Morgunblaðið - 04.06.2003, Side 35

Morgunblaðið - 04.06.2003, Side 35
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 35 Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI Gæðingamót Fáks haldið á Hvammsvelli á Víðivöllum A-flokkur 1. Skugga-Baldur frá Litla-Dal, Sigurður Sigurðarson, 8,89 2. Leiknir frá Laugavöllum, Sveinn Ragn- arsson, 8,67 3. Ör frá Miðhjáleigu, Alexander Hrafnkels- son, 8,53 4. Riddari frá Krossi,Viðar Ingólfsson, 8,66 5. Vikar frá Torfastöðum, Tómas Ragnars- son, 8,65 6. Kvistur frá Hvolsvelli, Þórður Þorgeirs- son, 8,58 7. Sproti frá Ketu, Jón Gíslason, 8,54 8. Uggi frá Kvíabekk, Sigurbjörn Bárðarson, 8,58 B-flokkur 1. Sveinn Hervar frá Þúfu, Lena Zielenski, 8,79 2. Askur frá Kanastöðum, Logi Laxdal, 8,64 3. Nagli frá Þúfu, Þórður Þorgeirsson, 8,60 4. Muggur frá Hafsteinsstöðum, Sigurður Sigurðarson, 8,56 5. Ljóri frá Ketu, Matthías Barðason, 8,59 6. Huginn frá Bæ, Atli Guðmundsson, 8,47 7. Kári frá Búlandi, Sigurbjörn Bárðarson, 8,50 8. Ófeigur frá Torfunesi, Sigurbjörn Bárðarson, /Sigurður Matthíasson, 8,43 A-flokkur áhugamanna 1. Hálfdán frá Vestri-Leirárgörðum, Viggó Sigursteinsson, 8,03 2. Sesar frá Krossi, Pétur Ö. Sveinsson, 8,02 3. Hersir frá Breiðavaði, Rúnar Bragason, 8,16 4. Hrafnhildur frá Hömluholti, Sigurþór Jó- hannesson, 7,51 5. Glaumur frá Vatnsleysu, Jón Alojz, 7,77 B-flokkur áhugamanna 1. Þula frá Skjólbrekku, Viggó Sigursteins- son, 8,28 2. Ísold frá Lækjartúni, Jóhanna Garðars- dóttir, 8,30 3. Hrafnar frá Álfhólum, Rósa Valdimars- dóttir, 8,17 4. Andri frá Högnastöðum, Aron M. Alberts- son, 8,19 5. Gjafar frá Traðarholti, Ólöf Guðmunds- dóttir, 8,07 6. Gosi frá Arakoti, Silja Viljhálmsdóttir, 7,89 7. Kveikur frá Álfhólum, Valdimar Ómars- son, 8,16 8. Pjakkur frá Kúfhóli, Benjamín Markús- son, 7,95 Tölt – opinn flokkur 1. Hjörtur Bergstað, Djákni frá Votmúla, 6,60/6,93 2. Viggó Sigursteinsson, Þula frá Skjól- brekku, 6,47/6,70 3. Rósa Valdimarsdóttir, Zorró frá Álfhól- um, 6,23/6,61 4. Anna K. Kristinsdóttir, Háfeti frá Þing- nesi, 6,60/6,52 5. Alexander Hrafnkelsson, Ör frá Miðhjá- leigu, 6,37/6,37 6. Lena Zielenski, Gandur frá Auðsholtshj.l. 6,23/6,33 Ungmenni 1. Grunur frá Oddhóli, Sylvía Sigurbjörns- dóttir, 8,61 2. Háfeti frá Þingnesi, Anna K. Kristinsdótt- ir, 8,42 3. Klerkur frá Vindás, Rut Skúladóttir, 8,42 4. Framtíð frá Árnagerði, Signý Á. Guð- mundsdóttir, 8,40 5. Fjalar frá Ingólfshvoli, Unnur B. Vil- hjálmsdóttir, 8,09 Unglingar 1. Hljómur fráCamilla Petra Sigurðardóttir, 8,43 2. Sólon frá Suðárkróki, Valdimar Bergstað, 8,37 3. Óðinn frá Gufunesi, Ellý Tómasdóttir, 8,17 4. Bera frá Ögmundarstöðum, Guðný B. Gunnarsdóttir, 8,23 5. Óttar frá Narfastöðum, Ívar Ö. Hákonar- son, 8,27 6. Dagsbrún frá Enni, Haukur Magnússon, 7,88 7. Fiðla frá Sælukoti,Glennie Kjeldsen, 7,98 8. Gestur frá Vatnsleysu, Jón Alojz, 7,78 Börn 1. Ísidor frá Teigi, Saga Sigurbjörnsdóttir, 8,57 2. Gyðja frá Syðra-Fjalli, Vigdís Matthías- dóttir, 8,54 3. Svás frá Miðsitju, Viktoría Sigurðardóttir, 8,44 4.