Morgunblaðið - 04.06.2003, Page 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MANNRÉTTINDASAMTÖK for-
dæmdu í gær samþykkt héraðs-
þingsins í Norðvesturlandamæra-
héraðinu í Pakistan á frumvarpi er
gerir íslömsk sharia-lög að æðstu
löggjöf héraðsins. Er þetta í fyrsta
sinn í 56 ára sögu Pakistans sem
sharia-löggjöf, er byggist á
strangri túlkun á Kóraninum, er
samþykkt þar.
Frumvarpið um að sharia yrðu
æðstu lög héraðsins, sem er við
landamærin að Afganistan, var
samþykkt á héraðsþinginu, þar
sem íslamistar hafa meirihluta og
sitja í héraðsstjórn, á mánudaginn,
og veittu andstæðingar stjórnar-
innar frumvarpinu einróma stuðn-
ing. Þeir sem andvígir eru löggjöf-
inni óttast að hún muni leiða til
svipaðra stjórnarhátta og tíðkuð-
ust í valdatíð talibana í Afganistan.
En Zafar Azam, dómsmálaráð-
herra í héraðsstjórninni, tjáði
breska ríkisútvarpinu, BBC, að
talibanarnir hafi verið „allt öðru
vísi [en við] – þeir voru ómennt-
aðir byltingarmenn. Við beitum þó
lýðræðislegum aðferðum.“
Bankavextir
verða bannaðir
Samkvæmt frumvarpinu verða
mennta-, dóms- og efnahagsmál
héraðsins mótuð í samræmi við ísl-
amskar grundvallarreglur. Það
þýðir í raun m.a. að vextir í bönk-
um verða aflagðir, meira verður
kennt um Kóraninn í skólum og
réttarkerfið verður byggt á
strangri túlkun á Kóraninum.
Stofnað verður dyggða- og last-
aráðuneyti, en andstæðingar frum-
varpsins segja það ráðuneyti sam-
bærilegt við hið alræmda
ráðuneyti í stjórn talibana er
stuðla átti að dygðugu líferni og
koma í veg fyrir lesti. Talibana-
stjórnin notaði þetta ráðuneyti í
raun eins og trúarbragðalögreglu
og bannaði konum að vinna, ganga
í skóla og að láta sjá sig á al-
mannafæri, auk þess að framfylgja
grimmilegri refsilöggjöf sem m.a.
kvað á um aflimun sem refsingu
fyrir þjófnaði.
En höfundar laganna í Norð-
vesturlandamærahéraðinu í Pak-
istan segjast einungis vilja sam-
félag laust við illsku og spillingu.
Með lögunum vilji þeir draga úr
klámfengi og stuðla að velsæmi.
Eftir áratuga óstjórn, mútuþægni
og snarhækkandi glæpatíðni eru
fáir mótfallnir því. Almenningur
var ánægður með að frumvarpið
skyldi lagt fram. „Þetta er best
fyrir þá fátæku,“ hafði BBC eftir
ónafngreindum manni. „Sem músl-
ímar ættum við öll að vera fylgj-
andi þessu.“
Framkvæmdastjóri mannrétt-
indaráðs Pakistans, Afrasiab
Khattak, segir sharia-lögin í Norð-
vesturlandamærahéraðinu færa
landið allt nær trúareinræði. Sak-
aði hann Muttahida Majlis-e-Amal
(MMA), eða bandalag róttækra
flokka strangtrúaðra, sem er í
meirihluta á héraðsþinginu, um að
vera að reyna að koma á svipuðu
stjórnarfyrirkomulagi og tíðkaðist
í Afganistan í valdatíð talibana.
Síðan MMA komst til valda í
héraðinu í október hefur það gert
ýmsar breytingar. Samþykkt hafa
verið lög sem banna að karlkyns
læknar skoði konur og körlum er
bannað að þjálfa íþróttakonur. Þá
hefur opinberum starfsmönnum
verið gert að biðja fimm sinnum á
dag og sala á tónlist og mynd-
böndum hefur verið bönnuð.
Einróma stuðningur við sharia-
lögin í Norðvesturlandamærahér-
aðinu er til marks um djúpstæðara
vandamál í pakistönskum stjórn-
málum, segja fréttaskýrendur.
