Morgunblaðið - 16.04.2003, Side 24
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
24 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ALLS höfðu 115 umsóknir borist í
gær um þau 50 störf sem garð-
yrkjustjóri Hafnarfjarðar ræður í á
hverju sumri. Umsóknarfrestur
rann út í lok síðustu viku en ekki er
óalgengt að umsóknir haldi áfram
að berast eftir að formlegur um-
sóknartími rennur út.
Að sögn Björns Hilmarssonar
garðyrkjustjóra er eftirspurn eftir
störfum svipuð nú og í fyrra. Þá var
ráðið í heldur fleiri störf eftir að
bæjaryfirvöld samþykktu að veita
aukið fjármagn til verkefnisins.
Hann á von á að svipað verði uppi á
teningnum nú. Garðyrkustjóri ræð-
ur einkum til sín ungmenni 17 ára
og eldri. Meðal starfa í boði eru
vinna við fuglagæslu, umsjón með
Bonsai garði og störf í fegrunar-
flokki, sláttuflokki og viðhalds-
flokki.
17–20 ára eiga erfiðast
með að fá vinnu
Vinnuskólinn tryggir öllum ung-
lingum á aldrinum 14-16 ára, sem
þangað leita, vinnu, samtals um 700
ungmennum. Vinnuskólinn óskaði
einnig eftir að ráða flokksstjóra og
leiðbeinendur á íþrótta- og leikja-
námskeið en umsækjendur þurfa að
vera 21 árs á árinu. Þeir sem eru
17-20 ára gátu sóttu um að komast
að sem aðstoðarleiðbeinendur á
íþrótta- og leikjanámskeiðum. Að
sögn Ellerts Magnússonar, for-
stöðumanns Vinnuskólans, er erf-
iðast að finna vinnu fyrir aldurshóp-
inn 17-20 ára. Um 50 ungmenni á
þessum aldri fá vinnu við ýmis leið-
beinendastörf en þegar hafa um 150
umsóknir borist um störfin.
Eftirspurnin svipuð og í fyrra
Sumarstörf hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjörður
ÞAÐ var margt um manninn þeg-
ar Höfuðborgarstofa var opnuð á
föstudag í gamla Geysishúsinu,
sem við það tækifæri var end-
urnefnt Ingólfsnaust. Meðal ann-
stofu fellur m.a. rekstur Upplýs-
ingamiðstöðvar ferðamála og var
hún opnuð í Ingólfsnausti við
sama tækifæri.
Forstöðumaður Höfuðborg-
arstofu er Svanhildur Konráðs-
dóttir.
arra ávörpuðu Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra og Þórólfur
Árnason borgarstjóri samkund-
una og voru kampakátir, eins og
sjá má, líkt og aðrir gestir við
opnunina.
Undir starfsemi Höfuðborgar-
Kampakátir við opnun Höfuðborgarstofu
Morgunblaðið/Kristinn
Miðborg
FYRSTA athvarfið fyrir geðfatlaða
verður opnað í Hafnarfirði í vor. Gert
er ráð fyrir að athvarfið muni starfa á
svipuðum nótum og Vin í Reykjavík
og Dvöl í Kópavogi þar sem geðfatl-
aðir geta sótt félagsskap, þjónustu og
ýmiss konar stuðning. Búið er að aug-
lýsa eftir forstöðumanni fyrir athvarf-
ið.
Hafnarfjarðardeild Rauða kross
Íslands, Hafnarfjarðarbær og Svæð-
isskrifstofa um málefni fatlaðra á
Reykjanesi standa að athvarfinu og
hafa fulltrúar þessara aðila undirritað
samstarfssamning um stofnun at-
hvarfsins. Það mun verða til húsa í
hjarta bæjarins að Hörðuvöllum 1 en
Hafnarfjarðarbær leggur til húsnæð-
ið og sér um að koma því í stand.
Rauði Krossinn mun útvega tækja-
búnað og sjá um að ráða forstöðu-
mann og borga honum laun en tveir
aðrir starfsmenn verða við athvarfið.
