Morgunblaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 37
✝ Elín Guðjóns-dóttir fæddist á
Hólmavík 18. júní
1931. Hún lést á
kvennadeild Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúss við
Hringbraut 10. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar Elínar voru hjónin
Kolfinna Snæbjörg
Jónsdóttir frá Gauts-
dal, f. 16. desember
1891, d. 17. janúar
1985, og Guðjón
Jónsson, smiður á
Hólmavík, f. 15. maí
1886, d. 16. september 1939. Systk-
ini Elínar eru: Haraldur Hafsteinn,
f. 11.3. 1913, d. 27.2. 1999, Júlíana
Ingibjörg, f. 15.1. 1915, d. 25.7.
1998, Ólöf Ragnheiður, f. 16.12.
1919, Sigurbjörn, f. 22.8. 1922, d.
23.3. 1982, Magnús Ellert, f. 13.9.
1926, d. 17.5. 1990, og Kristinn
Ágúst, f. 13.9. 1926.
Fyrri eiginmaður Elínar var
Guðmundur Hagalín Kristjánsson,
kaupmaður í Krónunni, f. 14. októ-
ber 1926, d. 14. ágúst 1974. Saman
áttu þau fimm börn og eru fjögur
1980, Böðvar, f. 4.8. 1983, í sambúð
með Carina Ringaard Christian-
sen, f. 6.4. 1982, og Barða, f. 21.3.
1988.
Eftirlifandi eiginmaður Elínar
er Emil Hjartarson, f. 25.5. 1921.
Fyrir átti Emil fjórar dætur, þær
eru: 1) Sigríður, f. 1.3. 1947, gift
Ragnari Harðarsyni, f. 31.1. 1947,
þau eiga þrjár dætur, Ragnheiði
Hildi, f. 5.2. 1969, gift Birgi Svan
Birgis, f. 15.2. 1968, þau eiga þrjú
börn, Birgi Ragnar Birgis, f. 27.8.
1989, Birgittu Ragnheiði Birgis, f.
20.7. 1994, og Sigríði Söru Birgis,
f. 24.11. 1999; Emilíu Erlu, f. 28.9.
1973; og Söru Sigríði, f. 16.12.
1983. 2) Erla, f. 8.3. 1949, hún á tvo
syni, Emil Guðfinnsson, f. 10.2.
1978, í sambúð með Shilba Smart,
f. 4.8. 1966, og Bjarna Guðfinns-
son, f. 2.9. 1979. 3) Guðrún, f.
12.10. 1950, hún á tvær dætur:
Steinþóru Hildi Clausen, f. 21.10.
1975, í sambúð með Guðjóni Ás-
mundssyni, f. 29.5. 1972, þau eiga
tvo syni, Ásmund Atla, f. 9.10.
1999, og Steinþór Loga, f. 9.8.
2001; og Kristínu Hrund Clausen,
f. 14.5. 1978. 4) Bryndís, f. 14.6.
1962, gift Hjalta Ástbjartssyni, f.
8.12. 1967, þau eiga þrjú börn, Em-
il, f. 23.3. 1993, Hjalta Má, f. 1.5.
1996, og Ingibjörgu, f. 7.2. 2002.
Útför Elínar verður gerð frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 10.30.
þeirra á lífi: 1) Krist-
ján Guðmundsson, f.
1.11. 1949, kvæntur
Hildi Hermannsdótt-
ur, f. 30.8. 1951, þau
eiga tvo syni, Guð-
mund Rúnar, f. 22.12.
1973, kvæntur Hildi
Sigurðardóttur, f. 9.9.
1979, sonur þeirra er
Kristján Gabríel, f.
12.12. 2002, og Her-
mann Örn, f. 28.9.
1978, í sambúð með
Ragnhildi Guðrúnu
Eggertsdóttur, f. 17.9.
1981. 2) Barði, f. 21.2.
1951, d. 23.10. 1987. 3) Kolfinna
Sigrún, f. 13.12. 1953, gift Hlöð-
veri Sigurðssyni, f. 29.8. 1946, þau
eiga þrjár dætur, Elínu Guðnýju, f.
22.4. 1986, Maríu Petu, f. 11.9.
1988, og Kolfinnu, f. 6.8. 1990. 4)
María, f. 14.6. 1957, gift Jóni
Heiðari Guðjónssyni, f. 12.2. 1957,
þau eiga tvö börn, Elínu Maríu, f.
12.6.1984, og Guðjón, f. 13.12.
