Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.06.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, segir að ekki sé til nein einföld lausn á þeim atvinnuvandamálum sem blasa við íbúum Raufarhafnar. Ekki sé von á framtíðarlausn á örfáum dögum og ekki sé til umræðu að kaupa fast- eignir af íbúunum svo þeir geti flutt. „Það hefur ekki verið beðið um það, málið hefur aldrei verið rætt á þeim nótum og ég mun ekki taka það upp,“ segir ráðherra. Fulltrúi Byggðastofnunar fór til Raufarhafnar á mánudag til að afla gagna um málið en starfshópur sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra skip- aði fer þangað á fimmtudag. Val- gerður Sverrisdóttir segist ekki vera með ráðin um hvað gera skuli og því hafi starfshópurinn verið skipaður, en horfa þurfi á málið frá öllum hlið- um og sjónarhornum. Valgerður segir að byggðamálin séu sífellt umfjöllunarefni og úr- lausnarefni. Erfiðleikar komi alltaf upp annað slagið og þannig hafi það verið, en nauðsynlegt sé að taka mál Raufarhafnar föstum tökum og vinna hratt til að finna lausn, þó um tímabundna lausn geti orðið að ræða. „Ég sé ekki að við getum komið með tillögur um einhverja framtíðarlausn á örfáum dögum.“ Ekki aðeins spurning um kvóta Sveitarstjóri Raufarhafnar hefur sagt að varanlegur kvóti sé hugsan- lega það eina sem geti bjargað byggðarlaginu en einnig hefur komið fram að kvóti Raufarhafnarbáta er að miklu leyti leigður annað. Val- gerður Sverrisdóttir segir að málið sé ekki það einfalt að það sé aðeins spurning um kvóta. Skipulagsbreyt- ingarnar í frystihúsinu byggist ekki á hráefnisskorti heldur standi til að breyta vinnslunni og vinna jafnvel meira hráefni en áður. „Þetta er því ekki aðeins spurning um kvóta þótt hann geti víða bjargað miklu,“ segir hún og bætir við að það sé gott fólk í forsvari fyrir sveitarfélagið sem vilji vinna með stjórnvöldum að lausn málsins. „Í litlu samfélagi bera menn í raun meiri ábyrgð en í stærra sam- félagi, því ákveðin félagsleg hugsun er alltaf mikilvæg,“ segir Valgerður um ábyrgð íbúanna og efast ekki um að hún sé til staðar á Raufarhöfn. „Það eru margir sem bera þarna ábyrgð en það er miklu betra að horfa fram á veginn, því það bætir ekki ástandið að velta sér upp úr því hvernig þetta hefur verið í tíð fyrri sveitarstjórnar.“ Ekki fram- tíðarlausn á örfáum dögum AF skal skrípakarlinn, en af svip hans að dæma er engu líkara en hann sé í öngum sínum yfir því. Skiptar skoðanir eru oft um veggjakrot, margir telja það til mikillar prýði á meðan aðrir eru ekki eins hrifnir af því. Maðurinn á myndinni virtist að minnsta kosti ekki kæra sig um karlinn og var í óða önn í gær við að afmá tilvist hans af veggn- um. Morgunblaðið/Jim Smart Angist skrípakarlsins JÖKULL á Raufarhöfn hefur boðið trillusjómönnum að kaupa þann fisk sem þeir landa á staðnum en enginn stöðugleiki hefur verið í því sam- starfi og segir Margrét Vilhelms- dóttir, framkvæmdastjóri Jökuls, að fastir samningar séu nauðsynlegir eigi slíkt samstarf að ganga. Margrét Vilhelmsdóttir segir að Jökull vinni um 50 tonn af frystum hauslausum „Rússafiski“ að meðal- tali á viku, um 10 tonn á dag, sem jafngildi um 60 til 70 tonnum af ferskum bátafiski. Bátarnir landi um einu tonni hverju sinni og ekki sé hægt að taka við fiski af einni og einni trillu því um svo litla vinnslu sé að ræða, en mikli máli skipti að hægt sé að halda vinnslunni gang- andi í einhverja klukkutíma í einu. Að sögn Margrétar hafa trillusjó- menn haft samband af og til og seg- ist hún hafa bent mörgum þeirra á að taka sig saman, þannig að það væru t.d. fimm landanir sama dag- inn og ferskur fiskur unninn þann dag. „Við höfum reyndar unnið ferskan fisk en þurfum ákveðið mik- ið magn, því ekki er hægt að byggja upp vinnslu af trillu sem kemur stundum og stundum ekki,“ segir hún