Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 9
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnarnesi, sími 561 1680.
tískuverslun
iðunn
Stretch
gallabuxur
fást í 4 lengdum
Kvartbuxurnar komnar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
• ÚTILÍF - Glæsibæ
• ÚTILÍF - Smáralind
• Músik og sport - Hafnarfirði
• Maraþon - Kringlunni
• Jói Útherji - Ármúla 36
• Leiksport - Hólagarði
• K-sport - Keflavík
• Sportbúð Grafarvogs - Hverafold
• Sportver - Akureyri
• Skagfirðingabúð - Sauðárkróki
• Sportbær - Selfossi
• Axel Ó - Vestmannaeyjum
• Tákn - Húsavík
• Hákon Sófusson - Eskifirði
Aðeins þessa daga í eftirfarandi verslunum
á meðan byrgðirnar af boltunum endast:
TÓ
e
hf
-
he
ild
ve
rs
lu
n
Vikuna 4.–11. júní
Flestir boltanna eru bláir, en ekki hvítir eins og á myndinni
Verslun fyrir konur, Mjódd, sími 557 5900
Nýjar kvartbuxur
og síðar buxur
frá Jensen,
bolir
og margt fleira
Mikið úrval og frábært verð
Verið velkomnar
Kays verslun,
Austurhrauni Gbæ, sími 555 2866
Lokað á laugardögum í sumar.
Rýmingarsala á sumarvörum
Fatnaður - Gjafavara - Snyrtivörur - Fæðubótarefni - Garðvörur
- Verkfæri - Skartgripir - Ljós - Golfvörur - Leikföng - o.fl.
FORNLEIFAUPPGRÖFTUR á veg-
um Fornleifastofnunar Íslands er
hafinn að nýju í Skálholti, en í sum-
ar halda 10 manns áfram að moka
ofan af húsunum sem hrundu í Suð-
urlandsskjálftanum 1784 og hefur
rannsóknarsvæðið verið tvöfaldað
miðað við svæðið í fyrra.
Í fyrra komu í ljós ótrúlega vel
varðveittar minjar herbergja, með-
al annars skóla og svefnstofu skóla-
pilta, híbýla biskups og ganga frá
18. öld. Einn merkasti fundur sum-
arsins var rennustokkur undir gólfi
í skólanum. Hann er einnig frá 18.
öld og er líklegt að hann hafi verið
einhverskonar miðstöðvarhitun.
Ekki er vitað til að slíkt hafi áður
fundist á Íslandi. Í þeim vist-
arverum sem upp voru grafnar
kom mikið af munum í ljós, m.a.
kínverskt postulín, tóbakspípur frá
Skotlandi, brot úr leirílátum frá
Norður-Evrópu, brot úr ýmsum
glerílátum og fjölmargir aðrir
munir.
Orri Vésteinsson, fornleifafræð-
ingur, segir að á svæði sumarsins
séu einkum tvær húsalengjur, sem
voru herbergi biskups. Eins sé ætl-
unin að skoða aðeins í kring og leita
að öskuhaugi auk þess sem gerðar
verði rannsóknir á gróðurfars- og
jarðvegssögunni, en rannsóknir á
sögu landnýtingar eru gerðar í
samstarfi við Ian Simpson í háskól-
anum í Stirling í Skotlandi.
Ný sýning
Fyrir utan rannsóknirnar verður
sett upp ný sýning í kjallara Skál-
holtskirkju, þar sem gestir fá nán-
ari upplýsingar um fornleifarann-
sóknir í Skálholti og hvernig þær
geta aukið til muna skilning fólks á
sögu biskupssetursins, einkum síð-
ustu aldirnar, aðstæðum á Íslandi
um það leyti sem biskupssetur lagð-
ist af í Skálholti, hvernig þau um-
skipti urðu í reynd og hvernig bisk-
upssetrið varð að venjulegu
sveitabýli. Gert er ráð fyrir að
rannsóknin gefi mikilvæga nýja sýn
á íslenska efnismenningu á síðari
öldum, ekki hvað síst lífshætti efri
stétta á tímum þegar gagngerar
breytingar urðu í menningarlífi
landsmanna.
Rannsóknin stendur til 18. júlí.
Ljósmynd/Gavin Lucas
Fornleifafræðingarnir beina nú sjónum sínum einkum að tveimur húsalengjum, sem voru herbergi biskups.
Tíu manns starfa við fornleifauppgröft sem hafinn er að nýju í Skálholti
Rann-
sóknar-
svæðið
tvöfaldað
TENGLAR
.....................................................
Hægt verður að fylgjast með gangi
rannsóknanna og sjá myndir frá vett-
vangi á vefsíðu Fornleifastofnunar:
http://www.instarch.is/skalholt.htm.
MARKÚS Örn Antonsson út-
varpsstjóri ætlar að óska eftir
frekari leiðbeiningum frá
starfsmannaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins hvernig
opinberar stofnanir geta í
framtíðinni átt í viðskiptum
við ráðningarfyrirtæki varð-
andi auglýsingar á lausum
störfum og úrvinnslu um-
sókna.
Umboðsmaður Alþingis
komst að þeirri niðurstöðu í
síðustu viku að útvarpsstjóri
hafi ekki aflað nauðsynlegra
gagna sem lágu til grundvall-
ar ráðningu dagskrárstjóra.
Ráðningarfyrirtækinu
Mannafli var falið að meta
hæfi umsækjenda og boða í
viðtöl. Það telur umboðsmað-
ur að hafi ekki verið í sam-
ræmi við lögbundið hlutverk
útvarpsstjóra og almennar
reglur stjórnsýsluréttar.
Markús segir ráðningar-
skrifstofur hafa annast aug-
lýsingar og úrvinnslu gagna
fyrir margar opinberar stofn-
anir.
Í niðurstöðu umboðsmanns
segir Markús að megi ráða að
einhver annar en hann hafi
tekið endanlega ákvörðun um
ráðningu dagskrárstjórans.
Það sé ekki rétt. Hann tók
ákvörðunina eftir að Mannafl
hafi mælt með Jóhanni
Haukssyni, útvarpsráð einnig
og framkvæmdastjóri út-
varpsins.
Framkvæmdastjórar hafa
umboð útvarpsstjóra
„Varðandi aðfinnslur um að
ég hafi ekki komið að und-
irbúningi þessa máls með
ráðningarfyrirtækinu þá er
því svo farið hér, að fram-
kvæmdastjórar útvarps og
sjónvarps hafa umboð frá út-
varpsstjóra til að annast ýmis
stjórnsýslustörf innan stofn-
unarinnar og þar á meðal
ráðningarmál. Í þessu tilviki
var það framkvæmdastjóri
útvarpsins sem hafði samráð
við Mannafl um alla undir-
búningsþætti þessa máls,
meðal annars ákvörðun um
hvaða umsækjendur skyldu
teknir í viðtöl,“ segir Markús.
Hann segir að þetta umboð
framkvæmdastjóranna hafi
verið formlega tilkynnt bréf-
lega í nóvember 1997, þar á
meðal til stjórna starfs-
mannafélaga Ríkisútvarpsins.
Útvarpsstjóri
ósammála umboðs-
manni Alþingis
Óskar eftir
leiðbein-
ingum
fjármála-
ráðuneytis