Morgunblaðið - 15.06.2003, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
"#
$
!
%&
$
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NOTKUN hitaveitu til upphitunar í
sumarbústöðum fer nú ört vaxandi,
ekki síst eftir uppbyggingu Gríms-
nesveitu í Gríms-
ness- og Grafn-
ingshreppi.
Hitaveita í
sumarbústaða-
hverfum eykur
mjög þægindi
notenda húsanna
og minnkar oft
upphitunarkostn-
að. Það þarf þó að
huga að ýmsum
þáttum varðandi notkun hitaveitu á
þessum svæðum, bæði hvað varðar
öryggi með tilliti til vatnstjóna í
byggingum, en einnig varðandi
hættu á umhverfisáhrifum frá frá-
rennsli. Vegna þessa hefur verið gef-
ið út nýtt tækniblað hjá Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins að
frumkvæði Vatnstjónaráðs.
Vatnstjón í sumarhúsum
Huga þarf sérstaklega að öryggis-
málum í sumarhúsum, sem standa
mannlaus dögum, vikum og jafnvel
mánuðum saman. Vatnstjón í sum-
arhúsum eru talin vera um 70% af
heildartjónum sumarhúsa. Oftast
eru tjónin rakin til þess að frosið hafi
í lögnum. Lagnirnar springa þá
gjarnan, sem aftur leiðir til þess að
vatn streymir óhindrað inn í hús. Ef
um er að ræða beintengingu við hita-
veitu geta skemmdir orðið verulegar
og eru ljót dæmi um gufusoðin sum-
arhús þar sem allt, hús og innan-
stokksmunir, er ónýtt af völdum
gufu og vatns. Þá eru einnig dæmi
um tjón af völdum vatns frá tækjum,
s.s. þvottavélum og uppþvottavélum,
og brýnt að fólk skrúfi fyrir vatnið að
tækjunum þegar húsin eru yfirgefin.
Tækniblaðið er ritað með það í
huga að hönnun og framkvæmd við
lagnakerfi húsanna sé þannig að
verði leki í kerfinu sé tjón lágmark-
að. Í blaðinu er farið yfir frágang að-
veituvatns inn í húsið og lögð áhersla
á að tengiskápur sé hafður utanhúss,
þannig að ekki berist raki inn í bygg-
inguna við hugsanlega leka í tengi-
skáp. Einnig er farið yfir frágang og
val á hita- og vatnskerfum innanhúss
og frárennsli.
Grátt vatn – frárennsli
heita vatnsins
Fráveita frá sumarhúsum er
þrennskonar; regnvatn, skólpvatn
og grávatn. Allt að 2/3 af fráveitu
heimilanna er grávatn. Við lagningu
hitaveitu þarf sérlega að huga að frá-
rennsli grávatns, en það er vatn frá
ofnum og hugsanlega heitum pott-
um, gólfniðurföllum, sturtum og bað-
vöskum. Grátt vatn er mun minna
mengað en skólp og þarf því litla
hreinsun áður en því er veitt út í um-
hverfið. Það á ekki að fara í rotþró og
er algengasta hreinsunin síun í mal-
ar- eða grjótsvelg. Þar sem hitaveita
er í sumarhúsum þarf því að leggja
tvöfalda fráveitulögn, annarsvegar
fyrir skólp og hinsvegar grávatns-
lögn.
Í tækniblaðinu eru leiðbeiningar
um frárennsli frá bústöðum, bæði
hvað varðar grávatn, en einnig varð-
andi skólp; rotþrær og siturlagnir.
Ragnar Gunnarsson, Verkvangi,
tók blaðið saman. Í ritstjórn voru
fulltrúar frá Félagi byggingarfull-
trúa, Landssambandi sumarhúsa-
eigenda, Orkuveitu Reykjavíkur,
Rannsóknastofnun byggingariðnað-
arins, Sambandi íslenskra trygg-
ingafélaga, Samorku og Umhverfis-
stofnun.
RAGNHEIÐUR I.
ÞÓRARINSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri Vatnstjónaráðs.
Réttur frágangur
tryggir öryggi
Frá Ragnheiði I. Þórarinsdóttur
Ragnheiður I.
Þórarinsdóttir
MEÐ lögum skal land byggja og
ólögum eyða. Er hægt að setja lög
ofan á lögréttinn og eyða þjóðfélags-
réttinum þar sem ólög og lagaréttur
virka ekki aftur, hvað þá heila öld?
Er hægt að senda þjóðfélagsþegnum
og framliðnum stefnur með refsi-
verðu athæfi um eignarupptöku á
þinglýstum eigum án nokkurra saka
hjá fjölda þjóðfélagsþegna? Allir
þeir sem lentu í þessu einelti ættu að
gefa upp hug sinn. Einelti er hættu-
legt.
JÓN G. GUÐLAUGSSON,
Hafnarstræti 23, Akureyri.
Þjóðlendumálið
Frá Jóni G. Guðlaugssyni