Morgunblaðið - 14.04.2003, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.04.2003, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 19 Á FÖSTUDAG opnaði Höfuðborg- arstofa nýja upplýsingamiðstöð ferða- mála. Hún er í hjarta miðborgar Reykjavíkur, gamla Geysishúsinu, sem nú fær nafnið Ingólfsnaust. Höf- uðborgarstofa er ný miðstöð ferða- og markaðsmála, upplýsingamiðlunar og viðburða í Reykjavík. Eitt meg- inhlutverk opinberra aðila í ferða- þjónustu er að veita ferðafólki óhlut- drægar upplýsingar og greiða götu þeirra þannig að dvölin verði eins vel heppnuð og ánægjuleg og nokkur er kostur. Upplýsingamiðstöðin í Ing- ólfsnausti er því nýtt anddyri gesta borgarinnar og raunar landsins alls því kannanir sýna að um 70% þeirra 120.000 gesta sem sóttu til forvera upplýsingamiðstöðvarinnar í Banka- stræti hafi verið að leita upplýsinga um ferðaþjónustu utan Reykjavíkur. Í þjónustu við ferðamenn krist- allast höfuðborgarhlutverk Reykja- víkur. Reykjavík hefur tvíþættar skyldur. Að þjóna og ganga fram af hófsemd og virðingu gagnvart landinu öllu en um leið að nýta styrk sinn og draga þar hvergi af sér. Styrkur höfuðborgarinnar er styrkur landsins alls. Upplýsingagjöf til ferðamanna er dæmi um þjónustu- hlutverk borgarinnar. Markaðs- setning Reykjavíkur miðar að því að nýta styrk hennar. Flugleiðir og aðrir öflugir aðilar í ferðaþjónustu hafa dregið vagninn í því að leiða Íslendingum fyrir sjónir hvernig nýta má nafn Reykjavíkur til eflingar ferðaþjónustu í landinu. Markaðssetning á fjölbreyttum borg- arferðum, ævintýralegum hvata- ferðum fyrirtækja og kjöraðstæðum til árangursríks ráðstefnuhalds á Íslandi hefur náð miklum árangri með áherslu á áfangastaðinn Reykjavík. Þetta eru ekki aðeins þeir þættir í ferðaþjónustu heimsins sem vaxa hraðast og skapa mestar tekjur. Borgarferðir, ráðstefnu- og hvata- ferðir skipta einnig lykilmáli í að efla ferðaþjónustu hér á landi yfir vetr- armánuðina. Fátt skiptir meira máli til að nýta fjárfestingu og auka arð- semi ferðaþjónustufyrirtækja. Náttúran er ótvírætt aðalaðdrátt- arafl Íslands á háannatíma ferðaþjón- ustunnar og verður án efa um ókomna tíð. Að sama skapi er nábýlið við náttúruna einn af meginstyrk- leikum í markaðssetningu á Reykja- vík. Umhverfi og nýting hreinnar orku styrkja þessa ímynd ótvírætt. Framsæknar listir, menning og mannlíf koma þó ekki síður við sögu. Reykjavík er smábær með stórborg- arbrag í besta skilningi þess orðs. Við getum státað af því að vera öruggari en flestar aðrar borgir. Þessir eig- inleikar Reykjavíkur koma saman í kjörorðinu Pure energy sem hlotið hefur bestar undirtektir sem kjörorð fyrir Reykjavík í könnun á meðal söluaðila á helstu markaðssvæðum ís- lenskrar ferðaþjónstu. Nýtt kjörorð, útlit og öflugt ferða- vefsvæði er þáttur í vinnu að mótun nýrra áherslna í ferðamálum Reykja- víkur. Stefnumótuninni er ætlað að endurspegla aukinn skilning á þeim miklu tækifærum sem felast í því að efla höfuðborg Íslands sem spennandi borg í alþjóðlegu samhengi. Með framsækinni stefnumörkun, sem unn- in er í nánu samráði við fyrirtæki og einstaklinga, vill Reykjavíkurborg styðja við bakið á áframhaldandi sókn í ferðaþjónustu. Enginn þarf að efast um gildi þess markmiðs. Fáar ef nokkrar atvinnugreinar hafa vaxið jafnhratt á undanförnum árum og gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu eru meiri en af kísiljárni og áli. Aðeins sjávarútvegur aflar meiri gjaldeyr- istekna. Hlutverk borgarinnar í ferðaþjón- ustu er þó ekki síst fólgið í að kapp- kosta að Reykjavík sé borg þar sem gott er að búa. Reykjavík þarf að vera heimsborg og heimabær í senn. Til að ferðaþjónusta blómstri í Reykjavík þurfa að vera fjöl- breyttir möguleikar til