Morgunblaðið - 25.04.2003, Síða 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur ákveðið að fresta þjóð-
aratkvæðagreiðslu um upptöku evru
í stað punds, að sögn breska blaðsins
Financial Times á miðvikudag. Blað-
ið segir að Gordon Brown fjármála-
ráðherra hafi í vikunni rætt við Blair
á sveitasetri embættis forsætisráð-
herra, Chequers, og tjáð honum að
fimm skilyrði, sem fjármálaráðu-
neytið setti fyrir því að styðja upp-
töku evrunnar, væru fjarri því að
vera uppfyllt. Er nú talið nær úti-
lokað að atkvæðagreiðslan verði á
næsta ári eins og margir stuðnings-
menn evrunnar höfðu vonað.
Fyrir nokkrum vikum fékk Blair
skýrslu frá Brown þar sem sagði að
fjögur af áðurnefndum skilyrðum
væru enn ekki uppfyllt en líklega
myndi eitt þeirra, að evran myndi
styrkja samkeppnisstöðu breskra
fyrirtækja á sviði fjármálaþjónustu,
verða í lagi.
Nú virðist sem fjármálaráðuneyt-
ið hafi verið enn neikvæðara í nýrri
umsögn sinni. Í skýrslu Browns, sem
ekki hefur enn verið birt opinber-
lega, er dregið mjög í efa að efna-
hagur evru-ríkjanna sé nægilega
sveigjanlegur til að þau geti haldið
uppi sameiginlegri peningamála-
stefnu sem virki. Einnig er þar sagt
að gengi pundsins þyrfti að falla enn
meira en reyndin hefur verið gagn-
vart evrunni til að Bretar geti hafið
þátttöku á næstunni en um leið bent
á að lækkað gengi myndi hafa slæm
áhrif á efnahag landsmanna. Brown
hefur einnig bent á að síðustu tvö ár-
in hafi hagvöxtur verið mun meiri í
Bretlandi en á evrusvæðinu og at-
vinnuleysi mun minna.
Einnig segir hann að erfitt geti
reynst að samræma kerfi stuttra
húsnæðislána í Bretlandi, þar sem
vextir eru fljótandi, við kerfi á meg-
inlandinu þar sem vextir eru í föstum
skorðum. Kostirnir við bresku að-
ferðina eru m.a. sagðir þeir að hús-
næðislánakerfið sé vegna breytilegu
vaxtanna mun fljótara en ella að
bregðast við sveiflum í efnahagnum.
Ráðherrar ósáttir
Líklegt er talið að skýrsla Browns
um hugsanlega myntbandalagsaðild
verði birt í þinginu seinnipartinn í
maí, þ.e. eftir sveitarstjórnarkosn-
ingar í byrjun mánaðarins. Blair hef-
ur áður viðrað hugmyndir um að efnt
yrði til þjóðaratkvæðis á kjörtíma-
bilinu sem rennur út 2006. Lengi
hefur verið ágreiningur milli Browns
og Blairs um þátttöku í evrusam-
starfinu sem meirihlutinn af aðild-
arríkjum Evrópusambandsins
(ESB) á nú aðild að. Brown hefur
farið fyrir efasemdarmönnum í rík-
isstjórninni en Blair verið talinn
hlynntur þátttöku.
Ljóst er að ráðherrar sem vilja að
Bretar taki upp evruna eru afar
óánægðir með að málinu skuli verða
frestað. Segir Financial Times að
þeir muni reyna að knýja á um að
málið verði rætt á næsta ríkisstjórn-
arfundi. Munu ráðherrarnir vilja að
evran verði rædd í tengslum við um-
ræður um ráðstefnu sem ESB efndi
til um stjórnarskrá fyrir sambandið
en tillögur ráðstefnunnar verða lagð-
ar fyrir leiðtogafund ESB, ef til vill
fyrir árslok.
Aukin samheldni
Rætt hefur verið um að Blair gæti
hugsað sér að taka við nýju embætti
forseta ESB ef slíkt embætti yrði
stofnað. En standi Bretar áfram ut-
an við evru-samstarfið er ólíklegt að
hann fengi til þess stuðning nægi-
lega margra aðildarríkja.
Sumir stjórnmálaskýrendur segja
að deilur milli Blairs og Browns, sem
lengi hafa kraumað undir niðri, muni
nú aukast en í tímaritinu The
Economist er niðurstaðan önnur.
