Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 44
HRÓARSKELDUHÁTÍÐIN er ein
allra vinsælasta tónlistarhátíð heims
en ár hvert flykkjast þangað tugþús-
undir manna til að hlýða á vinsælustu
hljómsveitir samtímans. En Hróars-
kelduhátíðin er engin venjuleg tón-
listarhátíð. Fyrir margt löngu hóf að
hún að verða að sjálfbæru
fyrirbæri sem tekur inn
marga aðra þætti en þá
sem tengjast hreinum og
klárum tónleikum. Í dag eru t.d. rekn-
ar þónokkrar aðdáendasíður, hátíð-
inni til handa, og fyrir marga er þetta
einn af föstu punktum tilverunnar.
Þeir sem komið hafa á hátíðinni geta
ennfremur staðfest þann sérstaka
anda rósemis og friðar sem umleikur
hátíðarsvæðið. Setningin „rokk og ró-
legheit“ lýsir Skeldunni nefnilega vel.
Fyrir hljómsveitir, og þá sem hafa
sótt hátíðina, er það sláandi hversu
vel haldið er á spöðunum þar sem
heilu bæjarfélagi (í Hróarskeldu eru
um 100.000 íbúar) er snúið á haus í
u.þ.b. viku eða svo. Þjónusta og ör-
yggisatriði eru öðrum hátíðum til eft-
irbreytni en sérstaklega er þessara
hluta gætt í dag, eftir að hið voveif-
lega slys átti sér stað árið 2000, er níu
manns létust í troðningi.
Hátíðin hefur í gegnum árin verið
fjölsótt af Íslendingum, eins og
reyndar fleiri Norðurlandabúum, og
fara nokkur hundruð okkar utan í ár.
Tilefnið í ár er auk þess ærið, en
Björk, Sigur Rós, Ske og Gus Gus
(plötusnúðar) munu öll troða upp.
Betri hátíð
Hátíðin í ár er mun holdmeiri og
safaríkari en sú sem var í fyrra. Aðal-
númerin verða Björk, Blur, Coldplay,
Dave Gahan, Metallica, Iron Maiden,
Queens of the Stone Age og Zwan.
Rokk verður nokkuð áberandi í ár
eins og sjá má og bíða flestir tónleika
Metallica með eftirvæntingu, því auk
þess að vera heimkomutónleikar
miklir (Lars Ulrich, trymbill Metall-
ica er danskur) munu þeir leika lög af
nýju hljóðversplötunni sinni, St. Ang-
er, þeirra fyrsta síðan Reload kom út
1997. Iron Maiden munu þá og leika
lög af væntanlegri plötu. Q.O.T.S.A.
er eitt heitasta rokkband dagsins í
dag og Zwan er stýrt af fyrrum
Smashing Pumpkins leiðtoganum
Billy Corgan. Og þetta verða með
fyrstu einleikstónleikum Dave Gah-
an, söngvara Depeche Mode.
Hróarskelduhátíðin er víðfeðm há-
tíð tónlistar og allir stílar eiga þar að-
gang. Í ár mun t.d. ein helsta rapp-
sveit sögunnar, Gang Starr, troða
upp, fremsta svartþungarokksveit
heims í dag, hinir ógurlegu Immortal
leika og hinn breski Eminem, Mike
Skinner í The Streets kemur fram.
Allar helstu sveitirnar í nýju „pönk-
rokk“ bylgjunni eða „The“ bylgjunni
eins og gárungarnir kalla hana koma
fram, sveitir eins og The Datsuns,
The Hellacopters, The Kills, The
Raveonettes, The Sounds og The
Thrills.
Önnur nöfn sem sannarlega er vert
að minnast á eru Squarepusher, Suic-
ide, Yo La Tengo, Beth Gibbons,
Bonnie Prince Billy, Doves, Dirty
Vegas, David Holmes, Interpol, Salif
Keita, Los Lobos, Massive Attack,
Cardigans og The Polyphonic Spree.
Auk þess verður þarna fullt af
danstónlist, jaðarrappi, heimstónlist
og bara öllu og öllu og öllu.
Hróarskelduhátíðin fer fram 26.–29. júní
Virtasta tónlist-
arhátíð heims
Hróarskelduhátíðin fer fram í enda júní-
mánaðar. Arnar Eggert Thoroddsen greinir
hér frá hátíðinni og spáir í spilin.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.roskilde-festival.dk
James Hetfield, söngvari Metallica.
Corgan á sviði með Zwan.
Roskilde hefur lengi beðið Bjarkar.