afþrey- ingar og vellíðunar, góð hótel og fjölbreyttir gististaðir en ekkert jafnast þó á við blóm- legt mannlíf og vinalegt við- mót. Að því verður best stuðl- að með því að hlúa að atvinnulífi í borginni, almennri velmegun, góðri menntun, ör- yggi á götum úti auk hrein- leika og fallegs umhverfi. Á öllum þessum sviðum hefur höf- uðborg Íslands tromp á hendi og þeim fjölgar stöðugt. Hróður Reykjavíkur sem menning- arborgar hefur farið vaxandi með ári hverju. Sem dæmi má nefna glæsilegt viðburðadagatal með Listahátíð, Vetrarhátíð, Menningarnótt og fjöl- breyttum uppákomum og hátíðum allt árið um kring. Hinn dýrmæti menn- ingararfur okkar er einnig að verða mun aðgengilegri með opnun Þjóð- minjasafns, handritasýningu Þjóð- menningarhússins og tilkomu Land- námsskálans í Aðalstræti. Sundlaugarnar, ylströndin í Naut- hólsvík og Bláa lónið veita okkur jafnframt forskot á marga aðra hvað varðar heilsutengda ferðaþjónustu. Í Laugardal er að rísa heilsuparadís með glæsilegri heilsurækt og sund- laug. Göngustígakerfi borgarinnar, fögur útvistarsvæði í Laugardal, Elliðaárdal og hrein strandlengja eru allt ómissandi þættir í þeirri heild- armynd sem við viljum draga upp af borginni okkar. Reykjavík hefur einnig sótt í sig veðrið sem ráðstefnuborg og í alþjóð- legum samanburði skýtur hún borg- um eins og Brussel, Glasgow, Tókýó og Washington aftur fyrir sig. Nýtt Nordica hótel og fyrirhuguð bygging tónlistar- og ráðstefnuhúss teljast tví- mælalaust meðal stórvirkja í upp- byggingu Reykjavíkur sem vænlegs fundarstaðar og spennandi vettvangs fyrir alþjóðlegar ráðstefnur og sýn- ingar. Í farvatninu eru jafnframt önn- ur og afar metnaðarfull verkefni sem geta veitt auknum krafti í ferðaþjón- ustuna og atvinnulífið í borginni. Bygging nýrrar sýningarhallar í Laugardal, áætlanir um þekking- arþorp í Vatnsmýrinni, uppbyggingu á slippasvæðinu og síðast en ekki síst stórfelld uppbygging í miðborginni geta gegnt lykilhlutverki svo í Reykjavík dafni mannlíf og menning heimsborgar. Framundan eru spennandi tímar. Reykjavík er ung og kraftmikil og nú er lag að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem í augsýn eru til að skapa heims- borg í norðri þar sem gott og farsælt er að búa og dvelja. Höfuðborgin hef- ur alla burði til að taka þátt í al- þjóðlegri samkeppni hvort sem er um fólk, fjármagn eða ferðamenn þótt öllum sé ljóst að verkefnum á því sviði verði seint lokið. Í þeirri sam- keppni er Reykjavík brjóstvörn landsins alls. Höfuðborgar- hlutverk Reykjavíkur Eftir Dag B. Eggertsson Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. dagur@reykjavik.is ’ „Hlutverk borgarinnar íferðaþjónustu er þó ekki síst fólgið í því að keppa að því að Reykjavík sé borg þar sem gott er að búa. Reykjavík þarf að vera heimsborg og heimabær í senn.“ ‘ moldviðri og hafa ásakanir gengið á hend- ur stjórnarflokkunum. Við framsókn- armenn sjáum enga ástæðu til þess að vera að taka eignarland af bændum lands- ins, það er fjarstætt stefnu og skoðunum okkar í gegnum tíðina. Við viljum vernda þennan eignarrétt og töldum það mikil- vægt ekki síst í ljósi þess að um hálendið hefur geisað mikill ófriður af hálfu vinstri manna. Samfylkingarmenn börðust hins vegar gegn því í þinginu að bændur og landeigendur færu með þann afnotarétt sem þeir hafa haft í þúsund ár og þýðir lítt fyrir þá að bregða yfir sig sauðargæru rétt fyrir kosningar. Ég vona sannarlega að þetta mál fari vel og trúi því reyndar. Þetta mál liggur ljóst fyrir í mínum huga, ekki síst í ljósi þess að hálendi Íslands er orðið mikil úti- vistarparadís. Almenningur í landinu elskar þetta svæði og sækir það heim sumar og vetur. Því er það mjög mik- ilvægt við þessar aðstæður að koma