Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 1

Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 150. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is 15 ára með gull Æfir 13 sinnum í viku og synti til sigurs á Möltu Íþróttir B2 Lengi hefur verið beðið eftir Björk í Hróarskeldu Fólk 44 Gert við á staðnum Með sérhönnuðum verkfærum er dældin nudduð út Bílar C3 ÍSRAELAR leystu a.m.k. 91 palestínskan fanga úr haldi í gær og nokkrir þeirra eru hér í rútu á leiðinni frá fang- elsi í Suður-Ísrael. Einn fanganna var sakfelldur fyrir að verða fjórtán manns að bana í sprengjutilræði árið 1975. Reuters Palestínskir fangar leystir úr haldi FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins (ESB) hefur úr- skurðað að fiskkvótar, sem héraðs- stjórnir Orkneyja og Hjaltlands hafa keypt og leigt heimamönnum, sam- ræmist ekki reglum um innri mark- að ESB. Markmiðið með kvótakaupunum var að koma í veg fyrir að kvótarnir yrðu seldir úr byggðunum og þeir voru síðan leigðir útgerðar- og sjó- mönnum á Orkneyjum og Hjaltlandi með hagstæðum kjörum. Ákveðið var að aðstoða þá með þessum hætti þar sem þeir áttu í erfiðleikum með að afla fjár til að kaupa kvóta. Eftir formlega rannsókn á málinu komst framkvæmdastjórnin að þeirri niðurstöðu að aðstoðin hefði gert sjómönnunum kleift að veiða upp í kvóta, sem þeir annars hefðu ekki haft aðgang að, og hún jafngilti því rekstraraðstoð. Auk þess hefðu aðeins félagar í samtökum útgerðar- og sjómanna á eyjunum átt þess kost að leigja kvótana. Samningunum verði rift Að sögn framkvæmdastjórnarinn- ar styrkir aðstoðin stöðu þessara sjómanna gagnvart útgerðum utan Orkneyja og Hjaltlands með ósann- gjörnum hætti og raskar samkeppn- inni á innri markaði Evrópusam- bandsins. Aðstoðin samræmist því ekki reglum markaðarins og héraðs- stjórnunum beri að rifta leigusamn- ingum sem ívilna heimamönnum. Framkvæmdastjórnin kvaðst þó ekki krefjast þess að héraðsstjórn- irnar afturkölluðu aðstoð sem sjó- mennirnir hafa þegar notið góðs af þar sem þeir hefðu talið sig hafa gilda ástæðu til að ætla að ekki væri um ríkisstyrki að ræða. Að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá framkvæmdastjórninni hafði kvótaaðstoðin sætt gagnrýni breskra útgerðarmanna sem telja að hún hafi raskað samkeppninni og stuðlað að hærra kvótaverði. Byggðakvótarnir brot á reglum ESB Aðstoð við sjómenn á Hjaltlandi sögð raska samkeppni A. ELIZABETH Jones, aðstoðar- ráðherra í málefnum Evrópu og As- íu í bandaríska utanríkisráðuneyt- inu, kemur í tveggja daga heimsókn til landsins á morgun og mun þá m.a. ræða við Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um bókun um framkvæmd varnarsamningsins. Halldór býst við að formlegar við- ræður um bókunina hefjist í kjölfar- ið. Með Elizabeth Jones í för verður Ian Brzezinski, sem er varaaðstoð- arráðherra í bandaríska varnar- málaráðuneytinu og fjallar um mál- efni Evrópu og Atlantshafsbanda- lagsins. Hann er sonur Zbigniew Brzezinski, fyrrum þjóðaröryggis- ráðgjafa Bandaríkjanna. Halldór segir alveg skýrt að ís- lensk stjórnvöld telji að núverandi viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli sé lágmarksviðbún- aður og að Ísland þurfi lágmarks- loftvarnir eins og öll önnur