Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 11

Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 11
sem Frjálslyndi flokkurinn mælist með skv. könnunum hefur helst verið rakið til óánægju með stjórn fiskveiðimála meðal ákveðinna hópa. Að minnsta kosti virðist ljóst að full sátt ríkir ekki um stjórn fiskveiða. Í ljósi þess hversu mik- ilvægar fiskveiðar eru Íslendingum er ekki nauðsynlegt að slík sátt ríki og hvernig verður að þínu mati best tryggt að svo verði? Ég gerði mitt til að skapa sátt um sjávar- útveginn. Fyrirferðarmesta umræðan var um auðlindagjald eða ekki auðlindagjald. Ég gaf eftir í þeim efnum og fleiri sem voru sömu skoð- unar og ég til að ná sátt. Þegar sáttir náðust í auðlindanefndinni voru þar ræddar tvær leiðir. Annars vegar fyrningarleið í mjög smáum stíl, kannski 1-2% á ári en ekki 10-20% eins og nú er rætt um og hins vegar hóflegt auðlindagjald. Í auðlindanefndinni náðist ekki samstaða um fyrningarleiðina og raunar fjarri því. Tveir nefndarmenn bókuðu harðorð mótmæli gegn þeirri leið og sögðust aldrei geta sætt sig við hana. Um auðlindagjaldsleiðina náðist hins veg- ar full sátt. Allir nefndarmenn skrifuðu undir hana. Þess vegna fóru menn þá leið með samþykki stjórnarandstöðuflokkanna í raun. Nú hlaupa þeir frá þessu og taka upp báðar leiðirnar. Líka þá sem ekki var sátt um í nefndinni. Og ekki 1-2% heldur 10-20% eftir því hvort þú átt við frjálslynda eða Samfylkingu. Það sjá nú allir í hendi sér að ef 10% af kvótanum eru boðin upp á Siglufirði til að mynda þá er engin trygging fyrir því að þeir geti keypt aftur. Þá hverfa 10% kvót- ans í burtu. Síðan er boðið upp árið eftir. Þá eru útgerðirnar á staðnum orðnar miklu veikari eft- ir að hafa misst 10%. Þeir eiga enga möguleika á að að kaupa þau næst. Það blasir við eyðimörk á þessum stöðum. Menn taka eftir því að tillögur þessa fólks hafa ekkert verið skýrðar. Það er gefið í skyn að með þessum óljósu hugmyndum muni fjölga fiskunum í sjónum. Ég hef nú sagt að þótt hann Guðjón sé myndarlegur þá er það ekki hann sem hrygnir. Það er því afar þýðingarmikið að al- menningur átti sig á þessum síðustu dögum kosningabaráttunnar á því hversu mikið er í húfi. Það er mikið umrót í heiminum um þessar mundir. Evrópusambandið er að stækka og breytast. Nýtt skipulag mála í Mið-Austurlönd- um er að taka á sig mynd. Í tengslum við Íraks- deiluna mátti greina grundvallarágreining jafnt innan Evrópu sem yfir Atlantshafið. Hvernig sérð þú fyrir þér stöðu Íslands í þeirri nýju heimsmynd, sem nú virðist vera í mótun? Ísland telur að það verði að vera virkt í al- þjóðasamfélagi og taka virkan þátt án þess að lenda í óheyrilegum kostnaði. Þótt Ísland hafi í fæstum málum úrslitaáhrif á niðurstöðuna getum við lagt okkar af mörkum og stundum með öðrum átt hlut í ráðandi niðurstöðu. Það hefur gerst nokkrum sinnum á þessu kjörtíma- bili. Evrópusambandið á í mikilli tilvistarkreppu. Þegar stærstu aðilarnir innan sambandsins eru farnir að harma inngöngu nýrra ríkja vegna þess að þau hlýddu ekki eða gripu ekki tæki- færið til að halda sér saman, eins og það var orð- að, er komin upp mjög undarleg staða. Þegar fjögur ríki innan sambandsins fara að tala um nánast sinn eigin her innan Evrópuhersins með einhverjum undarlegum og óljósum tengslum við NATO þá ertu enn farinn að rugla dæmið. Ef þú ætlar að höggva á tengslin yfir hafið, eins og sumir virðast vilja gera, ertu líka kominn með Atlantshafsbandalagið, ekki bara Evrópu- sambandið, í mjög hættulegt far. Við hljótum að nýta okkar stöðu til þátttöku á sviði Evrópumála. Við er um hluti af innri mark- aðnum sem er okkur nauðsynlegur. Ef við ætl- um að halda stöðu Íslands verða menn að gera hvoru tveggja. Halda þessum þætti klárum en ekki síður treysta samskiptin við Bandaríkin. Það höfum við gert. Ég tel að sú andúð í garð Bandaríkjanna sem lýsir sér stundum hjá stjórnarandstöðuflokkunum öllum saman sé varasöm fyrir hlut Íslands og er algjör stefnu- breyting frá því sem við höfum fylgt, Sjálfstæð- isflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokk- ur, um langa hríð. Það virðist vera sem Alþýðubandalagið gamla hafi náð undirtökun- um í Samfylkingunni að minnsta kosti í utanrík- ismálum og reyndar að hluta til í virkjunar- og nýtingarmálum. Það er ný mynd sem þar blasir við sem maður er mjög hugsandi yfir. Það hefur legið í loftinu um nokkurt skeið að Bandaríkjastjórn eða að minnsta kosti hluti bandaríska stjórnkerfisins hefur hug á að draga enn frekar úr viðbúnaði varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Þú hefur