Morgunblaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 41
Kjarna-
vörur
Bakarahátíð
í Smáralind
Fylgist með spennandi keppni í brauð-
og kökubakstri í Vetrargarðinum,
Smáralind, dagana 16. til 18. maí
Föstudaginn 16. maí:
Baksturskeppni bakaríanna - Fyrri hópur .......
Laugardaginn 17. maí:
Baksturskeppni bakaríanna - Seinni hópur .......
Úrslit kynnt og verðlaunaafhending ..........................
Sunnudaginn 18. maí:
Verk keppenda til sýnis................................
Á keppnissvæðinu verða fyrirtæki með ýmsar kynningar og
uppákomur, marsipanskreytingar, súkkulaði, kaffi bakarans
og margt fleira. Á sunnudeginum gefst fólki kostur á að
ræða við meistarana og smakka á brauði og bakkelsi.
12:00 - 18:00
9:00 - 15:00
17:00
13:00 - 18:00
Sérfræðingur Kanebo kynnir farðann og nýjasta undrið í förðun í dag, föstudag,
og á morgun, laugardag í Lyfju, Lágmúla, kl. 12-17.
Extra Radiance er farði sem fær húð þína til þess að ljóma sem aldrei fyrr.
Spennandi kynningartilboð föstudag og laugardag.
FARÐINN SEM OPINBERAR FEGURÐ ÞÍNA
LÁGMÚLA
I N T E R N A T I O N A L
GUÐMUNDUR Jónsson, kosninga-
stjóri Frjálslynda flokksins, vill
taka fram vegna orða Óttós Jörg-
ensen, kjörstjórnarmanns í Kefla-
vík, að flokkurinn standi við gagn-
rýni sína á móttöku utankjör-
fundaratkvæða í Keflavík.
„Þetta atvik sem Ottó Jörgensen
vitnar til í Morgunblaðinu,
„… komu snemma morguns fyrir
kjörfund …“, er mér ókunnugt um,
en sýnir einungis hroka í yfirkjör-
stjórn. Það hefði samt verið ástæða
fyrir kjörstjóra að biðja menn um
að bíða til opnunar kjörfundar, ef
þeir hafa mætt of snemma, en lík-
legra er að lögreglan hafi komið í
veg fyrir að kjósendur kæmust inn
á kjörstað „fyrir upphaf kjörfund-
ar“, nema sú framkvæmd hafi farið
úr böndum.
Þessum einstaklingum, sem Ottó
vísar til, ber ekki skylda til á nokk-
urn hátt að „flýta fyrir einhverju“
hjá kjörstjórn. Kjörstjórn hefur
ekkert vald til þess að vísa mönnum
frá með utankjörfundaratkvæði, og
ekki heldur þeim fulltrúum Frjáls-
lynda flokksins sem komu síðdegis á
kjördag, þeim Magnúsi Þór Haf-
steinssyni, varaformanni Frjáls-
lynda flokksins, og fulltrúa frá
kosningaskrifstofunni í Reykja-
nesbæ, enda voru þeir ekkert á leið-
inni til Selfoss og fóru aldrei þang-
að, um það getur yfirkjörstjórn á
Selfossi vitnað. Niðurstaðan stend-
ur því enn óhögguð, 65. grein laga
nr. 24 frá 16. maí 2000 var einfald-
lega þverbrotin gagnvart kjósend-
um og væntir kosningastjóri Frjáls-
lynda flokksins að kjörstjórnir lesi
framvegis lög um kosningar fyrir
næstu alþingiskosningar, og taki at-
hugasemdalaust við þeim utankjör-
fundaratkvæðum sem þeim berast
áður en þeir fara að vísa mönnum út
og suður.“
Yfirlýsing frá frjálslyndum
en þeir tveir síðasttöldu fórust með
vélskipinu Helga VE 333 árið 1950
við Heimaey.
Árið 1999 voru 100 ár liðin frá
fæðingu Helga Ben. en hann var
einn umsvifamesti útgerðarmaður í
Eyjum á 20. öld og eignaðist 20 skip
á ferli sínum.
Líkönin smíðaði Grímur Karlsson,
fyrrverandi skipstjóri í Njarðvíkum.
BRÆÐURNIR úr Eyjum, Sig-
tryggur og Páll Helgasynir, komu
færandi hendi til Síldarminjasafns-
ins á Siglufirði 15. apríl sl. er þeir
gáfu safninu fjögur skipslíkön. Gjöf-
in er til minningar um föður þeirra
Helga Benediktsson, útgerðarmann
í Vestmannaeyjum, Arnþór Jó-
hannsson, skipstjóra á Siglufirði og
Gísla Jónasson, sjómann Siglufirði,
Þeir Eyjabræður, Sigtryggur og Páll Helgasynir, með Dagnýju SI, eitt
þeirra skipa sem þeir gáfu Síldarminjasafninu.
