Morgunblaðið - 16.05.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Aðdáendur Matrix-myndarinnar hafa beðið framhalds-
myndarinnar í ofvæni. Skarphéðinn Guðmundsson hitti
aðstandendur myndarinnar í Cannes.
Birgitta Haukdal
Evróvisjón-söngvakeppnin hefst á framlagi Íslands á
laugardagskvöld í Riga. Sigurbjörg Þrastardóttir ræðir
við söngkonuna Birgittu Haukdal.
Nýjar áherslur í stéttabaráttu
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir Pétri Blöndal
frá hugmyndum um að launþegar ávinni sér veikindarétt
óháð fyrirtækjum og nýjar áherslur í stéttabaráttu.
Hin heilaga þrenning
á sunnudaginn
LÝSA VANÞÓKNUN
Landssamband eldri borgara lýsir
í drögum að ályktun um kjaramál
vanþóknun á óraunhæfum til-
löguflutningi stjórnmálaflokka um
breytingar á skattalögum. Jafn-
framt er skorað á stjórnvöld að
hverfa nú þegar frá þeirri stefnu
sem fylgt hefur verið að undanförnu
um starfsemi almannatrygginga á
Íslandi.
Vilja telja aftur
Frjálslyndi flokkurinn hefur kraf-
ist þess við allar yfirkjörstjórnir
landsins að atkvæði í nýliðnum al-
þingiskosningum verði endurtalin
þar sem munurinn á milli stjórnar
og stjórnarandstöðu með tilliti til
fjölda þingsæta sé ákaflega lítill.
Kenýaflugi aflýst
Öllu farþegaflugi breskra flug-
félaga til og frá Kenýa var aflýst frá
og með gærdeginum vegna upplýs-
inga um yfirvofandi hættu á hryðju-
verkum er beinist gegn breskum
ríkisborgurum.
Einkaskólar í vanda
Alger óvissa er um framtíð einka-
rekinna grunnskóla og óljóst hvort
sumir þeirra starfi áfram næsta vet-
ur, segir borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins.
Spá kaupmáttaraukningu
Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins er spáð 3% kaupmáttaraukn-
ingu í ár og 3,5% á næsta ári.
Sakaðir um blekkingar
Yfirvöld í Frakklandi hafa sakað
bandaríska embættismenn um að
standa að skipulagðri „blekking-
arherferð“ gegn Frakklandi, með
óhróðri og ásökunum um að landið
hafi stutt stjórn Saddams Husseins.
F Ö S T U D A G U R 1 6 . M A Í 2 0 0 3 B L A Ð B
Í ÞVERÞJÓÐLEGU AMSTRI DAGSINS – HVERSDAGSLÍFIÐ HÉR OG
ÞAR/2 LÍFIÐ ER TÖFRUM GÆTT/4 AUÐLESIÐ EFNI/8
NÚ ER komið í tísku aðprjóna. Þetta er hermt ífréttum frá útlöndum þar
sem Hollywood-stjörnur eru sagðar
flíka hálfprjónuðum flíkum við
hvert tækifæri. Og hann er ekkert
smáræði, listinn yfir þær stjörnur
sem afhjúpað hafa einlægan prjóna-
áhuga; Julia Roberts, Hilary Swank,
Cameron Diaz, Winona Ryder, Ma-
donna, Daryl Hannah, Kate Moss.
Og ennfremur ... holdtekja karl-
mennskunnar, sjálfur skylm-
ingaþrællinn Russel Crowe!
Frá þessu er greint í á breska vef-
miðlinum Telegraph þar sem fullyrt
er að prjón sé hið nýja rokk og ról
heimilanna. Sögð er saga af Goldie
Hawn, sem greip til prjónanna eftir
harmleikinn 11. september og bjó til
bandaríska fánann úr hvítu, rauðu
og bláu garni. „Ég var að reyna að
prjóna Ameríku aftur saman,“ er
haft eftir leikkonunni.
Skýringin á vinsældum prjóna-
skapsins er m.a. rakin til þess
hversu góður streitubani hann þyk-
ir vera – eins konar sambland íhug-
unar og sköpunar. „Þetta er hið
nýja jóga í Bandaríkjunum,“ stað-
hæfir David Rawson, markaðsstjóri
einnar stærstu spunaverskmiðju
Bretlands, Sirdar, sem segir vin-
sældir prjóns einnig vaxandi í Bret-
landi eftir lægð 9. og 10. áratug-
arins. Því til stuðnings eru nefndar
prjónasamkomur sem á dagskrá
hafa verið að undanförnu allt frá
Halifax til Jórvíkur. „Aðsóknin kom
mjög á óvart. Allt fylltist út úr dyr-
um og þegar tónlistin dó út var
klirrið í prjónum fólksins eins og
engisprettusinfónía,“ sagði hvata-
maðurinn Simon Thackray.
