Morgunblaðið - 04.05.2003, Side 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁHYGGJUR af vaxandi halla í
OECD-ríkjunum voru meðal um-
ræðuefna á ráðherrafundi ríkjanna
sem haldinn var í París.
„Meginviðfangsefni fundarins var
umfjöllun um horfur í efnahagsmál-
um við lok hernaðarátaka í Írak og
stöðuna í samningaviðræðum Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar um
nýja skipan heimsviðskipta, Doha-
lotuna,“ segir í fréttatilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu.
Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytisins,
sat fundinn fyrir hönd utanríkisráð-
herra og Baldur Guðlaugsson, ráðu-
neytisstjóri fjármálaráðuneytisins,
sat fundinn fyrir hönd fjármálaráð-
herra. „Efnahags- og fjármálaráð-
herrar OECD-ríkjanna voru sam-
mála um að áhrif stríðsins í Írak á
hnattræna þróun efnahagsmála
myndu verða mun minni en í fyrstu
hafði verið óttast, einkum vegna þess
hve skammvinnt stríðið hefði orðið.
OECD spáir því að hagvöxtur í
OECD-ríkjunum aukist hægt er líða
tekur á árið og muni nema um 2,5%
að meðaltali. Á næsta ári er því hins
vegar spáð að hagvöxtur muni nema
um 3,0%, þar af nemi hagvöxtur í
Bandaríkjunum um 4,0%, innan
ESB 2,4% en einungis 1,1% í Japan.
Til samanburðar má geta þess að
samkvæmt sömu spám muni hag-
vöxtur á Íslandi á þessu ári nema um
2,1% og um 3,5% á árinu 2004.
Ráðherrarnir lýstu áhyggjum yfir
því að fjárlagahalli í OECD-ríkjun-
um færi vaxandi sem rekja mætti til
minnkandi neyslu, aukins atvinnu-
leysis og vaxandi útgjalda til barátt-
unnar gegn hryðjuverkastarfsemi.
Þá fjölluðu ráðherrarnir um þann
mikla vanda sem blasir við vegna
hækkaðs lífaldurs samfara lækkandi
starfsaldi, sem stóreykur kostnað
OECD-ríkjanna vegna lífeyrismála,
samtímis því að færri og færri vinn-
andi hendur þurfi að standa undir
þessum útgjöldum. Í umræðum um
stöðuna í Doha-lotunni lýstu ráð-
herrarnir eindregnum vilja sínum til
að ljúka lotunni fyrir sett tímamörk,
þ.e. í lok árs 2004, auk þess að
tryggja árangursríkan ráðherrafund
í Cancun, en tóku jafnframt fram að
mikinn og einbeittan vilja þyrfti til
að það mætti takast því ágreinings-
efnin væru djúpstæð. Viðurkennt
var að helsti ásteytingarsteinninn í
lotunni væri deilan um markaðsað-
gang fyrir landbúnaðarvörur og um-
fang niðurgreiðslna og útflutnings-
bóta fyrir landbúnaðarafurðir í
iðnríkjunum,“ sagði í tilkynningunni.
Ráðherrafundur OECD-ríkja um efnahagsmál
Áhyggjur af vaxandi halla
SINDRI Róbertsson, sextán ára
námsmaður frá Breiðdalsvík, hlaut
í dag viðurkenningu Rauða kross
Íslands sem Skyndihjálparmaður
ársins 2002. Jafnframt hlutu átta
einstaklingar sem komu að tveimur
slysum á árinu 2002 sérstakar við-
urkenningar fyrir framgöngu sína
á slysstað.
Sindri fékk viðurkenninguna fyr-
ir að bjarga 18 mánaða systur sinn-
ar frá drukknun, en hún hafði fallið
í tjörn í húsagarði á Breiðdalsvík í
lok júlí 2002. Sindri brást við með
því að blása í systur sína og beita
hana hjartahnoði þar til sérhæfð
aðstoð barst. Með framgöngu sinni
bjargaði hann lífi hennar, að því er
kemur fram í tilkynningu frá
Rauða krossi Íslands.
Val á Skyndihjálparmanni ársins
hefur þann tilgang að vekja athygli
á mikilvægi þekkingar í skyndi-
hjálp. Veitt er viðurkenning fyrir
að beita réttum aðferðum á slysstað
og þannig bjarga lífi eða koma í veg
fyrir alvarlegri afleiðingar slyss.
