K2 ♦ 8
♣D104 ♣K9862
Suður
♠ Á10
♥ --
♦ ÁDG1096543
♣53
Þetta er létt dæmi og
verkefnið var í raun enn
léttara við borðið, því yf-
irleitt kom vestur út með
hjartakóng og þá var hægt
að svína í báðum litum.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
MEÐ MORGUNKAFFINU
Þú mátt ekki fara,
sonur sæll! Hver á þá
að stilla myndbands-
tækið fyrir okkur?
Manstu ekkert eftir
mér? Ég gekk hérna
fram hjá þér fyrir átta
sekúndum!
Nei, ég þarf ekki að
nota stigann!