1985. 5) Haraldur Guðjón, f. 28.6.
1958, kvæntur Sigríði Böðvars-
dóttur, f. 22.12. 1959, þau eiga þrjú
börn, Hólmfríði Kristínu, f. 27.5.
Að leiðarlokum kveðjum við Elínu
Guðjónsdóttur með virðingu og hlý-
hug. Hún var sterkur persónuleiki
sem hafði mikil áhrif á þá sem hana
þekktu. Ella var einstaklega hlý og
glæsileg kona sem eftir var tekið hvar
sem hún fór.
Við systur kynntumst Ellu árið
1977 þegar hún kynntist og síðar
gekk í hjónaband með föður okkar,
Emil Hjartarsyni. Á Laugarásvegin-
um bjó hún honum glæsilegt heimili
sem einkenndist af miklum myndar-
skap. Heimilið stóð ætíð opið fyrir
fjölskyldunni og vinum enda hafði
Ella yndi af því að taka á móti fólki og
lék þá allt í höndum hennar, enda
annáluð listakona.
Ella var mikil fjölskyldukona og
alltaf fús að rétta fram hjálparhönd
sem við mörg nutum í ríkum mæli.
Barnabörnin hændust að henni og
varla var hún fyrr komin inn úr dyr-
unum en þau voru komin í fangið á
henni og sátu þar kvöldið á enda. Hún
vissi að lengi býr að fyrstu gerð og var
óspör á hvatningu og hrós við börnin.
Fyrir þremur árum greindist Ella
með illvígt krabbamein sem lagði
hana loks að velli þrátt fyrir hetjulega
baráttu. Við þær aðstæður komu
mannkostir hennar vel í ljós og mætti
hún örlögum sínum með æðruleysi,
sátt við vel unnið dagsverk. Í veikind-
unum kom vel í ljós traust og hlýja í
sambandi þeirra pabba, sem studdi
hana með ráðum og dáð. Ella skilur
eftir stórt skarð í lífi hans en eftir lifa
fallegar minningar um merkilega
konu og ástríkan förunaut.
Sigríður, Erla,
Guðrún og Bryndís.
Síðastliðinn laugardag lést Elín
Guðjónsdóttir, tengdamóðir mín. Ég
sá Elínu fyrst fyrir 32 árum þegar ég
fór að koma í heimsókn í Básendann.
Ég man hvað mér þótti ég velkomin
því að strax var farið að heilsa mér
með kossi og faðmlagi og þannig hef-
ur það verið síðan.
Margar góðar minningar koma upp
í hugann. Elín var glæsileg kona og
eftir henni tekið hvar sem hún var.
Mér fannst hún ávallt svo traust og
góð manneskja og ég man hvað mér
þótti þau falleg hjón, hún og Guð-
mundur, en hann lést árið 1974, þá 46
ára.
Árið eftir að Guðmundur dó rak El-
ín gestamóttöku í Básendanum og
það er kannski lýsandi dæmi um
hvernig kona hún var, að hjá henni
gistu ung þýsk hjón og þegar þau
eignuðust dóttur einhverjum árum
síðar skírðu þau hana Elínu.
Elín fór að kenna postulínsmálun á
þessum árum og gerði raunar alla tíð.
Þegar Elín varð 60 ára ákvað hún að
bjóða „postulínskonunum“ og vinkon-
um til hátíðarkvöldverðar í gömlum
kastala, Burg Resturant í Saarburg í
Þýskalandi. Það voru 70 glaðar konur
á öllum aldri sem fóru í þessa stór-
kostlegu ferð, þarna var ekkert til
sparað, tekið var á móti konum með
lúðrasveit og ávarpi og þá fékk hún
vini sína, Guðna Þ. Guðmundsson,
Bergþór Pálsson og fleiri, til að gera
kvöldið sem eftirminnilegast. Svona
var hún Elín glæsileg í öllu sem hún
gerði og allir vildu vera nálægt henni.
Lífið var henni Elínu ekki alltaf
auðvelt, hún missti Barða son sinn í
slysi árið 1987 og það var henni afar
erfitt. Fyrir sex árum lærbrotnaði
hún, stuttu seinna fékk hún krans-
æðastíflu, og fyrir um þrem árum
greindist hún svo með krabbamein
sem að lokum dró hana til dauða. Em-
il, seinni maður Elínar, reyndist henni
mikill styrkur í þessum veikindum.