mál- inu á hreint, þannig að um það ríki friður og báðir aðilar virði hinn. Almenningur, sem til hálendisins fer, veit að þjóðlendan er sameign þjóðarinnar en hún er jafn- framt háð þeim lögum og réttindum að bændur þessa lands fara með beitarrétt og afréttirnir heyra undir viðkomandi sveitarfélag. við trúum því að dómstólar breyti ekki úr- skurðum óbyggðanefndar. Engum má dyljast það að okkur framsóknarmönnum þykir sárt, bæði í hvaða farveg málið hef- ur farið og þau átök sem um það hafa ríkt. Framsóknarflokkurinn ber mikla virð- ingu fyrir eignarréttinum, ég sjálfur lýsti því yfir fyrstur manna að ef þessi mál féllu á þann veg að ríkisvaldið væri að taka þinglýstar eignir af landeigendum, þá yrði þetta mikið átakamál um lengri tíma, mannréttindamál sem ekki yrði bara tekist á um hér á landi, heldur mundi það leita í farveg og kæruferil til mann- réttindadómstóla. Nú þarf engum að blandast hugur um að það var líka ákvarðað að ríkið skyldi bera þann kostnað sem á bændur eða landeigendur félli við að verja sinn eign- arrétt. Alþingi markaði í fjárlögum stuðn- ing til þessa verkefnis og nú þegar málið leitar á vettvang dómstóla þá munu bændurnir hafa þar gjafsókn og þeir eig- endur jarða, sem eru með þær í hluta- félagi, munu fá þann kostnað dreginn frá tekjum í rekstri sínum. Ágætu landeigendur. Afstaða Framsóknarflokksins var skýrt mörkuð á flokksþingi í mars sl., en þar segir að þeirri þróun, sem orðið hefur í framkvæmd laga um þjóðlendur, er mót- mælt og þess krafist að þinglýstar eign- arheimildir landeigenda séu að fullu virt- ar. Samt reyna menn að þyrla upp ki síst í ljósi þess að þing- k landeigenda héldu. Þá tjórnmálamennirnir og st bændurnir að nið- eð þessum hætti. Bændur gar að áfrýja til dómstóla m sem þeir töldu ekki olli vonbrigðum hjá mér um að fjármálaráðherra ilvægt að láta reyna á l þess að fá þau á hreint til n hafði á bak við sig rík- tnaði til „Valdimarsdóms“ ess að landeigendur gjöfina í hausinn síðar. var hans, hann einn fer hönd ríkisvaldsins, hann sstjórn og var það rætt þrisvar sinnum. flokkurinn taldi sig vera að m kæmi þessum málum á ði að menn héldu þing- éttindum sínum á landi og ð enga aka eign- það er fjar- kkar í Höfundur er landbúnaðarráðherra. virkjanaframkvæmdir getur orðið hætta á þenslu ef ekki er rétt haldið á spöðunum í ríkisaðgerðum. Umfangsmiklar skatta- lækkanir auka hættu á þenslu. Verðbólga leiðir af sér vaxtahækkanir og kemur það sér mjög illa fyrir fjölskyldufólk og ungt fólk. Þetta fólk er oft með miklar skuldir á bakinu, námslán og húsnæðislán, með ung börn á framfærslu og ef vextir hækka mun greiðslubyrði þessa unga fólks stórhækka. Framsóknarflokkurinn hefur því tekið ákvörðun að fara ekki of geyst og að lofa ekki upp í ermina á sér því sem hann getur ekki staðið við. Fram- sóknarflokkurinn er þekktur fyrir traust og að standa við loforð sín og vill hann halda því trausti áfram meðal kjósenda. Þessu til stuðnings má nefna að í kosning- unum 1995 lofaði Framsóknarflokkurinn 12.000 nýjum störfum á kjörtímabilinu og var það loforð efnt og störfin urðu 14.000. Eins má nefna að Framsóknarflokkurinn lofaði auka milljarði til fíkniefnamála við síðustu kosningar en milljarðurinn varð tveir milljarðar á kjörtímabilinu. Lengi mætti áfram telja en eitt er ljóst að Framsóknarflokkurinn stendur við stóru orðin sín og vel það. Kjósendur geta því óhræddir sett X-ið sitt við B í komandi al- þingiskosningum hinn 10. maí. Raunhæfar og ábyrgar tillögur Alþingiskosningar nálgast óðum og keppast stjórnmálaflokkarnir um hylli kjósenda. Eitt helsta málefnið sem flokk- arnir hafa sett á oddinn er skattamál. Sumir flokkar hafa keppt um að yfirbjóða hvern annan í skattamálum en varlega