Morgunblaðið - 04.05.2003, Síða 49
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 49
SÍÐUSTU daga hef égverið að rýna í gamlarbækur og nýrri, sem all-ar eiga það sameiginlegtað geyma fleyg ummæli
af ýmsum toga. Þetta hefur um
margt verið áhugaverður lestur,
en þó helst til sláandi, einkum
þegar talið hefur borist að stjórn-
málum. Og manni verður á að
spyrja, hvort þetta sé reyndin, eða
er það kannski svo í þessu, líkt og
með alkóhólið, að fáeinir ein-
staklingar hafi í gegnum tíðina
komið óorði á pólitíkina, með
ósæmilegri hegðun, og aðrir gold-
ið þess ótæpilega?
Áður en því er svarað er rétt að
líta á nokkur dæmi:
Félagsskapur við ráðamenn er aldrei
öruggur. Phaedrus (um 20 e. Kr.), róm-
verskur dæmisagnahöfundur.
Eru stjórnmál annað en sú list, að kunna
að ljúga á réttum tíma? Voltaire (1694–
1778), franskur heimspekingur og rithöf-
undur.
Í stjórnmálum er heimskan ekki talin
nein fyrirstaða. Napoleon Bonaparte (1769–
1821), herforingi og Frakklandskeisari.
Kjóstu þann sem fæstu lofar; hann svík-
ur minnst. Ralph Waldo Emerson (1803–
1882), bandarískur heimspekingur.
Ég er ekki stjórnmálamaður, og hegðun
mín að öðru leyti er einnig til fyrirmyndar.
Artemus Ward (1834–1867), bandarískur
skopsagnahöfundur.
Stjórnmál eru líklega eini starfsvett-
vangurinn, þar sem einskis undirbúnings
virðist þörf. Robert Louis Stevenson (1850–
1894), skoskur rithöfundur.
Hann veit ekkert; hann telur sig vita allt
– það bendir greinilega til frama í stjórn-
málum. George Bernard Shaw (1856–1950),
írskt leikskáld.
Enginn getur unnið við stjórnmál og
haldið samt áfram að vera heiðarlegur.
Louis McHenry Howe (1871–1936), banda-
rískur blaðamaður.
Pólitískur hæfileiki er hæfileikinn til að
segja fyrir um, hvað muni gerast á morgun,
næsta mánuð og næsta ár. Og að hafa síðan
hæfileikann til að útskýra eftir á hvers
vegna það gerðist ekki. Winston Churchill
(1874–1965), breskur stjórnmálamaður.
Stutt minni kjósenda er sennilega ástæð-
an fyrir því hversu margir stjórn-
málamennn halda velli. Will Rogers (1879–
1935), bandarískur skemmtikraftur.
Stjórnmálamenn eru allir eins. Þeir lofa
að reisa brú jafnvel þar sem engin er áin.
Nikita Khrústsjov (1894–1971), fyrrverandi
leiðtogi Sovétríkjanna.
Gömul bæn fyrir stjórnmálamenn:
Kenndu okkur að nota orð sem eru hlýleg og
vinsamleg. Á morgun þurfum við kannski að
éta þau ofan í okkur. Morris King Udall
(1922-1998), bandarískur þingmaður og lög-
fræðingur.
Maður sem er á báðum áttum um hvaða
flokk skuli kjósa er eins og sauðkind, íhug-
andi hvort betra sé að vera etin af ref eða
hrafni. Ókunnur höfundur.
Annmarki pólitískra brandara er sá, að
sumir þeirra ná kosningu. Ókunnur höf-
undur.
Varastu framenda villisvínsins, aftur-
enda asnans og allar hliðar stjórnmála-
mannsins. Ókunnnur höfundur.
Ekki er þetta nú beint fallegt.
En eins og sjá má eru djúpþenkj-
andi heimspekingar og aðrir
þungavigtarmenn m.a. hér á blaði.
Ef þetta er reglan, fremur en und-
antekningin, sem ég veit að æði
margir telja, er ljóst að pólitík-
usar nútímans ættu að taka þetta
til alvarlegrar athugunar, og
reyna að skilja, að þeir eru ekki
guðir, og hafa enga burði til að
verða slíkir. Allra síst í landi, sem
hefur kristni að ríkistrú. Fátt er
meira óþolandi en hrokafullir
stjórnmálamenn. Og ekki er það
allsendis óþekkt fyrirbæri hér, því
miður.
