Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ FLUGFÉLAGIÐ Atlantarekur dótturfyrirtækiðAviaservices í Bretlandisem annast margs konarþjónustu við flugvélar fé- lagsins sem nú eru 27 talsins. Eru vélarnar í verkefnum víða um heim ýmist fyrir móðurfélagið eða Air Atl- anta Europe sem nýlega hefur verið sett á fót. Einnig selur fyrirtækið þjónustu við önnur flugfélög. Fyrir- tækið hefur aðsetur við London- Manston-flugvöll, einn fimm flug- valla sem þjóna London og ná- grannabyggðum en þessi er rétt við Dover, syðst og austast á Englandi. Þórir Kristinsson veitir fyrirtækinu forstöðu og segir hann starfsmenn yfirleitt kringum 70 en á álagstímum getur þeim fjölgað í um 120. „Starfsemi okkar fer fram á nokkrum verkstæðum og síðan er hér aðalbirgðastöð fyrir Atlanta,“ segir Þórir og lýsir síðan nánar helstu þáttum starfsins. Aðalbirgðastöð fyrir allt flugið „Á einu verkstæðinu fara fram viðgerðir og viðhald á öllum neyð- arbúnaði vélanna. Það eru súrefnis- flöskurnar sem eru fyrir ofan sætin, björgunarvestin, neyðarrennurnar og björgunarbátarnir. Annað verk- stæðið sér um að fara yfir hjólabún- að og bremsur, á því þriðja er gert við sæti og við höfum rafmagnsverk- stæði þar sem gert er við kaffikönn- ur og ofna. Síðan er hér stór birgða- stöð þar sem geymdir eru stórir sem smáir varahlutir og í öðru og minna vöruhúsi erum við með mikinn lager af sætum og vögnum og aðstöðu til að smíða og erum núna til dæmis að hefja samsetningu á gámum sem notaðir eru fyrir farangur í B747- þotunum.“ Eins og fyrr segir snýst starf Aviaservices mest um að þjóna flug- flota Atlanta. Fara þarf reglulega yf- ir ýmsan búnað sem fylgir vélunum, rétt eins og vélarnar sjálfar eru í ákveðnu viðhaldskerfi, og þannig þarf árlega að fara yfir allan björg- unarbúnaðinn, blása upp björgunar- vestin til að vita hvort þau eru í lagi og ganga frá þeim aftur, taka fram björgunarbáta og neyðarrennur og pakka saman á ný og þar fram eftir götunum. Skipta þarf reglulega um hjól sem venjulega er gert eftir 200 til 250 lendingar og um leið er farið yfir felgurnar, leitað að sprungum og komi minnsta sprunga í ljós er felg- an dæmd ónýt. Þá er hemlabúnaður tekinn í sundur lið fyrir lið og settur saman á ný eftir að búið er að fara yf- ir hann. Allt þetta kallar á ótrúlega mörg handtök og mikla vinnu. Sama er að segja um flugvélasætin og yf- irleitt allan innri búnað flugvéla, allt þarfnast reglulegs viðhalds og skoð- unar. Starf á sex stöðum við völlinn Starfsemi Aviaservices er nú á sex stöðum við flugvöllinn og segir Þórir þessa dreifingu nokkuð snúið fyrir daglega starfsemi. „Við höfum síð- ustu mánuði kannað hvernig má sameina starfið undir einu þaki og höfum þreifað fyrir okkur með lóð hér til að byggja á flugskýli og hús- næði fyrir verkstæðin og skrif- stofur,“ segir Þórir og Arngrímur Jóhannsson, stjórnarformaður Atl- anta, bætir því við að til greina komi að færa starfsemi Aviaservices til Prestwick í Skotlandi þar sem hag- stæð kjör hafa boðist þar til að byggja upp aðstöðu. Þeir segja að brýnt sé að taka ákvörðun um fram- tíðarstað á næstu vikum og gera ráð fyrir að það taki kringum ár að byggja upp aðstöðu til framtíðar. Áætlun um byggingarkostnað flug- skýlis og verkstæða liggur ekki al- veg fyrir en hann er talinn geta orðið nokkur hundruð milljónir króna. Með byggingu flugskýlis sem tæki eina B747-þotu segir Þórir hug- myndina að færa viðhaldsverkefni á vélunum sjálfum til Manston, minni háttar skoðanirnar sem í dag eru að nokkru leyti unnar hjá Cargolux. Stærstu skoðanirnar fara hins vegar fram í Kína þar sem góð kjör eru í boði sem Þórir segir aðra eiga erfitt með að keppa við. Störf hugsanlega flutt til Þessum umræðum tengjast síðan hugmyndir um að færa stjórnun við- haldsdeildar Atlanta frá Mosfellsbæ til Englands og verði af því myndu 30 til 40 störf færast milli staða. Þetta segir Arngrímur þó enn meiri framtíðarmúsík og allt á umræðu- stigi ennþá. Manston-flugvöllur er að mestu leyti fraktflugvöllur og hefur að sögn Þóris eina mjög langa flugbraut sem gerir völlinn hentugan fyrir slíkt. Staðsetningin fyrir birgðastöð Atl- anta er því líka hentug því hægt er að senda varahluti nánast hvert sem er um heiminn með litlum fyrirvara. Skoða þarf hjólbarða og felgur hverrar þotu eftir 200 til 250 lendingar. Sérhæft dótturfyrirtæki Atlanta í Bretlandi þjónar flugflotanum Bygging flugskýlis og verkstæða í athugun Björgunarvestin yfirfarin. Nauðsynlegt er að blása þau upp og kanna hvort þau eru í lagi og meðan það stendur yfir er nauðsynlegt að eiga annan gang. Fara þarf einnig yfir neyðarrennurnar, blása þær upp og sjá hvort allt er í lagi. Margir koma við sögu í rekstri og umsjón 27 flug- véla Atlanta sem sinna verkefnum víða um heim. Dótturfyrirtækið Avia- services sér um sérhæfð verkefni á sviði viðhalds á ýmsum búnaði vélanna. Jóhannes Tómasson kynnti sér fyrirtækið á dögunum þar sem starfa 70 til 120 manns eftir verkefnum hverju sinni. Morgunblaðið/jt Þórir Kristinsson er hér með tveimur samstarfsmönnum sínum, þeim Sveini Hrafnssyni vörubirgðastjóra og Svani Þorsteinssyni verkstjóra. joto@mbl.is ATLANTA rekur um þessar mundir 27 þotur. Sextán eru af gerðinni B747, þrjár B757 og átta B767 þotur. Í sumar verða stöðvar félagsins í sjö löndum víðs vegar um heiminn: Argent- ínu, Dóminíska lýðveldinu, Eng- landi, Íslandi, Írlandi, Malasíu og Nígeríu. Starfsmenn eru kringum 1.100. Með 27 þotur í rekstri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.