Morgunblaðið - 16.05.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FREYSTEINN Jóns-
son, bóndi í Vagn-
brekku í Mývatns-
sveit, er tíræður á
morgun. Freysteinn,
sem enn býr á Vagn-
brekku, er vel ern
og hefur fótaferð.
Hann gengur jafnan
út á bæjarhólinn á
Vagnbrekku þaðan
sem einhver fegurst
sýn er yfir Mývatnssveit.
Ættingjum Freysteins þótti á sínum
tíma ólíklegt að Freysteinn yrði gamall
maður því hann var heilsulítill sem dreng-
ur og fram á fullorðinsár.
Freysteinn var refaskytta í mörg ár og
veiddi fyrsta minkinn sem felldur var í
Mývatnssveit. Hann stundaði silungs-
veiðar í Mývatni í marga áratugi og eru
veiðisögur hans merkileg heimild. Sil-
ungsveiði í vatninu var slík að það skipti
þúsundum sem einn maður tók á dorg á
vetri. Sem vinnumaður Skútustaðaprests
stundaði Freysteinn dráttarveiði með öðr-
um. Það var alvanalegt að fengjust mörg
hundruð silungar á dag. Í dag er miklu
minni veiði í Mývatni.
Fagnar 100
ára afmæli
Freysteinn/23
Morgunblaðið/Birkir
TÆPLEGA 40% flugfreyja hafa orðið fyrir
kynferðislegri áreitni í vinnunni og rúm 30%
tvisvar sinnum eða oftar. Kynferðisleg áreitni
er mun fátíðari meðal starfsmanna útibúa
banka og sparisjóða, eða 2%, en um 18%
hjúkrunarfræðinganna hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegri áreitni á vinnustað og höfðu 8%
verið áreitt tvisvar eða oftar. Af þessum nið-
urstöðum má draga þá ályktun að starfsað-
stæður skipti miklu máli varðandi kynferð-
islega áreitni á vinnustað.
Þetta eru niðurstöður kannana sem Rann-
sóknarstofnun í hjúkrunarfræði hefur gert á
líðan, heilsufari og vinnuumhverfi nokkurra
starfshópa þar sem konur eru í meirihluta.
Voru rannsóknirnar gerðar á árunum 2000–
2003.
Í rannsókn á heilsufari hjúkrunarfræðinga
sem gerð var af stúdentum í hjúkrunarfræði
vorið 2001 undir stjórn Herdísar Sveinsdótt-
ur, formanns Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga og dósents við hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands, kemur fram að um 19%
þeirra höfðu orðið fyrir hótunum, einelti eða
líkamlegu ofbeldi á síðustu sex mánuðum áð-
ur en spurningalistinn var lagður fyrir. Þetta
átti við um 12% flugfreyja, 15% starfsmanna í
útibúum banka og sparisjóða, 14% starfsfólks
á leikskólum í Reykjavík og 12% hjá konum í
öldrunarþjónustu á Íslandi.
Tæpum helmingi hjúkrunarfræðinga (45%)
fannst starfið mjög eða frekar erfitt líkam-
lega. Þetta eru talsvert aðrar niðurstöður en
hjá starfsfólki í öldrunarþjónustu en þar
töldu 74% starfið fremur eða mjög erfitt. Um
68% starfsmanna í leikskólum töldu starfið
erfitt en aðeins 9% starfsmanna í bönkum og
sparisjóðum. Af flugfreyjum sögðu 75% að
starfið væri fremur eða mjög erfitt.
Að samræma vinnu og fjölskyldu
Hjúkrunarfræðingunum virðist reynast
erfiðara að samræma fjölskyldulíf og atvinnu
en öðrum starfshópum. Kröfur vinnunnar
stönguðust að einhverju leyti á við þarfir fjöl-
skyldunnar og þarfir fjölskyldunnar á við
vinnuna hjá um og yfir helmingi hjúkrunar-
fræðinganna. Enn fremur sagði ein af hverj-
um fimm (20%) að erfitt væri að samræma
fjölskyldu- og atvinnulíf og átti það aðallega
við um konur í aldursflokknum 34 ára og
yngri. Til samanburðar má nefna að um 16%
flugfreyja sögðu þetta reynast sér erfitt og
8% starfsmanna útibúa banka og sparisjóða.
Minna var um reykingar meðal hjúkrunar-
fræðinga (15%) en annarra starfsstétta. Til
dæmis reyktu 8% hjúkrunarfræðinga dag-
lega en 13% flugfreyja, 17% starfsmanna úti-
búa banka og sparisjóða og 29% starfsfólks á
öldrunarstofnunum.
Rannsóknir á líðan, heilsufari og vinnuálagi kvenna í nokkrum starfsstéttum
40% flugfreyja áreitt kynferðislega
PRJÓNAÐAR flíkur njóta sífellt meiri
vinsælda hér á landi og lætur nærri að
tala megi um tískubylgju. Prjónagarn er
flutt inn í tonnatali á ári hverju og nám-
skeið í prjónaskap eru vel sótt. Úrval
lita, garns og uppskrifta er enda fjöl-
breyttara en nokkru sinni.
