Morgunblaðið - 04.06.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2003 43
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Mögnuð hrollvekja
sem fór beint á
toppinn í
Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
B.i. 16.
X-ið 977
SG DV
Einn óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Hrikalega
mögnuð mynd
sem kemur
óhugnarlega á
óvart!
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára
Fórbeint á toppinní Bandaríkjunum!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B.i. 14.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 9. B.i. 12.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16
Ef þú ert svikahrappur, gættu að því hvern þú prettar!
Frábær glæpaþriller!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10. B.i. 16
Svakaleg
spennumynd
með
töffaranum
Vin Diesel
úr xXx.
ÁHUGAMENN um djass, blús og
heimstónlist hafa ástæðu til að kæt-
ast þessa dagana því fram undan er
tónlistarhátíðin Viking Blue North
Festival.
Um er að ræða röð tónleika á
Ólafsfirði, í Stykkishólmi og í
Reykjavík þar sem boðið verður upp
á margt það áhugaverðasta í inn-
lendri tónlist auk þess sem erlend
bönd koma og spila fyrir landann. Í
Reykjavík og Stykkishólmi verður
spilað næstu helgi, dagana 5. til 8.
júní, en á Ólafsfirði fer hátíðin fram
26. til 29. júní.
Það er Ólafur Þórðarson, oft
kenndur við Ríó Tríó, sem á veg og
vanda að hátíðinni en hann starf-
rækir umboðsskrifstofuna Þúsund-
þjalir sem að sögn Ólafs mótar
grunninn að rekstri hátíðarinnar:
„Þetta er fjórða árið í röð sem hátíð-
in er haldin á Ólafsfirði en nú bætist
við dagskrá í Reykjavík og Stykk-
ishólmi,“ segir Ólafur. „Þetta hefur
verið hálfgerð tilraunastarfsemi
hingað til, gengið alveg ótrúlega vel
og komið út úr þessu mjög skemmti-
legir hlutir.“ Þannig hafa íslensku
hljómsveitirnar kynnst meðlimum
erlendu sveitanna og þannig átt
kost á að spila erlendis, s.s. hljóm-
sveitin Jagúar sem spilaði í Noregi.
Blús og meiri blús
Í Mekka Sport, Dugguvogi 24 í
Reykjavík, verður sannkölluð blús-
veisla 5. til 8. júní. Þar leika tvö
bönd á kvöldi, meðal annars hinir
dönsku Lightnin’ Moe sem eru hátt
skrifaðir í blúsheimi Evrópu, og hin-
ir norsku Spoonfull of Blues, en
hana skipa meðal annars framá-
menn í norska blúsbransanum.
Einnig má nefna Blúsmenn Andreu
Gylfadóttur og þá KK og Magnús
Eiríksson auk þess að sá merkilegi
viðburður á sér stað að Mojo tekur
höndum saman við Pál Rósinkranz.
„Þetta verður dúndurfjörugur
blús á Mekka Sport. Þetta eru bönd
sem geta ekki annað en tjúttað,“
segir Ólafur.
Í Stykkishólmi verða sömu sveitir
auk þess að fleiri sveitir bætast við,
meðal annars framlög heimamanna,
að sögn Ólafs: „Sem dæmi tekur
kirkjukórinn í Stykkishólmi þátt í
þessu með meiri háttar gospel-
tónleikum og stofnuð hefur verið
sérstök hljómsveit vegna hátíð-
arinnar sem mun taka þátt. Þar fá
menn einnig að hlýða á Guitar Isl-
ancio.“ Í lok mánaðarins verður há-
tíðin haldin í Ólafsfirði en þar verð-
ur áherslan lögð á söngkonur. Þar
stíga á svið söngvarar á borð við
Andreu Gylfadóttur, Ellen Krist-
jánsdóttur, Sigrúnu Evu Ármanns-
dóttur og fjölda annarra. Undir
spila Óskar Einarsson, Agnar Már
Sigmundsson, Róbert Þórhallsson
og Halldór Gunnlaugur Hauksson.
Ólafur segir vinsældir hátíð-
arinnar aukast ár frá ári. Íslenskar
hljómsveitir sem spila djass, blús,
heimstónlist og skylda tónlist fá að
njóta sín.
„Þarna er margt mjög spennandi.
T.d. kemur í Stykkishólmi fram
ungt band sem heitir Hrafnaspark
sem er djangó-band og þeir allra
flottustu sem komið hafa upp á Ís-
landi hingað til,“ segir Ólafur sem
hefur mikla trú á bandinu og segir
spennandi að gefa þessu unga fólki
tækifæri.
Allt í allt eru vel yfir 150 manns
sem koma fram á hátíðinni í fjölda
hljómsveita en til að mynda verður í
Stykkishólmi starfræktur svokall-
aður Blúsbátur þar sem band verður
haft um borð í útsýnisbáti Sæferða,
sem siglir um eyjasvæðið, og spiluð
lifandi tónlist. Einnig munu Halldór
Bragason og Guðmundur Pétursson
starfrækja tónlistarvinnustofu þar,
þar sem áhugamenn fá kennslu og
vinna saman að því að búa til tónlist
sem síðan verður spiluð fyrir þá sem
hlýða vilja.
Fyrir þá sem vilja sökkva sér í há-
tíðina er boðið upp á sérstök helg-
arkort sem veita aðgang að öllum
viðburðum helgarinnar með rífleg-
um afslætti.
Nánari útlistun á dagskrá má
finna á hlekk á slóðinni
www.1000th.is.
Djass-, blús- og heimstónlistarhátíð haldin fjórða árið í röð
Margt góðra tónlistarmanna munu troða upp á Viking Blue North Music Festival: hinir dönsku Lightnin’ Moe, Blúsmenn Andreu og Guitar Islancio.
Tónlistarveisla í Reykjavík,
Stykkishólmi og Ólafsfirði
BANDARÍSKIR kettir hafa ástæðu
til að gleðjast því loks er búið að ýta
úr vör sjónvarpsþáttum sem sér-
staklega eru gerðir fyrir ketti.
Ákveðið var að ráðast í gerð þáttar
sem höfðaði til þessa áhorfendahóps
þar sem rannsóknir leiddu í ljós að
þriðjungur katta hefur gaman af
sjónvarpsglápi. Þátturinn, sem heit-
ir Meow TV, og sýndur er á Oxygen-
sjónvarpsstöðinni hennar Opruh
Winfrey, er sérhannaður fyrir ketti
– en ekki endilega eigendur þeirra –
og meðal þess sem boðið verður upp
á verða myndir af fiskum og íkorn-
um auk þátta um katta-jóga.
FÓLK Ífréttum