lýst því yfir að viðbún- aður verði að vera það mikill að hann sinni vörn- um Íslands með fullnægjandi hætti. Utan- ríkisráðherra hefur lýst því yfir að fljótlega eftir næstu kosningar bíði það verkefni forsætisráð- herra í næstu ríkisstjórn að fara fram á fund með Bandaríkjaforseta vegna varnarsamnings- ins. Þrátt fyrir að við virðumst standa á ákveðnum tímamótum hvað varnir landsins varðar hafa þessi mál hins vegar ekki verið mik- ið til umræðu fyrir kosningarnar. Varla er það vegna þess að allir flokkar séu sammála um hvert beri að halda? Nei, ég held ekki. Og ég held nú að það sem utanríkisráðherra sé að segja sé meira í líkinga- máli. Hann er að lýsa þessari furðulegu afstöðu Samfylkingarinnar að brýnasta atriðið í utan- ríkismálum Íslendinga sé, eins og það var orðað af talsmanni Samfylkingarinnar, að taka Ísland út af listanum yfir hinar staðföstu þjóðir. Slík skilaboð þættu auðvitað óskiljanleg í Bandaríkj- unum. En það er rétt að Bandaríkjamenn vilja auðvitað fá það út úr þessu varnarsamstarfi hér sem er heppilegast og dugar þeim til eftirlits og öryggis fyrir Bandaríkin sjálf. Af þessu höfum við áhyggjur og leggjum áherslu á að þetta sé sameiginlegur varnarsamningur. Varnarvið- búnaðurinn hafi verið skorinn niður og sé nú kominn nærri endimörkum þess sem þolanlegt er. Þá er bara spurningin þessi: Ætla menn að hverfa með varnarviðbúnaðinn allan og hafa hér eftirlitsstöð sem þjónar einungis hagsmunum Bandaríkjanna? Ef svo er þá er komin upp alveg ný staða sem menn verða þá að fara yfir. En þessar umræður eru enn á viðkvæmu stigi og ekki hægt að fara út í þær í einstökum atriðum. Samfylkingin enn þá mjög óþroskaður stjórnmálaflokkur Það er yfirlýst markmið Samfylkingarinnar að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum og mynda „mótvægi“ við hann vinstra megin í flokkakerfinu. Kannanir að undanförnu benda til að Samfylkingin gæti náð svipuðu fylgi í kosn- ingum og Sjálfstæðisflokkurinn. Hvaða áhrif myndi það hafa á íslenska stjórnmálakerfið? Ég skal ekki segja það. Mér sýnist sem Sam- fylkingin sé ennþá mjög óþroskaður stjórnmála- flokkur, það er mjög erfitt að sjá út á hvað hann gengur. Það er mikil ósamstaða innan þessa liðs, það finnur maður í þinginu þegar maður fylgist með umræðum þar. Samt er það svo að það er yfirleitt létt að ná samstöðu í stjórnarandstöðu, það er bara nóg að vera á móti. Þegar svo ósam- stæður hópur þyrfti að ná saman í stjórn um að vera með þá færi nú vandinn að aukast. Þá vantar einnig mikið upp á að Samfylkingin noti reglur með trúverðugum hætti. Annan dag- inn segjast þeir vera með lýðræðislegasta fyr- irkomulagið við að kjósa sér formann með beinni atkvæðagreiðslu allra félagsmanna. Svo er sá formaður settur til hliðar að því er virðist í eins konar fjölskylduboði, án þess að talað sé við nokkurn mann og umboðslaust fólk sett í for- ystu. Þetta myndi ekki gerast í einu einasta öðru lýðræðisríki sem maður þekkir. Svo eru há- stemmdar lýsingar notaðar um gagnsæi, um- ræður og lýðræði í flokkum og ráðist á aðra. Öll þessi skinhelgi er afskaplega skrýtin og fyrr eða síðar hlýtur það að koma flokki í koll að haga sér svona og eftir dyntum fólks sem hefur ekki verið kosið til verka. Lágmark er að segja að þetta væri afskaplega ótrúverðugt allt saman. Ég tel reyndar að ekkert sé meint með þessu forsætis- ráðherraefnistali. Þetta sé misheppnuð auglýs- ingabrella. Það er verið að reyna að leika sama leikinn aftur og með „borgarstjóraefnið“ sem sem sér- staklega átti að höfða til kvenna. Örfáum mán- uðum síðar er viðkomandi hlaupin af vettvangi og fær tækifæri til að velja eftirmann sinn og til- nefnir þá karl en ekki konu! Almennir kjósendur og flokksmenn eða félög Samfylkingarinnar voru einskis spurð. Fólkið sem fengið var til að kjósa R-listann vegna þess að þar væri kona í forystu sat eftir með sárt ennið og trúði ekki sínum eigin augum og eyrum. Það var ekki einu sinni borið við að til- nefna konu í stað þeirrar sem fór. Nú á að leika sama leikinn aftur án þess að forysta flokksins meini nokkurn skapaðan hlut með því annað en að fiska í gruggugu vatni. Það er Össur Skarp- héðinsson sem hefur stjórnarmyndunarumboð Samfylkingarinnar eftir kosningar og það segir alla söguna um þennan blekkingarleik. sts@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart ’ Við erum að slaka ákló ríkisins á sjálfsaflafé landsmanna en um leið standa fyrir öflugasta velferðarkerfi sem þekkt er, uppbyggingu á flestum sviðum auk þess að lækka skuldir ríkissjóðs. ‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.