Morgunblaðið - 29.05.2003, Qupperneq 49
ÍÞRÓTTIR
50 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNLAUGUR Jónsson, varnarmaður og fyrirliði
ÍA, leikur í dag sinn 100. leik í efstu deild. Frumraun
Gunnlaugs var gegn Breiðabliki á Skipaskaga hinn
23. maí 1995. Í þeim leik sigruðu Skagamenn þá
grænklædda Blika, 2:0, og sá núverandi þjálfari
Gunnlaugs, Ólafur Þórðarson, um að skora bæði
mörkin.
Á þeim tíma sem Gunnlaugur hefur leikið með ÍA
hefur hann hampað Íslandsbikarnum þrisvar og bik-
armeistaratitlinum tvisvar. Í samtali við Morg-
unblaðið sagðist Gunnlaugur vilja fagna tímamótum
með sigri. „Við höfum ekki sigrað í Frostaskjólinu
síðan Mihajlo Bibercic og Þórður Guðjónsson skoruðu
tvö mörk hvor í, 4:2, sigri árið 1993 en ég var ekki
byrjaður að leika með liðinu á þeim tíma. Því yrði það
gaman að vinna langþráðan sigur á KR-ingum á
þeirra heimavelli á þessum tímamótum.“
„Vil fagna tíma-
mótum með
langþráðum sigri“ DAVÍÐ Þór Viðarsson var í fyrsta sinn í byrjunarliðiLilleström í norsku úrvalsdeildinnni í gærkvöldi þegar
liðið mætti Rosenborg í Þrándeheimi og tókst að
krækja í eitt stig, 1:1. Davíð lék frá upphafi til enda
leiks í vörninni og þótti standa sig ágætlega. Hann fékk
gula spjaldið á 79. mínútu. Ríkharður Daðason kom inn
á sem varamaður í lið Lilleström, annan leikinn í röð,
að þessu sinni á 88. mínútu. Honum tókst ekki að setja
mark sitt á leikinn á þeim stutta tíma sem hann fékk að
spreyta sig. Indriði Sigurðsson stóð að vanda í vörn
Lilleström frá upphafi til enda leiks og stóð sig vel.
Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður, varð hins
vegar að sætta sig við að sitja á varamannabekk Rosen-
borg, líkt og í fyrri leikjum liðsins á keppnistímabilinu.
Þetta voru fyrstu stigin sem Rosenborg tapað á leiktíð-
inni en liðið hefur 22 stig að loknum 8 leikjum. Lille-
ström er um miðja deild með 9 stig eftir 8 leiki.
Hannes Þ. Sigurðsson kom inn á sem varamaður í lið
Viking þegar það vann Sogndal, á heimavelli, 2:1. Vik-
ing er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig.
Davíð lék allan leik-
inn með Lilleström
Ríkharður Daðason
MIKIÐ hefur verið um meiðsl
knattspyrnumanna hjá liðunum í
efstu deild. Margir hafa velt því
fyrir sér hver væri ástæðan fyrir
auknum meiðslum hér á landi og
jafnvel hjá íslenskum leikmönnum
í Noregi. Margar spurningar hafa
vaknað – er keppnistímabilið orð-
ið of langt, spilar gervigras í
íþróttahöllum þar inn í? Er þjálfun
leikmanna ekki nægilega góð og
hefur fæði eitthvað að segja. Logi
Ólafsson, landsliðsþjálfari, segir
sitt álit á þessari þróun.
„Það hangir margt á spýtunni
þegar meiðsl eru. Það geta auðvit-
að verið hrein og bein slys sem
ekkert er hægt að gera við. Mikið
hefur líka verið talað um að menn
æfi á mismunandi undirlagi.
Hérna æfa menn mikið á gervi-
grasi og undirlagið er mjög mis-
jafnt á þeim völlum. Síðan er
stundum farið á möl, hlaupið á
malbiki og jafnvel farið á park-
etgólf. Síðan er farið í æfingabúð-
ir og æft á náttúrulegu grasi og
komið heim og farið aftur á gervi-
grasið. Þetta allt saman hefur ver-
ið álitið að fari ekki vel með lík-
amann. Rannsóknum hefur fleygt
fram í íþróttavísindunum og ævi
toppíþróttamannsins er stöðugt
að lengjast og við sjáum það til
dæmis vel hjá Guðna okkar Bergs-
syni. Það er ekki langt þangað til
það verður mikil veisla í fertugs-
afmælinu hans. Áður var það einn
og einn markmaður sem hékk
svona lengi í þessu vegna þess að
það var frekar rólegt í búrinu hjá
honum.
Núna er þetta allt orðið miklu
vísindalegra en áður og menn
eiga að geta stýrt álaginu betur en
oft áður þannig að hægt sé að
draga úr meiðslum.
