Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 60
60 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16.
Kvikmyndir.is
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i.14. / kl. 5.50, 8 og 10.10. b.I. 14. / kl. 4 og 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.
Heims frumsýning
Sagan heldur áfram. Enn stærri og
magnaðri en fyrri myndin.
Missið ekki af þessari!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 3.20, 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10. B.i.14 ára.
Heimilda- og Stuttmyndahátíð
Við Byggjum/Gamla Brýnið
sýnd kl. 4
Europe in shorts
sýnd kl. 4
Biggie & Tupac
sýnd kl. 6
Ég er Arabi
sýnd kl. 6
10 Dansmyndir/Fyrsta Ferðin
sýnd kl. 8
Star Kiss
sýnd kl. 8
Börn Pinochets
sýnd kl. 10
Missing Allen
sýnd kl. 10.15
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafi,
Michael Caine í
stórbrotinni kvikmynd sem
byggð er á sígildri
skáldsögu Graham Greene.
Michael Caine var m.a.
tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
Frumsýning
Fyrst var það Mr Bean.
Nú er það Johnny English.
Grín og fjör alla leið.
BRESKI plötusnúðurinn Sasha,
einn þekktasti plötusnúður heims,
spilar á Elektrólúxkvöldi á Nasa,
mánudaginn 16. júní næstkomandi
og ætlar T-world að hita upp fyrir
kappann.
Hr. Örlygur stendur fyrir þess-
um klúbbakvöldum, sem hafa verið
haldin á hinum ýmsu skemmtistöð-
um síðustu tvö ár. Að sögn Þor-
steins Stephensen hefur stefnan
jafnan verið sett á það að fá góða
erlenda plötusnúða til landsins og
hafa á þessum tíma 15 af topp 100
plötusnúðunum í heiminum komið
hingað. Hann segir að lengi hafi
verið unnið að því að fá Sasha til
landsins og nú sé ljóst að af því
verði.
Sasha hóf ferilinn sem plötusnúð-
ur seint á níunda áratugnum og
skapaði sér nafn á hinum rómaða
Shelly’s í Stoke. Það var hins vegar
ekki fyrr en hann réð sig til hins
sögufræga klúbbs Renaissance að
hann varð landsþekktur í Bretlandi,
og síðar heimsþekktur en hann er
einn launahæsti plötusnúður allra
tíma.
Þess má geta að Sasha var enn-
fremur einn fyrsti plötusnúðurinn
til að gera mix-disk, sem Renaiss-
ance gaf út.
Sem upptökustjóri og endur-
hljóðblandari hefur hann sent frá
sér yfir 100 smáskífur og nokkrar
breiðskífur undir eigin nafni, jafnt
með eigin tónsmíðum og hljóð-
blöndunum, en frægastar eru trú-
lega Global Underground-plöturnar
hans tvær. Sasha hefur að auki
unnið með og fyrir listamenn eins
og Madonnu, Pet Shop Boys,
Simply Red, Chemical Brothers og
Gus Gus.
Það hafa samt alltaf verið verk
hans sem plötusnúður sem hafa
haldið honum í hálfgerðri guðatölu
hjá aðdáendum raftónlistar. Þeir
mix-diskar sem hann hefur gert á
ferlinum (oftar en ekki með félaga
sínum John Digweed), hafa selst í
tæplega tveimur milljónum eintaka
á heimsvísu.
Sasha fór með sigur af hólmi í
kosningum DJ Magazine um plötu-
snúð ársins árið 2000 og var í öðru
sæti bæði árin 2001 og 2002.
Elektrólúx býð-
ur upp á Sasha
Sasha ferðast um allan heim vegna starfs síns sem plötusnúður og hefur
getið sér frægð víða um heim. Hann kemur til Íslands í júní.
Dansinn dunar á Nasa á þjóðhátíðarnótt
Plötusnúðurinn Sasha spilar á
Elektrólúxkvöldi á Nasa 16. júní.
TENGLAR
.....................................................
www.sasha.co.uk
Útgáfa Kirk kapteins, leikararans
Williams Shatners, á laginu „Lucy
In The Sky With Diamonds“ hefur
verið útnefnd lélegasta útgáfan á
Bítlalagi í vali sem tónlistarsjón-
varpsstöðin Music Choice stóð fyrir í
vikunni í tilefni þess að 40 ár eru liðin
frá því Bítlarnir komu fyrsta lagi
sínu, „From Me To You“, á topp
breska listans. Shatner skákaði þar
með útgáfu Pinky og Perky á „All
My Loving“ sem hafnaði í öðru sæti
og útgáfa Pop Idol-stjarnanna Wills
Youngs og Gareths Gates á „The
Long and Winding Road“ í þriðja.
Útgáfa ökuþórsins Damons Hills á
laginu „Drive My Car“ þykir úti að
aka og lenti í 5. sæti listans yfir öm-
urlegustu útgáfurnar á Bítlalögum.
Fólkið kallaði á hjálp þegar Ban-
anarama sungu „Help“ ásamt
French og Saunders og Wet Wet
Wet urðu vinalausir eftir að hafa
gengið frá „With A Little Help From
My Friends“. Enginn keypti það þeg-
ar Jim Carrey lýsti yfir að hann væri
rostungurinn í „I Am The Walrus“ og
allir sofnuðu með Suggs úr Madness
þegar hann söng „I’m Only Sleep-
ing“, sem hafnaði í áttunda sæti yfir
verstu útgáfur á Bítlalögum. Í níunda
sæti höfnuðu svo PM Dawn með
„Norwegian Wood“ og Candy Flip
því tíunda með „Strawberry Fields
Forever“ …Courtney Love hefur
auglýst eftir liðsmönnum í nýja
hljómsveit sem
hún er að setja
saman. Tilgangs-
laust er fyrir
stráka að sækja
um því þetta á að
vera stelpusveit.
Love vinnur nú að
sólóplötunni Am-
erica’s Sweetheart, þar sem verða lög
sem hún samdi með Lindu Perry úr 4
Non Blondes … Kanadíski rokk-
arinn Bryan Adams sagði frá því í
vikunni að skotið hefði verið á hann
úr loftbyssu þar sem hann var á ferð
á mótorhjóli sínu um götur Lund-
únaborgar. Hann var alveg hlessa yf-
ir þessari óvæntu árás.
FÓLK Ífréttum