Viðurkenningin er veitt í sam-
starfi við tímaritið Séð og heyrt,
sem hefur tekið að sér að kynna að-
ferðir í skyndihjálp fyrir almenn-
ingi. Viðstaddir athöfnina voru
fulltrúar landlæknis, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis, Neyð-
arlínu, lögreglu, slökkviliðs og
slysa- og bráðadeildar Landspítala
háskólasjúkrahúss.
Auk Sindra voru veittar við-
urkenningar til sjö einstaklinga –
Sigurðar G. Ragnarssonar, Sig-
urðar Skúlasonar, Péturs Ottesen,
Guðmundar Jens Knútssonar, Sig-
mundar Felixsonar, Jónu Guðrúnar
Baldursdóttur og Árna Rúnars
Baldurssonar – fyrir veitta aðstoð á
vettvangi bílslyss í Hólmsá 29. nóv-
ember 2002 og til Svans Tómas-
sonar, sem bjargaði lífi föður síns
þegar grafa hans fór út í sjó við
Ólafsvíkurenni þann 11. nóvember
2002. Þess má geta að systkinin
Jóna Guðrún og Árni Rúnar voru
farþegar í bílnum sem fór í Hólmsá.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sindri Róbertsson tekur við viðurkenningu RKÍ sem skyndihjálparmaður
ársins, en hann bjargaði systur sinni frá drukknun.
Valinn skyndihjálparmaður ársins
Bjargaði litlu systur
sinni frá drukknun
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Sigurbjörg Kristmundsdóttir fóst-
urmóðir Estherar var systir Halldórs
Kristmundssonar eiginmanns Hrefnu
Björnsdóttur. Eftir andlát Sigur-
bjargar reyndist Hrefna Björnsdóttir
Esther mjög vel. Hrefna var mikil
ágætiskona og naut Esther þeirrar
gæfu að eiga hana að. Esther talaði
oft og hlýlega um Hrefnu. Dóttir
Hrefnu, Edda Halldórsdóttir meina-
tæknir, hefur líka hjálpað og stutt
Esther í hennar veikindum.
Esther var mikil hannyrðakona.
Hún saumaði mikinn útsaum í dúka,
púða, myndir, stóla og fleira. Hún
gerði líka fallega prjónaða muni.
Einnig hafði hún unun af því að teikna
og fór á námskeið í því markmiði.
Esther var trygglynd og átti góða
vini sem héldu tryggð við hana alla
æfi, Hannes Þórarinsson lækni, Auði
ESTHER
BJARNADÓTTIR
✝ Esther Bjarna-dóttir fæddist í
Reykjavík 7. apríl
1922. Hún lést í
Reykjavík 17. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Sig-
ríður Ögmundsdótt-
ir, f. 22. júlí 1897, d.
8. mars 1992, og
Bjarni Matthíasson.
Sigurbjörg Krist-
mundsdóttir, f. 18.
júlí 1895, d. 2. júlí
1965, tók Esther á
unga aldri í fóstur og
ól hana upp. Sigur-
björg var gift Lofti Þorsteinssyni.
Þau slitu samvistir. Esther átti sex
hálfsystkini að móður, þær Huldu
Karen og Æsu sem eru dánar og
Ásdísi, Áslaugu, Grím og Dúa.
Útför Estherar hefur farið
fram.
Þorkelsdóttur, Ástu
Guðmundsdóttur, Þór-
unni Sigurjónsdóttur og
fleiri.
Blessuð sé minning
systur minnar.
Ásdís Karlsdóttir.
Esther var hlý og góð
kona og mikill vinur
heimilis míns. Hún kom
eins og líkn í líf okkar
systkina þegar sorg
móðurmissis grúfði yfir.
Esther hlustaði af skiln-
ingi og gaf hughreyst-
andi ráð. Hún gerði jólin hátíðleg.
Umhyggja hennar fyrir okkur
systkinunum og pabba græddi mörg
sár. Esther hvatti okkur í námi og
veitti móðurlegan skilning þegar
vandamál komu upp í persónulegu
lífi. Börnum okkar sýndi hún sérstaka
alúð, ekki minnst börnum mínum,
Hannesi og Magneu. Hún var alltaf
búin til þess að styðja okkur og
styrkja.
Esther veiktist af banvænum sjúk-
dómi fyrir mörgum árum. Hún barð-
ist við sjúkdóminn af æðruleysi og
sýndi raunar einstakan hetjuskap í
veikindum sínum. Ekki kvartaði hún
yfir eigin stöðu þótt erfið væri. Hún
sýndi öðru fólki samúð og hafði af því
áhyggjur en gleymdi eigin raunum.