Gengur mikið út á
félagslegt samneyti
Að sögn Sigríðar Kristjánsdóttur,
framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu
um málefni fatlaðra á Reykjanesi,
verður að miklu leyti boðið upp á ein-
staklingsmiðaða þjónustu í athvarf-
inu. „Þar verður hægt að fá félagsleg-
an og andlegan stuðning og leiðsögn
t.d. með fjármál og annað. Þarna get-
ur fólk sótt alls kyns námskeið og
fræðslu og sömuleiðis verður hægt að
fá heitan mat á staðnum, fólk getur
fengið aðstoð varðandi lyfjamál sín og
samskipti við heilbrigðisyfirvöld og
aðra opinbera aðila. En í raun gengur
þetta mikið út á félagslegt samneyti
og fólk tekur eins mikinn þátt í starf-
seminni og það hefur áhuga og vilja til
þannig að stuðningurinn fer eftir
þörfum hvers og eins.“
Sigríður segist gera ráð fyrir að
opnunartíminn verði frá kl. 9 til 16 á
daginn en hugsanlega fari starfsemin
eitthvað rólegar af stað líkt og raunin
var með athvarfið Dvöl í Kópavogi.
Að hennar mati er mikil þörf á slíku
athvarfi í Hafnarfirði. „Hafnfirðingar
hafa þurft að leita út fyrir bæjar-
mörkin eftir slíkri þjónustu, en þarna
er hún komin heim í hérað.“ Hún bæt-
ir því við að vissulega muni fólk úr ná-
grannasveitarfélögunum geta sótt í
nýja athvarfið í Hafnarfirði líkt og
Hafnfirðingar hafi gert til þeirra en
markhópurinn sé samt sem áður fyrst
og fremst þeir sem búsettir eru í bæn-
um.
Að sögn Sigríðar er vonast til að
hægt verði að opna athvarfið með vor-
inu eða í síðasta lagi næstkomandi
sumar en sem fyrr segir er búið að
auglýsa eftir forstöðumanni sem mun
hefja undirbúning að opnuninni um
leið og hann kemur til starfa.
Þá má bæta því við að síðar á þessu
ári áformar Hafnarfjarðarbær að
taka í gagnið verndaðar íbúðir fyrir
þrjá til fjóra geðfatlaða einstaklinga,
að því er fram kemur í frétt á heima-
síðu bæjarins.
Athvarf fyrir geðfatlaða
verður opnað síðar í vor
Bæjaryfirvöld áforma að taka í notkun verndaðar
íbúðir fyrir 3–4 einstaklinga síðar á þessu ári
Hafnarfjörður
Ljósmynd/Hallgrímur Indriðason
Helgi Ívarsson skrifaði undir samstarfssamninginn um athvarfið fyrir
hönd Hafnarfjarðardeildar Rauða krossins, Sigríður Kristjánsdóttir skrif-
aði undir fyrir hönd Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra og Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar.
KRISTINN Bergsson, skóhönn-
uður á Akureyri, hefur lokið við að
smíða skópar, sem þykir kannski
ekki í frásögur færandi, enda mað-
urinn smíðað skó í marga áratugi.
Það sem er merkilegt við þetta
skópar er að það er í sömu stærð
og Jóhann Kristinn Pétursson, bet-
ur þekktur sem Jóhann Svarfdæl-
ingur eða Jóhann risi, notaði.
Skórnir eru engin smásmíði, eða
númer 62–64, að sögn Kristins.
Hann sagðist aldrei áður hafa
smíðað skó á látinn mann en hann
smíðaði nokkur skópör á Jóhann á
meðan hann lifði. „Og ég man
hvað mér fannst ég vera lítill þeg-
ar ég hitti Jóhann í fyrsta skipti.“
Kristinn sagði að skórnir hefðu
verið smíðaðir fyrir Byggðasafnið
Hvol í Dalvíkurbyggð og að hug-
myndin væri að leyfa gestum
safnsins að máta þá og finna
stærðarmuninn.
