Morgunblaðið - 15.06.2003, Page 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag er Brúarfoss
væntanlegur.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Arklow Day
væntanlegt.
Mannamót
Aflagrandi 40. Fé-
lagsvist á morgun kl.
14. Farið til sum-
armessu í Hjalla-
kirkju miðvikudaginn
18. júní. Jóns-
messuferð í Skíðaskál-
ann 25. júní. Skráning
í Aflagranda. Ath.
inngangur nú um suð-
urdyr.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Skrifstofa
félagsins er í Faxafeni
12, sími 588 2111.
Dansleikur kl. 20.
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Dagsferð um Reykja-
nes miðvikudaginn 18.
júní. Rúta frá Hraun-
seli kl. 10.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á morgun
kl. 9–16.30 vinnustof-
ur opnar. Frá hádegi
spilasalur opinn.
Danskennsla fellur
niður. Allar upplýs-
ingar um starfsemina
á staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki. Dagskrá 17.
júní: Húsið opnað kl.
14.45, dagskrá hefst
kl. 15. Meðal efnis:
Ómar Axelsson leikur
á píanó, Anna Kristín
Arngrímsdóttir leik-
kona les smásögu.
Ólafur Kjartan Sig-
urðsson og Bergþór
Pálsson syngja við
undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Af-
hending verðlauna í
púttmótinu, Bogi Þór-
ir Guðjónsson. Kaffi
og rjómavöfflur 400
kr. Allir velkomnir.
Nokkur sæti laus í
Póllandsferðina 1.–13.
ágúst nk. Upplýsingar
í síma 554 3400.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður á
morgun, mánudaginn
16. júní kl. 14, við
Klambratún v/
Kjarvalsstaði.
Minningarkort
Minningarkort Félags
eldri borgara Selfossi
eru afgreidd á skrif-
stofunni Grænumörk
5 á miðvikudögum kl.
13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482 1134, og
verslunni Írisi í Mið-
garði.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykja-
vík. S. 570 5900. Fax:
570 5901. Netfang:
slysavarnafelag-
id@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld
í sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á
sjúkrahúsum og á
skrifstofu Reykjavík-
urdeildar, Fákafeni
11, s. 568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, s. 562 1581 og
hjá Kristínu Gísla-
dóttur, s. 551 7193 og
Elínu Snorradóttur, s.
561 5622.
Minningarkort
Sjúkraliðafélags Ís-
lands eru send frá
skrifstofunni, Grens-
ásvegi 16, Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9–
17. S. 553 9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru
til sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni s. 555 0383
eða 899 1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu
Kvenfélagsins Hrings-
ins í Hafnarfirði.
Minningarkortin fást
nú í Lyfjum og heilsu,
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Kortið kostar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar
eru afgreidd á bæj-
arskrifstofu Seltjarn-
arness hjá Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
síma 552 4994 eða
síma 553 6697, minn-
ingarkortin fást líka í
Háteigskirkju við Há-
teigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholts-
sóknar fást í Lang-
holtskirkju s. 520 1300
og í blómabúðinni
Holtablómið, Lang-
holtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkj-
unni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67, og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn s. 555 0104
og hjá Ernu s.
565 0152 (gíróþjón-
usta).
Í dag er sunnudagur 15. júní,
166. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Hvern þann sem
kannast við mig fyrir mönnum
mun og ég við kannast
fyrir föður mínum á himnum.
(Matt. 10, 32.)
Ef ekki er hægt að leysaeinfaldar nágranna-
deilur sem snúast um til-
tölulega einfalda og smá-
borgaralega hluti, og
tillitssemi, fyrirgefning
og almenn skynsemi ætti
að geta leyst í flestum til-
vikum, hver er þá vonin
um að geta leyst öllu djúp-
stæðari og blóðugri ná-
grannaerjur?“ spyr Ey-
þór Ívar Jónsson, ritstjóri
Vísbendingar, á vefnum
heimur.is. Tilefni vanga-
veltna Eyþórs er uppnám
friðarferilsins í Mið-
Austurlöndum þar sem
Palestínumenn og Ísrael-
ar deila hart.
Úr fjarlægð er erfitt aðskilja af hverju ekki
er hægt að koma á friði,
af hverju nágrannar geta
ekki lifað í sátt og sam-
lyndi þrátt fyrir ólíka siði
og venjur. Stundum virð-
ist íslenski skilningurinn
vera að allir séu meira og
minna villimenn þarna við
Persaflóann, sem ekki er
viðbjargandi.
En náfrændur okkar Ír-
ar hafa einnig verið í stöð-
ugum nágrannaskærum.
Loforð Tonys Blairs um
að koma á friði hafa ekki
verið uppfyllt. Og ætti nú
að vera ólíkt auðveldara
að greiða úr vanda Íra en
vandanum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Reyndar
hefur dregið úr blóð-
baðinu á Írlandi en það er
langt í frá að það sé búið
að greiða úr flækjunni.