Frá Bandaríkjunum berast þær fréttir
að prjón sé í tísku meðal fræga fólksins,
enda þykir athöfnin slakandi og skap-
andi í senn. Hollywood-stjörnurnar
prjóna á milli atriða við kvikmyndatök-
ur og segja frá því með stolti. Þá þykir
fínt að ganga í heimagerðum flíkum,
enda beri þær vott um persónulegan stíl.
Hér á landi er gefið út prjónablað á ís-
lensku sem selst samtals í 10.000 eintök-
um á ári, en það jafnast á við svonefnda
platínusölu á geisladiskamarkaði.
Tilbrigði við
forna hefð
Daglegt líf/B1
Morgunblaðið/Sverrir
JACK WELCH, fyrrverandi forstjóri bandaríska
fyrirtækisins General Electrics, kom ásamt unnustu
sinni, blaðakonunni Suzy Wetlaufer, til landsins í
gær. Hann er hingað kominn í boði Kaupþings og
Baugs og mun í dag halda fyrirlestur um hug-
myndir sínar um rekstur fyrirtækja. Welch er einn
þekktasti og áhrifamesti fyrirtækjastjórnandi síðari
hluta 20. aldar. Hann er nú mjög vinsæll fyrirlesari.
Morgunblaðið/Sverrir
Jack Welch á Íslandi
BJÖRK Guð-
mundsdóttir og
Síminn Internet
munu í dag
senda beint út á
Netinu frá æf-
ingu Bjarkar
fyrir hljóm-
leikaferðalag sem hefst í júní. Út-
sendingunni verður dreift um all-
an heim og er til þess gerð að
aðdáendur Bjarkar og aðrir
áhugasamir fái tækifæri til að
skyggnast á bak við tjöldin og
fylgjast með því hvernig æfingar
fyrir tónleika fara fram. Æfingin
fer fram í Loftkastalanum en á
sviðinu með Björk verða Matmos,
Zeena Parkins, Leila Arab og Ís-
lenski strengjaoktettinn en hóp-
urinn hefur verið við æfingar á Ís-
landi í nokkra daga.
Tónleikaferðalagið mun standa í
allt sumar og mun Björk leika á
helstu tónlistarhátíðum í Evrópu
auk þess sem sérstakir tónleikar
verða skipulagðir víða. Útsend-
inguna frá æfingunni er hægt að
nálgast á vefslóðinni http://
www.bjork.tv/island og hefst hún
klukkan fimm síðdegis.
Björk æfir
í beinni á
Netinu
LANDSSAMBAND eldri borg-
ara gagnrýnir stjórnvöld fyrir að
hafa með markvissum hætti
dregið úr vægi grunnlífeyris al-
mannatrygginga undanfarin ár.
Bendir sambandið á að grunnlíf-
eyrir hafi verið yfir 20% af al-
mennum launum verkafólks þeg-
ar hið almenna lífeyrissjóðakerfi
hafi verið tekið upp á vinnu-
markaði en sé nú aðeins 11–12%.
Þetta kom m.a. fram á lands-
fundi sambandsins sem hófst í
gær. Lögð voru fyrir fundinn
drög að ályktun um kjaramál þar
sem lýst er vanþóknun á óraun-
hæfum tillöguflutningi stjórn-
málaflokka um breytingar á
skattalögum, tillögum sem ekki
séu líklegar til tekjulegrar jöfn-
unar í þjóðfélaginu.
Benedikt Davíðsson, formaður
Landssambands eldri borgara,
sagði mikilvægt að sátt ríkti milli
kynslóðanna um hvernig á mál-
um væri haldið. Sagði hann mik-
ilvægt að fulltrúar eldri borgara
væru þar virkir þátttakendur.
„Virkni er það sem gildir og við
segjum: „Ekkert um okkur án
okkar“.“
Grétar Þorsteinsson, formaður
Alþýðusambands Íslands, sagði
að afkomuvandi aldraðra væri
vandi þeirra sem hefðu starfað á
almennum vinnumarkaði og ekki
átt þess kost að greiða iðgjald í
lífeyrissjóð fyrr en því var breytt
með kjarasamningum. Hann
sagði kerfið ekki verða fullþrosk-
að fyrr en eftir nokkur ár og því
þyrfti að taka tillit til þess með
sértækum aðgerðum í velferðar-
kerfinu.
Fundur Landssambands eldri borgara
Óraunhæfar
skattatillögur
Lýsa vanþóknun/6
ÞESSIR útsjónarsömu piltar frá
Eskifirði kunna að nýta sér heita
vatnið sem rennur í Eskifjarð-
ará. Þeir hafa búið til nokkra
„heita potta“ í ánni og láta fara
vel um sig. Í gær var líka veður
til að láta sér líða vel á Austur-
landi. Hitinn náði sums staðar 17
gráðum. Farþegar sem komu með
fyrstu áætlunarferð Norrænu til
Seyðisfjarðar þurftu því hvorki
að klæða sig í peysur né regnföt.
Spáð er léttskýjuðu á Austurlandi
í dag og svipuðum hita.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Gott í „heita pottin-
um“ í Eskifjarðará