Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 43
Rósa Huld Óskarsdóttir - sími 897 9304
rosa@remax.is Ragnar Thorarensen lögg. fastsali
Heimilisfang: Ofanleiti 15, 3. hæð
Stærð eignar: 105,6 fm
Bílskúr: 21,4 fm
Brunabótamat: 14,8 millj.
Byggingarár: 1984
Áhvílandi: 3,8 millj.
Verð: 17,4 millj.
Um er að ræða 4 herb. íbúð á þriðju
hæð í fjölbýli með sameiginl inngangi.
Stofur og herbergi eru parketlögð, en
mögulegt er að breyta setustofu í
aukaherb. Baðherb. er flísalagt og með
fallegri innréttingu, baðkari og sturtu.
Virkilega björt og falleg eign sem vert
er að skoða.
Rósa Huld, sölufulltrúi Re/max,
tekur á móti gestum frá kl. 16-17
OPIÐ HÚS - Ofanleiti 15
OPIÐ HÚS – Síðumúli 1
Heimilisfang: Síðumúli 1
Stærð eignar: 924 fm
Byggingarár: 1983
Brunabótamat: 97 millj.
Verð: 113 millj.
Gott skrifstofuhúsnæði á þremur
hæðum ásamt kjallara. Kjallarinn er
hentugur sem tækja- og skjala-
geymsla. Á 1. hæð er móttaka,
skrifstofur og opin rými. Á 2. hæð
eru skrifstofur og opin rými. Á 3.
hæð fundarherbergi og mötuneyti.
Andri og Skúli, ráðgjafar
Remax taka á móti gestum
frá kl. 14.30-16.
Andri Björgvin Arnþórsson,
símar 846 0991/590 9509,
andri@remax.is
Skúli Sigurðarson,
símar 820 9511/590 9511,
skuli@remax.is Sigurbjörn Skarphéðinsson lögg. fasteignasali
Elísabet Agnarsdóttir - gsm 861 3361
Elisabet@remax.is
Heimilisfang: Viðarás 26
Stærð eignar: 172,5 fm
Bílskúr: 50,2 fm
Byggingarár: 1991
Brunabótamat: 29,2 millj.
Verð: 30 millj.
GLÆSILEGT EINBÝLI Á EINNI HÆÐ Í SELÁS-
HVERFI. Sérsmíðaðar innréttingar. Fjögur svefnher-
bergi. Parket og náttúruflísar á gólfi. Stórt þvotta-
hús með innréttingu. Hátt til lofts. Tvöfaldur bílskúr.
EIGANDI ER AÐ LEITA AÐ 4-5 HERB. ÍBÚÐ/HÚSI Í
SAMA HVERFI. Elísabet, fasteignamiðlari
RE/MAX, tekur á móti gestum frá kl. 15 og 17.
OPIÐ HÚS Í DAG - Viðarás 26
Viggó Sigursteinsson - sími 863 2822
viggo@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fast.sali
Heimilisfang: Ásvallagata 67
Stærð eignar: 191 fm
Bílskúr: Bílskúrsréttur
Byggingarár: 1934
Brunabótamat: 18,9 millj.
Áhvílandi: 15 millj.
Verð: 26,5 millj.
HÚS MEÐ SÁL. Fallegt 3ja hæða einbýli í funkisma með
séríbúð í kjallara. Gengið er upp tröppur og þá er komið
inn í forstofu, innangengt í kjallara þar sem er stór
geymsla/herb., sameiginlegt þvhús og 2 herb. íbúð. Á mið-
hæð er vandað nýlegt eldhús, stofa, borðstofa og vinnu-
herb. Á efstu hæð er baðh. með sturtu, 3 svefnh. og utan-
gengt á suðvestursvalir. Gegnheilt parket er á mið- og efri
hæð auk stiga.
Viggó og Elís sölufulltrúar RE/MAX
taka á móti gestum milli kl. 17 og 18
OPIÐ HÚS - Ásvallagata 67
Páll Höskuldsson - sími 864 0500
pall@remax.is Viggó Jörgensson lögg. fastsali
Heimilisfang: Laufengi 1
Stærð eignar: 112,2 fm
Brunabótamat: 13,8 millj.
Byggingarár: 1996
Áhvílandi: 6,4 millj.
Verð: 14,4 millj.
4ra herbergja 112 fm falleg íbúð á
efstu hæð í litlu fjölbýli, massíft eik-
arparket á stofu, eldhúsi og gangi.
Eldhúsið er með mahóní-innréttingu.
Baðherbergi er með góðum innrétt-
ingum, kari og sturtuklefa. Aðeins
tvær íbúðir eru á hæð. Bílastæði
undir húsi fylgir íbúðinni.