Kristinn sagði að töluverð vinna
hefði farið í að gera skóna – mikil
handavinna – en þetta hefði verið
skemmtilegt verkefni.
Kristinn hefur starfað við skó-
gerð frá árinu 1947 og sem skó-
hönnuður frá 1959, lengst af hjá
Skóverksmiðjunni Iðunni, sem
seinna varð Strikið, og síðar hjá
Skrefinu á Skagaströnd, eftir að
vélarnar voru seldar þangað frá
Akureyri. Hann hefur starfað
sjálfstætt í um átta ár og fram-
leiðir léttan skófatnað, svo sem
heilsuskó og inniskó, í bílskúrnum
heima hjá sér í Lönguhlíð, undir
nafninu „KB Skósmiðja“. Fram-
leiðsla hans er seld um allt land.
Morgunblaðið/Kristján
Kristinn Bergsson skóhönnuður með skó í sömu stærð og Jóhann Svarf-
dælingur notaði. Á myndinni sést munurinn á skóstærð Jóhanns og
„hefðbundinni“ stærð.
Kristinn Bergsson skóhönnuður
fékk skemmtilegt verkefni
Smíðaði skó í
stærð Jóhanns risa
HAGYRÐINGAKVÖLD verður
haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri
að kvöldi skírdags, fimmtudaginn
17. apríl, kl. 20.30. Þar koma saman
fulltrúar allra þeirra fimm stjórn-
málasamtaka sem tilkynnt hafa um
framboð til alþingiskosninganna í
Norðausturkjördæmi í vor og tekist
verður á um stjórnmál í bundnu
máli auk þess sem kveðið verður um
ýmislegt annað sem á döfinni hefur
verið í þjóðfélaginu að undanförnu.
Hagyrðingarnir eru Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, frá Sjálf-
stæðisflokki, Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra, fulltrúi Framsókn-
arflokksins, Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs, Ör-
lygur Hnefill Jónsson frá Samfylk-
ingunni og Brynjar S. Sigurðsson,
Frjálslynda flokknum.
Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra og forseti Al-
þingis, stjórnar hagyrðingakvöldinu.
Einnig verður boðið upp á söng og
„uppistand“ á skemmtuninni. Anna
Katrín Guðbrandsdóttir úr Mennta-
skólanum á Akureyri, sem sigraði í
söngkeppni framhaldsskólanna á
dögunum, kemur fram og syngur
sigurlagið, Vísur Vatnsenda-Rósu.
Kynnir kvöldsins verður akureyrski
skemmtikrafturinn, Rögnvaldur
gáfaði, sem einnig fer með gaman-
mál.
Húsið verður opnað kl. 19.30. Að-
gangseyrir er 1.500 krónur en 1.000
krónur fyrir eldri borgara. Léttar
veitingar verða seldar á staðnum.
Hagyrðinga-
kvöld í Höllinni
BOÐAÐ er til kynningarfundar í
dag, um niðurstöður starfshóps um
„Mannaflaþörf og sérhæfni vegna
stóriðjuframkvæmda fyrir árin
2003–2008.“ Fundurinn fer fram á
Hótel KEA á Akureyri og stendur
frá kl. 12 til 13.30. Iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, Valgerður
Sverrisdóttir mun ávarpa fundinn,
en síðan verða niðurstöður starfs-
hópsins kynntar. Einnig verða á
fundinum erindi og hagnýtar ábend-
ingar frá verkfræðistofum/aðilum
með mikla reynslu er varða þátttöku
í stóriðjuverkefnum, um það hvernig
íslensk fyrirtæki geta sem best und-
irbúið sig í þeim tilgangi að ná sem
mestum árangri varðandi tilboð og
verkefni í fyrirsjáanlegum stóriðju-
framkvæmdum.
Mannaflaþörf og sérhæfni vegna
stóriðjuframkvæmda
Kynningarfundur
á Hótel KEA