Veraldlega sinnaðir flokkar á hér-
aðsþinginu drógu til baka breyt-
ingatillögur sínar, þ.á m. ákvæði
um réttindi kvenna, rétt áður en
þeir lýstu sig fylgjandi frumvarp-
inu í óbreyttri mynd.
„Við erum fylgjandi frumvarp-
inu vegna þess að við erum músl-
ímar og enginn múslími getur ver-
ið andvígur íslömskum lögum,“
sagði Abdul Akbar Khan, formað-
ur Pakistanska alþýðuflokksins, og
formenn annarra stjórnarand-
stöðuflokka tóku í sama streng.
En ekki eru allir sannfærðir um
að trú sé hin eiginlega ástæða. Á
pakistanska þinginu í Islamabad
er MMA í lykilaðstöðu til að
höggva á hnútinn sem hefur lamað
þingið. „Hvort sem mönnum líkar
betur eða verr þurfa allir flokkar
nú á stuðningi MMA að halda,“
sagði vestrænn stjórnarerindreki
sem ekki vildi láta nafns síns getið.
„Þeir geta tryggt [Pervez]
Musharraf [forseta] áframhaldandi
setu, bæði á forsetastólnum og
sem yfirmaður hersins, og þeir eru
líka í aðstöðu til að neyða
Musharraf til að samþykkja ein-
hvers konar sharia-löggjöf í land-
inu öllu og komið honum í klípu
svona rétt áður en hann heldur til
Bandaríkjanna.“
Musharraf í vanda
Musharraf leggur upp í ferð til
fjögurra landa 16. júní, Bretlands,
Bandaríkjanna, Frakklands og
Þýskalands, og verður hápunktur
ferðarinnar fundur hans með
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta í Camp David 24. júní.
En áður en hann leggur af stað
verður stjórn hans að koma fyrsta
fjárlagafrumvarpi sínu í gegnum
þingið. Meirihluti stjórnarinnar á
þinginu tryggir að frumvarpið
verður samþykkt, en stjórnarand-
stöðuflokkarnir hafa lýst því yfir
að þeir muni gera hvað þeir geti til
að verða Musharraf fjötur um fót
er hann leggur frumvarpið fram 7.
júní.
Stjórnarandstöðuflokkarnir,
Múslímabandalag Pakistans-Naw-
az (PPP) og MMA, leggja nú hart
að Musharraf að hætta að gegna
bæði forsetaembættinu og vera yf-
irmaður hersins, og er það meg-
inatriðið í tilraunum þeirra til að
draga úr stjórnarskrárbundnum
völdum sem hann veitti sjálfum
sér í ágúst. Það gerði hann nokkr-
um vikum áður en hann afnam
herforingjastjórn sína, sem setið
hafði í þrjú ár, og lét kjósa til
þings.
Undanfarinn hálfan mánuð hafa
fulltrúar stjórnarinnar verið að
reyna að ná samkomulagi við
MMA og fá bandalagið til að slaka
á kröfum. Hefur MMA krafist þess
að sharia-löggjöf verði framfylgt í
landinu öllu gegn því að bandalag-
ið styðji áfram veru Musharrafs á
forsetastóli og láti af kröfum um
að hann hætti sem yfirmaður hers-
ins.
„Musharraf er á milli steins og
sleggju. Hann kúventi í utanrík-
ismálum og skipaði sér við hlið
Bandaríkjamanna í baráttunni við
talibanastjórnina [í Afganistan] og
hefur lagt allan sinn pólitíska höf-
uðstól að veði með því að styðja
herför [Bandaríkjanna] gegn
hryðjuverkastarfsemi,“ sagði vest-
ræni stjórnarerindrekinn. „Hvern-
ig á hann að geta mætt í Camp
David ef hann hefur leyft að Pak-
istan taki fyrsta skrefið í átt að því
sem margir myndu kalla taliban-
væðingu?“
Flokkar strangtrúaðra í
lykilaðstöðu í Pakistan
AP
Konur sem sitja á héraðsþinginu í Norðvesturlandamærahéraðinu fyrir
flokkabandalag trúaðra tárfelldu af gleði þegar sharia-lögin voru samþykkt.
Peshawar í Pakistan. AFP.
