Morgunblaðið - 04.05.2003, Side 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 45
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
4 herbergja
FLÉTTURIMI 9 - OPIÐ HÚS Í DAG
Virkilega falleg 108,5 fm 3ja-4ra
herbergja íbúð á jarðhæð auk stæðis
í bílageymslu. Rúmgóð herbergi (12-
13 fm). Íbúðin er sem ný, öll tekin í
gegn 2002 og húsið var tekið í gegn
ári fyrr. Stór lokaður sólpallur í suð-
ur. Gólfefni: Beykiparket lagt í 45° og
flísar. Verð 15,5 millj.
Björn og Hólmfríður taka vel á móti þér milli kl. 13 og 18.
BREIÐAVÍK 2 - OPIÐ HÚS Í DAG
Vorum að fá mjög glæsilega 102 fm
4ra herb. íbúð með sérinngangi á 2.
hæð í litlu fjölbýli. 2 rúmgóð parket-
lögð barnaherb. Parketlagt hjóna-
herb. Rúmgóð stofa s-svalir. Rúm-
gott eldhús kirsuberjainnrétting.Út-
skotsgluggi í eldhúsi. Flísal. baðherb.
kar/sturta. Tengi f. þ.þ. Góð eign.
Áhv. 6,8 millj. V. 14,2 millj.
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 16.
Elva og Birgir taka vel á móti ykkur.
WWW.EIGNAVAL.IS
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Fagrahlíð 5 - Hf - 5 herb.
Opið hús frá kl. 14 til 17
Nýkomin í einkasölu sérlega falleg 120 fm
endaíbúð á þriðju hæð (efstu) í vönduðu litlu
fjölbýli. 3-4 svefnherbergi, sérþvottaherbergi,
o.fl. Suðursvalir, parket. Hagstæð lán. Laus
fljótlega. Verð 14,9 millj. 96362
Lára og Þór bjóða gesti velkomna.
Breiðvangur 8 - Hf - m. bílskúr
Opið hús frá kl. 14 til 17
Nýkomin í einkasölu sérlega falleg 112 fm íbúð
á 3ju hæð í góðu fjölbýli auk 23 fm bílskúrs.
Sérþvottaherbergi, suðursvalir, nýtt parket, nýtt
baðherbergi, o.fl. Mikið endurnýjuð íbúð. Hagst.
lán. Verð 14,2 millj.
Haukur og Ágústa bjóða gesti velkomna.
BRAGAGATA 30 1. HÆÐ LAUS STRAX
Sérlega falleg og afar rúmgóð 5 herb.
116,5 fm íbúð á 1. hæð í steinsteyptu þrí-
býli. Hús að utan endursteinað, auk þess
sem járn á þaki er nýlegt. Búið er að end-
urnýja skolplögn undir húsi og rafmagns-
töflu. Innan íbúðar eru 4 svefnherbergi og
samliggjandi stofur, báðar mjög rúmgóð-
ar. Þvottahús innan íbúðar. Eikarparket á
öllum gólfum nema baði. Gengt úr íbúð
niður í garð. Í heild afar björt og vel skipu-
lögð íbúð. ÍBÚÐIN ER LAUS STRAX. Verð 17,9 millj. Áhv. 2,8 millj.
VERIÐ VELKOMIN Í DAG FRÁ KL. 15.00–17.00
Opið hús í dag
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
GIMLI I LIG
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
ÞEGAR þetta er ritað er Frjáls-
lyndi flokkurinn á myljandi sveiflu
upp á við í skoðanakönnunum.
Þetta er mjög
ánægjulegt fyrir
okkur, og vonandi
heldur sú þróun
áfram. Það sem fær
fólk til að hugsa um
að kjósa okkur er
fyrst og fremst góð
stefnumál og mannauðurinn í for-
ystusveit okkar. Mig langar til að
leiða nokkra þeirra til sögunnar. Í
Norðvesturkjördæmi, sem er vagga
flokksins, situr Guðjón Arnar
Kristjánsson alþingismaður í fyrsta
sæti.