Nágrannaerjur virðastsatt að segja vera
ótrúlega algengar og
verða oft og tíðum ill-
vígar. Í Afríku er ástand-
ið allra verst þar sem
manndrápin eru ekki tal-
in á fingrum heldur í þús-
undum. Líbería er „nýj-
asta“ dæmið um land þar
sem eina markmið íbú-
anna virðist vera að slátra
hver öðrum. Ef lítil von er
um frið á milli Ísraela og
Palestínumanna er engin
von í Afríku,“ segir Ey-
þór.
Fyrir friðelskandi Ís-lendinga virðast slík-
ar nágrannaerjur
óskiljanlegar þó að Ís-
lendingasögurnar séu
fullar af slíkum skærum.
Hins vegar er langt síðan
Íslendingar hafa upplifað
alvarlegar nágrannaerj-
ur. Kannski er það þroski,
kannski heppni.
Það þýðir þó ekki að Ís-
lendingar séu með öllu
lausir við nágrannaerjur.
Neistar hafa flogið reglu-
lega í samskiptum nýbúa
og „rótgróinna“ Íslend-
inga en þó langtum minna
en víðast hvar annars
staðar. Nágrannaerjur í
húsum og blokkum hér á
landi eru algengar þar
sem tré sem skyggja á flöt
nágrannans, hávaði, yfir-
gangur, dýralíf eða brot á
almennum reglum verða
til að skapa illindi. Slíkar
erjur geta orðið hat-
rammar þó að sjaldnast
leiði þær til manndráps.
Ef lausn finnst virðist hún
oftast fólgin í því að annar
aðilinn flyst á brott. En
stundum er skortur á góð-
um nágrönnum,“ segir á
heimur.is.
STAKSTEINAR
Hatrammar deilur
nær og fjær
Víkverji skrifar...
EITTHVERT mesta fjölmiðlafársem um getur um tilbúnar sögur
á sér nú stað á Bretlandseyjum og
víða um Evrópu. Blöð á Bretlands-
eyjum eru yfirfull – dag eftir dag –
af fréttum um fyrirliða enska lands-
liðsins í knattspyrnu, David Beck-
ham, leikmann Manchester United.
Einn daginn er búið að selja hann til
Real Madrid, hinn daginn til Inter
Mílanó á Ítalíu og þann næsta til
Barcelona.
x x x
GÖTUBLÖÐ Englands keppastvið að segja sögur um Beckham
og þau hafa vægast sagt gengið af
göflunum. Annað eins hefur ekki
sést síðan slegist var um fréttir um
og af Díönu prinsessu, á meðan hún
var á lífi. Hamagangurinn er svo
mikill að hin virtustu blöð dansa með
í kringum gullkálfinn.
x x x
ÞAÐ er einn maður sem skilurhvorki upp né niður í látunum.
Það er Beckham sjálfur. Hann veit
ekki annað en hann sé leikmaður
Manchester United.
Jú, Bandaríkjamenn þekkja ekki
málið. Þegar þeir eru spurðir um
Beckham, setja þeir upp undr-
unarsvip: Hvaða Beckham? Þá er
þeim sagt að hann sé knattspyrnu-
stjarna og eiginmaður söngkon-
unnar Viktoríu í Spice Girls. Þá
verða þeir enn meira undrandi og
spyrja á móti: Viktoría, hver er það?
Spice Girls?
Svona er lífið. Hvað myndi al-
menningur í München halda um
menn, ef þeir gengju um götur og
vörpuðu fram spurningunni: Þekkir
þú Jón í New York?
x x x
EN Beckham er söluvara í Eng-landi. Það vita blaðamenn gulu
pressunnar. Þeir vita einnig að þeir
komast upp með að skálda fréttir –
setjast fyrir framan tölvur, skálda
sögur og búa til viðtöl við hina og
þessa, sem segja til dæmis ekkert
nema: „Jú, Beckham er að koma til
okkar.“ Þar með er „fréttin“ komin,
menn keppast við að kaupa ekki-
fréttirnar, blöðin seljast og eigendur
þeirra fá peninga í kassann. Ekki-
fréttamennirnir fá greidd laun. Allir
eru ánægðir nema söluvaran sjálf.
Hún veit ekki hvort hún er að koma
eða fara.
x x x
ÞAÐ eru ekki allir ánægðir meðgulu pressuna í Englandi. Vík-
verji fékk að kynnast því á virtu hót-
eli í London um árið, þegar hann
óskaði eftir að eintök af Daily Mirr-
or og The Sun yrðu borin inn á her-
bergi hans með morgunmatnum.
Augnaráðið sem Víkverji fékk var
þannig, að hann hefur aldrei síðan
óskað eftir að götublöð séu borin inn
á herbergi hans í London eða annars
staðar.
