Morgunblaðið - 10.04.2003, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
www.isb.is
Hagstæ›
framkvæmdalán
Húsfélagafljónusta Íslandsbanka
FRUMRIT fyrstu stjórnarskrár Íslands,
stjórnarskráin um hin sérstaklegu mál-
efni Íslands frá 1874, var afhent við hátíð-
lega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Davíð Oddsson forsætisráðherra tók við
henni úr hendi Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Dana, sem er hér á
landi í sinni fyrstu opinberu heimsókn.
Rasmussen minnti á hversu mikilvæg
stjórnarskráin væri í íslenskri sögu og
hún ætti heima hér á landi. Davíð þakkaði
honum hjartanlega fyrir og sagði að nú
væri nærfellt 100 ára flökkusögu stjórn-
arskrárinnar lokið. Hún kom fyrst til Ís-
lands árið 1904 þegar Stjórnarráð Íslands
var stofnað en var aftur flutt til Dan-
merkur 1928 en er meðal þeirra skjala úr
danska Ríkisskjalasafninu sem Danir
hafa samið um að afhenda Íslendingum.
Stjórnarskráin frá 1874 verður til sýnis í
Þjóðmenningarhúsinu fram yfir páska
ásamt stjórnarskránni frá 1920 og 1944.
Í dag mun Rasmussen ásamt eiginkonu
sinni, Anne-Mette Rasmussen, m.a. heim-
sækja Svartsengi, Bláa lónið, Vest-
mannaeyjar og Þingvelli. Þá sækja þau
hádegisverðarboð hjá forseta Íslands og
kvöldverð snæða þau í sumarbústað for-
sætisráðherra á Þingvöllum.
Stjórnarskráin
frá árinu 1874
aftur á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forsætisráðherra Dana afhendir Davíð Oddssyni frumrit stjórnarskrárinnar í Þjóðmenningarhúsinu. Engin vandamál/4
ÁSTÞÓR Skúlason man
ekkert eftir 27. febrúar
2003. Honum hefur verið
sagt að hann hafi farið frá
heimili sínu að Melanesi á
Rauðasandi inn á Patreks-
fjörð og ætlað að koma til
baka stuttu síðar. Á svell-
bunka á veginum um Bjarn-
götudal missti hann stjórn á
jeppanum. Ástþór var í bíl-
belti en telur líklegt að
hann hafi losað það og ætl-
að að freista þess að kasta
sér út áður en jeppinn fór
fram af veginum en ekki
gefist tími til þess. Hann
hafi síðan reynt að spenna
beltið aftur en ekki tekist.
„Kannski sem betur fer,“ segir
hann, „annars hefði ég fylgt honum
alla leið niður og þá er aldrei að
vita hvernig maður hefði farið.“
Hann telur þetta líklega atburða-
rás, ekki síst vegna þess að beltið
skar nánast af honum hægra eyrað.
Það hefði ekki gerst nema af því að
hann reyndi aftur að spenna beltið.
Hjartastopp í 40 mínútur
Jeppinn staðnæmdist 30 metrum
neðan við veginn en Ástþór kast-
aðist út á miðri leið. Þar lá hann að
talið er í um tvær klukkustundir
áður en lögreglumenn frá Patreks-
firði fundu hann. Vegna innvortis
áverka blæddi mikið í lungu en það
varð honum til lífs að hann skyldi
lenda á stórum hnullungi og hálf-
partinn hanga fram af honum. Höf-
uðið vísaði niður og blóðið rann því
upp úr honum. Ástþór var fluttur
með þyrlu á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi og næstu dægrin
börðust læknar á spítalanum við að
halda í honum lífi. „Einu sinni fékk
ég hjartastopp í hátt í 40 mínútur
áður en þeim tókst að lífga mig við.
Þeir voru að því komnir að gefast
upp þegar hjartað byrjaði að flökta
og þá héldu þeir áfram. Það var
komið að því að skrifa út dán-
arstund,“ segir Ástþór. Við slysið
hryggbrotnaði hann og axlarbrotn-
aði. Ástþór er lamaður fyrir neðan
mitti og segja læknar að hann geti
ekki gengið á nýjan leik. Ástþór
segir áfallið óskaplegt og í raun
ólýsanlegt. „Sérstaklega fyrir
svona fjallageit eins og mig sem hef
haft mikla unun af að ganga á fjöll.
Það er ekki hægt að lýsa því með
orðum hvaða tilfinning það er að fá
þær fréttir. En þetta er búið og
gert og ég get ekki breytt því héð-
an af. En vissulega er mjög erfitt
að sætta sig við þetta,“ segir hann.
Nánast allur frítími Ástþórs hefur
hingað til farið í að ganga á fjöll og
í refaveiðar. Hann þekkir nánast
hvern krók og kima í fjöllunum við
Melanes á Rauðasandi. Þar heldur
Ástþór bú ásamt foreldrum sínum
en bústörfin hafa þó fyrst og
fremst hvílt á honum. Þrátt fyrir
slysið hyggst Ástþór halda áfram
búskap og ætlar a.m.k. ekki að gef-
ast upp að óreyndu. Ljóst er að
breyta þarf íbúðarhúsinu og um-
hverfi þess, einnig útihúsum. Þó
þarf ekki stórvægilegar breytingar
að hans mati.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær hafa ættingjar og
vinir Ástþórs hafið söfnun honum
til styrktar. Reikningurinn er á
hans nafni í Sparisjóði Vestfirðinga
á Patreksfirði. Reikningsnúmer er
1118-05-401445, kennitala: 200773-
4979.