Þá er greint frá óvæntum vin-
sældum prjóns meðal breskra barna
og unglinga. Elizabeth Newson,
prófessor í þróunarsálfræði við
Nottingham-háskóla, hefur þær
skýringar á áhuganum að unglings-
stúlkum sé eðlislægt að vilja hanna
sína eigin veröld með því að velja
sér föt, tónlist og tískustrauma.
Prjónaskapurinn sé framhald af
þeirri sjálfsleit, þar fái stúlkurnar
tækifæri til þess að velja liti og
mynstur og tjá þannig sinn eigin
stíl.
Það kann að koma á óvart að
„gamaldags“ dægradvöl á borð við
prjón eigi möguleika í samkeppn-
inni við tæknivædda afþreyingu
samtímans. Á tímum tölvuleikja,
geislaspilara og tónlistarmynd-
banda er útbreidd skoðun að athygl-
isþol unglinga sé á hverfanda hveli.
Tafarlaus ánægja verði að vera
tryggð – annað selji ekki. En vin-
sældir prjóns gefa vísbendingar um
að börn og unglingar kunni og vilji
enn einbeita sér að tómstundum
sem reyna á hugsun, hönd og út-
hald. Doktor William Davies, stjórn-
andi Samtaka um sálræna meðferð í
Leicester, bendir á að með prjóna í
hönd séu börnin sjálf við stjórnvöl-
inn, sem veiti þeim ákveðna örygg-
istilfinningu. „Flestar manneskjur
vilja ná valdi yfir einhverju – og ull
veitir enga mótspyrnu,“ er haft eftir
Davies. Hann bendir einnig á að
prjónið hjálpi fólki að horfa til fram-
tíðar, það þjálfist skipulega í að
raungera hugmyndir sínar. Þetta sé
mikilvægt og nýtist án efa á ýmsum
öðrum sviðum.
Ýmislegt á prjónun-
Morgunblaðið/Sverrir
Á þessum prjónum er trefill úr Regia-ullargarni sem er þeim eiginleikum
gætt að það mynstrar sig sjálft. Þráðurinn skiptir litum með vissu millibili
og nýtur vaxandi vinsælda hérlendis um þessar mundir.
og
hjá
stjörnum
og
börnum
Julia Roberts Russell Crowe Cameron Diaz
SLÉTT
BRUGÐIÐ
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 12/14 Minningar 32/38
Erlent 16/20 Bréf 42/43
Höfuðborgin 20 Dagbók 44/45
Akureyri 21 Sport 46/47
Suðurnes 22 Leikhús 48
Landið 23 Fólk 48/53
Listir 24/25 Bíó 50/53
Umræðan 26/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið Matrix.
Blaðinu er dreift á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri.
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær
sjúkraflutningamann af ákæru um að
hafa áreitt kynferðislega konu sem
flutt var frá heimili sínu að Landspít-
alanum í ágúst árið 2001. Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur hafði áður dæmt
manninn sekan. Sjúkraflutningamað-
urinn var leystur frá starfsskyldum
sínum hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins í kjölfar kærunnar en það
þýðir að hann þáði laun en þurfti ekki
að inna af hendi nein störf fyrir
slökkviliðið. „Ég mun setja mig í sam-
band við hann og ræða við hann,“
sagði Hrólfur Jónsson slökkviliðs-
stjóri í gærkvöldi, aðspurður hvort
maðurinn tæki nú aftur við starfi sínu
sem sjúkraflutningamaður.
Hugsanlega eðlilegar skýringar
á að lífsýni fannst á brjóstinu
Lífsýni sem tekin voru af brjósti
konunnar og borin saman við blóð-
sýni úr manninum þykja ekki með
óyggjandi hætti benda til að maður-
inn hafi, líkt og konan hélt fram, sleikt
brjóst hennar. Þá sakaði hún mann-
inn einnig um að hafa káfað á lærum
sínum og kynfærum. Konan hefur
staðfest að hafa tekið inn lyf umrætt
kvöld í þeim tilgangi að svipta sig lífi.
Í dómi Hæstaréttar segir að þegar
litið sé til lýsinga mannsins á því hvað
honum bar að gera samkvæmt starfs-
reglum þyki ekki útilokað að eðlilegar
skýringar geti legið til þess að lífsýni
úr honum fannst á brjósti konunnar,
hvort sem það hafi komið úr munn-
vatni hans eða á annan hátt, en ann-
arra gagna naut ekki við um ætlað
áreiti hans. Þar segir ennfremur að
ekki verði útilokað eins og aðstæðum
var háttað að konan hafi getað mis-
túlkað athafnir mannsins. Þóttu því
sönnunargögn málsins metin í heild
ekki nægileg til þess að dómur yrði á
þeim reistur um sakfellingu mannins.
Þótti mat héraðsdóms á sönnunar-
gildi framburðar konunnar ekki geta
haft áhrif á þá niðurstöðu.
