Morgunblaðið - 12.05.2003, Qupperneq 40
DAGBÓK
40 MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss kemur í dag.
Selfoss og Áskell fara
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Evermeer og Selfoss
koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinnu-
stofa kl. 13, söngstund
á morgun kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl.13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin
handavinnustofa, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl.
9–12 bútasaumur, kl.
9–17 fótaaðgerð, kl.
10–11 samverustund,
kl. 13.30–14.30 söngur
við píanóið, kl. 13–16
bútasaumur.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánudagur kl. 16 leik-
fimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð og mynd-
list, kl. 10–12 versl-
unin opin, kl. 13 fönd-
ur og handavinna.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 10,
leikfimi, kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–
16 spilað, kl. 10–13
verslunin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl. 9–
16.30, félagsvist kl. 14,
kl. 9–14 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara Garða-
bæ er mánudaga kl
17.30 í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli.
Söngfólk er hvatt til
að koma og taka þátt í
starfi með kórnum.
Stjórnandi kórsins er
Kristín Pjetursdóttir.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Kóræfingar kl. 10.30,
tréskurður kl 13, fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13.
S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Í dag vinnu-
stofur og spilasalur
opinn. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 gler og
postulínsmálun, kl.
10.50, leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 sögu-
stund og spjall, kl. 13
postulínsmálun og
hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska, fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15
fótaaðgerð, kl. 9–12
myndlist, kl. 13–16.45
opin handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun. kl.
9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl.11–12 leik-
fimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 bók-
band, bútasaumur og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia,
kl. 13 handmennt,
glerbræðsla og spilað,
kl. 15.30 jóga.
Gullsmárabrids. Brids
í Gullsmára.Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl.
13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Minningarkort
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í
Tálknafirði eru af-
greidd í síma 456-
2700.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru
afgreidd á skrifstof-
unni, Holtavegi 28 í s.
588-8899 milli kl. 10 og
17 alla virka daga.
Gíró- og kredidkorta-
þjónusta.
Í dag er mánudagur 12. maí, 132.
dagur ársins 2003. Pankratíus-
messa. Orð dagsins: En hann,
sem hjörtun rannsakar, veit hver
er hyggja andans, að hann biður
fyrir heilögum eftir vilja Guðs.
(Rómv. 8, 27.)
Stefán Pálsson skrifarpistil á Múrinn í gær
og veltir fyrir sér úrslit-
um kosninganna.
„Í ljósi úrslitanna og
að því gefnu að ríkis-
stjórnin muni sitja áfram
lítið breytt, hefur í raun
bara einn flokkur ástæðu
til að fagna – Fram-
sóknarflokkurinn,“ skrif-
ar Stefán. „Hvaða skoð-
un svo sem menn kunna
að hafa á þeim flokki og
verkum hans í gegnum
tíðina, þá héldu fram-
sóknarmenn sínu frá síð-
ustu kosningum og hafa
hlutfallslega styrkt sína
stöðu í ríkisstjórnarsam-
starfinu.
Sjálfstæðisflokkurinn
missti þingsæti og er
fylgi hans með minnsta
móti ef tekið er mið af
sögunni. Þetta tap hlýtur
að vera flokksforystunni
sérstakt áhyggjuefni í
ljósi þess að tapið bitnaði
einkum á þingkonum
flokksins og var staða
þeirra ekki beysin fyrir.“
Stefán heldur áfram:„Samfylkingin fjölg-
aði um tvo í þingflokki
sínum og náði 31% at-
kvæða, en það er einmitt
einu prósentustigi lægri
tala en hreyfingin stefndi
að því að ná fyrir fjórum
árum – að sögn Sighvats
Björgvinssonar þáver-
andi leiðtoga hennar.
Hvort þingmennirnir séu
sautján eða tuttugu er
hins vegar bitamunur en
ekki fjár komist Sam-
fylkingin ekki í ríkis-
stjórn.“
Samfylkingin kaus
sjálf að láta alla kosn-
ingabaráttu sína snúast
um persónu Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur og
því hlýtur útkoma henn-
ar að vera mælikvarðinn
á það hvernig til tókst.
Við fyrstu sýn mætti
ætla að Frjálslyndi flokk-
urinn hefði ástæðu til að
kætast, en sá hlátur er
blendinn. Vissulega fjölg-
ar þingmönnum hans úr
tveimur í fjóra, en þar er
þó ekki allt sem sýnist.
