Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR írska lággjaldaflug- félagsins Ryanair nam 239,4 milljón- um evra, eða yfir 20 milljörðum ís- lenskra króna, á síðasta reikningsskilaári sem lauk í mars síð- astliðnum. Ryanair ætlar að ná því markmiði innan þriggja ára að flytja fleiri en 30 milljónir farþega á ári, að sögn forstjórans, Michael O’Leary. Náist markmiðið verður Ryanair stærsta flugfélag Evrópu, með fleiri farþega en bæði Lufthansa og British Airways, sem nú eru stærstu flug- félögin í álfunni. Enn fremur stefnir Ryanair að því að verða stærra en helsti samkeppn- isaðilinn, easyJet, eigi síðar en í októ- ber á þessu ári. „Markmið okkar er ekki að drepa neinn [samkeppnisaðila] heldur að vaxa hratt. Við ætlum að eyðileggja flugmarkaðinn eins og við þekkjum hann núna,“ segir O’Leary. Ryanair gerir ráð fyrir að á upp- gjörsárinu 2003–4 muni farþegafjöld- inn fara upp í 24 milljónir. Á nýloknu uppgjörsári flugu 15,7 milljónir far- þega með Ryanair. Afkoma Ryanair var betri en sér- fræðingar höfðu spáð og jókst um 53% frá reikningsskilaárinu sem lauk í mars 2002. Í frétt Reuters segir að Ryanair hafi lækkað fargjöld sín um 6% á síðustu tólf mánuðum. Haft er eftir O’Leary að fargjöld muni lækka enn frekar á næstunni. Ryanair flýg- ur nú á 125 leiðum, en flugleiðum fé- lagsins fjölgaði eftir kaup á öðru lág- gjaldaflugfélagi, Buzz, sem áður var í eigu hollenska flugfélagsins KLM. Gengi evru gagnvart bresku pundi sem og gengi evru gagnvart Banda- ríkjadal hefur áhrif á afkomu félags- ins. Forstjórinn segir að veik staða bresks punds gagnvart evru geri það að verkum að hagnaður félagsins aukist um 10% á þessu ári í stað 15– 20% eins og áður hafði verið spáð. Á vef BBC er sagt frá því að veik staða Bandaríkjadals gagnvart evru hafi að öllum líkindum komið félaginu til góða við kaup á flugvélum frá banda- ríska framleiðandanum Boeing. Ryanair festi nýlega kaup á 250 flug- vélum. Ryanair vill verða stærst í Evrópu Hagnaður eykst um rúm 50% á milli ára Reuters Forstjóri Ryanair, Írinn Michael O’Leary, segir að félagið verði stærra en British Airways og Lufthansa innan þriggja ára. FRAMSÖGUMENN á fundi um stöðu Þýskalands í viðskiptalegu sambandi og með tilliti til stækkunar Evrópusambandsins voru á einu máli um að landið væri lykillinn að við- skiptum við Evrópu. Þetta ætti ekki síst við eftir stækkun Evrópusam- bandsins til austurs þegar Þýskaland yrði komið inn að miðju Evrópusam- bandsins. Viðskiptaþjónusta utanríkisráðu- neytisins hélt fundinn í samvinnu við Þýsk-íslenska verslunarráðið og til umfjöllunar voru meðal annars hags- munir íslenskra fyrirtækja á þýskum markaði, einkum í ljósi stækkunar Evrópusambandsins. Páll Kr. Pálsson, formaður Þýsk- íslenska verslunarráðsins, sagði í ávarpi sínu að Ísland hefði ekki uppi áform um að gerast aðili að Evrópu- sambandinu, en þyrfti engu að síður að fylgjast vel með því sem þar gerð- ist. Þýskaland væri mikilvægt fyrir viðskipti Íslands við Evrópu og brú fyrir viðskipti milli austurs og vest- urs. Umfangsmiklar reglur innri markaðarins mikilvægar Dr. Christoph Jessen, skrifstofu- stjóri Evrópuskrifstofu þýska utan- ríkisráðuneytisins og yfirumsjónar- aðili stækkunarviðræðna af hálfu Þýskalands, fjallaði um þróunina í Evrópu, stækkun Evrópusambands- ins og innri markaðinn þar. Hann sagði samrunaferlið í Evrópu þjóna hagsmunum Þýskalands og að Þýskaland hefði verið og yrði áfram hvetjandi um þennan samruna. Hann benti á að Þýskaland væri stærsta ríki Evrópu og að segja mætti að það væri bæði of stórt og of lítið. „Við erum of lítil til að knýja fram pólitískan vilja okkar í Evrópu, við höfum reynt það tvisvar og