Morgunblaðið - 22.05.2003, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 21
VEITINGAHÚSIÐ Rauða húsið á
Eyrarbakka og knattspyrnuliðið
Freyr, sem er sameiginlegt lið Umf.
Stokkseyrar og Umf. Eyrarbakka og
mun keppa í 3. deild Íslandsmótsins í
sumar, hafa gert með sér samkomu-
lag um að Rauða húsið verði aðal-
styrktaraðili liðsins. Samkomulag
þess efnis var undirritað föstudaginn
16. maí á Rauða húsinu en þar voru
saman komnir leikmenn og stjórn-
armenn Freys ásamt eiganda Rauða
hússins, Inga Þór Jónssyni. Ýmis
önnur fyrirtæki styðja einnig við
bakið á Frey en þau eru Skipamiðl-
unin Bátar og kvóti, Eyrarfiskur,
Fiskiver og veitingahúsið Potturinn
og pannan.
Það er von allra þeirra sem að lið-
inu koma að það eigi eftir að verða
Eyrarbakka og Stokkseyri til mikils
sóma nú í sumar.
Rauða húsið styrkir Frey
Gunnar Valberg Pétursson og Guðfinnur Harðarson í nýju búningunum.
Stokkseyri
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
ÞEGAR bændurnir Karl Sig-
urjónsson og Sigurjón Sig-
urðsson á Efstu-Grund undir
Eyjafjöllum voru að hreinsa
upp jarðveg undan gömlu bæj-
arstæði kom upp með moldinni
að því er virtist sérkennileg oddmjó
steinnibba. Þegar skóflublaðið slóst í
nibbuna söng hátt í. Kom þá í ljós að
þetta var sérkennilegt fornt járn,
sem ber greinilegt spjótslag í oddinn
og í hinn endann eins og festingu fyr-
ir skaft. Það sérkennilega er, að auð-
velt er að sjá fyrir sér að axarblað
hafi verið fyrir neðan spjótsoddinn
og þá má spyrja: Er þetta atgeir?
Karl Sigurjónsson bóndi með atgeirinn.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Er þetta
atgeir?
Vestur-Eyjafjöll
ÞRJÁTÍU leikskólanemar af leik-
skólanum Klettaborg voru útskrif-
aðir við hátíðlega athöfn sl.
fimmtudagskvöld. Útskriftarhá-
tíðin var haldin í félagsmiðstöðinni
Óðali og léku krakkarnir og sungu
fyrir fullu húsi af gestum. Eftir
formlega afhendingu útskrift-
arskjala var boðið upp á veitingar á
vegum foreldrafélagsins. Krakk-
arnir, sem eru fæddir árið 1997,
munu flest halda áfram í leikskól-
anum fram að sumarfríi og hefja
skólagöngu í Grunnskólanum í
haust.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Landafræði handa lengra komnum – nemendur á leikskólanum Sjónarhóli í Borganresi flytja rímleik.
Leikskóla-
nemar
útskrifast
Borgarnes