–5. Fiðla frá Höfðabrekku, Edda R. Guð- mundsdóttir, 8,49 4.–5. Perla frá Bringu, Ragnar Tómasson, 8,45 6. Bjarmi frá Ytri Hofdölum,Edda H. Hinr- ikdsdóttir, 8,36 7. Dagfari frá Hvammi II, Arna Ý. Guðna- dóttir, 8,37 8. Gramur frá Ragnheiðarstöðum, Þórdís Jensdóttir, 8,40 150 metra skeið 1. Neisti frá Miðey, Sigurbjörn Bárðarson, 14,55 sek. 2. Hekla frá Vatnsholti, Sigursteinn Sum- arliðason, 15,19 sek. 3. Súper-Stjarni, Sylvía Sigurbjörnsdóttir, 16,31 sek. 4. Lukka frá Gýgjarhóli, Hjörtur Bergstað, 16,33 sek. 5. Jörp frá Gulastöðum, Hjörtur Bergstað, 17,56 sek. 250 metra skeið 1. Sif frá Hávarðarkoti, Svanhvít Kristjáns- dóttir, 22,88 sek. 2. Óðinn frá Efstadal, Jóhann Valdimarsson, 22,94 sek. 3. Fölvi frá Hafsteinsstöðum, Sigurður Sig- urðarson, 23,01 sek. 4. Eiður frá Ketilsstöðum, Einar Ö. Magn- ússon, 23,05 sek. 5. Óðinn frá Búðardal, Sigurbjörn Bárðar- son, 23,13 sek. 100 metra flugskeið 1. Óðinn frá Búðardal, Sigurbjörn Bárðar- son, 7,90 sek. 2. Feykivindur frá Svignaskarði, Logi Lax- dal, 8,02 sek. 3. Skjóni frá Hofi, Sveinn Ragnarsson, 8,05 sek. 4. Eiður frá Ketilsstöðum, Einar Ö. Magn- ússon, 8,28 sek. 5. Snjall frá Gili, Árni B. Pálsson, 8,62 sek. Gæðingamót Harðar haldið á Varmárbökkum A-flokkur, atvinnumenn 1. Súsanna Ólafsdóttir og Garpur frá Torfa- stöðum 2. Atli Guðmundsson og Hilmir frá Þorláks- stöðum 3. Halldór Guðjónsson og Lukka frá Dal- landi 4. Guðlaugur Pálsson og Jarl frá Álfhólum 5. Jóhann Þ. Jóhannesson og Skuggi frá Dalsgarði 6. Þórir Ö. Grétarsson og Ísabella frá Dæli 7. Elías Þórhallsson og Þorri frá Reykjavík 8. Sigurður V. Matthíasson og Skafl frá Norðurhvammi B-flokkur, atvinnumenn 1. Sigurður V. Matthíasson og Skundi frá Krithóli 2. Þorvarður Friðbjörnsson og Krapi frá Heiði 3. Jón Styrmisson og Gnótt frá Skollagróf 4. Elías Þórhallsson og Elva frá Mosfellsbæ 5. Halldór Guðjónsson og Vonandi frá Dal- landi 6. Eysteinn Leifsson og Víóla frá Varmadal 7. Guðmundur Jóhannesson og Vestri frá Hörgshóli A-flokkur, áhugamenn 1. Björgvin Jónsson og Eldur frá Vallanesi 2. Ari Björn Jónsson og Greifi frá Dalvík 3. Hlynur Þórisson og Elding frá Tóftum 4. Halldóra S. Guðlaugsdóttir og Hlátur frá Þórseyri 5. Guðmundur Björgvinsson og Yrja frá Skálmholti B-flokkur, áhugamenn 1. Guðrún Stefánsdóttir og Ísak frá Ytri- Bægisá 2. Ásta B. Benediktsdóttir og Snót frá Ak- ureyri 3. Hlynur Þórisson og Krummi frá Vind- heimum 4. Björgvin Jónsson og Kraftur fráVarmadal 5. Halldóra S. Guðlaugsdóttir og