Í öðru sæti er ungur og skelegg-
ur maður frá Sauðárkróki, Sigurjón
Þórðarson heilbrigðisfulltrúi, hér er
síðan í þriðja sæti ung og bar-
áttuglöð kona frá Akranesi, Stein-
unn K. Pétursdóttir, fulltrúi svæð-
ismiðlunar, einstaklega fram-
bærileg.
Í fyrsta sæti í Reykjavík norður
er okkar fulltrúi Sigurður Ingi
Jónsson, hann hefur nú þegar vakið
mikla athygli fyrir beinskeytta og
leiftrandi framkomu, þar í öðru
sæti er einnig ákveðinn ungur mað-
ur, Eyjólfur Ármannsson lögfræð-
ingur.
Í Reykjavík suður er í fyrsta
sæti Margrét Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri og kennari, hana
þarf ekki að kynna, því hún hefur
vakið athygli með sinni málefnalegu
og góðu framkomu. Í öðru sæti þar
er Gísli Helgason tónlistarmaður og
formaður Blindrafélagsins.
Í Suðvesturkjördæmi er ungur
og öflugur maður í fyrsta sæti,
Gunnar Örlygsson, þar er í öðru
sæti er Sigurlín M. Sigurðardóttir
táknmálskennari, hún er heyrn-
arlaus, og lætur ekki fötlun sína
aftra sér frá því að taka slaginn
með okkur, sem sýnir meira en
nokkur orð hvað í henni býr.
Í Suðurkjördæmi höfum við
landsfrægan mann og mikinn bar-
áttujaxl, Magnús Þór Hafsteinsson,
sem reyndar hefur þurft að verja
starfsheiður sinn fyrir dómstólum
af völdum sjávarútvegsráðherra og
forystu LÍÚ. Þar er líka bar-
áttukempa í öðru sæti, Grétar Mar
Jónsson skipstjóri, fyrrverandi for-
maður Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands. Þar í þriðja sæti
er einbeitt kona, Arndís Ásta
Gestsdóttir, leikskólakennari frá
Selfossi.
Í Norðausturkjördæmi fer fyrir
fríðum flokki Brynjar S. Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri frá Siglu-
firði, mikill talsmaður persónu-
afsláttar til handa börnum. Í öðru
sæti er gömul kempa, Guðmundur
Wiium Stefánsson, þar í þriðja sæti
er svo Stella (í framboði) Steinþórs-
dóttir verkakona, mikil baráttukona
gegn kvótakerfinu eins og það er í
dag.
Þetta er fríður hópur og þau – og
auðvitað allur hópurinn sem stend-
ur að baki þeim – eru tilbúin að
bretta upp ermar og vinna fyrir
ykkur, fólkið í landinu, að uppbygg-
ingu byggðanna á ný. En allt þetta
góða fólk sem ég nefni hér og er í
fyrstu sætum Frjálslynda flokksins
er baráttufólk sem á eftir að láta að
sér kveða í framtíðinni. Frjálslyndi
flokkurinn hefur tekið upp mjög
ákveðna stefnu í fiskveiðistjórn-
unarmálunum. Við viljum breyta
því kerfi, og við höfum skilgreint
mjög nákvæmlega hvernig við vilj-
um breyta því. Einnig hafa bændur
úr okkar röðum unnið upp nýjar
baráttuleiðir til varnar landbún-
aðinum, hann er ekki síður kvóta-
settur og illa haldinn en sjávar-
útvegurinn. Um stefnumál okkar
öll er hægt að lesa á vefnum okkar
www.xf.is. Stjórnarliðar segja okk-
ur að ef þeir verði ekki við völd eft-
ir næstu kosningar þá verði stjórn-
arkreppa, og erfitt að mynda
ríkisstjórn. Ég segi að það sé bull,
við frjálslynd eigum margt sameig-
inlegt með Samfylkingu og vinstri
grænum, við viljum öll hlúa að vel-
ferðarmálum og auka samhygð og
velsæld fyrir alla í landinu. Það
verður ekki erfitt fyrir þessi öfl að
snúa bökum saman. Við í Frjáls-
lynda flokknum viljum sjá nýtt blóð
renna um byggðir landsins, og efl-
ingu mannlífs til sjávar og sveita.
