Morgunblaðið - 04.06.2003, Side 38
DAGBÓK
38 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss og Brúarfoss
koma og fara í dag,
Laugarnes kemur í
dag, Víðir fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Polar Siglir kemur í
dag. Brúarfoss og
Langenes fara í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Skrifstofa
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17. Flóa-
markaður, fataút-
hlutun og fatamóttaka
opin annan og fjórða
hvern miðvikud. í mán-
uði kl. 14–17, s.
552 5277
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 brids/vist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
kl. 10 leikfimi, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9
silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. kl.
13.30 bankaþjónsuta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16 op-
in vinnustofa, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 9–16.30
fótaaðgerð.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 13 og kl.
14 golfnámskeið í Vetr-
armýrinni.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Billjard
kl. 10.30, línudans kl.
11, glerlist kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar,
m.a. tréútskurður, frá
hádegi spilasalur op-
inn. Þriðjudaginn 10.
júní og miðvikudaginn
11. júní „Mannrækt –
trárækt“ gróðursetn-
ing með börnum úr
leikskólanum Hraun-
borg í Gæðareit. S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 13 félagsvist, kl.
17. bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
handavinnustofan opin
frá kl. 13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, bútasaum-
ur, útskurður, hár-
greiðsla og fótaaðgerð,
kl. 11 banki, kl. 13
brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 15 teiknun og
málun. Fótaaðgerðir
og hárgreiðsla.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 fótaaðgerð, kl.
13–13.30 banki, kl. 14
félagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–12
myndmennt, kl.13–16
postulínsmálun, kl.
12.15-14.30 versl-
unarferð í Bónus, kl.
13–14 myndbandssýn-
ing.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 10 morgunstund,
fótaaðgerð, bókband
og handmennt, kl. 13
handmennt, kl. 13.30
bókband, kl. 12.30
verslunarferð.
Iðjuþjálfun geðdeildar.
Árleg sumarsala verð-
ur haldin fimmtudag-
inn 5. júní á 1. hæð í
geðdeildarhúsi Land-
spítalans við Hring-
braut kl. 12–15.30. Til
sölu verða handgerðar
vörur sem unnar eru í
iðjuþjálfun. Kaffi og
veitingasala verður á
staðnum.
Barðstrendinga-
félagið félagsvist í
kvöld kl. 20.30 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Allir velkomnir.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arkortin fást í Lyf og
Heilsu versl-
unarmiðstöðinni Firði í
Hafnarfirði. Kortið
kostar kr.500.-
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar
eru afgreidd á bæj-
arskrifstofu Seltjarn-
arness hjá Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552-4994 eða síma
553-6697, og í Háteigs-
kirkju.
Í dag er miðvikudagur 4. júní,
155. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Ég bið þess, minn
elskaði, að þér vegni vel í öllum
hlutum og að þú sért heill heilsu,
eins og sálu þinni vegnar vel.
(3. Jóh. 2.–3.)
Í nýjasta tölublaði Vís-bendingar er stjórn-
arsáttmáli ríkisstjórn-
arinnar borinn saman við
sáttmála sömu stjórn-
málaflokka árin 1995 og
1999. Kemst Vísbending
að því að nýi stjórn-
arsáttmálinn sé að mestu
leyti endurprentun á
fyrri stefnuyfirlýsingum.
Þar sé að finna sömu
efnisliði þó hrært hafi
verið í einstökum liðum,
þeir færðir til og flestir
þeirra útþynntir.
Nokkrir þættir hafahorfið úr stjórnar-
sáttmálanum, segir í út-
tekt Vísbendingar. Það á
við um markmið að auka
þjóðhagslegan sparnað.
„Markmiðið um að lækka
skuldir ríkissjóðs er
einnig horfið. Skuldir
hins opinbera hafa þó
lækkað mikið sem hlut-
fall af vergri landsfram-
leiðslu, úr 59% árið 1995
í 40% árið 2003, en hafa
þó einungis lækkað í
krónutölu síðustu tvö ár-
in og eru áætlaðar um
325 milljarðar í ár.“ Þá
segir að ekki sé tilgreint
hvaða umbætur í rík-
isrekstri séu áætlaðar og
sömu sögu að segja um
einkavæðingaráform.
„[N]ú er einungis talað
um að selja Landssíma
Íslands „þegar markaðs-
aðstæður eru hag-
stæðar“. Þó mætti ætla
að enn sé af miklu að
taka í þeim efnum.“
Fátt er sagt benda tilþess að stjórnarflokk-
arnir muni leiða stór-
felldar umbætur á þessu
nýja kjörtímabili. Eini
aðilinn sem virðist áber-
andi ánægður séu Sam-
tök atvinnulífsins en
kannski komi hallelúja-
yfirlýsingar úr þeim her-
búðum ekki á óvart.
