Morgunblaðið - 14.04.2003, Side 26

Morgunblaðið - 14.04.2003, Side 26
26 MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ ER lítið annað en stríð í Írak sem berst til eyrna landans um þessar mundir og skelfing er að heyra. En ekki minna skelfilegt er að heyra hvernig er farið með fólkið í þessu landi og enginn fær neitt við því sagt. En nú er ég búin að fá nóg og get ekki orða bundist. Fyrst fréttir maður að ráðherra Davíð segi Írak stríð á hendur. Ég fæ engan andmælarétt um hvort ég vil drepa konur og börn útí heimi. Til að bæta skaðann ætlar ráðherra Halldór að verja 300 milljónum (að hluta til minn peningur) til upp- byggingar þar í landi og enn fæ ég ekkert að segja. Allt þetta snýst um peninga og aftur peninga, en á með- an eru ekki til peningar í landinu fyrir lágmarksþjónustu fyrir land- ann, hvað í veröldinni er þá verið að spreða peningum útum allar trissur. Látið Bandaríkjamenn borga þessa uppbyggingu, það eru þeir sem eru að sprengja allt í tætlur. Hugsið um þá sem búa hér á Ís- landi og eiga ekki til hnífs og skeið- ar. Hugsið um einstæða foreldra, gamalt fólk, fatlaða og öryrkja. Hugsið um útigangsfólk og börn sem lent hafa á glapstigum þegar þarf að útdeila peningunum. Fyrir nokkru var ég starfsmaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og sá um kaffisölu á spilakvöldum félagsins. Þessi litla starfsemi gladdi félagsmenn meira en orð fá lýst, en eins og allir vita er félagið rekið með styrkjum og fljótlega kom í ljós að styrkirnir nægðu ekki til þess að halda starfseminni gang- andi og varð því að segja upp starfs- fólkinu. Sjálfsbjörg hefur einnig beðið stjórnvöld um styrki til þess að geta haldið úti súpueldhúsi fyrir þá sem minna mega sín, þangað sem þeir gætu komið, fengið mat á vægu verði og blandað geði við fé- lagsmenn. Fengist hafa þau svör að engir peningar séu til. Ef ekki eru til peningar fyrir smáræði eins og þessu, hvað er þá verið að brölta með þrjúhundruð milljónir til Bagdad? Fólk á Íslandi berst í bökkum við að halda lífi. Færið til fé í þessu þjóðfélagi frekar en að fara með það annað. DÍANA H. FJÖLNISDÓTTIR, Barónsstíg 30, Reykjavík. Fréttir af fjármunum Frá Díönu H. Fjölnisdóttur EF ÉG væri fiðrildi og gæti flogið hvert sem væri myndi ég fljúga til barnanna þar sem stríðið geisar og segja þeim að við séum ekki búin að gleyma þeim. Ég myndi setjast á eyrað á litla drengnum sem situr í hnipri og heldur skjálfandi höndum utan um sjálfan sig og hvísla í eyrað hans. Elsku vinur, veröldin getur verið svo grimm. Hvers á saklaust barn eins og þú að gjalda? Hvar eru áhyggjulausu dagarnir sem þú naust svo. Vinir þínir og þú að hlaupa um með boltann ykkar, hláturinn og kátínan sem einkenndi leiki ykkar? Mamman sem hélt utan um þig og sagði þér að þú værir besti strák- urinn og bakaði svo handa þér pönnukökur með sultu, fór út í búð og kom ekki aftur. Ég skil angist þína, elsku hjartans vinurinn minn. Ég skil ótta þinn við þessa veröld. En trúðu mér, hún er ekki bara svona. Ég er bara lítið fiðrildi komið alla leið frá Íslandi . Á leið minni sá ég margt ljótt en líka margt fallegt, og ég geymdi allt það besta og fal- legasta handa þér undir vængjum mínum. Hér er kærleikur í lítilli krukku, þegar þú ert einmana og hræddur skaltu opna krukkuna og lykta upp- úr henni. Hjarta þitt fyllist þá kær- leika og ást til allra, líka þeirra sem vita ekki hvað þeir gjöra. Hafðu ekki áhyggjur af því að þú klárir kærleik- ann, hann vex eftir því sem þú notar hann meira. Ég færi þér líka flösku fulla af von og trú og þú skalt fá þér sopa þegar þú getur ekki meir. Ég vildi óska að þú gætir komið með mér heim og fengið hlýja mjúka sæng sem ég myndi vefja þig inní, sungið fyrir þig vögguvísuna blíðri röddu eins og mamma þín gerði allt- af og halda þér þétt upp að mér. Ég vildi geta sagt þér að þetta yrði allt í lagi, að bráðum yrði allt gott og bráðum yrði allt hljótt. Elsku hjart- ans vinur. Ég ætla vera hjá þér á meðan þú þarft á mér að halda. Fljúga í kringum þig og gleðja þig með litunum mínum. Sjáðu ég á gul- an, ég á rauðan og ég á bláan. Hvaða lit viltu? Við skulum teikna stiga sem nær alla leið til himna. Himna- stiga. Já elsku vinur þú mátt klifra upp alla leið, hún mamma þín bíður þín þar uppi. Hún ætlar að faðma þig og halda þér fast í fanginu sínu á meðan hún segir þér að þú sért besti strákurinn hennar. Og svo ætlar hún að baka handa þér risastóra pönnuköku með sultu. Farðu nú… hún bíður… þetta er enginn staður fyrir börn. Góða ferð, anginn minn. KATRÍN SNÆHÓLM BALDURSDÓTTIR, Laufengi 154, Reykjavík. Hugleiðing á stríðstímum Frá Katrínu Snæhólm Baldursdóttur                                          BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.