Helsta orsök þess að margir eru
meiddir hér núna gæti verið
breytilegt undirlag. Auðvitað
losnum við aldrei við tognanir og
annað slíkt, en svo er mjög mik-
ilvægt að íþróttamenn lifi heilsu-
samlegu lífi og borði holla fæðu.
Lífernið utan æfinga skiptir miklu
máli og þeir sem taka sig alvar-
lega, hafa metnað og ætla að ná
langt, passa auðvitað upp á slíkt
og styrkja sig utan hefðbundinna
knattspyrnuæfinga,“ segir Logi.
Breytilegt undirlag
helsta orsök meiðsla
KA-MENN hafa samið við danskan
miðvörð, Ronny Hartik frá HIK lið-
inu sem leikur í dönsku 1. deildinni.
Leikmaðurinn leikur væntanlega
sinn fyrsta leik með KA gegn Fram í
fimmtu umferð efstu deildar þann
10. júní á Laugardalsvelli.
ÞRÍR bræður mætast á KR-vell-
inum í efstu deild karla í kvöld þegar
KR leikur við ÍA. Þá taka tvíbura-
bræðurnir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir á móti yngri bróður sín-
um, Garðari. Bjarki er eini
bróðurinn sem á eftir að gera mark í
efstu deild í ár því Arnar og Garðar
hafa báðir gert eitt mark, báðir í
leikjum gegn Þrótti.
ÞRÓTTARAR taka í dag á móti
KA í efstu deild karla. Síðast þegar
liðin léku var sæti í efstu deild í húfi.
Þá gerðu liðin 2:2 jafntefli á Val-
bjarnarvelli og KA fór í efstu deild, á
tveimur sjálfsmörkum Þróttara.
SIR Jack Hayward, eigandi Wolv-
es, ætlar ekki að eyða miklum fjár-
munum í leikmannakaup í sumar, en
Wolves tryggði sér sæti í ensku úr-
valsdeildinni í fyrradag. „Við megum
ekki eyða óhóflega í launakostnað og
leikmannakaup. Við eigum að taka
Birmingham til fyrirmyndar sem fór
varlega í leikmannakaup og skilaði
hagnaði eftir síðasta tímabil,“ sagði
Hayward.
DAMIEN Duff, leikmaður Black-
burn, er ánægður í herbúðum liðsins.
„Ég er ánægður hjá Blackburn og ég
býst við að vera áfram hjá liðinu.
Hins vegar er það undir Blackburn
komið hvort ég verði seldur,“ sagði
Duff.
MAURICE Cheeks, þjálfari Port-
lands í NBA-deildinni í körfuknatt-
leik, er ofarlega á óskalista forráða-
manna Philadelphia 76ers um að
taka við þjálfun liðsins. Jeff Van
Gundy, fyrrverandi þjálfari New
York Knicks, er einnig talinn hafa
möguleika á að fá starfið.
GRÍSKI landsliðsmaðurinn, Styli-
anos Giannakopoulos, hefur gengið
til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið
Bolton. Giannakopoulos er miðju-
maður og gerði 13 mörk fyrir Olymp-
iakos á síðasta leiktímabili. „Mig hef-
ur alltaf langað til að leika í Englandi
og þegar ég heyrði af áhuga Bolton
ákvað ég að slá til,“ sagði Giannako-
poulos við komuna til Bolton.
JEVGENY Kafelnikov var í gær
sleginn úr keppni í Opna franska
meistaramótinu í tennis í annarri
umferð þegar hann mætti Brasilíu-
manninum, Flavio Saretta. Saretta
sigraði Rússann í fimm settum (6-4,
3-6, 6-0, 6-7, 6-4). Kafelnikov vann á
þessu móti árið 1996.
DANIELA Hantuchova, frá Slóv-
akíu var einnig sleginn óvænt úr
keppni í Opna franska meistara-
mótinu. Hantuchova tapaði fyrir lítt
þekktri tenniskonu, Ashley Harkle-
road, í þremur settum (7-6, 4-6, 9-7).
SHINJI Ono, leikmaður Feyen-
oord, var í gær valinn knattspyrnu-
maður Asíu 2002. Valið kom mjög á
óvart því flestir bjuggust við því að
Ahn Jung-Hwan frá Suður-Kóreu
myndi hljóta hnossið. Ono er þriðji
Japaninn til að hljóta verðlaunin. Á
undan honum hafa þeir Masami Ih-
ara og Hidetoshi Nakata verið
valdnir.
WAYNE Rooney verður að öllum
líkindum klár í slaginn með enska
landsliðinu eftir viku þegar það mæt-
ir Serbíu/Svartfjallalandi í vináttu-
landsleik á Walkers-leikvangi í Leic-
ester. Rooney hefur barist við
meiðsli í hné síðustu vikurnar og gat
m.a. ekki tekið þátt í leik Englend-
inga og Suður-Afríku í síðustu viku.
