Morgunblaðið - 11.07.2003, Page 1

Morgunblaðið - 11.07.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 185. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Marvel malar gull Hulk og Köngulóarmaður drjúg tekjulind | Fólk 52 Sérgreinin er 360° fiskar Úr prentinu í uppstoppun | Daglegt líf B7 Heilbrigðir og glaðir Forvarnastarf í framhaldsskólum skilar árangri | Menntun 27 MEIRIHLUTI er fyrir því á danska þinginu að grípa til ráðstafana gegn verðsvindli á útsölum. Kallað er eftir virkara eftirliti með því að lögum um eðlilega viðskiptahætti sé framfylgt og harðari refsingum beitt við brotum, svo sem þegar verzlunarrekendur gefa upp hærra verð fyrir útsölulækkun en varan var í raun seld á. „Við sjáum allt of gróf dæmi um búðir sem svindla á viðskiptavinunum. Ég vil biðja ráðherrann að sjá til þess að virk- ara eftirlit verði haft með verzlunum,“ hefur Jyllandsposten eftir Anne Grete Holmsgaard, neytendamálatalsmanni þingflokks Socialistisk Folkeparti (SF). Í sama streng taka talsmenn Danska þjóð- arflokksins og smáflokksins Enheds- listen. Talsmenn Jafnaðarmannaflokks- ins, sem er í stjórnarandstöðu, segja einnig að þörf sé á strangara eftirliti, en talsmenn stjórnarforystuflokksins Venstre segja að það verði að vera hlut- verk samtaka verzlunarinnar að taka á málum sem þessum. Lars Quistgaard Bay, talsmaður sam- taka danskra smásölukaupmanna, segir samtökin ekki ætla sér að leika lögreglu gagnvart félagsmönnum sínum. Tekið á út- sölusvindli GEORGE W Bush, forseti Banda- ríkjanna, viðurkenndi í gær, að við öryggisvandamál væri að etja í Írak en þá höfðu borist fréttir um, að tveir bandarískir hermenn hefðu fallið í árásum í landinu. „Því er ekki að leyna, að það er við öryggisvandamál að etja í Írak,“ sagði Bush en hann er nú í fimm daga ferð um Afríku og var í gær í Botswana. Sagði hann, að það tæki Íraka meira en 100 daga að átta sig á, að þeir væru frjálsir og frelsinu fylgdi ábyrgð. Tommy Franks, hershöfðingi í Bandaríkjaher sem leiddi innrás herja bandamanna í Írak, tjáði her- málanefnd fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings í gær, að búast mætti við því að bandarískir hermenn yrðu enn í Írak eftir fjögur ár. Ekki sé heldur við því að búast að mikið verði fækkað í hernámsliðinu frá því sem nú er fyrr en einhvern tím- ann á næsta ári. Um 148.000 bandarískir hermenn eru nú í Írak. Þá varaði hershöfðinginn við því að launsátursárásir á liðsmenn her- námsliðsins, sem ítrekað hafa átt sér stað að undanförnu, myndu halda áfram. Síðan 1. maí, þegar Bush lýsti yfir sigri í stríðinu, hefur 31 hermaður fallið í Írak. Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, tjáði þingnefndinni í fyrradag að kostn- aðurinn við veru Bandaríkjahers í Írak væri tæpir fjórir milljarðar dollara, um 300 milljarðar ísl. kr., á mánuði, og þar við bættist tæpur milljarður dollara, um 70 milljarðar kr., vegna Afganistans. Sagði Rumsfeld, að nú væri her- lið frá 19 öðrum ríkjum í Írak en allt að 90 hefðu verið beðin um að leggja til liðsstyrk, þar á meðal Þýskaland og Frakkland. Dominiq- ue de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í gær, að því að- eins myndu Frakkar taka þátt í friðargæslu í Írak, að hún yrði á vegum Sameinuðu þjóðanna. Tók talsmaður þýska varnarmálaráðu- neytisins undir það og sagði, að engin beiðni um herlið hefði borist frá Bandaríkjunum. Bush viðurkennir ör- yggisvandamál í Írak Bandarískir hermenn sagðir senni- lega enn verða í Írak eftir fjögur ár Gaborone, Washington. AFP. ÞRÁTT fyrir deilur innan palestínsku heimastjórnarinnar áttu ísraelski varnar- málaráðherrann Shaul Mofaz og Mohammed Dahlan, sem fer með öryggis- mál í heimastjórninni, tveggja tíma fund síðdegis í gær, á landamörkum Ísraels og Gaza-svæðisins. Viðræðurnar snerust fyrst og fremst um palestínska fanga í ísr- aelskum fangelsum, sem róttækar hreyf- ingar Palestínumanna krefjast að verði látnir lausir ef þær eigi að halda vopnahlé það sem þær lýstu yfir á dögunum. Að sögn ísraelska ríkisútvarpsins krafð- ist Mofaz þess að palestínsk yfirvöld gripu til aðgerða gegn herskáum hópum Palest- ínumanna á meðan á vopnahléinu stæði. Annars yrði ekki um neina raunverulega þróun í átt að friði að ræða. Dahlan sagði fyrir fundinn með Mofaz að hann myndi krefjast lausnar allra þeirra u.