„Mun fleiri virðast hafa
orðið fyrir vonbrigðum.
Hinir frjálsu vindar fá
ekki blásið lengur.
Stærsta þversögnin snýr
þó að ríkisfjármálunum.
Talað er um ný útgjöld
eins og tónlistarhús í
Reykjavík, menningar-
hús á landsbyggðinni,
aukinn beinan stuðning
við barnafólk, öryrkja,
fatlaða og aldraða og svo
að lækka tekjuskatta og
fella niður aðra skatta.“
Vísbending bendir á aðhvergi sé talað um
að skera niður ríkisút-
gjöld. Ný útgjöld annars
vegar og lækkun tekna
hins vegar sé ekki beint í
samræmi við loforð um
jafnvægi og stöðugleika.
„Það er því fátt sem
bendir til annars en að
fram undan sé hágengis-
og jafnvel hávaxtatími í
íslensku efnahagslífi með
niðurdrepandi afleið-
ingum fyrir útflutnings-
greinarnar.“
Á fyrsta kjörtímabilinufengu þessir flokkar
6 í einkunn hjá Vísbend-
ingu og 6,5 á því síðasta.
Nú virðist ríkisstjórnin
hins vegar byrja með
falleinkunn, að mati
blaðsins.
STAKSTEINAR
Nýr stjórnarsáttmáli
veldur vonbrigðum
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI var svo lánsamur aðfá inni í bjálkahúsi í Aðaldal í
landi Árbótar síðustu helgi. Þaðan
er fagurt útsýni og handan árinnar
blasir við bærinn Knútsstaðir, þar
sem ekkjan við ána bjó, sem Guð-
mundur á Sandi orti svo fallega um.
Einkum eru þessar braglínur eftir-
minnilegar:
Hún elskaði ekki landið,
en aðeins þennan blett,
af ánni nokkra faðma
og hraunið svart og grett.
x x x
BRANDUGLAN verpir þar niðrií móunum í skjóli Björns Jósefs
Arnviðarsonar sýslumanns. En það
voru fleiri á ferli laugardagsnóttina
til að fylgjast með sólmyrkvanum.
Víkverji ók út á Tjörnestána og
hafði gaman af því að fylgjast með
mannlífinu þennan vegspöl. Á Gón-
hæð voru margir Húsvíkingar og
við flestar heimreiðar hafði verið
lagt bílum. Hjá minnisvarða um
Einar Benediktsson neðan við Héð-
inshöfða, þar sem hann ólst upp til
fulltíða aldurs, var maður með heil-
an kassa af logsuðugleraugum og
lánaði þeim sem vildu. Það var við
hæfi að útsýnið væri einmitt þaðan,
því Einar Benediktsson orti Útsæ
með það í huga. Á minnisvarðanum
eru þessar ljóðlínur úr kvæðinu:
Hjá þér eru yngstu óskir míns hjarta skírðar.
Mín léttustu spor eru grafin í þína sanda.
x x x
ÞEGAR komið var á Váladalstorf-una, nyrst á Tjörnesinu, var
stemmningin góð. Mannfjöldi hafði
safnast þar saman. Útlendingar
höfðu ferðast langa leið til að fylgj-
ast með sólmyrkvanum og voru
með gleraugu sérhönnuð í því
skyni, framan á myndavélum var
eitthvað í líkingu við álpappír og
svo voru aðrir með stjörnukíki.
Lengi vel leit út fyrir að ekkert sæ-
ist og ánægjan leyndi sér ekki þeg-
ar sólin braust fram úr skýjunum.
Þá hafði tunglið fallið inn í hana.
Allir fengu að skoða og deila og
njóta þessarar ógleymanlegu stund-
ar, meðan sólin sýndi sig á bak við
tunglið. Og svo hurfu þau bæði í
skýjasæinn.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Mannlífið á Váladalstorfunni um fjögurleytið þegar sólin myrkvaðist.
Herskáir
menn
ÉG VIL þakka Björgu Jó-
hannsdóttur fyrir vel valin
orð hennar í Velvakanda
þann 2. júní sl. Þau voru
sem töluð úr mínum
munni. Það væri þokkalegt
að hafa svona herskáa
menn, sem Steingrímur og
Össur eru, í forsvari fyrir
þjóðina. Þeir sýndu ekki af
sér þokka með viðbrögðum
sínum við stefnuræðu Dav-
íðs.