Sigurdís frá Lækjarbakka Unghross, einkunnir úr for- keppni 1. Lena Zielenski/Guðlaugur Pálsson, Gust- ur frá Lækjarbakka, 8,95 2. Sölvi Sigurðarson, Ægir frá Litlalandi, 8,46 3. Guðmar Þ. Pétursson, Lögg frá Flekku- dal, 8,50 4. Birna Tryggvadóttir, Hroki frá Flekku- dal, 8,14 5. Jóhann Þ. Jóhannesson, Nóta frá Lyng- haga, 8,12 Tölt – opinn flokkur 1. Steinþór Runólfsson, Brandur frá Hellu, 6,70 2. Þorvarður Friðbjörnsson, Krapi frá Heiði, 6,59 3. Eysteinn Leifsson, Víóla frá Varmadal, 6,52 4. Guðrún Stefánsdóttir, Ísak frá Ytri-Bæg- isá, 6,20 5. Ásta B. Benediktsdóttir, Snót frá Akur- eyri, 6,19 Ungmenni 1. Kristján Magnússon og Hrafnar frá Hind- isvík 2. Ragnhildur Haraldsdóttir og Ösp frá Kollaleiru 3. Steinþór Runólfsson og Brandur frá Hellu 4. Ari B. Jónsson og Adam frá Götu 5. Jana K. Knútsdóttir og Blátindur frá Hörgshóli Unglingar 1. Linda R. Pétursdóttir og Valur frá Ólafs- vík 2. Jóhanna Jónsdóttir og Darri frá Akureyri 3. Halldóra S. Guðlaugsdóttir og Mökkur frá Björgum 4. Sigríður S. Ingvarsdóttir og Geisli frá Blesastöðum 5. Hreiðar Hauksson og Fróði frá Hnjúki Börn 1. Sebastían Sævarsson og Nökkvi frá Sauð- árkróki 2. Andrea Guðmundsdóttir og Kuldi frá Grímsstöðum 3. Leó Hauksson og Klakkur frá Laxárnesi 4. María G. Pétursson og Blesi frá Skriðu- landi 5. Sigurgeir Jónhannsson og Freyja frá Lax- árnesi 6. Daníel Ö. Sandholt og Nasi frá Dalsgarði 150 metra skeið 1. Halldór Guðjónsson, Hekla frá Engihlíð, 15,50 sek. 2. Kristján Magnússon, Eldur frá Vallanesi, 15,80 sek. 3. Björgvin Jónsson, Pæper frá Varmadal, 16,20 sek. 4. Hlynur Þórisson, Elding frá Tóftum, 18,80 sek. Úrslit LANDSMÓTSBRAGUR var svo sannarlega á gæðingakeppni Fáks um og fyrir helgina. Vafalítið hafa verið þar á ferð sigurkandídatar fyrir næsta landsmót. Í A-flokki voru Skuggabaldur frá Litladal og Sigurður Sigurðarson hinir öruggu sigurvegarar með fyrsta sæti á lín- una í úrslitum. Skuggabaldur er ein- stakur hestur, með frábært brokk og tölt og þótt til beggja átta geti brugðið með skeiðið hefur þessi hestur sýnt góða spretti þótt ekki væri sá sprettur sem hann lá í úr- slitum neitt úrval. Brokkið var hins- vegar einstakt þar sem þeir félagar þeyttust fram úr keppinautunum hverjum á fætur öðrum. Mikill kraftur, fótlyfta og svif. Hesturinn í öðru sæti, Leiknir frá Laugarvöll- um, sá hinsvegar um að skemmta áhorfendum með frábærum skeið- sprettum og má ætla að þar hafi verið höggvið nærri tíunni. Í B-flokknum var það Sveinn Hervar frá Þúfu sem hafði sigur ásamt Lenu Zielenski sem hefur þjálfað hestinn og sýnt í vetur og vor. Sveinn Hervar er afar fasmikill hestur og glæsilegur í allri fram- göngu en hefur átt það til að grípa fram á sig en nú virðist það sleppa til og þá er ekki að sökum að spyrja. Alhliða