Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STÓR spor í sögu Heimilisiðn-
aðarsafnsins á Blönduósi voru stig-
in á uppstigningardag þegar við-
bygging var formlega vígð. Tómas
Ingi Olrich menntamálaráðherrra
klippti á borðann sem hleypti al-
þýðunni að hinu endurbætta safni.
Áður hafði séra Sveinbjörn R. Ein-
arsson blessað hið nýja safnahús.
Elín Sigurðardóttir formaður
stjórnar safnsins bauð síðan gestum
að ganga í safn og berja dýrðina
augum. Fjölmenni mætti til þess-
arar samkomu í sólríku veðri og
var hvergi að heyra annað en að vel
hefði til tekist að tengja hið ný-
byggða safn við gamla safnið, safn
sem hýsir m.a. Halldórustofu
Bjarnadóttur, safn sem áður var
fjós og hlaða kvennaskólans á
Blönduósi.
Að lokinni athöfn í safninu var
dagskrá í félagsheimilinu á Blöndu-
ósi hvar boðið var upp á veitingar,
tónlistarflutning, ræður fluttar,
gjafir og árnaðaróskir þegnar. Elín
Sigurðardóttir stiklaði á stóru í
sögu safnisins en formlega var það
tekið í notkun árið 1976. Samband
kvenfélaganna í A-Hún rak síðan
safnið til ársins 1993 er það var
gert að sjálfseignarstofnun. Mar-
grét Hallgrímsdóttir þjóðminja-
vörður tók fyrstu skóflustunguna
að viðbyggingu við safnið 6. okt.
2001 og þann sama dag hófst verk-
ið. Þessu verki luku svo Jón Eiríks-
son og samstarfsmenn 1. febrúar
síðastliðinn. Guðrún Jónsdóttir er
arkitekt þessarar viðbyggingar en
hún á sterkar rætur í héraðinu því
móðir hennar Hulda Á. Stef-
ánsdóttir, forstöðukona Kvenna-
skólans á Blönduósi til margra ára,
kvatti mjög til varðveislu heimilis-
iðnaðar. Guðrún færði og safninu
m.a. að gjöf hundrað ára gamlan
handofin kjól. Safninu bárust marg-
ar aðrar höfðinglegar gjafir og
munir til varðveislu: Hálf milljón
króna frá kvenfélaginu Vöku á
Blönduósi, fálkaorða sem Halldóra
Bjarnadóttir fékk frá Kristjáni X,
munir og búningar sem Halldóra
afhenti Búnaðarfélagi Íslands á sín-
um tíma. Safninu bárust og fund-
argerðir sambands norðlenskra
kvenna en Halldóra Bjarnadóttir
var hvatamaður að stofnun þeirra.
Blönduósbær og Höfðahreppur
færðu safninu gjafabréf svo vísa
mætti veginn að safninu og flagga á
hátíðis- og tyllidögum. Elín Sigurð-
ardóttir formaður stjórnar safnsins
lagði á það ríka áherslu að bjóða
textíllistafólki aðstöðu til sýninga í
safninu og sagði ennfremur „Við
álítum einnig að Heimilisiðn-
aðarsafnið verði frjór vettvangur
rannsókna á ýmsum sviðum þjóð-
lífsins og uppspretta hugmynda í
handverksvinnu. Við lítum svo á að
hér höfum við í hendi menning-
arstofnun sem hýsir safn til sýnis,
rannsókna og fræðslu.“ Elín gat
þess að auk þeirra gjafa sem safn-
inu bárust á vígsludaginn hefðu
margir lagt safninu til stórkostlega
muni á undangengnum árum.
Safnið er öllum opið í sumar frá
1. júní til ágústloka frá kl 10–17
Fjölmenni var við vígslu safnsins og var greinilegt að þessi atburður jók
með fólki bjartsýni á framtíð mannlífs í Húnaþingi.
Nýi hluti heimilisiðnaðarsafnsins fellur vel að eldri hlutanum.