Reuters
David Beckham
Aspir og
útsýni
ÁRIÐ 1978 fluttum við
hjónin í Breiðholt. Völdum
við okkur stað vegna útsýn-
is. Þar sem við nú búum var
fallegt útsýni út á Esjuna
og út á sjóinn, svo er ekki
lengur. Miklu magni af ösp-
um hefur verið plantað ná-
lægt heimili okkar með
þeim afleiðingum að útsýni
er lítið sem ekkert. Aspirn-
ar eru himinháar og er líkt
og gardína hafi verið dreg-
in fyrir glugga okkar. Það
er líkt og við séum stödd í
frumskógi en aspirnar eru
allt að þrisvar sinnum
hærri en húsin.
Margrét.
Hafið bláa
ÉG KOM fyrir nokkrum
vikum í fyrsta skiptið á
Hafið bláa, sem er veitinga-
hús Þorlákshafnarmegin
við Ölfusárbrú. Staðurinn
er frábær, útsýnið fagurt
og þjónusta, matur og allt
viðmót er þar til fyrirmynd-
ar.
Það sem ég ætlaði að
koma á framfæri er að mér
til mikillar gleði sá ég að
klósett og snyrtingar voru
þar fyrir fatlaða. Hugsaði
ég með mér að hingað
kæmi ég með dóttur mína,
sem er í hjólastól. Hafði ég
samband við Hafið bláa og
talaði þar við elskulegan
pilt. Ég spurðist fyrir um
hvort stuðningsslár væru
við klósettin, en það var
ekki. Benti ég þeim þá á að
ekki væri hálft gagn að að-
gangi fyrir fatlaða nema
stuðningsslárnar væru fyr-
ir hendi. Pilturinn lofaði að
koma þessu á framfæri við
eigandann. Nokkrum dög-
um seinna hringdi ég og
spurðist fyrir um slárnar,
var þá allt komið í lag. Við
hjónin fórum svo með dótt-
ur okkar einn yndislegan
dag á Hafið bláa og fengum
þar frábærar veitingar og
var allur viðurgerningur
þar til fyrirmyndar. Ég vil
því koma kæru þakklæti til
þeirra á Hafinu bláa fyrir
að hafa orðið svo fljótt við
óskum mínum. Gangi ykk-
ur vel, þið eruð frábær.
Þórhalla Sveinsdóttir.
Tapað/fundið
Gleraugu töpuðust
SJÓNGLERAUGU týnd-
ust hinn 12. júní sl. í ná-
grenni Síðumúla 15. Gler-
augun eru með kopar-
brúnni umgjörð og er
glerið í þeim eilítið litað.
Þeir sem kunna að hafa
fundið gleraugun eru vin-
samlegast beðnir að hafa
samband í síma 565 7667
eða 861 5308.
Dýrahald
Leó er týndur
LEÓ er sjö mánaða gamall
kettlingur. Hann hvarf af
heimili sínu í Breiðuvík í
Grafarvoginum aðfaranótt
föstudags sl. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir
Leós eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband í
síma 699 8057 eða 567 7613.
Síamslæða týndist
HREINRÆKTUÐ síams-
læða tapaðist frá heimili
sínu á Tunguvegi 100, 108
Rvk., hinn 4. júní sl. Fólk í
nágrenninu er vinsamleg-
ast beðið um að líta í kjall-
ara sína og bílskúra því hún
gæti leynst þar. Læðan er
gráyrjótt, eyrnamerking:
R-2120. Þetta er innikisa og
kann því ekki að bjarga sér
utandyra. Þeir sem kunna
að hafa orðið varir við kött-
inn eru beðnir að hafa sam-
band í síma 822 0180.
Erla.
Kettlingar fást gefins
TVEIR kassavanir kett-
lingar fást gefins. Þeir eru
högnar, gulbröndóttir á
baki og hvítir á kvið. Upp-
lýsingar í síma 564 1204 eða
893 3989.
Skemmtilegir og fínir
ÞRÍR kettlingar fást gef-
ins. Þeir eru blanda af
norsku skógarkyni, átta
vikna gamlir og kassavanir.
Þeir eru að sögn kunnugra
ótrúlega fínir og skemmti-
legir. Upplýsingar í síma
690 8482.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 brekka, 4 hrúgald, 7
púði, 8 ónáða, 9 þegar, 11
lengdareining, 13 borð-
uð, 14 baunir, 15 ávöl
hæð, 17 ástundun, 20
skar, 22 bólgna, 23 gugg-
in, 24 rekkjum, 25 þekki.
LÓÐRÉTT
1 kjöltra, 2 girnd, 3
straumkastið, 4 naut, 5
gæft, 6 örninn, 10 muldr-
ar, 12 veiðarfæri, 13 bók-
stafur, 15 ber illan hug
til, 16 hljóðfærum, 18
æviskeiðið, 19 nes, 20
sorg, 21 fráleit.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 munntóbak, 8 lúgur, 9 étinn, 10 pot, 11 merja,
13 ildið, 15 felga, 18 eðlis, 21 rói, 22 ertni, 23 renna, 24
mannvitið.
Lóðrétt: 2 uggur, 3 norpa, 4 óféti, 5 aðild, 6 slæm, 7
snuð, 12 jag, 14 lið, 15 frek, 16 lotna, 17 arinn, 18 eirði,
19 lungi, 20 skap.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16