Morgunblaðið - 14.04.2003, Síða 27
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 27
UNDIRLÆGJUHÁTTUR og
aumingjaskapur voru fyrstu orðin
sem mér komu í hug þegar ég
heyrði að Ísland væri eitt af fáum
löndum sem styðja hernaðarað-
gerðir Bandaríkjamanna og Breta
í Írak. Já, eitt af fáum, því það eru
miklu fleiri ríki á móti þessum
hernaðaraðgerðum en fylgjandi.
Hin Norðurlöndin, að Danmörku
undanskilinni, eru andsnúin þess-
um aðgerðum án þess að Samein-
uðu þjóðirnar leggi blessun sína
yfir þær. Íslenskir ráðamenn sýna
af sér fádæma undirlægjuhátt með
því að taka ekki afstöðu gegn
þessum aðgerðum eins og þær eru
framkvæmdar, sem sagt ólöglega.
Rökin fyrir því að styðja aðgerð-
irnar eru lapin beint af vörum
George Bush og fórkólfar ríkis-
stjórnarinnar reyna síðan að mat-
reiða lapið ofan í Íslendinga. Það
gengur ekki því mikill meirihluti
Íslendinga er á móti því að Ísland
skuli hafa lýst yfir stuðningi við
aðgerðirnar.
Heil Davíð!
Davíð Oddsson hefur alltaf verið
talinn öflugur leiðtogi en það er
ekki mikill foringi sem þarf að fá
fyrirmæli frá sendiráðum erlendra
ríkja til að vita hvaða stefnu á að
taka í utanríkismálum í stað þess
að hlusta á þjóðina sem hann er í
þjónustu fyrir. Hann tekur upp
hanskann fyrir þjóðir sem ekki
vilja fara eftir ályktunum örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna. Hann
leggur blessun sína yfir það að
saklaust fólk sé drepið í einhliða
árásarstríði. Allt þetta gerir hann í
óþökk meirihluta þjóðarinnar.
Ætli hann sé ekki farinn að líta
stærra á sig en góðu hófi gegnir.
Satt að segja virðist Davíð vera
orðinn fangi eigin velgengni.
Kannski hann ætti að stíga aðeins
niður af stallinum sínum.
Undirlægjur
Einhvern veginn virðist sem
þetta sé keðjuverkandi. Blair er
hræddur um að Bush hætti að
vera vinur hans. Davíð er hræddur
um að Bush eða Blair hætti að
vera vinir hans. Halldór Ásgríms-
son er hræddur um að Davíð hætti
að vera vinur hans og svo koll af
kolli. Kannski Halldór sé orðinn
hræddur um að Davíð vilji ekki
vera í stjórn með stjórnmálaflokki
sem er á fallanda fæti. Einhvern
veginn finnst mér að þeir ættu að
vera hræddir um að fólkið í land-
inu, við Íslendingar, hætti að vera
vinir þeirra því við erum ekki und-
irlægjur.
Já, en, Bush sa …
Íslenski fáninn á að vera tákn
friðar. Umheimurinn á að geta
horft á íslenska fánann og hugsað:
Þarna vil ég eiga heima. Þess í
stað hafa íslensk stjórnvöld sett ís-
lenska fánann í flokk með fánum
ríkja sem þekkt eru fyrir ógn-
arstjórn, pyntingar og morð á sak-
lausu fólki s.s. Ísrael og Tyrkland.
Það væru slæm tíðindi ef umheim-
urinn horfði á Ísland sem land þar
sem mannréttindi eru fótum troðin
og íslensku þjóðina sem stuðnings-
menn stríðs án samþykkis alþjóða-
samfélagsins. En Davíð hristir
höfuðið og segir: Já, en, Bush
sagði það …
Saddam og Davíð
Vissulega er það rétt að Saddam
Hussein er grimmur harðstjóri
sem einskis svífst. Hann hefur
drepið þúsundir saklauss fólks og
engin leið er að segja hvort hann
hafi yfir gereyðingarvopnum að
ráða. Hins ber þó að geta að
vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna höfðu ekki fundið neitt
slíkt þó það sanni auðvitað ekki
neitt. Eftir síðasta stríð við Írak
voru settar víðtækar viðskipta-
hömlur á landið. Þær höfðu það í
för með sér að tugþúsundir manna
hafa látist úr sjúkdómum og
hungri. Árásir bandamanna höfðu
þau áhrif að líf milljóna manna
varð gersamlega óbærilegt og nú
er bætt um betur. Átta hundruð
þúsund manns í borginni Basra
eru nú án vatns og sér ekki fyrir
endann á þessum hörmungum. Það
er þetta sem Davíð Oddsson og
Halldór Ásgrímsson eru að sam-
þykkja í nafni íslensku þjóðarinn-
ar! Af því að Bush sagði það.
VALDIMAR MÁSSON,
kennari,
Hamarsgötu 1, Fáskrúðsfirði.
Já, en, Bush sagði það …
Frá Valdimari Mássyni
ÁLFABLÓM
ÁLFHEIMUM 6
553 3978
7 rósir á 500 kr.
Blóm og skreytingar
Heimsendingarþjónusta
Skarthúsið
s. 562 2466, Laugavegi 12.
Fermingargjafir
Fermingarhárskraut
Fermingarskartgripir
Nýjar vörur
Hallveigarstíg 1
588 4848