Páll Höskuldsson, sölufulltrúi
Re/max, tekur á móti
gestum frá kl. 14-16
OPIÐ HÚS - Laufengi 1
Páll Kolka - s. 820 9517 - pallkolka@remax.is
Sigurbjörn Skarphéðinsson lögg. fastsali
Heimilisfang: Tómasarhagi 51
Stærð eignar: 97 fm
Byggingarár: 1958
Brunabótamat: 10,3 millj.
Áhvílandi: 7,4 millj.
Verð: 16,5 millj.
Frábær útsýnisíbúð við Tómasar-
haga. Björt og falleg 3-4 herb. 97,5
fm risíbúð með suðursvölum og
stórkostlegu sjávarútsýni.
Páll Kolka, fasteignamiðlari
RE/MAX, tekur á móti gestum
milli kl. 14 og 16
OPIÐ HÚS - Tómasarhagi 51
MÉR verður stundum hugsað til
þeirra 6 milljarða sem ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar setti í vegafram-
kvæmdir, ganga-
gerð og brúarsmíði
nú í byrjun þessa
árs og hvernig ég
hefði viljað verja
þeim. Ekki má les-
andi skilja þessi orð
mín svo að ég sé á
móti þessum framkvæmdum, síður
en svo. Ég veit bara um svo brenn-
andi þörf fyrir þessa fjármuni hjá
afskiptum hópum í þjóðfélagi okk-
ar.
Það hefði til dæmis verið brýnt
að setja fé í að byggja upp þjón-
ustu fyrir börn og unglinga með
geðraskanir og jafnframt að setja
fé í að berjast við vímuefnavanda
sem svo margt ungt fólk á við að
stríða. Það hefði til dæmis verið
hægt að huga að endurhæfingu
sjúklinga sem liggja á geðdeildum
og fá ekki þá endurhæfingu sem
þeim er lífsnauðsynleg og það hefði
verið hægt að leysa vanda margra
sem haldnir eru Alzheimer sjúk-
dómnum með því að byggja sjúkra-
og þjónustustofnanir. Það hefði
einnig verið hægt að rétta hlut
margra þeirra sem lifa við fátækt
og undrast þau gylliboð um skatta-
lækkanir og fleira sem nú berast
frá stjórnarflokkunum. Þetta eru
örfá dæmi um mörg tækifæri sem
runnu úr greipum ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar til þess að gera
íslenskt samfélag réttlátara og
betra. Í mín eyru hefur verið sagt
að ákvarðanir sem teknar eru á
þingi séu í beinu samhengi við
þann veruleika sem þingmenn
þekkja. Í stjórnarflokkunum, Sjálf-
stæðisflokki og Framsóknarflokki,
er samkvæmt því enginn þingmað-
ur sem þekkir til fjölskyldu sem á í
vanda vegna veikinda eða fátæktar.
Enginn í stjórnarflokkunum þekkir
til aldraðra og enginn til öryrkja.
Stórkostlegt tækifæri
– nýtum það
Hugsið ykkur bara allar þær dyr
sem hefðu opnast ef við hefðum
fengið 6 milljarða til þess að hlúa
að þeim sem hafa gjörsamlega
gleymst í öllu góðærinu. Með at-
vinnuskapandi tækifærum hefðum
við getað minnkað biðlista sjúk-
linga, við hefðum getað gefið fleiri
geðsjúkum ungmennum raunhæfa
von um betra líf og við hefðum get-
að búið mörgum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld.
Úti í hinum stóra heimi hafa
menn dundað sér við að bera sam-
an lífsgæði þjóða, fjölda bifreiða á
mann, fjölda gsm-síma á mann,
ungbarnadauða og ýmislegt fleira.
Ávallt eru Íslendingar meðal
þeirra sem þjóða sem eiga mest og
hafa það best. Vissulega er þetta
rétt. Við Íslendingar erum heppnir
og megum því um margt vera
ánægðir með það sem við eigum.
En ég vil benda ríkisstjórnarflokk-
unum á það voru ekki þeir sem
gerðu íslenskt samfélag að því sem
það nú er. Síður en svo, það var
miklu fremur fólkið sem nú ætti að
sjá fram á rólegt og áhyggjulaust
ævikvöld en þarf margt að lifa í
sárri fátækt, einsemd og veik-
indum. Á meðan svo er ástatt í
þjóðfélagi okkar eiga þjóðþrifamál
eins og göng, vegir og brýr að vera
neðar á forgangslista. Þessu fólki á
að sýna virðingu og tryggja eðlileg
lífskjör án tillits til þess hvort það
er sjálfbjarga og við góða heilsu
eða veikt og lasburða.
Þá megum við ekki heldur
gleyma kynslóðinni sem nú er að
vaxa úr grasi. Hún á að mörgu
leyti mjög erfitt uppdráttar því
hún er að lifa mestu umbrotatíma
sem yfir íslenskt samfélag hafa
gengið og við sem erum að ala
hana upp erum ekki að standa okk-
ur nægilega vel meðal annars
vegna þess að okkur er ekki gert
kleift að gera það svo vel sé. Unga
fólkinu standa ótal tækifæri til
boða en það er umkringt freist-
ingum sem auðvelt er að falla fyrir.
