Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 45
ROLLING Stones velta fyrir sér
hvort þeir eigi að banna þýsku sveit-
inni Böhse Onk-
elz að hita upp
fyrir sig á tón-
leikum í Þýska-
landi. Ástæðan er
sú að textar sem
þýska hljóm-
sveitin hefur sam-
ið hafa að geyma
kynþáttahatur. Rokksveitin Böhse
Onkelz, sem er ein söluhæsta hljóm-
sveitin í Þýskalandi, hugðist spila á
tónleikum Rolling Stones í Hannover
8. ágúst. Á heimasvæði þeirra viður-
kenna liðsmenn sveitarinnar tengsl
við hægri öfgamenn á níunda áratug
20. aldar, en segjast hafna hug-
myndum þeirra nú. Þá hefur Böhse
Onkelz samið lag, sem nefnist á
ensku „Turks Out“ eða „Burt með
Tyrkina“ og er frá fyrstu árum sveit-
arinnar. Í laginu er að finna laglínuna
„Hunskist til Ankara … mér býður
við ykkur.“
Sveitin hefur frá 1984 breytt tónlist-
aráherslum sínum og er nú sögð spila
hefðbundið rokk. Þá hafa liðsmenn
Böhse Onkelz lýst opinberalega yfir
andúð á þeim sem ala á kynþáttahatri
og nasisma. Þýskur tónleikahaldari
valdi sveitina til þess að spila með
Rolling Stones í Hannover, en liðs-
menn Rolling Stones segjast nú íhuga
næstu skref, að sögn BBC. Talsmenn
Böhse Onkelz hafa vísað ásökunum
um hatur í garð innflytjenda á bug og
fullyrða að allar slíkar vísanir hjá sér
heyri fortíðinni til, enda sé umrætt
lag 20 ára gamalt. …Jude Law og
Nicole Kidman snæddu saman á
veitingastaðnum
Brydges Place, sem
er einkaklúbbur við
Trafalgar-torg í
London, á
föstudagskvöld en
þau hafa ítrekað vís-
að á bug sögusögn-
um um að þau eigi í
ástarsambandi.
Sögusagnir hafa verið á kreiki um
samband þeirra frá því þau léku sam-
an í myndinni Cold Mountain en þau
neita því að vera nokkuð meira en
vinir og að samband þeirra eigi nokk-
urn þátt í skilnaði Law og eiginkonu
hans Sadie Frost.
Vinir Law segja hann hins vegar hafa
fallið fyrir henni við gerð mynd-
arinnar en að hún hafi hafnað honum
þar sem hún hafi talið að það gæti
skaðað feril hennar að taka saman við
giftan mann og þriggja barna föð-
ur … Ekkert verður úr réttarhöldum
yfir fimm mönnum, fjórum Rúmen-
um og einum Kósóvó-Albana, sem
sakaðir voru um að hafa lagt á ráðin
um að ræna Victoriu Beckham,
fyrrum Kryddpíu og eiginkonu fót-
boltakappans David Beckhams.
Saksóknari hefur komist að þeirri
niðurstöðu að vitnisburður aðalvitn-
isins í málinu sé óáreiðanlegur og
ótrúverðugur eftir að hann hafi selt
söguna til götublaðsins News of the
World og fengið rúmlega eina milljón
íslenskra króna fyrir hana.
Blaðið var fyrst til að birta fréttir um
að fimmmenningarnir hafi ætlað að
ræna Victoriu í nóvember sl.
FÓLK Ífréttum
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05, 10.10 og 11.15.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40 og 10. B.i.12.
Allt sem hann þurfti að vita um lífið
lærði hún í fangelsi!
Það borgar sig að kynnast fólki vel áður en þú ferð á
blint stefnumót á netinu.
Queen Latifahfer á kostum og Steve Martin slær í gegn í
sinni stærstu gamanmynd frá upphafi!
„Einn mesti grínsmellur ársins!“
KVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“