og vísar til þess að reynt hafi verið að taka við bátafiski sumarið 2000. Þá hafi Jökull reyndar ein- göngu verið í „Rússafiski“ en 2001 og 2002 hafi ferskur fiskur verið um 20 til 30% af vinnslunni sem hafi að mestu leyti komið frá togurum ÚA. Reynt hafi verið að bjóða upp á þá þjónustu að kaupa allan fisk, sem menn vildu landa á Raufarhöfn, á sama verði og greitt hafi verið á t.d. Grenivík og annars staðar og fara með hann í vinnslu til Akureyrar. Viðbrögðin hafi verið þau að eina vikuna hafi kannski tveir bátar landað, enginn þá næstu og jafnvel 10 bátar í þriðju vikunni. „Þegar þeim hentaði lönduðu þeir hjá okk- ur en ef þeir sáu fyrir að það yrði hærra verð á mörkuðum þá voru þeir farnir þangað,“ segir hún. „Það gengur ekki að vera með vinnslu sem byggist eingöngu á trillum nema maður hreinlega geti komist í fasta samninga.“ Yfirlýsing frá Raufarhafnarhreppi Margrét áréttar að Jökull hafi aldrei lent í hráefnisskorti. Þegar ÚA hafi tekið við rekstrinum vet- urinn 1999 hafi verið unnin um 700 tonn en um 1.500 til 1.600 tonn í fyrra. Vegna umræðunnar um kvóta á Raufarhöfn sendi Raufarhafnar- hreppur frá sér eftirfarandi í gær: „Aðeins um 445 tonn af þeim 1.700 tonnum sem skráð eru á báta með Raufarhafnarhöfn sem heima- höfn, eru í höndum heimamanna. Um 980 tonn eru í eigu ÚA án þess að hafa komið til Raufarhafnar sl. 4 ár. Einnig eru um 250 tonn skráð á aðra báta með engin tengsl við Raufarhöfn. Rúm 100 tonn af þeim 445 sem heimamenn ráða yfir eru leigð. Sveitarstjórn harmar þann villandi fréttaflutning sem verið hef- ur af málinu og því alvarlega ástandi sem nú blasir við á Rauf- arhöfn. Þrátt fyrir að vera útkjálka- byggð þá þrífst á Raufarhöfn blóm- legt samfélag sem hefur alla burði til að vera sjálfbjarga fái það notið þeirra gæða sem því er ætlað að njóta.“ Fastir samningar við trillu- sjómenn nauðsynlegir ÞYRLA Landhelgisgæslunnar TF- LÍF sótti fótbrotinn sjómann um borð í þýskan togara á Reykjanes- hrygg í fyrrinótt. Flugvél Landhelg- isgæslunnar TF-SYN fór með þyrl- unni í útkallið af öryggisástæðum og til að bæta fjarskiptasamband á meðan verið var að hífa hinn slasaða um borð í þyrluna. Sjúkraflug hjá Landhelgisgæsl- unni hafa verið óvenjumörg að und- anförnu, en frá maíbyrjun hefur þyrluáhöfnin verið send 10 sinnum í slík verkefni á sjó og landi. Að sögn Dagmarar Sigurðardótt- ur, upplýsingafulltrúa Landhelgis- gæslunnar, eykst álagið að jafnaði yfir sumarmánuðina hjá Gæslunni. Einnig er mikill fjöldi sjómanna á Reykjaneshreygg, eða 2–3000 manns, miðað við um 70 skip með allt að 90 manna áhöfn. Enginn læknir er á svæðinu og því er eina ráðið að senda þyrlu eftir slösuðum ef tilfellin þola ekki bið á meðan siglt er með sjúklinga í land. Af 70 skipum eru 55 erlend skip á veiðum á Reykjanes- hrygg. Fótbrotinn sjómaður sóttur á haf út HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði á ráðherrafundi Atl- antshafsbandalagsins í gær að þrátt fyrir mikilvægi þess að bandalagið tæki að sér aukið hlutverk í friðarað- gerðum utan Atlantshafssvæðisins, eins og í Afganistan og Írak, mætti ekki gleymast að hlutverk þess væri fyrst og fremst að standa vörð um sameiginlegar varnir bandalagsríkj- anna. Hann lagði einnig áherslu á mikilvægi tengslanna yfir Atlantshaf- ið og samstöðu ríkja sem væri grund- völlur að friði og stöðugleika í Evr- ópu. Fundurinn var haldinn í Madríd á Spáni og Halldór sat þar einnig há- degisverðarfund með ráðherrum sjö verðandi aðildarríkja. Þar hélt hann framsögu um hlutverk þessara ríkja í breyttu og stækkuðu bandalagi fram- tíðarinnar þar sem hann sagði meðal annars að framlag þessara ríkja yrði verulegt, ekki síst í því að efla Atl- antshafstengslin og auka samstarf bandalagsins og ríkja utan þess. Halldór Ásgrímsson á ráðherrafundi NATO Sameigin- legar varnir eru