Fjölmenni á vígsluhátíð
Blönduós
Viðbygging við Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi vígð
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Guðrún Jónsdóttir arkitekt og Elín
Sigurðardóttir formaður sem hefur
verið óþreytandi að afla fjár til
byggingarinnar og kynna safnið.
SJÓMANNADAGURINN í Ólafs-
firði hefur verið að fá aukið vægi
undanfarin ár. Æ meira er lagt í
dagskrána og hafa heimamenn á
orði að hér í bæ sé meira lagt upp úr
sjómannadeginum en þjóðhátíðar-
deginum 17. júní.
Samkvæmt venju fer mikið fram
við höfnina á laugardeginum og var
engin undantekning að þessu sinni.
Áhafnir kepptu, meira í gamni held-
ur en alvöru, í kappróðri, síðan var
farið í hindrunarhlaup með mysu
sem skipstjórar þurftu síðan að
drekka, og að lokum fór fram kodda-
slagur yfir höfninni, þar sem Gunn-
laugur Sigursveinsson fór með sigur
af hólmi eftir mikla baráttu. Stakka-
sund og björgunarsund fór fram í
sundlauginni en þar sló téður Gunn-
laugur Sigurveinsson í gegn enn og
aftur. Þá fór fram leirskífuskotfimi á
vegum Skotfélags Ólafsfjarðar.
Á sunnudeginum var skrúðganga
og sjómannadagsmessa. Hátíðar-
ræðu dagsins hélt Vilhjálmur Sig-
urðsson, skipstjóri á Sigurbjörgu
ÓF 1. Að venju voru tveir sjómenn
heiðraðir, að þessu sinni þeir Trausti
Kristinsson og Guðjón Sigurðsson. Í
hádeginu var bæjarbúum boðið upp
á siglingu út á fjörð á frystitogaran-
um Sigurbjörgu ÓF. Ýmislegt fleira
var gert, t.d. fór fram firmakeppni
hestamannafélagsins Gnýfara,
knattspyrnuleikur milli sjómanna og
landmanna, barnaskemmtun við
Tjarnarborg þar sem m.a. karamell-
um var dreift úr flugvél, og kaffisala
á vegum Slysavarnadeildar kvenna í
Sandhóli. Um kvöldið fór svo fram
árshátíð sjómanna í Tjarnarborg
þar sem Sveinn Waage var veislu-
stjóri.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Mjög hörð barátta fór fram við höfnina þegar sjómenn kepptu í koddaslag en
Gunnlaugur Sigursveinsson stóð uppi sem sigurvegari eftir mikla baráttu.
Hér er hann að slá einn harðasta keppinaut sinn, Núma Magnússon, í sjóinn.
Keppt í kappróðri og
hindrunarhlaupi
Ólafsfjörður
FRAMHALDSSKÓLANUM á
Húsavík var slitið við hátíðlega athöfn
í Húsavíkurkirkju fyrir skömmu.
Þrettán nemendur brautskráðust
með stúdentspróf auk þess sem fjórir
nemendur luku verslunarprófi af við-
skiptabraut, einn þeirra jafnhliða
stúdentsprófinu. Þá voru kvaddir
tveir skiptinemar sem stunduðu nám
við skólann á þessu skólaári.
Fram kom í máli Guðmundar Birk-
is Þorkelssonar skólameistara að þau
hefðu verið sannir aufúsugestir og
gleðigjafar og borið þjóðum sínum og
menningu fagurt vitni. Að lokinni
ræðu skólameistara gerði Gunnar
Baldursson aðstoðarskólameistari
grein fyrir því helsta sem á dagana
dreif á skólaárinu sem var að ljúka.
Það sem kom m.a fram í máli Gunn-
ars var fjölgun nemenda við skólann.
Í upphafi haustannar voru nemendur
139 sem er fjölgun upp á 20 miðað við
upphaf haustannar 2001 og þar með
endurheimti skólinn þann nemenda-
fjölda sem hann hafði fyrir kennara-
verkfallið 2001. Brautskráningu
stjórnaði Björgvin Rúnar Leifsson
áfangastjóri sem og verðlaunaafhend-
ingu. Um tónlistaratriði við athöfnina
sáu þau Aladár Racz og Hólmfríður
Benediktsdóttir.