þarf að fara í þeim efnum og hefur Fram- sóknarflokkurinn gætt hófs og verið raunhæfur í sínum tillögum. Eins og fyrr segir ætla framsóknarmenn að lækka tekjuskattsprósentuna um 3,35% en benda má á að það jafngildir því að hækka skattleysismörkin í 77.000 krónur, eða um 7 þúsund krónur. Að mínu mati hefur Framsóknarflokk- urinn lagt fram ábyrgustu og raunhæf- ustu tillögurnar í skattamálum. Fram- sóknarflokkurinn hefur ekki útilokað frekari aðgerðir í skattamálum en telur að varlega skuli farið út í umsvifamiklar skattaaðgerðir. Með það að leiðarljósi að ráðist hefur verið út í miklar stóriðju- og i ráðstöfunartekjur á kattur af barnafötum ð þessar aðgerðir hefur út ítarlega og samkvæmt gi er hann u.þ.b. 16 millj- Ef aukið svigrúm gefst á telur Framsóknarflokk- skref verði að hækka per- en ekki er gert ráð fyrir unum. Framsóknarflokk- g athuga kosti þess að fella askatt af barnafötum. Það t í Bretlandi og reynslan Með þeim aðgerðum sem kkurinn leggur til verður ráðstöfunartekjur heim- rstaklega fjölskyldufólks, af dæmunum hér að ofan. stöfunartekjur munu utfallslega hjá fjöl- þeim sem lægst hafa laun- a Framsóknar fyrir þig? „Ef sömu hjón þéna samtals 400.000 krónur á mánuði hafa þau til ráðstöfunar eftir breytingu 9,3% hærri ráðstöfunartekjur á mánuði.“ Höfundur er viðskiptafræðingur og skipar 4. sæti á lista framsókn- armanna í Reykjavík suður. engu máli eða sú ógn sem stafar af ger- eyðingarvopnum Saddam Hussein? Frið- kaupastefnuna kallar talsmaðurinn reyndar að láta ,,hin siðrænu gildi ráða“. Ef Saddam Hussein hefði verið leyft að þæfa málin eins og hann hefur gert und- anfarin áratug hefðu ,,hin siðrænu gildi“ án efa haldið áfram að ráða ríkjum í pynd- ingaklefum Íraks og tryggja að nægilegt fjármagn fengist í nýjar forsetahallir. ,,Hin siðrænu gildi“ hefðu vafalaust mót- að með sama hætti lífsskilyrði ungbarna í Írak. Þannig virka nefnilega ,,siðræn gildi“ friðkaupastefnunnar; sjálfskipaðir friðarpostular hreykja sér af manngæsku sinni meðan einræðisherrarnir nýta svig- rúmið til að kvelja þjóðir sínar og vinna að framgangi stórveldisdrauma sinna. Þann- ig hefur það verið. Þannig verður það áfram, jafnvel þótt 21. öldin sé runnin upp. uðu þjóðanna Saddam Hussein árið 1998 hafa yfir að ráða 10 þúsund lítrum af milt- isbrandi og 80 tonnum af sinnepsgasi? Hvenær er hernaður ekki réttlætanlegur ef ekki til þess að koma frá einræðisherra sem pyndar og kúgar eigin þjóð, sem not- ar tekjur af sölu olíu samkvæmt skil- málum Sameinuðu þjóðanna í vopn og hallir í stað þess að koma í veg fyrir hræðilegan barnadauða í landinu, en hann á sér varla hliðstæðu á hnettinum þrátt fyrir olíuauð Íraks? Í stefnuræðu talsmanns Samfylking- arinnar á fyrrnefndu Vorþingi sagði hún ,,að vináttu megi ekki kaupa hvaða verði sem er“, rétt eins og nokkur einasti mað- ur hafi haldið því fram. Íslenska rík- isstjórnin stendur með Bandaríkjamönn- um, Bretum og hinu stóra bandalagi sem styður aðgerðir þeirra vegna þess að hún telur það rétt, ekki til þess að afla sér vina. Talsmaðurinn ætti öllu heldur að velta fyrir sér hvort það megi kaupa frið- inn hvaða verði sem er. Skipta hörmung- arnar sem íraska þjóðin hefur búið við æki til þess að leysa deilur etta eru athyglisverð um- r að felast í þessum orðum ður muni í ríkisstjórn ekki ringumstæðum geta stutt ir. Eða hvenær ætti hann rnað ef hann getur ekki l þess að koma frá völdum ðstjóra heimsins sem hef- nnslífa á samviskunni? ann stutt hernað ef hann aðgerðir til þess að af- an einræðisherra sem hef- m gereyðingarvopn, en til pnaeftirlitsmenn Samein- ausa utanríkisstefnu? r tóku öryggis- samvinnu, mils kom- ðinga.“ Höfundur er frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.