Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
hestur er undan Manna og
Skvettu, sem er stærsta hryssa
sem sýnd hefur verið á kynbóta-
sýningu hérlendis, að sögn Stefáns
Tryggva en hún mældist 1,60 cm á
band.
HESTURINN Mufasa er engin
smásmíði enda er hann einn
stærsti, ef ekki stærsti hestur
landsins. Hesturinn mældist ný-
lega 1,66 cm á band, eins og það
er kallað en það var Ágúst Sig-
urðsson hrossaræktarráðunautur
sem framkvæmdi mælinguna. Eig-
andi hestsins, sem er sjö vetra, er
Hafdís Dögg Sveinbjörnsdóttir frá
Saurbæ í Eyjafjarðarsveit. „Ég
fullyrði, m.a. eftir samtöl við þrjá
dýralækna, að Mufasa sé stærsti
hestur landsins og held mig við þá
fullyrðingu þar til einhver getur
sýnt mér fram á annað,“ sagði
Stefán Tryggvi Brynjarsson, unn-
usti Hafdísar Daggar. Hann sagði
að Mufasa hefði stækkað um 3 cm
frá því í byrjun árs. Þessi hávaxni
Morgunblaðið/Kristján
Hesturinn Mufasa er engin smásmíði og hryssan, sem Stefán Tryggvi
Brynjarsson heldur einnig í, virkar frekar lítil í samanburðinum.
Hesturinn
Mufasa
er engin
smásmíði
VALGERÐUR Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Fóðurverksmiðj-
unnar Laxár hf. á Akureyri, hefur
sagt starfi sínu lausu, en fyrirtækið
er eitt af dótturfélögum Síldar-
vinnslunnar hf.
Valgerður hóf störf sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins árið
1997, en hún mun láta af störfum 15.
ágúst næstkomandi. Ekki hafa verið
gerðar ráðstafanir varðandi eftir-
mann Valgerðar.
Verkefnastaða fyrirtækisins er
mjög góð, farið er að vinna á tveimur
vöktum og bætt hefur verið við fimm
nýjum starfsmönnum.
Framkvæmdastjóri
Laxár hf. lætur af störfum
VERSLUNIN 10/11 hefur fyrst
verslana á Akureyri ákveðið að
hafa opið allan sólarhringinn. Sam-
kvæmt upplýsingum Hjartar Sig-
urðssonar, verslunarstjóra, var
ákveðið að prufa þetta í sumar, að
minnsta kosti yfir ferðamannatím-
ann og sjá svo til hver þróunin
verður. Þrjár verslanir 10/11 í
Reykjavík hafa verið opnar allan
sólarhringinn og það hefur gefið
góða raun.
Verslunin er vel vöktuð og ýtr-
asta öryggis er gætt. Því hafa
menn ekki áhyggjur af vanda-
málum sem upp geta komið. „Það
var lítið mál að manna næturvakt-
irnar því þrír starfsmenn sem voru
á kvöldin vildu prufa þetta, en það
eru alltaf tveir starfsmenn á vakt í
einu,“ sagði Hjörtur í samtali við
Morgunblaðið.
Aðfaranótt síðastliðins laugar-
dags var í fyrsta skiptið opið um
nótt og viðtökurnar standa vel
undir þeim væntingum sem gerðar
voru, að sögn Hjartar, þrátt fyrir
að ferðamenn séu lítið farnir að
koma í bæinn. „Það eru aðallega
heimamenn sem eru að vinna lengi
frameftir og á nóttunni sem koma
að versla. Mest er verið að kaupa
skyndibitafæði, brauð og þess
háttar. Það er mikil orlofsíbúða-
byggð hérna í kring og það er vilji
okkar að bæta þá þjónustu sem er
fyrir hendi, jafnt fyrir heimamenn
sem og ferðamenn. Það verður
reglulega spennandi að sjá hvernig
þetta gengur,“ sagði Hjörtur.
Góðar við-
tökur við
sólarhrings-
opnun
UM helgina var auglýst útboð á seg-
ulómtækjum fyrir FSA og Landspít-
ala – háskólasjúkrahús. Mun þetta
vera í fyrsta sinn sem þessar stærstu
sjúkrastofnanir landsins standa
saman að stóru útboði á lækninga-
tækjum en áður hafa rekstrarvörur
verið boðnar út sameiginlega.
FSA sækist eftir rekstrarleigu á
1,5 Tesla segulómtæki sem á að hafa
búnað til rannsókna á öllum helstu
líffærakerfum. Tilboð verða opnuð 2.
júlí og reiknað er með að niðurstaða
um val á tækjum liggi fyrir á haust-
mánuðum. Uppsetning tækis á FSA
ætti að geta hafist í byrjun árs 2004.
Tilkoma segulómstækis breytir
möguleikum til rannsókna mjög mik-
ið og eykur þjónustu við sjúklinga á
upptökusvæði FSA, segir á heima-
síðu spítalans.
Segulómtæki
á FSA
arfundi um miðjan níunda áratug-
inn sátu níu konur fund bæj-
arstjórnar sem bæjarfulltrúar. Á
þeim tíma átti Kvennaframboðið
tvo bæjarfulltrúa og þá voru sex
konur aðalmenn í bæjarstjórn líkt
KONUR voru fjölmennar á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í gær.