hesturinn Askur frá Kanastöðum með Loga Laxdal við stjórnvölinn veitti Sveini Hervari og Lenu góða keppni og hið sama má segja um albróður Sveins Hervars, Nagla frá Þúfu sem Þórður Þor- geirsson sat. Hrakfallabálkar í sigursæti Hjá Herði á Varmárbökkum voru hestarnir heldur lakari í gæðum enda mótið ekki opið eins og Fáks- mótið. Eigi að síður voru þar ágætis hross. Hrakfallabálkarnir Garpur frá Torfastöðum og Súsanna Ólafs- dóttir eiga það sameiginlegt að vera svo til nýstaðin upp eftir slæm slys. Garpur slasaðist þegar átti að setja hann á kerru á leið á landsmót á síð- asta ári en Súsanna var að teyma trippi utan á hrossi í vetur og end- aði út í skurði með alla kippuna. En þau hafa náð sér nokkuð vel og mættu sterk til leiks og sigruðu í A- flokki. Atli Guðmundsson var með lands- mótsgæðinginn Hilmi frá Þorláks- stöðum í öðru sæti og Halldór Guð- jónsson reið Lukku frá Dallandi í þriðja sætið. Í B-flokki þurfti bráðabana til að útkljá keppnina um fyrsta sætið og áttust þar við Skundi frá Krithóli og Sigurður V. Matthíasson sem sigr- uðu og Krapi frá Heiði og Þorvarð- ur Friðbjörnsson. Sameiginlegt er með báðum þess- um mótum hversu lítil þátttaka var í svo til öllum greinum. Hjá Herði hefur ávallt verið mikil þátttaka í móti þeirra en nú kveður við nýjan tón. Vakna spurningar um hvort mikið af opnum mótum orsaki keppnisþreytu eða kannski er rétt- ara að orða það svo að keppnismenn séu orðnir mettir í bili. Þá vekur athygli í hvernig upp- setningu félögin senda úrslit frá sér. Í úrslitunum hér á síðunni má sjá að þeir hjá Herði nefna knapann fyrst og síðan hestinn en venjan hefur verið sú að í gæðingakeppni sé það öðru framar hesturinn sem er kepp- andinn. Þá geta félögin ekkert um eigendur hrossanna sem þó hefur tíðkast þegar um gæðingakeppni er að ræða. Virðist þetta enn eitt merkið um ósjálfráðan samruna gæðingakeppni og íþróttakeppni. Að sjálfsögðu er það svo í báðum þessum keppnisformum að það er parið sem er að keppa. Gæðingamót Fáks og Harðar í Víðidal og á Varmárbökkum Landsmótssigurveg- arar á ferð hjá Fáki? Gæðingakeppni Fáks hefur hingað til verið í háum gæðaflokki og ekki hefur dregið úr eftir að keppnin var opnuð. Valdimar Krist- insson mætti í Víðidalinn og á Varmárbakka til að fylgjast með glæstum gæðingum. Morgunblaðið/Vakri Skeiðsnilli Jóns í Varmadal hefur skilað sér vel til afkomendanna en Björg- vin Jónsson, sonarsonur hans, tryggði sér sigur í A-flokki áhugmanna hjá Herði með afbragðsgóðum skeiðsprettum á Eldi frá Vallanesi. Skuggabaldur er án efa einn „heitasti“ hesturinn á Íslandi í dag og bíða sjálfsagt margir spenntir eftir að sjá þennan mikla gæðing á landsmóti. Knapi er Sigurður Sigurðarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.