Þar segir að alger samstaða þeirra
um afstöðuna til hernaðar í Írak hafi
eflt samheldnina og Blair hafi nú lát-
ið sannfærast af rökum Browns um
að ekki sé tímabært að taka upp evr-
una. Þar að auki hafi Blair komist að
þeirri niðurstöðu að tillagan yrði
felld í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Blair hyggst
fresta atkvæða-
greiðslu um evru
Skilyrði Browns fjármálaráðherra
fyrir umskiptunum ekki enn uppfyllt
Reuters
Tony Blair er hlynntur evrunni.
ÞAÐ væru auðvitað miklar ýkjur að
segja að höfuðborg Kína væru löm-
uð. Meira skal til áður en borgarsam-
félag, þar sem íbúafjöldinn er fimm-
tugfaldur á við allt Ísland, lamast
algerlega. En síðustu dagana, eftir
að tíðindi sunnudagsins riðu yfir, hef-
ur hægt á öllu í lífi 14,2 milljóna Pek-
ingbúa.
Þótt ótti hafi ekki beinlínis gripið
um sig eru menn áhyggjufullir. Ekki
aðeins stjórnendur borgarinnar
heldur allir, jafnvel götusópararnir.
Fyrir helgina var hægt að greina öfl-
ugan æðaslátt í atvinnulífi og afþrey-
ingu en nú er slátturinn veikari og
takturinn hægari.
Víst höfðu Pekingbúar heyrt um
nýju farsóttina, Heilkenni alvar-
legrar og bráðrar lungnabólgu,
HABL, sem lagt hafði marga landa
þeirra að velli í Guangdong-héraði í
suðurhluta Kína og Hong Kong og
það voru víst 37 sem höfðu smitast í
Peking, þar af voru fjórir látnir. En
þetta var ekki helsta umræðuefnið á
vinnustöðum og krám.
En á sunnudagskvöld birtust
fulltrúar ríkisstjórnarinnar á sjón-
varpsskjánum og sögðu þjóðinni, alls
um 1,3 milljörðum manna, að ástand-
ið væri miklu verra en áður hefði ver-
ið talið. Að ekki væru aðeins 37 sem
hefðu smitast í Peking heldur 339 og
jafnvel allt að 741 og 18 væru þegar
látnir í borginni af völdum sjúkdóms
sem ekki væru til nein ráð gegn og
menn vissu ekki af hverju stafaði.
Þetta var áfall fyrir borgarbúa. En
það sem raunverulega færði fólki
heim sanninn um alvöru málsins var
að stjórnin aflýsti einnig vikulöngu
leyfi í tilefni fyrsta maí, réttindi sem
nýlega voru ákveðin með lögum. Og
stjórnvöld skýrðu auk þess frá því að
heilbrigðismálaráðherrann, sem
hafði aðeins setið í mánuð, hefði verið
rekinn og sviptur öllum trún-
aðarstöðum. Sömu örlög hlaut ný-
skipaður borgarstjóri í Peking.
Aldrei gerst áður í Kína
Þegar á sunnudagskvöld var
mannfjöldinn á veitingastöðum og
öðrum afþreyingarstöðum borg-
arinnar aðeins helmingur þess sem
gerist og gengur. Að minnsta kosti
eitt fyrirtæki í eigu Norðurlandabúa
í Peking lét hringja í alla starfsmenn,
norræna jafnt sem kínverska og
segja þeim að þeir ættu ekki að mæta
til vinnu á mánudeginum heldur
halda sig heima í bili. (Páskar eru
ekki haldnir hátíðlegir í Kína.)
Á mánudagsmorgni var umferðin
greinilega minni en venjulega og
sumir sem mættu í vinnu eða í skóla
fengu er leið á daginn boð um að
fara aftur heim til sín …og halda sig
þar fyrst um sinn. Háskólarnir miklu
í Peking eru lokaðir, aðrir skólar
fengu á þriðjudag skipun um að loka.
Margir af íbúunum, ungum sem
öldnum, hafa lokað sig inni í þröng-
um híbýlum sínum. Veitingastaðir
eru annaðhvort lokaðir eða rekst-
urinn umfangsminni en venjulega.
Og frá mánudeginum hefur fnykur
af sótthreinsunarefnum breiðst út
um verslanir, opinberar skrifstofur,
strætisvagna, lestir og leigubíla.