Við þurfum fé í forvarnir og
fræðslu til þess að hjálpa því að
velja og hafna. Það er fjárfesting í
mannauði.
Þetta hljóta þingmenn Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks að
skilja ... eða hvað?
Góðir Íslendingar? Er þetta fólk
ekki búið að fyrirgera rétti sínum
til að fá að stjórna? Hugsið um
það!
Hugsið um það!
Eftir Guðna Kjartansson
Höfundur er aðstoðarskólastjóri
í Rimaskóla í Reykjavík og vara-
formaður Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði.
FYRIR síðustu alþingiskosningar
var það Framsóknarflokkurinn sem
ruddi brautina og setti forvarnar- og
fíkniefnamál á odd-
inn sem eitt af sínum
helstu baráttu-
málum. Flokkurinn
lofaði kjósendum að
einum milljarði
króna yrði varið sér-
staklega til barátt-
unnar gegn fíkniefnum. Með þessu
kom Framsóknarflokkurinn þessu
erfiða máli á dagskrá sem málaflokki
sem taka á alvarlega ef bera á hag
barna, ungs fólks, fjölskyldunnar og
framtíð þessa samfélags fyrir brjósti.
Eins og framsóknarfólki er tamt
var unnið að þessu kosningaloforði
samviskusamlega en án þess að slá
sér á brjóst við hverja krónu sem
lagði leið sína í átt að milljarðinum
lofaða. Kannski þess vegna heyri ég
ósjaldan spurninguna: „Hvar er
milljarðurinn?“
Milljarðurinn varð
að 1,7 milljörðum
Staðreyndin er sú að við þetta lof-
orð hefur verið staðið og gott betur.
Hátt í tveimur milljörðum króna hef-
ur verið ráðstafað í þessu skyni. Lúta
þær aðgerðir að forvörnum, með-
ferðarmálum og aukinni löggæslu og
tolleftirliti.
Í stórum dráttum var alls úthlutað
í málaflokkinn viðbótarfjárveitingar
til þriggja ráðuneyta sem nema rúm-
um 1,7 milljarði króna umfram hinar
reglubundnu fjárveitingar:
Heilbrigðisráðuneytið fékk 820
m.kr – fór í forvarnir, meðferð og
vímuefnatengd geðheilbrigðismál.
Félagsmálaráðuneytið fékk 550
m.kr – fór í vímuefnatengd úrræði
fyrir börn og unglinga
Dómsmálaráðuneytið fékk 350
m.kr – fór í fíkniefnalöggæslu og
tollaeftirlit.
Eins og hér hefur verið rakið hef-
ur Framsóknarflokkurinn staðið við
sitt í baráttunni gegn fíkniefnum á
liðnu kjörtímabili. Milljarðurinn sem
hann lofaði er nærri tveimur. Því
miður er það nú enn svo, þrátt fyrir
allar þær aðgerðir sem gripið er til í
því skyni að sporna við því að ungt
fólk ánetjist fíkniefnum, að alltof,
alltof margir leiðast út í vímuefni
með skelfilegum afleiðingum fyrir
einstaklinginn og fjölskyldu hans.
Úrræðin sem hægt er að leita til eru
hins vegar fleiri og fjölbreyttari en
áður, sem betur fer.
Enga eftirgjöf í
fíkniefnamálum
Í starfi mínu hef ég kynnst mörgu
ungu fólki sem hefur villst inn á
braut fíkniefna. Þar hefur mér verið
gefið tækifæri til að geta verið til
staðar fyrir sum þessara ungmenna
og er ég mjög þakklát fyrir það en ég
vil gera enn betur.
Framsóknarflokkurinn hefur lagt
sig fram um að berjast gegn inn-
flutningi og neyslu fíkniefna og mun
hér eftir sem hingað til leggja metn-
að sinn í auknar forvarnir og virk og
öflug meðferðarúrræði til handa
þeim sem villst hafa af leið. Fram-
sókn setur nú eins og áður fíkniefna-
málin á oddinn og í stefnuskrá
flokksins ber stefna hans í mála-
flokknum yfirskriftina „Enga eft-
irgjöf í fíkniefnamálum!“ Framsókn-
arflokkurinn viðurkenndi
málaflokkinn, tók við ábyrgðinni og
vill þitt traust til að halda áfram að
axla þá ábyrgð án eftirgjafar.
Hvert fór
milljarðurinn?
Eftir Marsibil J. Sæmundsdóttur
Höfundur er framkvæmdastjóri
Götusmiðjunnar og skipar 13.
sæti lista Framsóknarflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður.
Alltaf á þriðjudögum
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.