Ef ætlun Frjálslyndra er
sú að byggja upp lífvæn-
legan flokk til framtíðar,
er það hræðileg staða að
vera án þingmanns í
Reykjavík.“
Loks fjallar Stefán umþann flokk, sem hon-
um stendur hjarta næst:
„Vinstri grænir endur-
tóku nánast árangur sinn
frá því fyrir fjórum árum
– nema að þá datt sjötti
maðurinn inn undir
morguninn en að þessu
sinni var hann naumlega
fyrir utan. Á sama hátt
og það breytir ekki
miklu fyrir Samfylk-
inguna í stjórnarand-
stöðu hvort hún hefur
sautján þingmenn eða
tuttugu, skiptir það litlu
máli fyrir Vinstri græna
hvort þingmennirnir eru
fimm eða sex – þótt hitt
sé annað mál að Atli
Gíslason hefði átt mikið
erindi á þing.
Frá sjónarhorni
Vinstri grænna hljóta
vonbrigðin hins vegar að
felast í því að vera þing-
mannslausir í tveimur
kjördæmum – þ.á m. í
því fjölmennasta, Suð-
vesturkjördæmi.“
STAKSTEINAR
Spáð í kosningaúrslitin
Víkverji skrifar...
ÞÁ ERU þingkosningar afstaðnarog sjálfsagt verða flestir hvíld-
inni fegnir, bæði frambjóðendur
flokkanna sem og almenningur í
landinu. Auglýsingamagnið hefur
verið gífurlegt og þó að kjósendur
hafi auðvitað hag af því að sjá flokk-
ana kynna menn og málefni þá kem-
ur ætíð sá tímapunktur að fólk fer að
missa áhugann, verður jafnvel
þreytt á öllu saman.
x x x
TALANDI um auglýsingar í kosn-ingabaráttunni. Þegar Víkverji
fletti föstudagsblaði Morgunblaðs-
ins fannst honum strax eitthvað bog-
ið við mynd í auglýsingu frá Sam-
fylkingunni, sem birtist á bls. 29.
Myndin þekur hálfa síðuna og er
hópmynd af ýmsum helstu fram-
bjóðendum flokksins. Ýmislegt skar
í augu en kannski var það helst stað-
setningin á Björgvini G. Sigurðs-
syni, frambjóðanda í Suður-
kjördæmi, fyrir miðri mynd sem
vakti upp spurningar í huga Vík-
verja. Hann tók sig því til og fann
sömu auglýsingu frá Samfylking-
unni en hún hafði áður birst í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins 4. maí sl.
Þar hafði Samfylking keypt heila
opnu, bls. 18 og 19, og var umrædd
mynd því birt þar öllu stærri en í
blaðinu síðasta föstudag.
Viti menn: í ljós kemur að átt hef-
ur verið við myndina sem upp-
haflega birtist – hún hafði verið
„fótósjoppuð“, svo notað sé vont ís-
lenskt mál. Á stóru myndinni, sem
birtist 4. maí, er Björgvin nefnilega
ekki fyrir miðju, heldur yst til
vinstri. Við hlið hans þar standa þeir
Mörður Árnason og Ásgeir Frið-
geirsson, en í auglýsingunni sl.
föstudag standa þeir hins vegar
lengst til hægri!
Aukinheldur eru nú allt í einu
þrjátíu og fimm manns á myndinni
(sem er þó greinilega sú sama), en
höfðu verið þrjátíu og fjórir. Við hlið
Þórunnar Sveinbjarnardóttur, yst til
hægri í fremstu röð, stendur nú allt í
einu Margrét Frímannsdóttir – en
hana hafði hvergi verið að finna á
myndinni þegar hún birtist fyrst!
x x x
ÞAÐ er ekki meining Víkverja aðgera mikið úr því þótt menn noti
sér nútímatæknina í kosningabar-
áttunni – auðvitað er erfitt að safna
öllum frambjóðendum á sama stað
þegar sem mest gengur á. Sumir eru
í framboði úti á landi og eiga kannski
ekki heimangengt í myndatöku í
Reykjavík. Svona „myndafalsanir“
bjóða þó óhjákvæmilega upp á að
andstæðingurinn geri sér mat úr
þeim í áróðursstríðinu.
Það var eitthvað bogið við þessa mynd!
Birkiaska náttúrulegt
undraefni
BIRKIASKA er náttúru-
legt undraefni sem við höf-
um tekið inn í nokkur ár
með góðum árangri.
Ástæður þess að við hóf-
um að taka birkiöskuna eru
margvíslegar, þar má nefna
gigt, bólgur, bjúg, höfuð-
verk, sykursýki og of háan
blóðþrýsting. Hefur birki-
askan komið okkur til
hjálpar auk þess sem hún
gefur okkur mikla orku.
