Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 41
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 41 HUGLEIKUR sýndi á laugardag hina samanþjöppuðu og glettnislegu óperu Bíbí og blökuna. Hér er á ferð íslensk smíð þeirra Þorgeirs Tryggva- sonar, Sævars Sigurgeirssonar og Ármanns Guð- mundssonar og segir verkið frá einmana íslenskri snót sem bíður ástarinnar þegar dularfullur Rúmeni stingur upp kollinum og stígur í vænginn við hana. Hann er þó ekki fyrr kominn en annar fylgir á eftir, og sá heldur því fram að Rúmeninn sé stórhættuleg vampýra – og verður einnig hugfanginn af snótinni örvingluðu. Verkið hefur ekki verið sýnt hér á landi um langt skeið en fengið mjög góðar viðtökur á leikhátíðum er- lendis. Margir mættu því til að sjá þessa rómuðu sýn- ingu, eða rifja upp fyrri kynni af vafasömum vampýr- um og ástsjúkum íslenskum snótum, sem að sjálfsögðu eru í öngum sínum eins og í öllum góðum óperum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Brosmild eftir blóðsuguóperu: Þröstur Jensson, Hanna Hallgrímsdóttir, Adda Steina Björnsdóttir og Þórir Guðmundsson virtust ekki skelfd þó vampýrur væru á sveimi í Borgarleikhúsinu. Blóðheitar blóðsugur Það er ekki auðvelt að elska vampýru: Þorgeir Tryggvason reynir að róa Silju Björk Huldudóttur en Hulda B. Hákonardóttir og Þórunn Guðmundsdóttir standa álengdar. Morgunblaðið/Jim Smart Blátt áfram (Full Frontal) Gamandrama Bandaríkin 2002. Skífan VHS. (106 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Steven Soderbergh. Aðalhlutverk Julia Roberts, Catherine Keener, Blair Under- wood, David Duchovny, David Hyde Piece. GUÐI sé lof að þeir eru enn til áhrifamennirnir í kvikmyndaheimin- um vestra, menn á borð við Steven Soderbergh, sem spenntir eru fyrir því að reyna eitt- hvað nýtt, eitthvað öðruvísi. Vandinn er sá að mynd eins og þessi stórundar- lega tilraunarmynd hans Soderberghs kemur óorði á það sem öðruvísi getur talist. Hugmyndin er góðra gjalda verð. Mynd tekin upp á stafrænan búnað á 18 dögum fyrir lágmarksfé (kostaði víst 2 milljónir dala þrátt fyrir allan stjörnufansinn, sem greinilega hefur gefið vinnu sín). Leikararlið ku líka hafa haft frjálsar hendur til að spinna af fingrum fram persónur sínar. En af þessari mynd af dæma ættu þessir annars hæfileikaríku leikarar að halda sig við línurnar sem aðrir vinna við að skrifa fyrir þá því þeir hafa greinilega ekkert að segja annað en að velta sér upp úr eigin sjálfhverfa lífi. Tilraunastarfsemi Soderbergh gengur heldur engan veginn upp, er út og suður, og skortir alveg heild- armynd. Engin furða að þessi annars stjörnum prýdda mynd hafi farið fyrir ofan garð á neðan því hún sann- ar það eitt að einu gildir hversu stjarnan er stór, enginn nennir að horfa á hana ef hún hefur bara ein- tóm leiðindi fram að færa.  Skarphéðinn Guðmundsson Steypustöð Soder- berghs Á barmi brjálæðisins (Edge of Madness) Drama Kanada 2002. Myndform VHS. (90 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Anne Wheeler. Aðalhlutverk Caroline D’Hav- ernas, Paul Johansson, Corey Sevier. LANDNÁMI í vestri hefur í gegn- um tíðina verið lýst í kvikmyndum sem björtu blómaskeiði þar sem ríkjandi hefur verið iðjagrænn litur ósnortinnar slétt- unnar. Í kanad- ísku myndinni Landnámsraun- um eru dregin upp önnur og öllu myrkari mynd af þessum tíma, sem er vel, því ekki voru jú allir svo lánsamir að geta numið gósenland. Sumir urðu að gera sér að góðu hrjóstruga og frostsára bala, sér í lagi norðarlega í Ameríkuálfunni, eins og t.d. þar sem Íslendingar komu sér fyrir í Manitoba, en þar gerist einmitt þetta raunsæja en um leið heldur þunglamalega drama. Hún er þó ágætasta afþreying. Ekki allra, en ætti þó að höfða til þeirra sem kjósa raunsæi framyfir síróp. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Landnema- raunir ♦ ♦ ♦ KÓPAL STEINTEX Hörkutilboð 10 lítrar aðeins 5.990 kr. KÓPAL STEINTEX er frábær málning til notkunar á múr og steinsteypta fleti þar sem krafist er mikils veðrunarþols. KÓPAL STEINTEX er fáanleg í þúsundum lita. Hentar einkar vel til endurmálunar 4 litir, hvítt, marmarahvítt, hrímhvítt og antikhvítt Útimálning fyrir íslenskar aðstæður Útsölustaðir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur byggingavöruversl. Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði • Versl. Vík, Neskaupstað • Byko Reyðarfirði • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík. Við erum sérfræðingar í útimálningu fyrir íslenskar aðstæður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.