Átta konur sátu fundinn á móti
þremur körlum, auk þess sem
fundarritarinn var kona. Þetta er
þó ekki einsdæmi, því á sum-
og á yfirstandandi kjörtímabili. Á
fundinum í gær var Þóra Ákadóttir
endurkjörin forseti bæjarstjórnar,
Jakob Björnsson var endurkjörinn
1. varaforseti og Oktavía Jóhann-
esdóttir 2. varaforseti.
Morgunblaðið/Kristján
Glaðbeittar konur á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær. F.v. Heiða Karlsdóttir fundarritari, Sigurveig Bergsteins-
dóttir, varabæjarfulltrúi L-lista fólksins, Oktavía Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, Valgerður H.
Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Þóra Ákadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
Guðný Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknarflokks, Jóna Jónsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
Gerður Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks og Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Konurnar fjölmennar
STARFSEMI Íslandsfugls í Dal-
víkurbyggð er að komast í fullan
gang á ný, eftir að nýir eigendur
tóku við rekstrinum. Eignarhalds-
félagið Marval á Akureyri keypti
þrotabú kjúklingabúsins sem varð
gjaldþrota í mars sl. Ragnar Harð-
arson er nýr framkvæmdastjóri Ís-
landsfugls en bústjóri verður Auð-
björn Kristinsson, sem stofnaði
fyrirtækið á sínum tíma og mun
hann sjá um eldið. Ragnar sagði að
unnið væri að því að ráða fólk til
starfa en ráðgert er að stöðugildin
verði rúmlega 30 talsins. Hann
sagði að vinnslan væri komin á fullt
og að fyrstu afurðirnar færu á
markað í vikunni.
„Við höfum átt í samningavið-
ræðum við marga góða aðila og
vonumst til að kjúklingur frá Ís-
landsfugli verði fáanlegur víðast
hvar á landinu á næstu tveimur til
þremur vikum. Orðspor Íslands-
fugls er mjög gott og um leið dýr-
mætt. Hjá fyrirtækinu er mjög
vandað starfsfólk sem veit ná-
kvæmlega hvað það er að gera og
metnaðurinn er mikill. Þannig að
við höfum fundið fyrir miklum
stuðningi hvarvetna.“
Ragnar sagði að hugmyndin
væri að reka fyrirtækið áfram með
svipuðu sniði en lagfæra það sem
má betur mætti fara. Stefnt er að
því að framleiða um 60 tonn á
markað á mánuði. Eins og fram
hefur komið voru nauðasamningar
kjúklingaframleiðandans Móa sam-
þykktir í vikunni og gjaldþroti fyr-
irtækisins því afstýrt. Ragnar
sagði að þau tíðindi breyttu engu
fyrir Íslandsfugl. „Það er þó vitað
að eins dauði er annars brauð en
við gerðum ekki okkar áætlanir út
frá því að Móar færu yfir. Við ætl-
um að fara í gegnum þetta á öðrum
forsendum og ef okkar forsendur
ganga eftir á þetta að ganga upp.“
Ragnar sagði að það hefði skipt
sköpun varðandi endurreisn fyrir-
tækisins að varpstofninum var
haldið á lífi eftir gjaldþrot fyrir-
tækisins og að þar hefðu hinir nýju
eigendur komið að máli. „Þetta
hefði verið vonlaust ef varpstofn-
inum hefði ekki verið haldið á lífi.
Þá hefðum við verðið komnir í sjö
mánaða ferli við að fá nýjan stofn
og það hefði ekki gengið upp.“
Eigendur Marvals eru Ragnar
framkvæmdastjóri og bræðurnir
Baldvin og Hólmgeir Valdimars-
synir.
Nýir eigendur teknir við rekstri Íslandsfugls í Dalvíkurbyggð
Starfsemin að komast
í fullan gang á ný
SJÓNVARPSSTÖÐIN Aksjón
er mjög vinsæl á Akureyri skv.
niðustöðum könnunar sem
Gallup gerði nýlega fyrir stöð-
ina. Þær sýna að 92,3% bæjar-
búa nota þjónustu stöðvarinn-
ar, en var samsvarandi tala
88,8% í október 2002. Í sams-
konar könnun fyrir svæðisstöð
Ríkisútvarps á Akureyri kemur
fram að 47,4% hlustuðu viku-
lega eða oftar á Útvarp Norð-
urlands.
Rúmlega 50% bæjarbúa
horfa á Aksjón alla daga vik-
unnar og að viðbættum þeim
sem horfa sjaldnar er meðal-
áhorf á hverjum degi 65,6%.
Samsvarandi hlustun á Útvarp
Norðurlands er 25,6% á dag. Í
sambærilegri könnun sem gerð
var fyrir dagskrárheftið Extra
síðastliðið haust skoðuðu 81,3%
heftið vikulega eða oftar og
23,3% daglega.
„Þessi könnun staðfestir ný-
lega könnun Rannsóknarstofn-
unar Háskólans á Akureyri að
Aksjón er lang mest notaði fjöl-
miðill bæjarins, ólíkt því sem
gerist í flestum plássum á
landsbyggðinni þar sem dag-
skrárhefti hafa rutt héraðs-
fréttablöðum og öðrum stað-
bundnum fjölmiðlum úr vegi,“
segir í fréttatilkynningu frá
sjónvarpsstöðinni Aksjón.
Aksjón
nýtur vin-
sælda á
Akureyri
♦ ♦ ♦