Morgunblaðið/Jim Smart
„Var komið að því að
skrifa út dánarstund“
SAMKOMULAG það, sem fyrir
liggur í meginatriðum um greiðslur
EFTA-ríkjanna í þróunarsjóð fyrir
fátækari ríki Evrópusambandsins,
gildir til næstu fimm ára, þ.e. fyrir
árin 2004–2009. Evrópusambandið
hafði gert kröfu um að greiðslur
EFTA-ríkjanna yrðu varanlegar. Í
samningaviðræðum EFTA og ESB
náðist hins vegar málamiðlun um að
greiðslurnar hækkuðu, en yrðu
áfram til fimm ára í senn. Í fyrir-
liggjandi samkomulagsdrögum eru
ákvæði um að það verði endurskoðað
að fimm árum liðnum, hver þörfin sé
fyrir styrki til fátækari ríkja ESB.
Undirritun frestast
Allar líkur eru á að gengið verði
endanlega frá samkomulagi í dag um
aðlögun EES-samningsins að
stækkun ESB. Í gær voru samkomu-
lagsdrögin kynnt fyrir svokölluðum
EFTA-starfshópi ráðherraráðs ESB
í Brussel og hafa aðildarríkin frest til
kl. 9 árdegis í dag að koma athuga-
semdum á framfæri. Einnig fóru
samninganefndir EFTA-ríkjanna
yfir stöðuna með stjórnvöldum
heima fyrir. Í dag kl. 10 árdegis hefst
svo samningafundur í Brussel, þar
blaðsins. Tollfrelsið á síldarsamflök-
unum er hins vegar varanleg ráð-
stöfun.
Talsmenn hagsmunaaðila í sjávar-
útvegi lýsa mikilli ánægju með sam-
komulagið. „Það var [...] gríðarlega
mikilvægt að fá þessa tolla fellda nið-
ur. Hefði það ekki tekist hefðu kaup-
endurnir orðið að breyta sínu fram-
leiðsluferli og það hefði getað orðið
þrautin þyngri,“ segir Einar Eyland,
sölu- og markaðsstjóri hjá Sam-
herja.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna, fagnar því
ennfremur að tekizt hafi að ná fram
tollfrelsi á mikilvægustu útflutnings-
vörunni til A-Evrópu, þ.e. síldarsam-
flökunum.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir niðurstöðuna um 500
milljóna króna greiðslu í þróunar-
sjóð Evrópusambandsins viðunandi.
Hann bendir á að sjóðurinn komi til
með að styðja jarðhitaverkefni í nýju
aðildarríkjum ESB sem hann telji
geta orðið gagnlegt í samstarfi Ís-
lendinga við þau.
sem gert er ráð fyrir að málinu verði
lokið.
Heimildir Morgunblaðsins herma
hins vegar að ekki verði af formlegri
undirritun samninga um stækkun
EES í Aþenu í næstu viku eins og
stefnt var að, heldur frestist undir-
ritunin væntanlega fram í maí. Ekki
er ljóst hvort þessi seinkun getur
mögulega haft þau áhrif að stækkun
EES taki ekki gildi um leið og
stækkun ESB.
950 tonna innflutningskvóti
á heilfrystri síld
Auk niðurfellingar tolla á ferskum
og frystum síldarsamflökum, sem
Morgunblaðið hefur greint frá, fékk
Ísland í samningunum 950 tonna
tollfrjálsan innflutningskvóta á heil-
frystri síld til ríkja ESB. Kvótinn
gildir í fimm ár, en á þá að endur-
skoðast, samkvæmt heimildum
Samið um EES-
greiðslur til 5 ára
Ekki verður af
formlegri undir-
ritun í Aþenu
í næstu viku
Greiðslur endurskoðaðar/10
EIGNIR hugbúnaðarfyrirtækisins
OZ Communications Inc., OZ, hafa
verið seldar nýstofnuðu dótturfyrir-
tæki Landsbanka Íslands hf. í Kan-
ada, Landsbanki Holding Canada
Inc. Landsbankinn hefur samhliða
stofnun LHC Inc. stofnað félagið OZ
Communications Inc., sem er heiti
nýja félagsins sem tekur við starf-
seminni.
Framkvæmdastjóri þess verður
Skúli Mogensen. Hjá félaginu starfa
35 starfsmenn, þar af átta Íslending-
ar.
Nýja félagið mun yfirtaka
samninga við viðskiptavini
Í fréttatilkynningu frá OZ segir að
salan sé gerð til að vernda hag lán-
ardrottna, hluthafa, viðskiptavina og
starfsmanna OZ. Öllu starfsfólki OZ-
samstæðunnar mun verða boðið
starf hjá hinu nýja félagi og mun það
yfirtaka samninga OZ-samstæðunn-
ar við viðskiptavini félagsins. Skv.
tilkynningu OZ hefur reksturinn
verið erfiður undanfarin ár eftir að
samningum félagsins við Ericsson
og Microcell var sagt upp.
Eignir OZ
seldar dótt-
urfélagi LÍ
LÍ kaupir/B1
NÍU ára drengur festi hurðarhún í
handleggnum þegar hann hljóp í
gegnum opnar dyr í Íþróttahúsinu í
Seljaskóla á fimmta tímanum í gær.
Stakkst skeftið á húninum djúpt inn í
framhandlegg drengsins.
Taka þurfti hurðarhúninn af hin-
um megin hurðarinnar með slípirokk
og flytja drenginn þannig með hurð-
arhúninn í handleggnum á slysa-
deild. Ekki er talið að handleggurinn
hafi skaddast varanlega.
Hurðarhúnn
í handlegg
♦ ♦ ♦