Birna Dögg Magnúsdóttir fékk
flestar viðurkenningar að þessu sinni,
þær voru fyrir góðan námsárangur í
íslensku frá Eddu/Máli og Menningu,
í samfélagsgreinum frá Landsbanka
Íslands á Húsavík, í þýsku frá Skipa-
afgreiðslu Húsavíkur ehf. og í hag-
fræðigreinum frá Íslandsbanka á
Húsavík. Arnar Þór Arnarsson fékk
viðurkenningar fyrir góðan námsár-
angur í frönsku frá Alla Geira hf. og í
ensku frá Bókaverslun Þórarins Stef-
ánssonar. Viðurkenningu fyrir fé-
lagsstörf frá Hollvinasamtökum FSH
fékk Hólmfríður Anna Aðalsteins-
dóttir sem var í stjórn nemendaráðs
og driffjöður í leiklistarstarfi skólans
auk þess sem hún sat í skólanefnd sl.
vetur. Viðurkenningu fyrir fé-
lagsstörf frá Tómstundanefnd Húsa-
víkur fékk Ragnheiður Ásbjarnar-
dóttir sem einnig sat í nemendaráði
og vann að félagsmálum nemenda
með miklum sóma. Þórdís Anna
Njálsdóttir fékk viðurkenningu frá
Menningarsjóði þingeyskra kvenna
en hún útskrifaðist með verslunar-
próf af viðskiptabraut. Hún er ein
margra kvenna sem hafa farið í fram-
haldsnám eftir nokkurt hlé samhliða
starfi og þar á ofan haft fyrir stóru
heimili að sjá. Rannveig Benedikts-
dóttir sem situr í stjórn sjóðsins af-
henti viðurkenninguna.
Þetta var í 16. sinn sem Framhalds-
skólanum á Húsavík var slitið og að
þessari athöfn lokinni hefur skólinn
brautskráð 427 nemendur.
Framhalds-
skólanum slitið
í sextánda sinn
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Guðmundur Birkir Þorkelsson skólameistari ásamt útskriftarhópnum.
SÓLIN hellti geislum sínum yfir
hópinn sem safnaðist saman á
bryggjusporðinum á Hellnum að
morgni sjómannadagsins. Þar var
staddur hluti þeirra áttatíu og
þriggja afkomenda Jónínu Ásbjörns-
dóttur og Guðjóns Þorkelssonar frá
Stokkseyri, sem héldu ættarmót á
Brekkubæ um helgina. Einn niðj-
anna, Steingrímur Þorvaldsson,
skipstjóri á Vigra, hafði fórnað hátíð-
arhöldum sjómannadagsins í
Reykjavík til að vera með ættmenn-
um sínum og því héldu þeir sérstaka
athöfn til heiðurs honum og öðrum
sjómönnum á svæðinu. Gengið var
fylktu liði frá Brekkubæ niður á
bryggjuna. Fremstur í flokki gekk
Eyþór Magnússon, tæplega 10 ára
drengur, með íslenska fánann. Á
bryggjusporðinum stilltu sér upp
núverandi og fyrrverandi sjómenn
og mælt var fyrir minni sjómanna og
fjallað lítillega um hin sterku tengsl
sem íslenska þjóðin hefur alltaf haft
við hafið. Eftir það var farið með
Faðirvorið og síðan minntist Stein-
grímur látinna félaga og lagði heima-
gerðan blómsveig á vota gröf þeirra
með því að setja hann á hafflötinn.
Athöfninni lauk síðan með því að all-
ir sungu Ísland ögrum skorið.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Guðrún Bergmann, Guðni Hannesson, Steingrímur Þorvaldsson, skipstjóri
á Vigra, Sigurjón Steingrímsson, Jóhann Þóroddsson, vélstjóri á Sóley,
Guðjón Þorvaldsson og Eyþór Magnússon fánaberi.
Hátíð á bryggjunni
Hellnar