Evr- ópulönd. Í gegn- um tíðina hafi Bandaríkjamenn haft ýmsar hug- myndir um aðra útfærslu á vörn- um landsins en þær aldrei komist til framkvæmda og íslensk stjórnvöld vilji engar meiri háttar breytingar gera á núverandi fyrirkomulagi. „Hins vegar er ljóst að það hafa orð- ið miklar sviptingar í öryggis- og varnarmálum og í dag eru allt önnur sjónarmið en voru fyrir nokkrum ár- um. Að sjálfsögðu eru þetta atriði sem við þurfum að fara yfir með Bandaríkjamönnum,“ segir hann. A. Elizabeth Jones NATO Ráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins hófst í Madríd í gær. Efri röð f.v. Joschka Fischer, Þýskalandi, George Papandreou, Grikklandi, Lásló Kovác, Ungverjalandi, og Halldór Ásgrímsson, Íslandi. Neðri röð f.v. Annemie Neyts-Uyttebroeck, Belgíu, Solomon Passy, Búlgaríu, Kristíina Ojuland, Eistlandi, og Maris Riekstins, Lettlandi. Viðræður um varnarsamning FUNDUR fulltrúa verkalýðsfélag- anna og atvinnurekenda í Færeyjum í gær bar engan árangur og hinir síð- arnefndu hvöttu stjórn Anfinns Kallsbergs, lögmanns Færeyja, til að stöðva verkfall um 12.000 starfs- manna í einkafyrirtækjum með bráðabirgðalögum. Ætlunin var að landstjórnin héldi bráðafund í gærkvöldi til að ræða verkfallið sem nú hefur staðið í 27 daga. Verkalýðsfélögin eru óánægð með þá launahækkun sem í boði er og hafa hafnað málamiðlunum sátta- semjara. Árangurs- laus fundur í Færeyjum Þórshöfn. Morgunblaðið.  Búið að loka/4 ARABALEIÐTOGAR hétu því á fundi með George W. Bush Bandaríkjaforseta í Egyptalandi í gær að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi í Mið-Austurlöndum. „Við munum halda áfram baráttunni gegn hryðjuverkaógninni, öfgastefnu og ofbeldi í öllum myndum – hvaðan sem ógnin kemur, án tillits til þess hvernig ofbeldið er réttlætt eða hvaða ástæður liggja að baki því,“ sagði Hosni Mub- arak, forseti Egyptalands, þegar hann las yfirlýs- ingu fyrir hönd leiðtoga Jórdaníu, Bareins, Sádi- Arabíu og palestínsku heimastjórnarinnar. „Við beitum öllum mætti laganna til þess að koma í veg fyrir að ólögleg samtök, þeirra á meðal hryðjuverkasamtök, fái aðstoð,“ sagði Mubarak. „Leitum eftir sönnum friði“ Leiðtogarnir lýstu einnig yfir stuðningi við svo- nefndan Vegvísi til friðar í Mið-Austurlöndum þar sem stefnt er að sjálfstæðu Palestínuríki árið 2005. Mubarak lýsti ekki gagngert yfir stuðningi við Mahmud Abbas, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, og sagði ekkert um hvort arabaríkin myndu fara að dæmi Egypta og Jórd- ana og viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis, en það er mikilvægt skilyrði í friðaráætluninni. Mubarak sagði að arabaríkin myndu leggja palestínsku heimastjórninni lið í baráttunni gegn hryðjuverkum og tryggja að aðstoð þeirra við Palestínumenn rynni ekki til herskárra hreyf- inga. Bush sagði að það væri undir aröbum og Ísr- aelum komið hvort hægt yrði að koma á friði. „Við leitum eftir sönnum friði, ekki aðeins hléum milli fleiri stríða og uppreisna, heldur varanleg- um sáttum meðal þjóða Mið-Austurlanda.“ Arabaleiðtogar fagna friðarvegvísinum á fundi með Bush Bandaríkjaforseta Heita því að berjast gegn ofbeldi og hryðjuverkum Sharm El-Sheik. AP. Rokk og rólegheit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.