Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 13
AÐ sögn Karels Karelssonar, fram-
kvæmdastjóra sjómannadagsins í
Hafnarfirði, tókst sjómannadag-
urinn vel þar í bæ. Fólki var m.a.
boðið í sjóferð og bakarar úr Kök-
umeistaranum og Smárabrauði
bökuðu 1.200 manna tertu sem þeir
og Hafnarfjarðarbær gáfu gestum
og gangandi í tilefni níutíu og fimm
ára afmælis Hafnarfjarðar. Bragi
Björnsson fyrrverandi skipstjóri af-
henti sjómönnum heiðursvið-
urkenningar. Þrír sjómenn voru
heiðraðir að þessu sinni:
Haukur Brynjólfsson hóf sjó-
mannsferil sinn 17 ára gamall á
sumarvertíð á reknetum. Síðan var
hann á togurum. Árið 1961 lauk
hann hinu minna fiskimannaprófi
frá Sjómannaskóla Íslands og ári
seinna hinu meira fiskimannaprófi.
Hann var síðan stýrimaður í fjögur
ár þar til hann varð skipstjóri á
Helgu II við síld- og loðnuveiðar.
Sjómannsferli Hauks lauk um miðj-
an níunda áratuginn.
Sigurður Magnússon byrjaði að
stunda sjóinn 16 ára gamall á síld-
veiðum á Eddunni. Árið 1955 fór
hann á togarann Surprise og sjó-
mannsferli hans lauk 1968 eftir að
hann hafði verið á nótaskipunum
Faxa og Fífli. Sigurður vann alla tíð
hjá sama útgerðarfyrirtækinu, Ein-
ari Þorgilssyni og co.
Kristján Sumarliðason hóf sjó-
sókn 18 ára á síldveiðum. Hann var
mikið á línuveiðiskipum framan af
en seinna var hann á netabátum,
við síldveiðar og á togurum en
trilla var síðasta fley Kristjáns á
sjómannsferli hans.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þrír sjómenn voru heiðraðir í Hafnarfirði á sjómannadaginn, Haukur Brynjólfsson, Sigurður Magnússon og Kristján
Sumarliðason. Á myndinni með þeim eru makar Hauks og Sigurðar, Ásgerður S. Hjörleifsdóttir og Hjördís Hentze.
Þrír sjómenn heiðraðir í Hafnarfirði
HAGNAÐUR Plastprents á fyrsta
ársfjórðungi nam 22,4 milljónum
króna samanborið við 48,5 milljóna
króna hagnað á sama tímabili á síð-
asta ári. Verri afkoma stafar fyrst
og fremst af lakari samkeppnis-
stöðu samfara styrkingu íslensku
krónunnar, samkvæmt upplýsing-
um frá félaginu.
Samþykkt var á hluthafafundi
félagsins af eigendum 97,7% hluta-
fjár í síðustu viku að óska eftir af-
skráningu félagsins úr Kauphöll
Íslands.
Rekstrartekjur Plastprents hf. á
fyrstu þremur mánuðum ársins
2003 námu 305,4 milljónum króna
sem er tæplega 1% aukning frá síð-
asta ári en þá voru rekstartekjur
303,3 milljónir króna.
Rekstrargjöld án afskrifta voru
284,1 milljón króna samanborið við
258,4 milljónir króna á sama tíma-
bili árið áður og hafa því hækkað
um tæp 10%. Hækkun gjalda skýr-
ist að mestum hluta af hærri hrá-
efniskostnaði vegna erlendra hrá-
efnisverðhækkana.
Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBITDA) var 21,3
milljónir króna en nam 44,9 millj-
ónum króna á sama tímabili á síð-
asta ári. Afskriftir rekstrarfjár-
muna voru 17,5 milljónir króna en
námu 21 milljón króna á síðasta
ári. Rekstrarhagnaður var því
tæpar 4 milljónir króna, en nam
23,9 milljónum króna á sama tíma-
bili árið áður.
Veltufjárhlutfallið 0,84
Veltufjárhlutfallið var í lok mars
0,84 en var 0,83 í árslok 2002. Eigið
fé félagsins 31. mars 2003 var 235,2
milljónir króna og eiginfjárhlutfall-
ið 19% en í árslok 2002 var það
18%.
Hreint veltufé frá rekstri nam
12,4 milljónum króna á tímabilinu
samanborið við 36,5 milljónir
króna á sama tímabili á síðasta ári.
Plastprent verðleiðréttir reikn-
ingsskil sín. Ef reikningsskilin
hefðu ekki verið verðleiðrétt hefði
hagnaður tímabilsins orðið 7,5
milljónum krónum lægri og eigið fé
9,1 milljón króna lægra, að því er
segir í tilkynningu.
Hagnaður Plast-
prents dregst saman
mbl.isFRÉTTIR
DILBERT
mbl.is
TAP af rekstri Kaldbaks hf nam 216
milljónum króna á fyrstu þremur
mánuðum ársins samanborið við 654
milljóna króna hagnað á sama tíma-
bili í fyrra. Skýringu á verri afkomu
félagsins nú má aðallega rekja til
lækkunar á gengi hlutabréfa Sam-
herja hf. en vísitala sjávarútvegsfyr-
irtækja hefur lækkað um rúmlega
7% frá áramótum. Á tímabilinu seldi
Kaldbakur hf. tæplega 8% eignar-
hlut sinn í Íslenskum aðalverktökum
hf.
Heildareignir Kaldbaks hf. voru í
lok tímabilsins 7.963 milljónir króna
samanborið við 9.293 milljónir í des-
emberlok 2002. Eigið fé félagsins var
4.888 mkr. samanborið við 5.191
mkr. í desemberlok 2002. Skuldir og
skuldbindingar voru samtals 3.075
mkr. í lok tímabilsins, þannig að
samtals skuldir og eigið fé námu
7.963 mkr.
Stærstu eignarhlutar Kaldbaks hf.
í öðrum félögum eru 18% eignarhlut-
ur í Samherja hf., 11% eignarhlutur í
Tryggingamiðstöðinni hf., 50% eign-
arhlutur í Samkaupum hf. og 46%
eignarhlutur í Lyfjum og heilsu hf.
Tap Kaldbaks 216
milljónir króna
FLUGSTÖÐ Leifs Eiríkssonar hf.
hefur opnað nýja vefi, www.airport-
.is og www.dutyfree.is. Vefirnir eru
bæði á íslensku og ensku.
Á airport.is er annars vegar að
finna upplýsingar fyrir ferðamenn
sem ferðast til og frá Íslandi en hins
vegar upplýsingar um fyrirtækið
FLE hf. Á dutyfree.is-síðunni, sem
er heimasíða Fríhafnarinnar, eru
upplýsingar um verð og vörufram-
boð verslana í eigu flugstöðvarinnar.
Vefirnir eru settir upp í ConMan-
vefviðhaldskerfinu frá daCoda.
Flugstöðin
opnar vefi
♦ ♦ ♦