ÞETTA eru gleðitíðindi fyrir
Sven-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfara Englendinga, því nóg er um
meiðsli á meðal leikmanna. Rio
Ferdinand er meiddur í hné og John
Terry hefur lítið getað æft upp á síð-
kastið. Terry var þó með á léttri æf-
ingu landsliðsins á La-Manga á
Spáni í gær.
FÓLK
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
Úrslitaleikurinn á Old Trafford í Man-
chester:
AC Milan – Juventus ................................0:0
Jafnt var að loknum venjulegum leiktíma
og framlengingu. Úrslitin réðust í víta-
spyrnukeppni, 3:2.
AC Milan: Nelson Dida; Alessandro Costa-
curta (Jose Vitor Roque Junior 65.), Aless-
andro Nesta, Paolo Maldini, Kakhabar Kal-
adze; Gennaro Gattuso, Andrea Pirlo
(Sergio Serginho 70.), Clarence Seedorf;
Manuel Rui Costa (Massimo Ambrosini
87.); Andriy Shevchenko, Filippo Inzaghi.
Juventus: Gianluigi Buffon; Lilian Thuram,
Igor Tudor (Alessandro Birindelli 42.),
Ciro Ferrara, Paolo Montero; Mauro Cam-
oranesi (Antonio Conte 45.), Alessio Tacch-
inardi, Edgar Davids (Marcelo Zalayeta
65.) , Gianluca Zambrotta; David Trez-
eguet, Alessandro Del Piero.
Dómari: Markus Merk, Þýskalandi.
Áhorfendur: 63.215.
Svíþjóð
Halmstad – Elfsborg ................................1:1
Noregur
Rosenborg – Lillestrøm............................1:1
Viking – Sogndal ...................................... 2:1
ÚRSLIT
Leikurinn fór fjörlega af stað ogstrax á 8. mínútu taldi Andriy
Shevchenko sig hafa skorað full-
komlega löglegt mark en aðstoðar-
dómarinn flaggaði og dómarinn
dæmdi markið af. Aðstoðardómar-
inn taldi Rui Costa hafa skyggt á
Buffon, markvörð Juventus, þegar
Shevchenko skaut knettinum að
markinu. Skömmu síðar átti Filippo
Inzaghi, framherji AC Milans, hör-
kuskalla að marki Juventus en
Gianluigi Buffon varði meistaralega
í horn.
Síðari hálfleik hóf Juventus að
krafti og Antonio Conte skallaði í
slá á upphafsmínútunum. Það sem
eftirlifði venjulegs leiktíma gerðist
afar fátt og því þurfti að grípa til
framlengingar. Í framlengingunni
var sem bæði lið hefðu sætt sig við
vítaspyrnukeppni en leikmenn Mil-
ans virtust þó viljugri til að vinna.
Vítaspyrnukeppnin varð að ein-
vígi markvarðanna, þeirra Dida og
Buffon. Dida gaf tóninn strax í
fyrstu spyrnu þegar hann varði víti
Davids Trezeguet. Í næstu spyrnum
skiptust liðin á að skora og misnota
vítaspyrnur, Dida varði þrjár spyrn-
ur og Buffon tvær. Þegar Aless-
andro del Piero jafnaði leikinn, 2:2,
fyrir Juventus úr fimmta og síðasta
víti liðsins átti AC Milan eina víta-
spyrnu eftir. Það var Andriy Shevc-
henko sem tók lokaspyrnuna og
skoraði hann af öryggi og tryggði
AC Milan sinn sjötta sigur í Meist-
aradeild Evrópu og forvera hennar,
Evrópukeppni meistaraliða.
Sigurinn í gær markaði þriðja
skiptið sem Clarence Seedorf hefur
sigrað í keppninni með þremur mis-
munandi liðum, Ajax árið 1995, Real
Madrid 1998 og nú með AC Milan
2003. Það var Paolo Maldini, fyr-
irliði AC Milans, sem tók við sig-
urlaununum úr höndum Lennarts
Johanssons, forseta Knattspyrnu-
sambands Evrópu. Eftir það tók við
mikill sigurdans Mílanó-manna á
Old Trafford.
Úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu réðust í vítaspyrnukeppni
Reuters
Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, lyftir bikarnum á loft eftir að
hafa tekið við honum úr höndum Lennarts Johanssons, forseta
UEFA. Fjörutíu ár eru síðan faðir Maldini stóð í sömu sporum.
Dida hetja
AC Milan
AC Milan eru sigurvegarar í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.
Liðið sigraði landa sína frá Ítalíu, Juventus, 3:2 að lokinni víta-
spyrnukeppni á Old Trafford leikvellinum í Manchester. Það var
Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko, sem gerði sigurmark Milan-
manna í vítaspyrnukeppni, en hetja þeirra var án efa Dida mark-
vörður sem varði þrjár vítaspyrnur. Þetta er þriðji úrslitaleikurinn í
Meistaradeild Evrópu sem Juventus tapar í röð.