Síðustu áratugi hefur áhrifa-
máttur þeirra reyndar dvínað ört,
jafnhliða, eða kannski vegna, sí-
fellt þverrandi virðingar almenn-
ings fyrir þeim, e.t.v. fyrst og
helst með tilkomu ágengari blaða-
og fréttamanna, og – hvað Ísland
varðar – aukinheldur í kjölfar
beinnar útsendingar sjónvarps frá
Alþingi, óritskoðaðrar, þar sem
margt kyndugt úr þingheimi hef-
ur borið fyrir augu landsmanna.
Prestar eru hver af öðrum farn-
ir að tjá sig opinberlega um vax-
andi óréttlætið í þjóðfélaginu, og
láta pólitíkusa hafa það óþvegið,
ef ástæða þykir til. Það er enda
ritað á vígslubréfið, að þeir eigi að
vera málsvarar fátækra og boð-
berar réttlætis. Það er líka ástæð-
an fyrir því, að biskup Íslands lét
hafa þetta eftir sér á dögunum, í
kjölfar drembilegra og afspyrnu
heimskulegra orða fyrrverandi
menntamálaráðherra landsins í
hans garð:
Ég hef aldrei og mun ekki láta draga mig í
pólitískan dilk. Ég hef hingað til ekki
kveinkað mér undan ummælum stjórnmála-
manna í minn garð. Þjónum kirkjunnar ber
að fylgja fagnaðarerindi Krists og við tökum
til máls eins og samviskan býður í ljósi þess,
hvort sem stjórnmálamönnum líkar betur
eða verr.
Vel mælt, það.
Ég lýk þessu svo í dag með eft-
irfarandi ummælum úr bókunum
sem ég gat um hér í upphafi:
Góður konungur er þjónn fólksins. Ben
Jonson (1573–1637), enskt ljóðskáld.
Ekkert er pólitískt rétt, ef það er sið-
ferðilega rangt. Daniel O’Connell (1775–
1847), írskur stjórnmálamaður og lögfræð-
ingur.
Raunveruleg stjórnmál byggjast á kær-
leika til náungans. Fridtjof Nansen (1861–
1930), norskur landkönnuður og nátt-
úrufræðingur.
Með kveðju til þeirra, sem mál-
ið varðar. Og í von um hugarfars-
breytingu í upphafi nýrrar aldar.
Pólitíkin og kirkjan
Það styttist í kosningar, ekki nema sex dagar þar
til gengið verður að kjörborðinu. Af því tilefni
lítur Sigurður Ægisson á pólitík og kristna trú,
og leitar m.a. fanga í ummælum óþekktra sem
og frægari kjarnyrðinga mannkynssögunnar.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði!
FRANZ@holl.is
Hóll — Alltaf
rífandi salaAGUST@holl.is
FJÖLDI EIGNA TIL
SÖLU OG LEIGU!
Ekki hika við að hringja í
okkur félagana,
Franz, gsm 893 4284,
Ágúst gsm, 894 7230.
sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson
löggiltur fasteignasali
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sérlega glæsileg og stílhrein ca 136 fm sérhæð auk bílskúrs í þríbýlishúsi í Graf-
arvogi. Stór og góð stofa og borðstofa og þrjú góð svefnherbergi. Öll gólfefni
og innréttingar fyrsta flokks. Bílskúr með skriðlofti fylgir. Áhv. ca 9,5 millj.
Verð 19,5 millj. Matthías og Linda taka vel á móti ykkur milli kl. 14 og 17 í dag.
GAUTAVÍK 9 - OPIÐ HÚS Í DAG
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Skerjafjörður - einbýli
Vorum að fá í sölu þetta glæsilega
174 fm einbýlishús ásamt 35 fm
bílskúr. Húsið skiptist í stórar
samliggjandi stofur, sjónvarpshol
með arni, 3-4 svefnherbergi, rúm-
gott eldhús, baðherbergi. gesta-
snyrtinu, og þvottahús. Parket og
flísar á gólfum. Fallegur gróinn
garður. Frábær staðsetning. Einstök eign á kyrrlátum stað.
Dæmi um greiðslukjör:
3ja herb. frá 14,2 millj. 4ra herb. íb. frá 17,5 millj.
Naustabryggja 4 - nýjar glæsiíbúðir
Um er að ræða 3ja herbergja 93-
110 fm og 4ra herb. 136 fm
endaíbúðir. 9 af 16 íbúðum eftir.