Ingibjörg.
Fyrirspurn til
framkvæmdastjóra
Rauða krossins
ÞEGAR þú stundar þín
göfugu góðverk í útlöndum
hugsar þú þá aldrei til
spilafíkla og aðstandenda
þeirra hér heima sem eru í
sárum eftir gerðir ykkar?
Svar óskast á sama stað.
Ólafur M. Ólafsson,
200136-7219.
Barbídúkkutískan
ÉG ER sammála Páli
Hannessyni í grein sem
hann ritar í Morgunblaðið
2. júní sl. Ég er viss um
flestallir Íslendingar óska
eftir betra efni en þeirri
lágkúru sem sýnd hefur
verið undanfarin ár í sjón-
varpinu. Það er makalaust
að skrílmenningu þeirri er
birtist t.d. í Sopranoþátt-
unum skuli hampað. Þó
gæti skýringin verið sú að
„barbídúkkutískan“ svo-
kallaða, frá henni Ameríku,
er allsráðandi. En að
menntamannaþjóð, eins og
við viljum láta kalla okkur,
skuli leggjast svo lágt að
mæra þetta er ofvaxið mín-
um skilningi.
Reiður kvenmaður.
Tapað/fundið
Myndavél fannst
MYNDAVÉL fannst á
göngubrautinni við sjávar-
síðuna á Sæbrautinni til
móts við veitingastaðinn
Aktu-taktu. Kannist ein-
hver við að hafa tapað
myndavél á þessum slóðum
væri ráð að hafa samband í
síma 698 9910.
Fjallahjól fannst
í Vesturbænum
18 TOMMU fjallahjól
fannst í Vesturbænum að-
faranótt laugardags. Eig-
andi hjólsins getur vitjað
þess í síma 864 3238 og
861 5222.
Fundið fé
EF ÞÚ tapaðir peningum í
Vesturbænum, fimmtudag-
inn 22. maí sl. getur þú
vitjað þeirra í Melabúðinni.
Réttur eigandi tali við
verslunarstjórann.
Hjóli hnuplað
RAUÐU Kilimanjaro-hjóli
var stolið fyrir utan Þrek-
húsið við Frostaskjól 2.
júní sl. Sá sem hefur hjólið
undir höndum eða hefur
orðið þess var er vinsam-
legast beðinn að hringja í
síma 552 9249.
Barnaskór tapaðist
DÖKKBLÁR Ecco barna-
skór númer 24 með skræp-
óttu innleggi týndist í Sól-
heimum, póstnúmeri 104,
þriðjudaginn 27. maí sl.
Finnandi er vinsamlega
beðinn um að hringja í
síma 895 7628.
Dýrahald
Snotra er horfin
SNOTRA hvarf fyrir
rúmri viku frá Sigluvogi.
Hún er grá og hvít, níu ára
gömul læða. Þeir sem
kunna að hafa upplýsingar
um ferðir Snotru eru vin-
samlega beðnir að hringja í
síma 699 4056 eða
566 6530.
Vígalegur köttur
týndur
HVÍTUR og grábröndótt-
ur fress er týndur. Hann
er geltur og gengur með ól.
Kötturinn ber ör á nefinu
og er því töluvert vígaleg-
ur. Þeir sem hafa vitneskju
um það hvar kötturinn er
niðurkominn eru beðnir að
hringja í síma 697 7509 eða
557 9082.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hjólað vestur Vonarstræti.
LÁRÉTT
1 alfarið, 4 hvinur,
7 hrakninga, 8 upplagið,
9 kvendýr, 11 þref, 13
hafði upp á, 14 álegg, 15
gangur, 17 mjög góð, 20
frostskemmd, 22 hænan,
23 þoli, 24 stelur, 25 toga.
LÓÐRÉTT
1 viðburður, 2 kjökrar,
3 næðing, 4 kraftur,
5 haldast, 6 glerið, 10
keismagi, 12 smávegis
ýtni, 13 fljót, 15 naumur,
16 áfanginn, 18 æla, 19
fiskavaða, 20 þvingar, 21
geð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 skíthælar, 8 svinn, 9 iðrun, 10 inn, 11 móann,
13 gúrka, 15 svell, 18 ufsar, 21 iðn, 22 stirð, 23 djörf,
24 slagharpa.
Lóðrétt: 2 keila, 3 túnin, 4 æsing, 5 aðrar, 6 ósum,
7 unna, 12 Níl, 14 úlf, 15 sess, 16 erill, 17 liðug,
18 undra, 19 skörp, 20 rófa.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16