Og við getum lofað því að frá okkar
fólki heyrist ekkert innantómt
kjaftæði. Stefnan er ljós, enda
munum við, ef við fáum til þess
tækifæri, gera tilkall til að fá sjáv-
arútvegsráðuneytið. Þar munum
við ætla Guðjóni Arnari stóran hlut.
Þegar landhelgin var færð út í 200
mílur sat annar þungavigtarmaður
frá Ísafirði í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, Matthías Bjarnason, og hann
situr nú í heiðurssæti listans í
Norðvesturkjördæmi.
Góðir Íslendingar, það er í ykkar
höndum að breyta stjórnarfarinu ef
þið viljið. Í dag er það raunhæfur
möguleiki. Með því að kjósa stjórn-
arandstöðuflokkana til leiks og
leyfa þeim að takast á við lands-
málin, þeirra yfirlýstur vilji er að
búa til mannvænlegra samfélag.
Það eina sem þið þurfið að gera er
að setja kross á réttan stað. Við í
Frjálslynda flokknum viljum berj-
ast fyrir ykkur, þess vegna höfum
við kosið slagorð úr frönsku bylt-
ingunni „Frelsi – jafnrétti –
bræðralag, býður einhver betur?
Við erum til þjón-
ustu reiðubúin!
Eftir Ásthildi Cecil Þórðardóttur
Höfundur er í 11. sæti á lista
Frjálslynda flokksins í Norðvest-
urkjördæmi.
UM þessar mundir eru 200 ár
liðin frá því að einkennisklæddir
lögregluþjónar hófu að ganga um
götur Reykjavíkur.
Það er óhætt að
segja að mikið vatn
hafi runnið til sjáv-
ar frá fyrstu dög-
um einkenn-
isklæddrar lögreglu
og til dagsins í dag.
Það er einnig óhætt að segja að
vegur og virðing lögreglunnar hafi
vaxið og dafnað á þessum langa
tíma.
Til þess að minnast þessara
merku tímamóta var sérstakur
Lögregludagur haldinn hátíðlegur
sl. laugardag. Þá voru lög-
reglustöðvar hringinn í kringum
landið opnar almenningi og gafst
börnum jafnt sem fullorðnum
kærkomið tækifæri til að kynna
sér starfsemi lögreglunnar frá
ýmsum hliðum. Lögregludagurinn
heppnaðist einstaklega vel og
styrkir enn frekar það mikla
traust sem í dag ríkir milli lög-
reglunnar og almennings í land-
inu.
Sögusýning lögreglunnar
Fleira hefur einnig verið gert til
að minnast þessara merku tíma-
móta. Opnuð hefur verið sögusýn-
ing lögreglunnar í sama húsnæði
og embætti ríkislögreglustjóra og
er þar að finna ýmsa merka muni
úr sögu lögreglunnar. Þar er að
finna marga áhugaverða hluti, til
dæmis einkennisbúninga lögreglu-
manna frá ýmsum tímum, ein-
kenni lögreglunnar allt frá miðri
19. öld og til okkar tíma, höfuðföt,
tækjabúnað lögreglu, dagbækur
lögreglumanna frá því upp úr
miðri 19. öld og tæki og gögn úr
nokkrum þekktum lögreglumálum
svo það helsta sé nefnt. Ég hvet
alla til að heimsækja þessa áhuga-
verðu sýningu sem veitir góða inn-
sýn í störf lögreglunnar á mis-
munandi tímum.