Önnur okkar hefur átt við
mígreni að stríða og hefur
sjúkdómurinn blossað upp
þegar hún hefur sleppt úr
tímabundið að taka öskuna
en þegar hún fer aftur að
taka hana þá verður hún
strax betri. Hún hefur
einnig átt við nýrnasjúk-
dóm að stríða og þurft í þrí-
gang að fara í aðgerð og
nota lyf. Nú hrjá nýrun
hana ekki og hún er laus við
meðulin. Þakkar hún birki-
öskunni þann bata.
Auk þess höfum við verið
lausar við umgangspestir
og kvef eftir að við fórum
að taka birkiöskuna. Tök-
um við 4–6 hylki af Betus-
an/birkiösku á dag og
drekkum vel af vatni með.
Ef við erum slappar þá tök-
um við 8 hylki af birkiösku
á dag.
Við höfum bent sam-
ferðafólki á birkiöskuna og
hafa margir notað hana sér
til heilsubótar. Sárast þykir
okkur þegar við heyrum
fólk sem ekki hefur tekið
inn birkiösku lýsa því yfir
að hún sé gagnslaus.
Reynsla okkar er önnur og
hvetjum við fólk til að prufa
birkiöskuna og sjá hvort
hún hafi ekki góð áhrif á
það.
Soffía Jakobsdóttir,
Varmahlíð,
Nína Guðnadóttir,
Sauðárkróki.
Saltausturinn óg-
urlegi og endalausi
ÞRÁTT fyrir allar þær
framfarir sem orðið hafa
hérlendis í meðferð mat-
væla, t.d. unnum kjötvörum
og mjólkurvörum, ríghalda
þeir fræðingar sem vinna í
kjötvinnslu og mjólkuriðn-
aði við þennan gegndar-
lausa landlæga saltaustur í
íslensk matvæli.
Smjör er yfirleitt gert
svo brimsalt að ætla mætti
að fyrirhugaður sé stór-
felldur smjörútflutningur
til Namibíu eða Zimbabve í
sólsteiktri Afríku – smjör-
bragð finnst ekkert lengur
af þeirri feiti, bara ólystugt
pækilbragð.
Beikon og ýmsar áleggs-
vörur eru svo saltar að
maður fær beinlínis munn-
herkjur af að neyta þeirra.
Og hjartað tekur kipp og
við liggur að hárin rísi á
höfði manns.
Slátur frá vinnslustöðv-
um sem selt er tilbúið til
suðu er gert svo salt að allt
hefðbundið sláturbragð er
með öllu horfið og slátrið
líkist einna helst aflóga
hökkuðu pækilssöltu salt-
kjöti.
Þessi landlæga ofnotkun
á salti í íslensk matvæli er
nánast tilræði við heilsu
neytandans og furðulegt að
ekki skuli fyrir löngu vera
búið að taka í taumana í
þessum efnum.
Matvælaeftirlitið er eitt-
hvað dapurt virðist vera –
hollustuvernd sofnuð á
verðinum.
Neytandi.
Tapað/fundið
Barnagleraugu
í óskilum
FUNDIST hafa barnagler-
augu í Elliðaárdalnum.
Upplýsingar í síma
567 1443.
Lyklar
í óskilum
LYKLAR, bíllykill og hús-
lyklar, fundust á bak við
Rúmfatalagerinn í Skeif-
unni.
Upplýsingar í síma
696 0394.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
María Lena Ófeigsdóttir, Hjörvar Þór Ólafsson og
Jónas Ágúst Ófeigsson ferðuðust á rafmagnsbíl um
Álftanesið á sunnudag.
LÁRÉTT
1 vitleysa, 4 stafns, 7 fæð,
8 gorta, 9 beita, 11 þekk-
ing, 13 velgja, 14 ólán,
15 handfang, 17 þungi,
20 á húsi, 22 svarar, 23
kjarr, 24 ákveð, 25 vesl-
ast upp.
LÓÐRÉTT
1 aula, 2 kaðall, 3 bára, 4
þarmur, 5 bráðlyndur
maður, 6 kona Njarðar,
10 rækta, 12 hóp, 13 sjór,
15 skjóta, 16 þefar, 18
hitt, 19 þvaðra, 20 óskað
ákaft, 21 öngul.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 sjálfsagt, 8 áttan, 9 angur, 10 afl, 11 arður, 13
afana, 15 hrúts, 18 kólga, 21 kol, 22 galli, 23 undum, 24
ágiskunar.
Lóðrétt: 2 játað, 3 lúnar, 4 svala, 5 gegna, 6 rápa, 7
þróa, 12 urt, 14 fró, 15 hagl, 16 útlæg, 17 skins, 18 klufu,
19 lydda, 20 aumt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16