þ.b. 6.000 palestínsku fanga sem talið er að dúsi í ísraelskum fangelsum. Ísraelsstjórn hefur til þessa aðeins talið koma til greina að sleppa um 350 föngum og talsmenn hennar hafa bent á að kröfur um lausn fanga séu ekki hluti af friðarveg- vísinum svonefnda. Ráðherrar ræða fangamálið Palestínumenn krefjast lausnar þúsunda fanga úr ísraelskum fangelsum Jerúsalem, Gaza-borg. AP, AFP. Shaul Mofaz Mohammed Dahlan ÍRANSKIR landar tvíburasystranna Laleh og Ladan Bijani fara með bænir yfir líkkistum þeirra í Khom- eini-stórmoskunni í Teheran í gær. Systurnar, sem voru samvaxnar á höfði, létu lífið á skurðarborðinu í Singapúr, þar sem læknar gerðu tilraun til að að- skilja þær. APBeðið fyrir tvíburasystrunum BREZKA ríkisstjórnin sætir nú þrýstingi að hindra að brezkir rík- isborgarar sem sakaðir eru um að- ild að hryðjuverkum og Banda- ríkjamenn hafa haldið föngnum í Guantanamo á Kúbu frá því stríð- inu í Afganistan lauk, verði dregn- ir fyrir bandarískan herdómstól sem gæti dæmt þá til dauða. Tals- maður brezka forsætisráðuneytis- ins sagði í gær, að viðræður stæðu yfir milli brezkra og bandarískra stjórnvalda um hugsanlegt framsal sakborninganna til Bretlands. Áður höfðu brezkir ráðamenn lýst andstöðu við að bandarískur herdómstóll réttaði yfir mönnun- um tveimur. Tony Blair forsætis- ráðherra sagði á miðvikudag að hann hefði komið því skýrt á fram- færi við Bandaríkjastjórn að rétt- arhöld yfir mönnunum yrðu að fara fram í samræmi við alþjóða- lög. Yfir 200 þingmenn á brezka þinginu hafa skrifað undir áskorun um að mennirnir verði framseldir. Vilja fram- sal fanga frá Guantanamo Lundúnum. AP. RAUNÁVÖXTUN lífeyrissjóða verður líklega yfir 5% á fyrrihluta þessa árs, að sögn Hrafns Magn- ússonar, framkvæmdastjóra Landssambands lífeyrissjóða. Hann segir að allt bendi til að raun- ávöxtun sjóðanna verði jákvæð fyr- ir árið í heild, eftir þriggja ára sam- fellda neikvæða ávöxtun. „Raunávöxtun íslensku lífeyris- sjóðanna var að meðaltali um 7% á árunum 1991 til 1998 og það yrði frábær fjárfestingarárangur ef raunávöxtun sjóðanna í ár yrði á svipuðum nótum,“ segir Hrafn. Hann segir að áætlað sé að ávöxt- unin í fyrra hafi verið neikvæð um 3%, hún hafi verið nei- kvæð um 1,9% árið 2001 og neikvæð um 0,7% árið 2000. Árið 1999 hafi skorið sig mjög úr, því þá hafi ávöxtunin verið 12%. Hrafn segir að hækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum hafi verið miklar það sem af er þessu ári, en á móti komi að íslenska krónan hafi verið óvenjusterk gagnvart Banda- ríkjadal. Að vísu hafi krónan gefið töluvert eftir gagnvart dalnum í júní, sem auki raunávöxtun lífeyris- sjóðanna í erlendum eignum, einkum hluta- bréfum. Evran hafi hins vegar styrkst verulega frá áramótum, bæði gagnvart íslensku krón- unni og dalnum, sem sé jákvæð þróun fyrir líf- eyrissjóðina. Þá segir Hrafn að vísitala Aðal- lista í Kauphöll Íslands hafi hækkað um 7,5% frá áramótum og velta með hlutabréf í Kauphöllinni hafi verið góð. Afföll húsbréfa hafi minnkað mikið og nú séu húsbréf seld á yf- irverði. Flestir lífeyrissjóðir færi hús- bréfin á kaupkröfu og því hafi minnkandi afföll engin áhrif á raunávöxtunina. Þeir lífeyrisjóðir sem færi skuldabréf á markaðskröfu muni hins vegar geta sýnt betri raun- ávöxtun á þessu ári. Við saman- burð milli einstakra lífeyrissjóða hvað varðar raunávöxtun þurfi að líta til þessara mismunandi upp- gjörsaðferða innlendra skulda- bréfa, einkum húsbréfa. Raunávöxtun líklega yfir 5% Þrjú neikvæð ár að baki                 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.