Fylgjendur strangrar sharia-löggjafar íslams í
Pakistan segjast vilja vinna gegn klámvæðingu
og stuðla að velsæmi. En einróma samþykkt
héraðsþings í norðurhluta Pakistans á þessum
ströngu lögum er til marks um djúpstæðari
vanda í pakistönskum stjórnmálum.
LEIÐTOGAR hinna ýmsu trúar- og stjórn-
málahópa í Írak hafa brugðist illa við þeirri
ákvörðun hernámsstjórnar Bandaríkjamanna í
landinu að falla frá boðuðu þjóðþingi sem ætlað
var að kjósa bráðabirgðastjórn. Nú liggur fyrir
að hernámsstjórnin hyggst skipa þá stjórn.
Skýrt var frá því um liðna helgi að bráða-
birgðastjórn yrði mynduð í Írak innan sex
vikna. Af þeim sökum hefði verið afráðið að
efna ekki til ráðstefnu þeirrar um pólitíska
framtíð landsins sem bandaríska hernáms-
stjórnin hafði boðað að haldin yrði.
Háttsettur bandarískur embættismaður
sagði á mánudag að fyrir bráðabirgðastjórn-
inni myndi fara „stjórnarráð“. Ráðið myndi til-
nefna menn sem síðar tækju við ráðherraemb-
ættum. Víðtæku samráði við Íraka var heitið
en Bandaríkjamenn hyggjast á hinn bóginn
skipa „stjórnarráðið“. Í því verða 25–30
fulltrúar. Þeim er ætlað að vera hernáms-
stjórninni til ráðgjafar um flest þau mál er
landsmenn varða. Ráðið mun ennfremur til-
nefna ráðgjafa sem starfa munu í ráðuneytum
Íraks með fulltrúum hernámsstjórnarinnar.
Gert er ráð fyrir að vegur Íraka innan ráðu-
neytanna vaxi í áföngum þannig að ráðgjaf-
arnir geti að lokum stýrt þessum stjórnarskrif-
stofum.
„Stjórnarráðinu“ verður einnig falið að stýra
vinnu vegna nýrrar stjórnarskrár. Gert er ráð
fyrir að hún verði rædd á sérstakri ráðstefnu.
Sú ráðstefna mun hefjast eftir einn til tvo mán-
uði. Stjórnarskráin verður síðan staðfest af
„stjórnarráðinu“ og lögð fram í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
„Við hyggjumst vinna eins hratt og kostur
er,“ sagði bandaríski embættismaðurinn og
bætti við að hernámsstjórnin teldi mikilvægt
að hraða pólitísku umbreytingaskeiði í Írak.
Hann tók þó fram að bráðabirgðastjórnin yrði
ekki fullveðja stjórnvald, „loka-ákvörðunar-
valdið“ yrði í höndum hernámsliðsins þar til
lýðræðislega kjörin írösk stjórn gæti tekið við
völdum í landinu.
Íraskir leiðtogar hafa brugðist illa við tíð-
indum þessum og vændu þeir á mánudag her-
námsstjórnina um svik. „Við höfum efasemdir
um að þessi áætlun komi að tilætluðum not-
um,“ sagði talsmaður Íraska þjóðarráðsins,
eins stærsta hóps íraskra útlaga. Sagði hann
að sjö hópar fyrrum stjórnarandstæðinga,
Kúrda og sjíta vildu að komið yrði á fót hið
fyrsta bráðabirgðastjórn Íraka sem hefði skil-
greind völd á vettvangi þjóðmála. Þess í stað
væri ætlun Bandaríkjamanna sú að koma upp
„ráðgjafarráði“ fyrir Paul Bremer, sem fer
fyrir bandarísku hernámsstjórninni í Írak.
Talsmaður Æðstaráðs íslömsku byltingar-
innar í Írak, eins stærsta hóps sjíta, sem eru í
meirihluta í landinu, tók í sama streng og lýsti
yfir „þungum áhyggjum“ sökum þessara
áforma Bandaríkjamanna.
Bráðabirgðastjórn í
Írak innan sex vikna
Reuters
Klerkar úr röðum súnníta og sjíta í Bagdad tóku í gær saman höndum og efndu til mótmæla gegn
bandaríska hernáminu og handtöku klerks úr röðum sjíta. Þúsundir manna tóku þátt í göngunni.
Íraskir trúar- og stjórnmálaleiðtogar væna
hernámsstjórnina um að svíkja gefin loforð
Bagdad. AFP.