mis- tekist hrapallega með hörmungum fyrir alla Evrópu. Við erum líka of stór til að vera í Evrópu án samrun- ans ef jafnvægi á að ríkja,“ sagði Jes- sen. Hann sagði samrunann þýða að Brussel setti lögin og reglurnar og að þetta væri afar mikilvægt fyrir Evr- ópu. Jessen sagði að eftir stækkun yrði Evrópusambandið stærsti markaður í heimi, stærri en Bandaríkin, Kan- ada og Japan samanlagt. Hann sagði að líta mætti á innri markaðinn eins og heimamarkað og að þar giltu alls staðar sömu reglur. Umfangsmiklar reglur um fjölmörg svið væru mik- ilvægar til að liðka fyrir viðskiptum og gera innri markaðinn mögulegan. Þetta væri sérstaklega mikilvægt fyrir smá og meðalstór fyrirtæki sem ekki hefðu tök á að kynna sér mis- munandi reglur ólíkra landa. Hann tók sem dæmi að mikilvægt væri að reglur giltu um lit og stærð tómata, þótt slíkar reglur þættu oft hlægilegar. Ef menn keyptu tómata frá fjarlægu ríki innan sambandsins yrðu þeir að hafa tryggingu fyrir því að tómatarnir væru réttrar gerðar og að ella væri möguleiki á að kvarta og sækja seljandann til saka fyrir dómstólum. Þýskaland með tæpan fjórðung landsframleiðslu ESB Dr. Hans-Leopold von Winterfeld, aðstoðarframkvæmdastjóri Fjár- festingarstofu Þýskalands, fjallaði um viðskiptatækifæri í Þýsklandi og kosti þess að eiga viðskipti þar. Hann lagði áherslu á stöðu landsins í miðri Evrópu og góðar samgöngur innan landsins og til og frá því. Hann sagði að 24% af landsframleiðslu Evrópu- sambandsins yrðu til í Þýskalandi og að þar í landi byggju 22% íbúa sam- bandsins. Hann sagði að Þýskaland væri oft gagnrýnt fyrir háan launa- kostnað, en að meira máli skipti að framleiðni í Þýskalandi væri með því hæsta sem þekktist. Von Winterfeld sagði einnig að ólíkt því sem ýmsir héldu væri mikil frumkvöðlastarfsemi í Þýskalandi og tók sem dæmi að einungis í Banda- ríkjunum hefðu fleiri einkaleyfi verið skráð árið 2001. Í Bandaríkjunum hefðu 25% allra einkaleyfa heimsins verið skráð það ár, en 23% leyfanna hefðu verið skráð í Þýskalandi. Vaxtalækkun framundan? Dr. Klaus-Dieter Geisler í alþjóða- deild þýska seðlabankans sagði að miklar framfarir hefðu orðið í pen- ingamálum álfunnar og að með evr- unni hefði verið búinn til annar mik- ilvægasti fjármálamarkaður heims- ins. Geisler sagði að tekist hefði að koma á kerfi sem myndi hafa í för með sér vöxt án verðbólgu á evru- svæðinu og að mikill árangur hefði náðst með evrunni. Hann sagði að stöðugt verðlag væri meginmarkmið Seðlabanka Evrópu. Verðbólga væri nú 2%, mun lægri en verið hefði á ár- um áður. Geisler kom einnig inn á vaxta- stefnu evrusvæðisins og sagði vexti hafa lækkað mikið frá því sem áður hefði verið. Þeir væru nú komnir nið- ur í 21⁄2% og „kynnu að verða orðnir lægri innan fárra klukkustunda“, eins og hann orðaði það, en margir spá því nú að Seðlabanki Evrópu muni lækka stýrivexti sína á morgun. Mikilvægur markaður fyrir Ísland Grétar Már Sigurðsson, skrif- stofustjóri viðskiptaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins, flutti lokaorð á fundinum og lagði í þeim áherslu á mikilvægi Þýskalands sem markaðar fyrir íslenskar vörur og mikilvægi þýskrar framleiðslu fyrir íslenskan markað. Hann sagði Þýskaland stærsta kaupanda íslenskrar fram- leiðslu í heiminum, að það hefði í fyrra náð fyrsta sætinu af Bretlandi. Þá væri Þýskaland næststærsti inn- flytjandi til Íslands, í fyrra hefðu Bandaríkin komist fram úr því en munurinn væri ekki mikill. Þýskaland í lykil- stöðu innan Evrópu Stærsti útflutningsmarkaður Íslend- inga og næst stærsti innflytjandinn Morgunblaðið/Arnaldur Hluti fundargesta á fundi Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins og Þýsk-íslenska verslunarráðsins. GENGI hlutabréfa deCODE genet- ics, móðurfélags Íslenskrar erfða- greiningar, hækkaði um 78% í maí og hefur ríflega tvöfaldast frá ára- mótum. Um áramót var gengi bréf- anna 1,85 dalir, en lokagengi gær- dagsins var 3,77 dalir. Gengið lækkaði um 2% í gær. Í Morgunkorni Greiningar Ís- landsbanka segir að líftæknivísitala Nasdaq hafi leitt þær miklu hækk- anir sem verið hafi á hlutabréfa- mörkuðum í þessum ársfjórðungi. Aukinn áhugi á líftækni Í Markaðsyfirliti Landsbankans segir að ástæðan að baki hækkun de- CODE sé sú að mörg líftæknifélög hafa verið að fá leyfi fyrir lyf sín hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu síðustu misserin og að þess vegna hafi fjár- festar fengið áhuga á líftækniiðnað- inum á ný. Líklegt sé að fjárfestar hafi séð tækifæri í bréfum deCODE í byrjun maí en gengi bréfa félagsins hefði ekki hækkað mjög mikið fram að þeim tíma. Í Hálffimm fréttum Kaupþings Búnaðarbanka segir að bréf deCODE hafi hækkað mikið eft- ir að félagið kynnti uppgjör fyrsta ársfjórðungs um miðjan maí. Fjár- festar virðist hafa trú á því að félagið muni ná markmiðum sínum um að rekstur þess verði hættur að ganga á eigið fé í lok þessa árs.                           Gengi de- CODE hækk- ar mikið NAFNI Íslandssíma hf. var formlega breytt í Og fjarskipti hf. á hluthafa- fundi í félaginu í gær. Þó verður það áfram í daglegu tali nefnt Og Voda- fone. Einnig samþykkti fundurinn að heimild stjórnar félagsins til hluta- fjárhækkunar vegna kaupréttar- samninga yrði tvöfölduð; úr 50 millj- ónum króna í 100 milljónir. Þá hætti Stefán H. Stefánsson, fyrrum stjórn- arformaður, í stjórninni, þar sem hann hefur hafið störf hjá verðbréfa- sviði Landsbankans. Sæti hans í stjórninni tók Kjartan Georg Gunn- arsson, framkvæmdastjóri SP fjár- mögnunar. Bjarni K. Þorvarðarson, stjórnar- formaður Og fjarskipta hf., segir að stjórnin hafi samþykkt kaupréttar- samninga og hafi verið að leita sam- þykkis fundarins á þeim. „Þetta eru ekki stórar upphæðir, enda innan við hálft prósent af útistandandi hlutafé.“ Ekki færðir til gjalda Aðspurður segir hann að samning- arnir verði ekki færðir til gjalda í bókhaldi fyrirtækisins, frekar en tíðkist hjá öðrum íslenskum fyrir- tækjum. „Erlendis hefur orðið um- ræða um hvort rétt sé hjá fyrirtækj- um að færa svona samninga til gjalda, en það er á umræðustiginu ennþá,“ segir hann. Á aðalfundi Íslandssíma í fyrra var ákveðið að þóknun stjórnar yrði í formi hlutafjár í félaginu. Þóknun fyrir árið 2001–2002, sem greidd var eftir aðalfundinn í fyrra, var til al- mennra stjórnarmanna 350 þúsund hlutir í Íslandssíma og formanns 700 þúsund hlutir. Varamenn fengu 100 þúsund hluti. Jafnframt var ákveðið að sami háttur yrði á greiðslu þókn- unar 2002–2003 nema hvað varamenn fengju 17,5 þúsund hluti fyrir hvern fund, þó aldrei meira en nemur þókn- un almenns stjórnarmanns. Sam- þykkt var að hlutabréfin yrðu afhent að loknum aðalfundi 2003. Félagið tilkynnti í Kauphöllinni í fyrradag að það hefði á föstudaginn selt eigin bréf að nafnverði 3.807.026 kr., á meðalgenginu 1,84, til stjórn- armanna, fyrrverandi stjórnarmanna og varastjórnarmanna. Samtals nam því kaupverð sjö milljónum króna en lokagengi bréfa í Íslandssíma á föstu- daginn var 2,49 og því var markaðs- verðmæti hinna seldu bréfa tæplega 9,5 milljónir króna. Í tilkynningunni sagði að viðskiptin hefðu verið upp- gjör á þóknun til þessara aðila og einnig uppgjör á kauprétti til fyrrver- andi og núverandi starfsmanna. Íslandssími orðinn Og fjarskipti hf. Heimild til hlutafjáraukningar vegna kaupréttarsamninga samþykkt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.