Hvarvetna grímuball
Áður sást öðru hverju fólk á göt-
unum með andlitsgrímu eða grisju
fyrir vitunum til að vernda munn og
háls fyrir ryki úr sandstormum sem
eru hér tíðir. Frá því á mánudag eru
grímurnar alls staðar, ekki vegna
ryksins heldur til að verjast smiti.
Fréttaritari Morgunblaðsins taldi 15
manns með grímu í strætisvagninum
í fyrradag en alls var 21 maður í
vagninum.Venjulega eru vagnarnir
yfirfullir, með 80–90 manns innan-
borðs.
En borgin er ekki alveg lömuð.
„Ég var sendur heim úr vinnunni í
gær og sagt að vera heima þangað til
farsóttin væri gengin yfir,“ sagði Li
Yue Hong sem er 41 árs gamall.
Hann stóð í biðröð við kassann í stór-
markaði hverfisins, Jinkelong. Li
hafði greinilega keypt birgðir til
margra daga.
„Nú hef ég nógan tíma til að læra
ensku,“ segir Xu Jing sem hrindi í
fréttaritara en hún er nemi við Pek-
ing-háskóla. „Skólinn minn er lok-
aður um óákveðinn tíma. Þú verður
að koma hingað vegna þess að við
megum ekki yfirgefa háskólasvæð-
ið.“ Allir gjaldkerarnir í bankanum
voru með grímur, enda þótt þeir
væru verndaðir fyrir hættulegum
viðskiptavinum með þykku, skot-
heldu glerinu og flestir aðrir starfs-
menn voru einnig með grímu. Þótt
kínverska fréttaritarans sé nú orðin
þokkaleg var útilokað að skilja hvað
gjaldkerinn var að muldra á bak við
grímuna. Á endanum varð að nota
skrifleg samskipti til að fá að taka út
sem svarar 12 þúsund krónum ís-
lenskum.
Á miðvikudag vogaði fréttarit-
arinn sér þrátt fyrir allt á gamla mat-
sölustaðinn sinn til að fá sér hádeg-
isverð og hann var opinn. Venjulega
eru þar þrír kokkar og fjórar af-
greiðslustúlkur en nú var þar einn
kokkur og ein stúlka …en engir aðrir
gestir svo að biðin var ekki löng eftir
matnum.
Það hefur lítið upp á sig að fara á
krána um kvöldið. Önnur hver krá er
reyndar lokuð og þar sem menn hafa
opið eru gestirnir fáir, því er fátt sem
hæft er að snapa af fréttum. Svolítið
líflegra var á grænmetis- og kjöt-
markaði hverfisins, þar var fjöldi
fólks. Nokkrir með grímu, margir
grímulausir, reyndar voru fáir af
kaupmönnunum með grímu.
„Heyrðu Íslendingur, ég er með
ágætis lambalæri handa þér í dag.
Hvað segirðu um það?“ Allt í lagi. Við
höfðum rætt málið nokkrum dögum
fyrr. Gott. Rúmlega 200 krónur ís-
lenskar og matur sem nægir átta
manns.
En þá var það farsóttin. „Ég hélt
að þú værir farinn heim til þín. Ég
hélt að allir útlendingar væru hrædd-
ir við HABL,“ sagði Liu Yuo Ye, sem
er 38 ára og ættaður frá Sichuan-
héraði í sunnanverðu Kína. „Nei, ég
er ekki hræddur við að smitast, ég er
hræddari um að viðskiptin minnki, að
fólk mæti ekki. En ekkert bendir til
þess núna,“ sagði hann.
Liu þekkir tölur um dauðsföllin,
rúmlega hundrað látnir í Kína af
völdum HABL. Yfir 2.000 að auki
smitaðir. Og fyrstu átta mánuði árs-
ins dóu 25.395 í umferðarslysum. Líf-
ið heldur áfram í Peking, hvað sem
líður HABL en að vísu í rólegri takti.
Gríman tekur völdin
Íbúar höfuðborgar
Kína höfðu framan af
litlar áhyggjur af
lungnabólgufaraldr-
inum. En Niels Peter
Arskog, fréttaritari
Morgunblaðsins í
Peking, segir að nú
hafi hún breyst í borg
andlitsgrímunnar.
Reuters
Öryggisvörður við ferðamannagötu í Peking með grímu til að verjast
lungnabólgusmiti. Talið er að veiran dreifist einkum við snertingu.