Morgunblaðið - 16.05.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 131. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Þverþjóð-
legt amstur
Fjórar stöllur frá þremur
heimsálfum| Daglegt líf B2
Breskir gagnrýnendur gefa nýrri
plötu hæstu einkunn | Fólk 51
Æfingin skap-
ar meistarann
Fjögur dansverk frumsýnd í
Borgarleikhúsi | Listir 24
ÖLLU farþegaflugi breskra flug-
félaga til og frá Kenýa var aflýst frá
og með gærdeginum vegna „yfirvof-
andi“ hættu. Í fyrradag vöruðu
Bandaríkjamenn við ferðum til
landsins.
Breska samgönguráðuneytið hef-
ur sent flugfélögum þau boð að
hættustig fyrir breskt farþegaflug í
Kenýa sé komið upp í „yfirvofandi“,
að því er samtök breskra ferðaskrif-
stofa greindu frá í gær. Í kjölfar þess
var öllu flugi til og frá landinu aflýst
klukkan 21 í gærkvöldi.
Nokkrum klukkustundum áður en
þessar fregnir bárust höfðu yfirvöld í
Kenýa greint frá því að sér hefðu
borist upplýsingar um að einn þeirra
sem grunaðir eru um aðild að
sprengjutilræðunum við bandarísku
sendiráðin í Kenýa og Tansaníu 1998
hygði á annað tilræði.
„Okkur er tjáð að eitthvað sé á
seyði. Þetta er alvarleg hótun og
okkur bráðvantar allar hugsanlegar
upplýsingar,“ sagði Matthew Kab-
etu, yfirmaður hryðjuverkadeildar
lögreglunnar í Kenýa.
Bandarísk yfirvöld vöruðu við því í
fyrradag að „mikil hætta“ væri á
hryðjuverkum er beindust gegn
bandarískum ríkisborgurum í aust-
urhluta Afríku, einkum Kenýa.
Öllu Kenýaflugi aflýst
London, Riyadh. AFP.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og
Dorrit Moussaieff giftu sig á Bessastöðum á mið-
vikudagskvöld eftir afmælishátíð sem haldin var í
Borgarleikhúsinu í tilefni af sextugsafmæli Ólafs
Ragnars. Guðmundur Sophusson, sýslumaður í
Hafnarfirði, gaf brúðhjónin saman. Athöfnin var
látlaus og fór fram í Bessastaðastofu að við-
stöddum dætrum forsetans og nánustu skyld-
mennum hans. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni
sem forsetabrúðkaup fer fram á Bessastöðum.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Forsetahjónin á Bessastöðum
Látlaus/4
FORMAÐUR Afls – Starfsgreinafélags Austur-
lands reiknar fastlega með því að atkvæði verði
greidd um hvort félagsmenn fari í samúðarverkfall
með verkamönnum í Færeyjum ef yfirstandandi
kjaradeila þar dregst á
langinn. ASÍ hefur tekið
undir tilmæli starfsgreina-
sambandsins og aðildar-
félaga til félagsmanna um
að ekki verði landað eða
unninn afli hér á landi úr
færeyskum skipum sem
að jafnaði landa í Færeyj-
um. Segir formaður Afls
að vel verði fylgst með því
hvort skipin reyni að landa
afla sínum hér.
ASÍ segir í yfirlýsingu að launafólki sé heimilt
að neita að ganga í störf félaga sinna sem eigi í lög-
mætu verkfalli. Þá telur sambandið að atvinnurek-
endum sé ekki heimilt að beita sér og starfsmönn-
um sínum í því skyni að brjóta á bak aftur
lögmætar verkfallsaðgerðir.
Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnu-
vinnslunnar, segir að þau færeysku skip sem fyr-
irtækið hefur keypt kolmunna af undanfarna daga
landi öll að jafnaði á Íslandi og því telji hann til-
mæli Starfsgreinasambandsins ekki eiga við um
þau.