Í röksemdum héraðsdóms er full-
yrt að með niðurstöðu DNA-rann-
sóknar sé fram komið að munnvatn
úr manninum hafi greinst á brjósti
konunnar. Bæði í greinargerð sak-
sóknara og ákærða er því haldið fram
að það sé of sterkt til orða tekið. Í
dómi Hæstaréttar segir að ekki verði
fullyrt hvort munnvatnið sem fannst
á brjósti konunnar stafi frá henni
sjálfri eða þeim báðum og er þar
stuðst við skýringar saksóknara á
svörum og útskýringum Gunnlaugs
Geirssonar prófessors á rannsóknar-
niðurstöðum.
Þá segir að ekki verði framhjá því
horft að konan hafi tekið lyf í því
augnamiði að fyrirfara sér „og hlaut
eðlilega að vera í miklu uppnámi þeg-
ar af þeim sökum“. Verður því ekki
útilokað að konan hafi getað mistúlk-
að athafnir mannsins.
Sýknaður af ákæru um kynferðislegt áreiti
Lífsýni á brjósti ekki
óyggjandi sönnun
VESTURBÆJARMEYJARNAR
Alexandra og Anna María hafa útbú-
ið auglýsingu og borið sjálfar út í
húsin í hverfinu. Auglýsingin hefur
glatt margan Vesturbæinginn en
hún hljóðar svo: „Pössun. Alexandra
og Anna María ætla að passa börn á
aldrinum 3–5 ára. Okkur er mjög
treistandi. Við erum 9 ára, bráðum
10. 1 krakki 1000 kr, 2 krakkar 2000
kr. Á mán, mið og sun kl. 3–6.“
Stelpurnar eru bestu vinkonur og
bekkjarsystur í Landakotsskóla sem
þær segja vera langbesta skóla sem
til er. Þær eru báðar ákveðnar í því
hvað þær ætla að gera við peninginn
sem þær vinna sér inn. „Ég er að
safna fyrir hvolpi. Mig hefur alltaf
langað að eignast hvolp,“ segir Alex-
andra. Anna María segist vera að
safna sér fyrir dálitlu sem er leynd-
armál. „ En svo langar mig líka rosa-
lega í geisladiskinn með Birgittu
Haukdal,“ segir Anna María. Stelp-
urnar segjast ekki hafa gaman af
óþekktarormum en finnst lítil börn
annars rosaleg krútt. „Það er til
dæmis ein lítil stelpa sem er rosa-
lega sæt. Hún heitir Ída og er systir
þarnæstbestu vinkonu minnar,“ seg-
ir Anna María. Alexandra upplýsir
að þær vinkonur hafi fleiri ráð uppi í
erminni ef lítið verður að gera í
barnapíustörfunum: „Við vorum að
hugsa um að fara í vinnuna hans
pabba og selja gulrótarköku þar.
Pabbi ætlar kannski að kenna okkur
að baka gulrótarköku.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Vinkonurnar Anna María og Alexandra ætla að gerast barnapíur í sumar.
Barnapíur auglýsa
VEGNA orða yfirmanns herráðs
rússneska flotans í Morgunblaðinu í
gær um flug tveggja rússneskra her-
flugvéla nálægt Íslandi 25. apríl sl.
vill Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
taka fram eftirfarandi:
„Rússnesku herflugvélunum
tveimur sem orrustuflugvélar Varn-
arliðsins flugu til móts við innan ís-
lenska loftvarnarsvæðisins 25. apríl
sl. var fylgt eftir á þann hátt sem
hefðbundinn er og viðurkenndur á
alþjóðavettvangi í slíkum tilvikum.
Flugvélar Varnarliðsins héldu sig
ávallt í öruggri fjarlægð frá Rúss-
nesku flugvélunum sem hurfu út af
loftvarnarsvæðinu án þess að neitt
óvenjulegt gerðist.“
Voru í öruggri
fjarlægð
KONA sem slasaðist er hún féll af
hestbaki á Lögmannshlíðarvegi
norðan Akureyrar sl. þriðjudag lést í
gær. Tildrög slyssins eru enn óljós,
en málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á Akureyri. Konan, sem var
á sextugsaldri, var ein á ferð þegar
hún féll af hestbaki.
Lést eftir fall
af hestbaki
ANNA Kristinsdóttir, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins og R-listans, sagði
nauðsynlegt að reynt yrði að hafa
sem mest samráð við íbúa í Grafar-
vogi um lóð Landssímans en málið
var rætt á borgarstjórnarfundi í
gær. Var Anna beðin að skýra af-
stöðu sína til málsins í kjölfar bók-
unar Björns Inga Hrafnssonar í
skipulags- og byggingarnefnd á dög-
unum, en í bókun Björns kom fram
að ekki væri æskileg sátt um lóðina.
Anna segist taka undir það sjón-
armið Björns. Búið sé að samþykkja
tvo hluta af þremur á svæðinu en at-
hugasemdum við þriðja hluta megi
skila til 24. maí og þá muni hún skoða
athugasemdir með opnum huga. Því
sé ekki útilokað að hún muni taka
undir sjónarmið Björns að skoða eigi
möguleikann á að stækka opið rými
og minnka byggingarmagn.
Skipulag Landssíma-
lóðar í Grafarvogi
Æskilegt
að ná sátt
við íbúa
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