Eyjaskip til Siglufjarðar
VIÐBURÐAVEISLA á Akranesi
hefst um helgina. Dagana 17. og 18.
maí verða fyrstu dagskráratriði
sumarsins í svokallaðri Viðburða-
veislu á Akranesi 2003. Er þetta röð
8 ólíkra viðburða á tímabilinu maí til
ágúst sem eiga það sameiginlegt að
fara fram á Safnasvæðinu á Görðum
á Akranesi.
Byggður verður hákarlahjallur á
bryggjusvæðinu við Kútter Sigur-
fara og stuðst við sömu aðferðir og
tíðkuðust fyrr á öldum. Kveðnar
verða rímur, seldur unninn hákarl,
kofareyktur rauðmagi og harðfiskur
frá Bjarnarhöfn en auk þess verður
hægt að kaupa signa grásleppu og
nýjan rauðmaga.
Meðal dagskrárviðburðir í sumar
má nefna: 1. júní verður kúttermaga-
kvöld um borð í Kútter Sigurfara.
14.–15. júní verður vígð listastofa í
Fróðá. „Work-shop“ að erlendri fyr-
irmynd. Dýrfinna Torfadóttir og
liðsmenn Hugar og handar listhúss
opna vinnustofu í einu af eldri upp-
gerðu húsum svæðisins. Handverks-
markaður verður á svæðinu þessa
helgi. 21. júní verður haldið lands-
mót kleinusteikingarfólks. Þátttak-
endur víða að af landinu keppa um
titilinn „Kleinumeistari Íslands“.
Um kvöldið verður varðeldur, grill
og fjölskylduratleikur á Jónsmessu.
5. júlí verða listsýningar opnaðar á
Safnasvæðinu.
Viðburðaveisla á
Akranesi í sumar
RÖSKVA, samtök félagshyggjufólks
í Háskóla Íslands, hefur sent frá sér
ályktun um nýjar úthlutunarreglur
Lánasjóðs íslenskra námsmanna þar
sem lýst er undrun með að breytingin
á úthlutunarreglunum nú skuli aðeins
fela í sér 0,35% raunhækkun á grunn-
framfærslu.
„Röskva hefur lagt höfuðáherslu á
hækkun grunnframfærslunnar þann-
ig að hún dugi námsmönnum í fullu
námi til framfærslu. Hækkunin núna
í 77.500 kr. skilar námsmönnum lítið
áfram í átt að því sjálfsagða mark-
miði. Frítekjumark hefur aðeins
hækkað um 20.000 kr. á tveimur árum
og er ekki í neinu samhengi við eðli-
legar sumartekjur stúdenta. Staða
fólks sem hyggst snúa aftur í nám er
sérstaklega alvarleg og versnaði til
muna vorið 2002 þannig að algengt er
að fólk sem er að koma úr námshléi
fái engin námslán á 1. misseri. Það
eru köld skilaboð til námsmanna að
ekkert var gert til að laga þetta.
Lækkun skerðingarhlutfalls um 5%
er ótímabær ráðstöfun sem nýtist
fyrst og fremst þeim sem hafa hæstu
tekjurnar. Þessi breyting festir enn
frekar í sessi það fyrirkomulag, sem
jafnvel menntamálaráðherra landsins
telur eðlilegt, að stúdentar þurfi að
vinna með krefjandi háskólanámi.
Fyrir marga stúdenta felur þetta í sér
lengri námstíma, slakari námsárang-
ur og jafnvel brottfall úr skóla.
Samhljóma ummæli ráðamanna
landsins á liðnum vikum um mikil-
vægi háskólamenntunar gáfu fyrir-
heit um miklu róttækari breytingar á
námslánum. Einn af hornsteinum ís-
lensks samfélags hefur verið jafnrétti
til náms. Aðalmarkmið Röskvu er að
berjast fyrir þessu jafnrétti og er ekki
vanþörf á eins og hefur verið vegið að
menntunar- og velferðarkerfi Íslend-
inga á liðnum árum. Nýjar úthlutun-
arreglur Lánasjóðs íslenskra náms-
manna eru ekki til þess fallnar að
tryggja jafnrétti til náms á Íslandi,“
segir í ályktun Röskvu.
Álit Röskvu á nýjum úthlutunarreglum LÍN
Aðeins 0,35% raun-
hækkun á framfærslu