Færeysk skip fá hærra verð
Færeysk loðnuskip hafa fengið hærra verð fyrir
kolmunnann en íslensk hjá fiskimjölsverksmiðjum
á Íslandi. Verðlagsstofa skiptaverðs kannar nú
verðlagninguna en formaður Farmanna- og fiski-
mannasambandsins segir þessa mismunun ekki
ganga upp. Telur hann einkennilegt að verksmiðj-
urnar geti borgað nærri 80% af afurðaverði fyrir
hráefnið. Sé svo hljóti að vera eitthvað athugavert
við að þær hafi áður reiknað út að ekki væri hægt
að borga með góðu móti 55% af afurðaverðinu fyrir
hráefnið.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að verð
til íslensku skipanna sé almennt um 6.500 krónur
fyrir tonnið en færeysku skipin hafi fengið um
7.400 krónur fyrir tonnið.
Freysteinn Bjarnason, útgerðarstjóri hjá Síld-
arvinnslunni, segir öllum gert jafnhátt undir höfði.
Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnu-
vinnslunnar, segir að samið sé sérstaklega við er-
lend skip og verðið yfirleitt ekki gefið upp.
Lagst gegn
löndun
Færeyinga
Samúðarverkfall hugs-
anlegt á Austurlandi
dragist deilan á langinn
Samúðarverkfall/4
Mínus
fær plúsa
SAMKEPPNISRÁÐ greindi frá því í
gær að það myndi ekki leggjast gegn
samruna Búnaðarbanka Íslands og
Kaupþings banka.
Samkeppnisyfirvöld leituðu álits
Seðlabanka Íslands á líklegum áhrifum
fyrirhugaðs samruna á millibanka-
markað með gjaldeyri. „Er niðurstað-
an sú að samruninn er ekki talinn ógna
skilvirkni þessa markaðar og kallar
hann aðeins á minni háttar aðlögun á
viðkomandi reglum Seðlabankans.
Öðru máli gæti hins vegar gegnt ef
frekari fækkun yrði á þessum mark-
aði,“ segir orðrétt í ákvörðun Sam-
keppnisráðs.
Ekki formlegt álit Seðlabanka
Morgunblaðið bar það undir Birgi
Ísleif Gunnarsson, formann banka-
stjórnar Seðlabanka Íslands, hvort af
þessu mætti ráða að Seðlabankinn
teldi að fleiri samrunar í íslensku
bankakerfi gætu ógnað skilvirkni á
millibankamarkaði með gjaldeyri.
Birgir Ísleifur segir að í þessari
málsgrein birtist ekki formlegt álit
Seðlabankans. „Það er augljóst að því
færri sem eru á markaðnum því minna
skilvirkur verður hann.“ Birgir Ísleifur
segir að þetta sjónarmið hafi komið
fram á fundi stofnunarinnar með
starfsmönnum Seðlabankans. Hins
vegar sé ekki um að ræða formlegt álit
bankans á því hvort frekari samþjöpp-
un á bankamarkaði hefði áhrif á milli-
bankamarkað með gjaldeyri.
Sérstakt að fjalla um óskyld mál
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbanka Íslands, segist vera sam-
mála úrskurði Samkeppnisráðs í meg-
inatriðum. „Ég er almennt sammála
því að leyfa stærðarhagkvæmni að
njóta sín á fjármálamarkaði. Í raun er
úrskurður Samkeppnisráðs í rétta átt
en mér finnst sérstakt að hann skuli
fjalla um önnur mál en úrskurðarefnið.
Það er mikilvægt í öllum opinberum
úrskurðum að þeir taki einvörðungu til
þess álitaefnis sem fyrir liggur en inni-
haldi ekki vangaveltur um mögulega
og óskylda kosti,“ segir Halldór J.
Kristjánsson.
Samkeppnisráð um áhrif
samruna á millibanka-
markað með gjaldeyri
Frekari
fækkun
gæti ógnað
skilvirkni
Samkeppnisráð/4