Vandaðar eikarinnrétt. frá HTH.
Flísal. baðherb. Sérþvottah. í hverri
íb. Sérinngangur af innbyggðum
svalagangi í helmingi íbúða.
Lyfta. Stæði í bílskýli fylgir öllum íb.
Innangengt í sameign. Afhending
fyrstu íbúða svo til strax. Hús og
gluggar álklætt og því viðhaldslétt.
V. kaupsamn. m. pen. 800.000
V. afh. íb. m. pen. 1.000.000
4-6 mán. e. afh. m. pen. 800.000
8-10 mán. e. afh. m. pen. 800.000
*Lán. v. afh. Nb. ca 1.800.000
húsbréf 9.000.000
Samtals ca kr. 14.200.000
V. kaupsamn. m. pen. 1.200.000
V. afh. íb. m. pen. 1.400.000
4-6 mán. e. afh. m. pen. 1.400.000
8-10 mán. e. afh. m. pen. 1.000.000
*Lán. v. afh. Nb. ca 3.500.000
húsbréf 9.000.000
Samtals ca kr. 17.500.000
*lán til allt að 25 ára frá Nb (Netbankanum)
með veði í íbúðinni.
Frábær kostur rétt við höfnina
og torgið í Bryggjuhverfi!
Allar upplýsingar
á Valhöll, sími 588 4477
Glæsilegt 16 íbúða lyftuhús
- til afhendingar svo til strax
FRÉTTIR
Lífsgildi: Fræðslukerfi Símennt-
unarstofnunar Kennaraháskóla Ís-
lands heldur málstofu þriðjudag-
inn 6. maí kl. 14-15.30, í stofu A
201 Hamri. Lífgildi: Fræðslukerfi
er kerfi sem býður upp á fjöl-
breytileg viðfangsefni og hagnýta
aðferðarfræði fyrir kennara og að-
stoðarfólk til að hjálpa börnum og
ungu fólki að uppgötva og þroska
með sér tólf persónuleg og fé-
lagsleg lykilgildi: frið, virðingu,
kærleika, ábyrgð, hamingju, sam-
vinnu, heiðarleika, auðmýkt, um-
burðarlyndi, einfaldleika og ein-
ingu.
Vinnusálfræðinámskeið. Nám-
skeið í vinnusálfræði er nú að
hefjast á vegum Sálfræðistöðv-
arinnar, Þórsgötu 24.
Kenndar verða aðferðir sem
byggja upp samskiptahæfni og
fyrirbyggja óæskilegt andrúmsloft
á vinnustað. Námskeiðið er ætlað
þeim sem vilja auka sjálfsstyrk í
starfi og þurfa að takast á við
flókin samskipti sem oft koma upp
á vinnustöðum.
Kennt er samkvæmt samskiptalík-
ani til að auka samstarfshæfni
þátttakenda og þjálfun við að
leysa ágreining og auka vinnu-
gleði. Gert er ráð fyrir að þátttak-
endur geti notað samskiptalíkanið
og aðferðir jafnt í starfi sem
einkalífi.
Námskeiðið er í formi erinda,
verkefna og umræðna. Höfundar
og leiðbeinendur eru sálfræðing-
arnir Álfheiður Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal.
Næsta námskeið er fyrirhugað 6.,
7. og 13. maí nk. frá kl. 9-12 og
verður haldið á Hótel Loftleiðum.
Fyrirlestur á vegum Rannsókn-
arstofnunar KHÍ. Gyða Jóhanns-
dóttir, lektor við Kennaraháskóla
Íslands, heldur fyrirlestur næst-
komandi miðvikudag, 7. maí, kl.
16.15 í salnum Skriðu í Kenn-
araháskóla Íslands v/Stakkahlíð. Í
fyrirlestrinum verður fjallað um
doktorsritgerð Gyðu þar sem leit-
ast er við að varpa ljósi á það ferli
sem á sér stað þegar starfs-
menntun er færð á háskólastig.
Slíkur flutningur, stundum nefnd-
ur „the academic drift“ eða há-
skólatilhneigingin, hefur verið og
er mjög algengur á Vesturlöndum.
Flutningur menntunar íslenskra
barnakennara á háskólastig 1971
var rannsakaður með tilliti til
þessa. Allir velkomnir.
Á NÆSTUNNI