megin- hlutverkið HAFSTEINN Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, segir það alrangt að gæslan hafi fengið þau fyrirmæli að „venja ekki skipstjóra og útgerðarmenn á að geta kallað á þyrluna ef slys ber að höndum úti á sjó,“ líkt og Páll Steingrímsson, for- maður Sjómannadagsráðs á Akur- eyri, sagði í ávarpi sínu á Sjómanna- daginn. „Þetta er ekki rétt, það er alveg klárt mál,“ sagði Hafsteinn í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við erum alltaf reiðubúnir að koma þegar þörf krefur og það hafa aldrei verið gefin út nein fyrirmæli eins og hann gefur í skyn að hafi verið gefin út.“ Hafsteinn segir erfitt að ímynda sér hvernig slíkur misskilningur hafi orðið til. „Þetta er misskilningur sem við viljum fá skýringar á og höfum óskað eftir þeim við Pál. Vegna þess að ef einhver misskilningur er á ferð- inni er um að gera að leiðrétta hann og finna út í hverju hann getur legið.“ Þyrlan ávallt til taks ef á þarf að halda ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ VEGNA verkfallsins í Færeyjum hefur þurft að loka tveimur Bónus- verslunum á vegum SMS-verslunar- félagsins og tveimur veitingastöðum í eigu félagsins; Burger King og Sun- set Boulevard. Sem kunnugt er á Baugur helmingshlut í SMS. Þá hef- ur Eimskip í áætlunarsiglingum sín- um milli meginlands Evrópu og Ís- lands sleppt úr að koma við í nokkur skipti í höfnum í Færeyjum og 10 fastir starfsmenn af 26 verið frá vinnu. Vonarglæta kviknaði í gærmorg- un um að verkfallið væri að leysast þegar opnað var á viðræður milli verkalýðsfélaga og vinnuveitenda en þær vonir urðu fljótt að engu þegar verkalýðsfélögin höfnuðu því tilboði sem kom upp á borðið. Sex verslanir SMS-verslunar- félagsins eru enn opnar en að sögn Nils Mortensen, framkvæmdastjóra SMS, eru hillur víða að tæmast og lítið annað hægt að gera en að senda starfsfólk heim eða í snemmbúið sumarfrí. Nils segir ljóst að félagið hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna verkfallsins en ekki sé vitað á þessu stigi hve það er mikið. Af um 300 starfsmönnum félagsins í Fær- eyjum segir Nils að 8–10 þeirra séu í verkfalli. Aðalvandamálið sé að vörur berist ekki í verslanir og fyr- irtæki á vegum SMS. Garðar Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri utanlandsdeildar Eimskips, segir verkfallið augljós- lega hafa neikvæð áhrif á starfsemi félagsins í Færeyjum. Undanfarnar fjórar vikur hafi áætlunarskip Eim- skip sleppt úr að koma við átta við sinnum en verkfallið ekki haft áhrif á flutninga milli Færeyja og Íslands. Áhrifin séu aðallega á flutninga frá Færeyjum til Norðurlanda og meg- inlands Evrópu. Það sé þó lán í óláni að á sama tíma hafi metflutningar átt sér stað hjá Eimskip í siglingum til og frá landinu. Starfsmennirnir tíu hjá Eimskip sem hafa verið í verk- falli eru vöruhúsa- og hafnarverka- menn. Starfsemi á skrifstofu og í annarri þjónustu hefur verið með eðlilegum hætti, að sögn Garðars. Ekkert þrifið hjá Kaupþingi Áætlunarferðir ferjunnar Nor- rænu hafa ekki raskast vegna verk- fallsins, samkvæmt upplýsingum frá ferðaskrifstofunni Terra Nova Sol, en miðað við árstímann er minna en oft áður um að ferðamenn fari í land í Færeyjum. Engin vandamál hafa skapast við að leggjast að bryggju með ferjuna. Á skrifstofu Kaupþings í Færeyj- um fengust þær upplýsingar hjá Pet- er Holm forstjóra að verkfallið hefði haft lítil sem engin áhrif á starfsem- ina út á við. Hins vegar væri ræst- ingafólkið í verkfalli og starfsmenn þurft að sýna ákveðinn sveigjanleika af þeim sökum, eins og hann orðaði það. Þá fengju starfsmenn ekki leng- ur sendan mat í vinnuna heldur þyrftu þeir að koma með nesti að heiman. Verkfallið í Færeyjum farið að segja verulega til sín Búið að loka tveimur Bónus-verslunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.