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
44 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Yeah yeah yeahs –
Fever to tell
Uppgötvun
ársins, segja
margir, og eftir
að hafa legið yfir
fyrstu stóru
plötu þessa
kröftuga New
York-tríós, þá dettur mér ekki í
hug að mótmæla því. Með ólík-
indum ferskt og hressilegt. Ein-
hverskonar töfrablanda af PJ
Harvey, Elasticu og Blondie og
ætti sannarlega að gleðja alla þá er
fallið hafa fyrir nýju glys-listrokk-
bylgju „The-sveitanna“. En mikið
eiga þær allar Blonde Redhead að
þakka. Sú sveit hefur aldeilis verið
rifin upp úr neðanmáli rokksög-
unnar. White stripes –
Elephant
Ég veit að það
þykir ekki par
fínt að kunna
ekki að meta
White Stripes, en
hér hafið þið það;
ég kann ekki að
meta White Stripes. Eins og gefur
að skilja virkar því allt lofið sem
hlaðið hefur verið á tvíeykið á mig
sem oflof – það er eðlilegt. Á með-
an hinir ofurseldu heyra einhvern
ógurlegan ferskleika, þá virkar
þetta á mig sem einhver óspenn-
andi og ókláruð demó, eitthvað sem
Lennon hefði getað gert í svefni
(hér spilaði ég örugglega rassinn
endanlega úr buxunum). White
Blood Cells slapp reyndar fyrir
horn, en Elephant finnst mér
hreinlega vera hálfbökuð. Skortir
reyndar ekki kraftinn, en lögin eru
bara svo skrambi keimlík og svip-
lítil. Audiobullys –
Ego war
Hér er komin
platan sem Ste-
reo MC’s ætlaði
sér að gera en
gat ekki. Dans-
pönk sem slær
fullkomlega í
takt við skröltið í
neðanjarðarlestum Lundúna. Eðli-
legt framhald bresku götutónlist-
arinnar sem The Streets og So Sol-
id Crew hefur loksins tekist að hífa
upp á yfirborðið. Svo innilega svalt,
algjörlega nýmóðins – svolítið eins
og The Specials virkuðu fyrir 24
árum. Skarphéðinn Guðmundsson
Erlend tónlist
ÚTGÁFU fyrstu hljóðversplötu
Metallicu í 6 ár hefur verið flýtt
um fjóra daga. Til stóð að platan
St. Anger kæmi út næstkomandi
mánudag, en vegna ótta við að
ólöglegar útgáfur
fari í umferð fyrir
þann tíma hefur
verið ákveðið að
hraða útgáfunni
til morgundags-
ins. Formlegur
útgáfudagur plöt-
unnar er því
fimmtudagurinn
5. júní. Af sömu ástæðu var útgáfu
á plötum Eminem og 50 Cent
flýtt. Með fyrstu eintökum St.
Anger mun fylgja mynddiskur
með upptökum af sveitinni leika
lög af plötunni. Einnig munu
kaupendur plötunnar fá aðgang að
fágætum lögum sveitarinnar á Me-
tallicavault.com. Titillag plötunnar
var fyrst flutt í bandarísku útvarpi
í gær, samtímis á fjölda stöðva um
gervalt landið, með aðstoð gervi-
hnattar. Búist er
við að lagið, líkt
og platan, rjúki
hátt á vinsælda-
lista … Chester
Bennington
söngvari Linkin
Park var lagður
inn á spítala síð-
asta föstudag eftir að fundið fyrir
heiftarlegum sársauka í baki og
maga. Bennington liggur enn á
spítala því læknar hafa enn ekki
greint hvað amar að honum. Af
þessum völdum hefur yfirstand-
andi tónleikaferð og áformum um
að gera myndbönd verið slegið á
frest um óákveðinn tíma. Þeir sem
vilja óska söngvaranum skjóts
bata geta sent honum tölvupóst en
netfang hans er chester@linkinp-
ark.com … Bassaleikari grímu-
grallaranna í Slipknot, Paul
Gray, var handtekinn á sunnudag
eftir að hafa valdið bílslysi. Gray
rauk á ofsahraða yfir á rauðu ljósi
og lenti í árekstri við annað öku-
tæki. Þegar lögregla mætti á stað-
inn var rokkarinn í annarlegu
ástandi og við leit í Porsche bif-
reið hans fundust nokkrar teg-
undir ólöglegra vímuefna. Gray
var þegar ákærður fyrir þrjú atr-
iði; fyrir glæfraakstur, að hafa ek-
ið undir áhrifum og að hafa haft
eiturlyf undur höndum …Lag R.
Kellys, „Ignition“ fór í toppsæti
listans yfir sölu-
hæstu lög í Bret-
landi fjórðu vik-
una í röð. Meira
að segja kveðju-
lagi S Club 7
„Say Goodbye“
tókst ekki að velta
því úr sessi …
POPPkorn
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8. B.i.14.Sýnd kl. 10.05. B.i.12
Sýnd kl.7, 8 og 10. B. i. 12 ára.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
KVIKMYNDIR.COM
Kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
Kvikmyndir.is
Sýnd
í stóra
salnum
kl. 8.
Sýnd kl. 6.
Síðasta sýning
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. B.i. 14 ára
KRINGLAN
kl. 5.30. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 4. ísl. tal.
Það borgar sig að kynnast fólki vel áður en þú ferð á
blint stefnumót á netinu.
Queen Latifahfer á kostum og Steve Martin slær í gegn í
sinni stærstu gamanmynd frá upphafi!
Frábær rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
KRINGLAN
Sýnd kl. 7.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT Rás 2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6 og 8.
KEFLAVÍK
kl. 8.
AKUREYRI
kl. 8.
Kvikmyndir.is
GAMLA BÓKASAFNIÐ, Hafnarfirði
Órafmagnaðir tónleikar með hafn-
firsku sveitinni Sign. Tónleikarnir
eru liður í hátíðinni Bjartir dagar.
Tónleikarnir fara fram í endurnýj-
uðum húsakynnum gamla bókasafns-
ins, Mjóasundi 12, þar sem búinn hef-
ur verið til samkomuaðstaða fyrir
ungt fólk, menningar- og kaffihús.
HALLGRÍMSKIRKJA Trúlega Berg-
man. Málþing um trúarstef í kvik-
myndum Ingmars Bergmans, fyrri
hluti. Fyrirlesarar: Árni Svanur
Daníelsson: Bílferð með Bergman og
Allen. Haukur Hauksson: Bach og
Bergman - um tónlist í kvikmyndum
Ingmars Bergmans. Pétur Pét-
ursson: Þáttur kristinnar trúar í list-
sköpun Ingmars Bergmans. Þorkell
Ágúst Óttarsson: Sjöunda innsiglið
sem dómsdagsmynd meðal dóms-
dagsmynda. Miðaverð: 500 kr.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.iswww.solidea.com