Elsku Elín, þú áttir svo stóran
faðm sem svo margir fengu að njóta
og ég sakna þess að finna hann ekki
lengur taka utan um mig. Þakka þér
fyrir hvað þú varst mér góð tengda-
móðir og vinkona.
Hildur.
Elsku Ella.
Þegar kemur að kveðjustund er
margt sem kemur upp í hugann.
Leiðir okkar Ellu lágu saman fyrir
u.þ.b. 15 árum þegar ég kynntist
Ragnheiði Hildi Ragnarsdóttur,
barnabarni Emils Hjartarsonar. Ella
kom mér strax fyrir sjónir sem glæsi-
leg og hjartahlý kona. Í hvert skipti
sem við svo sáumst, sem var því mið-
ur allt of sjaldan, fagnaði hún manni
með hlýju viðmóti og væntumþykju.
Ella hafði undanfarið barist við mjög
svo erfiðan sjúkdóm sem gerði hana
mun veikari en hún vildi vera láta,
aldrei kvartaði hún og bar höfuðið
hátt, þrátt fyrir að hún vissi í hvað
stefndi.
Maður getur aldrei í stuttu máli
komið því að sem mann langar, en
með þessum fáu orðum langar mig
bara til þess að þakka þér Ella mín
fyrir þann tíma sem við þekktumst og
þá hlýju og styrk sem þú veittir mér
og þá sérstaklega þegar ég átti um
sárt að binda eftir fráfall bróður míns
og við áttum spjallið góða. Þá gafst þú
mér styrk sem vinur og „ættingi“ og
ég mun ætíð geyma það í hjarta mínu.
Elsku Ella mín. Hvíl þú í friði og
guð blessi og varðveiti minningu þína.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum.)
Elsku Emil og fjölskylda, mínar
innilegustu samúðarkveðjur til ykkar
allra.
Guð blessi ykkur öll.
Birgir Svanur Birgis (Biddi).
ELÍN
GUÐJÓNSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar
um Elínu Guðjónsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
HELGA GÍSLADÓTTIR,
Brávallagötu 40,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag,
föstudaginn 16. maí, kl. 15.00.
Að ósk hinnar látnu verða engar minningar-
greinar birtar.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Grundar.
Richard Faulk,
Sigrún Faulk, Elías Skúli Skúlason,
Hrafnhildur Faulk, Ingólfur Guðnason,
Þorvaldur Skúli og Sigríður Helga.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELSA GEORGSDÓTTIR,
Hátúni 12,
Reykjavík,
sem andaðist mánudaginn 12. maí, verður
jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn
16. maí kl. 15.00.
Ólafur Jón Hansson,
Sveinbjörg Fjóla Pálmadóttir, Jón Helgi Óskarsson,
Guðfinnur Georg Pálmason, Jóhanna Sigríður Emilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir og tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÖF GUÐRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR
frá Straumi, Skógarströnd,
síðast til heimilis
í Skólatúni 4,
Bessastaðahreppi,
sem lést fimmtudaginn 8. maí, verður jarðsung-
in frá Breiðabólsstaðakirkju á Skógarströnd
laugardaginn 17. maí kl. 14.00.
Guðmundur Sverrisson, Ásta Grímsdóttir,
Ólafur Sverrisson, Ósk Jóhannesdóttir,
Hulda Sverrisdóttir, Egill Tyrfingsson,
Þórdís Sverrisdóttir, Einar Jakobsson,
Bjarnfríður Sverrisdóttir, Snorri Þorgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað verður í dag, föstudaginn 16. maí, vegna jarðarfarar
ELÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR.
TM Húsgögn,
Síðumúla 30,
Reykjavík.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
PÉTURS GUÐLAUGS JÓNSSONAR,
Bláhömrum 2.
Hulda Ingibjörg Biering,
Viðar M. Pétursson, Sigurbjörg Jónsdóttir,
Ellen M. Pétursdóttir, Sigurður H. Jónasson,
Margrét G. Pétursdóttir, Kristmundur G. Skarphéðinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
LÚÐVÍK GUÐJÓNSSON,
áður til heimilis í Hraunbæ 54,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 17. maí kl. 14.00.
Aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og systir,
ELÍSABET VESTDAL-ABÈLA,
Breiðabólsstöðum,
Álftanesi,
lést í Annecy, Frakklandi, miðvikudaginn 14. maí.
Roger Abèla,
Pierre, Marianne, Frèdèric, Christine og barnabörn,
Jóhannes Vestdal.