Síðustu mánuði lá Esther á Land-
spítalanum þar sem hún naut hjúkr-
unar besta heilbrigðisstarfsfólks í
heimi – eins og hún sagði sjálf. Falleg
kona, sem hélt í hendur okkar og um-
vafði velvild, er horfm. Minningin um
hana verður eftir og lýsir okkur
ógengna vegu.
Guð blessi minningu Estherar.
Jón Gunnar.
Rangt föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn
Stefáns Friðfinnssonar, forstjóra Ís-
lenskra aðalverktaka, í blaðinu í
gær. Í fréttinni stóð að Stefán væri
Friðbjarnarson. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Námskeiðið Á hlaupum. Planet
Reykjavík, femin.is og ÍTR standa
fyrir námskeiðinu Á hlaupum í
sumar. Komið verður saman
reglulega og stunduð hlaup,
brennsla og styrking. Göngur og
brennsluæfingar verða hluti af
námskeiðinu. Einnig verður veitt
ráðgjöf og efni um æfingar og
mataræði. Boðið verður uppá fitu-
mælingu fyrir þátttakendur í upp-
hafi og enda námskeiðs. Leiðbein-
andi er Ragnhildur Magnúsdóttir,
markaðsráðgjafi hjá femin.is,
lang- og frjálsíþróttahlaupari.
Upplýsingar í afgreiðslunni í Plan-
et Reykjavík eða með tölvupósti:
ragga@femin.is.
Skógrækt í fjarnámi. Í vor mun
Skógræktarfélag Íslands standa
fyrir námskeiði um skóg- og trjá-
rækt í fjarnámi. Þessi námskeið
eru hluti af fræðslusamstarfi fé-
lagsins og Búnaðarbanka Íslands.
Námskeiðið hefst 6. maí.
Námskeiðið er fólgið í fimm verk-
efnum, sem þátttakendur fá send í
tölvupósti og sækja á vefinn,
ásamt fræðsluefni sem er samið
sérstaklega fyrir námskeiðið. Á
námskeiðinu er fjallað um skóg-
ræktarskilyrði, trjátegundaval,
gróðursetningu, hjálparaðgerðir
við gróðursetningu, umhirðu trjá-
gróðurs, stiklinga, fræ og fræsöfn-
un svo nokkur helstu atriði séu
nefnd. Þátttakendur þurfa að hafa
aðgang að tölvu með nettengingu.
Námkeiðið höfðar til fólks hvort
heldur með stór eða smærri rækt-
unarsvæði. Síðasta verkefnið
fjallar um ræktunarsvæði viðkom-
andi þátttakanda. Upplýsingar
fást hjá Skógræktarfélagi Íslands
eða með að senda póst á
jgp@skog.is.
Á NÆSTUNNI
Fyrirlestur um rannsóknarverk-
efni til meistaraprófs í næring-
arfræði Margaret Ospina heldur
fyrirlestur um rannsóknarverkefni
sitt til meistaraprófs í næring-
arfræði við raunvísindadeild Há-
skóla Íslands á morgun, mánudag-
inn 5. maí, kl. 12.15, í stofu 158 í
VR–II, byggingu verkfræði- og
raunvísindadeilda HÍ. Verkefni
Margaret, Næring og heilsa sex
ára barna - Gildi aðferða, tekur
sérstaklaga á aðferðum til að
kanna mataræði. Margaret lauk
B.Sc.-gráðu í næringarfræði frá
Rutgers University, New Jersey, í
Bandaríkjunum vorið 1998, en hef-
ur lagt stund á meistaranám í
greininni hjá Ingu Þórsdóttur,
prófessor við Háskóla Íslands. All-
ir velkomnir.
Á MORGUN
Í ÁLYKTUN sem samþykkt
var á fundi verkalýðsfélagsins
Hlífar í Hafnarfirði er skorað á
þá ríkisstjórn sem tekur við eftir
næstu alþingiskosningar að
hækka skattleysismörk á næstu
tveimur árum í kr. 93.000, en sú
aðgerð skili mestu til fólks með
lágar og miðlungstekjur.
„Lækkun skattprósentu, eins og
hugmyndir eru uppi um, skilar
hins vegar mjög litlu til almenns
launafólks en þess meira til
þeirra tekjumeiri.
Því skorar fundurinn á allt al-
mennt launafólk að fylkja sér
um þá pólitísku flokka sem hafa
hækkun skattleysismarka á
stefnuskrá sinni og kjósa þeirra
frambjóðendur í alþingiskosn-
ingunum í vor.“
Skattleysis-
mörk verði
hækkuð
Hlíf í Hafnarfirði