Fagmennskan í fyrirrúmi
Ég hef á liðnum árum fengið
tækifæri sem dómsmálaráðherra
til að taka þátt í uppbyggingu ís-
lensku lögreglunnar og um leið
fengið tækifæri til að kynnast
mörgu því sem almenningur fékk
tækifæri til að kynnast á Lög-
regludeginum. Ég hef heillast af
fagmennsku og áhuga lögreglu-
manna á sínu starfi, og margoft
dáðst að árangri sem lögreglan
hefur náð í rannsóknum einstakra
mála og umsjón með ýmsum
stórum verkefnum. Það hefur líka
vakið ánægju mína að almenn-
ingur er sama sinnis og ég um
ágæti lögreglunnar, en skoð-
anakönnun sem Gallup gerir ár-
lega á trausti almennings til ým-
issa ríkisstofnana hefur sýnt á
undanförnum árum sífellt meira
og vaxandi traust almennings til
lögreglunnar. Í dag er svo komið
að yfirgnæfandi meirihluti lands-
manna, eða 73%, ber mikið traust
til lögreglunnar og er það svo að
einungis Háskóli Íslands nýtur
meira trausts en lögreglan af op-
inberum aðilum. Nýleg skoðana-
könnun í Fréttablaðinu sýnir enn
meira traust almennings til lög-
reglunnar, eða um 80%. Þetta
traust almennings er mjög mikil-
vægt að efla enn frekar og treysta
og eru viðburðir eins og Lög-
regludagurinn og sögusýning lög-
reglunnar kjörin tækifæri til þess.
Úrbætur á ýmsum sviðum
Á undanförnum árum hefur
markvisst verið unnið að því að
efla starfsemi lögreglunnar á ýms-
um sviðum. Átak ríkisstjórn-
arinnar í baráttunni gegn fíkniefn-
um hefur leitt til umtalsverðrar
fjölgunar fíkniefnalögreglumanna,
fíkniefnahunda og betri tækjabún-
aðar. Árangurinn á þessu sviði
lætur heldur ekki á sér standa.
Breytingar í fjarskiptamálum lög-
reglunnar á suðvesturhorni lands-
ins hafa skilað sér í mun betri við-
bragðstíma lögreglunnar á því
svæði, meiri samvinnu milli lög-
regluliðanna og þar með auknu ör-
yggi almennings. Öryggi lands-
manna hefur einnig verið eflt með
uppsetningu á sameiginlegri
stjórnstöð leitar og björgunar þar
sem að koma allir þeir aðilar sem
auk lögreglu leika lykilhlutverk í
leit og björgun á sjó og landi. Um-
ferðareftirlit hefur verið eflt mikið
um land allt og sést það best á
mikilli fjölgun sekta vegna um-
ferðarlagabrota á síðustu árum og
stórauknum akstri lögreglu-
bifreiða. Menntun lögreglumanna
á grunn- og framhaldssviði hefur
einnig verið efld og hefur hin
frábæra starfsemi sem fram fer
innan veggja Lögregluskóla
ríkisins skilað sér með áberandi
hætti í meiri fagmennsku lögregl-
unnar í öllum hennar störfum.
Lögreglan hefur einnig tekið að
sér stór verkefni á alþjóðlegan
mælikvarða eins og löggæslu á
utanríkisráðherrafundi NATO sem
haldinn var hér á síðasta ári. Var
það verkefni leyst svo vel af hendi
af hálfu íslensku lögreglunnar að
eftir var tekið hjá samstarfs-
þjóðum okkar. Þá hefur
frammistaða íslenskra lögreglu-
manna í friðargæslu verið fram-
úrskarandi og áfram mætti lengi
telja.
Það er verðugt verkefni næstu
fjögur ár að viðhalda og efla enn
frekar það mikla traust sem al-
menningur ber til lögreglunnar
við lok þessa kjörtímabils. Þó svo
að ég sem dóms- og kirkju-
málaráðherra hafi lagt mitt af
mörkum í þessum efnum ber þó
fyrst og fremst að þakka hina
sterku stöðu lögreglunnar áhuga,
metnaði og starfsánægju hinna al-
mennu lögreglumanna og yf-
irstjórnar lögreglunnar á hverjum
stað. Þetta fengu þeir fjölmörgu
að upplifa sem heimsóttu lög-
reglustöðina sína á Lögregludag-
inn.
Sterk staða
lögreglunnar
Eftir Sólveigu Pétursdóttur
Höfundur er dóms- og kirkju-
málaráðherra.
alltaf á föstudögum
Alltaf á þriðjudögum