Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ STRÁKARNIR í Mínusi hafa nýlok- ið við upptökur á nýrri plötu, Hall- dóri Laxness, sem kemur út hér- lendis 12. maí. Af því tilefni og vegna fyrirhugaðrar tónleikaferðar um Bretland spilar Mínus á tónleikum í Austurbæ í kvöld. Birgir Örn Thoroddsen þekkir hljóm- sveitina vel en hann stjórnaði upptökum á bæði Jesus Christ Bobby og nýju plötunni. „Þetta var mjög gaman. Platan gekk mjög vel. Þetta var samt erfið fæðing. Við höfðum minni tíma en þegar við gerðum Jesus Christ Bobby en vorum í betra stúdíói,“ segir Birgir Örn en upptökur fóru að mestu leyti fram í Stúdíó Sýr- landi. Platan var hljómjöfnuð í Sound Masters í London og er Birg- ir Örn nýkominn frá Bretlandi. „Við byrjuðum ferlið á því að taka upp „demó“ (prufuupptökur) og höfðum úr sextán lögum að velja,“ segir hann en tólf lög höfnuðu á plötunni. Gott samstarf Ken Thomas, upptökumaður, sem hefur unnið mikið með íslenskum hljómsveitum, m.a. Sigur Rós, er að- stoðarupptökumaður á Halldóri Laxness. Hann hefur unnið með Mínusi áður en hann hljóðblandaði Jesus Christ Bobby. „Hann var með okkur allan tímann.“ Birgir Örn segir að samstarf hans og Mínuss hafi verið gott. „Það er alveg frábært og það besta sem ég get hugsað mér,“ segir hann og út- skýrir vinnuferlið nánar: „Ég reyni að skilja hvert þeir eru að fara og hvaða tónlistarpælingar þeir eru með. Síðan vinnum við úr því. Þetta snýst frekar um að hvetja þá í því sem þeir eru að gera heldur en að stýra þeim eitthvað,“ segir hann og bætir við að hljómsveitin hafi verið örugg með sitt efni og traust hafi verið ríkjandi í samstarfinu. Unnið á nóttunni Platan var unnin að mestu leyti á nóttunni, svo hljómsveitinni gæfist færi á að taka upp í betra hljóðveri. „Ég og Ken þurftum að snúa við sól- arhringnum í þrjár vikur,“ segir Birgir Örn og útskýrir að það hafi verið borðað frekar mikið af pitsum á þessu tímabili. Tónlist sveitarinnar hefur tekið breytingum frá síðustu plötu. „Þeir eru búnir að þróa tónlistina sína lengra. Það er erfitt að setja fingur á hvað þetta er en það er hægt að segja að þetta sé meira rokk og ról og minni metall. Þetta er framtíð- arleg blanda af öllu rokki og róli. Ég er mjög ánægður með þessa plötu.“ Hann heldur áfram: „Þetta er skref fram á við á öllum vígstöðvum. Það var þróun alls staðar, í tónlist- inni, vinnuferlinu og vinnuhópnum,“ segir Birgir Örn. „Við stefndum að því að gera eins góða rokkplötu og við gátum og er- um mjög sáttir. Hugmyndafræði- lega er platan flóknari en síðasta plata. Það er minna af óhljóðum en lagasmíðarnar og sú hugmynda- vinna sem liggur þar að baki er miklu flóknari en á síðustu plötu,“ segir hann og sendir Mínusi rokk- kveðjur. Birgir Örn Thoroddsen stjórnaði upptökum á nýrri plötu Mínuss Meira rokk og ról Morgunblaðið/Börkur Sigþórsson Mínusliðar kveðja klakann með rokkbombu í Austurbæ. Mínus, Dáðadrengir, Sign og Dikta á tónleikum í Austurbæ í kvöld. Húsið opnað 19.30 og tónleikarnir hefjast kl. 20. Forsala í Japis á Laugavegi. ingarun@mbl.is Birgir Örn Thoroddsen         HL MBL Kvikmyndir.is ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 5.30.Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl.10.05. B.i 14.  HÖJ Kvikmyndir.com  SV MBL  Radíó X  H.K. DV 1/2 HL Mbl  Kvikmyndir.is 1/2 Kvikmyndir.com Sjóðheit og mögnuð stórmynd með frábærum tæknibrellum. Frá leikstjóranum Jon Amiel. HILARY SWANK AARON ECKHART DELROY LINDO STANLEY TUCCI Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 12. 3 Besti leikari í aðalhlutverki Adrien Brody Besti leikstjóri Roman Polanski Besta handritÓSKARS- VERÐLAUN Kvikmyndir.comHJ MBL ÓHT RÁS 2  Radio X Sýnd kl. 6 og 9. B.i 14. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. / Sýnd kl. 10. B.i. 16. Sýnd kl. 3.45, 5.50 og 8. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is SV MBL Radíó X SG DV Gæti hinn rangi verið hinn rétti? FRÁ LEIKSTJÓRA “ROMEO MUST DIE” OG “EXIT WOUNDS” INNIHELDUR FRÁBÆRA TÓNLIST MEÐ DMX, EMINEM OG 50 CENT  SG DV  HL MBL Sýnd kl. 10. B.i. 12. Með hinum rauðhærða Rupert Grint sem leikur Ron Weasley í HARRY POTTER myndunum ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK Kvikmyndir.is KRINGLAN HILARY SWANK AARON ECKHART DELROY LINDO STANLEY TUCCI Tilboð 500 kr. Mögnuð spennumynd sem sló rækilega í gegn við opnun í Bandaríkjunum í síðustu viku með óskarsverðlaunahöfunum Tommy Lee Jones og Benicio Del Toro í aðalhlutverki. sv mbl Kvikmyndir.isi i i ÁLFABAKKI Hátíðarfatnaður íslenskra karlmanna Hátíðarfatnaður íslenskra karlmanna hefur notið mikilla vinsælda frá því farið var að framleiða hann. Færst hefur í vöxt að íslenskir karlmenn óski að klæðast búningnum á tyllidögum, svo sem við útskriftir, giftingar, á 17. júní, við opinberar athafnir hérlendis og erlendis og við öll önnur hátíðleg tækifæri. Herradeild Laugavegi, sími 511 1718. Herradeild Kringlunni, sími 568 9017. P ó st se n d u m Hátíðarföt með vesti 100% ull skyrta, klútur og næla kr. 36.900 Allar stærðir til 46— 64 98—114 25— 28   !"! ##$ " %!"!&'()*  ##*&++,"-" #."%/!0%! $+122) * MYNDIN er tekin eftir skírn Ást- dísar Birtu Björgvinsdóttur í Leirárkirkju 9. mars s.l. Á mynd- inni eru Petrína Helga Ottesen (amman) Akranesi, Dagný Hauks- dóttir (mamman) Eystra-Súlunesi, Ástdís Birta Björgvinsdóttir Eystra-Súlunesi, Guðrún Lára Arnfinnsdóttir (langalangamman) Akranesi og Ásta Bryndís Guð- mundsdóttir (langamman) Akra- nesi. Fimm ætt- liðir í bein- an kvenlegg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.