Morgunblaðið - 11.07.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur hafnað beiðni Bandalags ís-
lenskra leigubílstjóra um að fé-
lagsmenn þeirra geti fengið
lækkuð vörugjöld af leigubifreið-
um, að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum, kaupi þeir bíl á 18 mánaða
fresti í stað 36 eins og gildir í dag.
Daníel Björnsson, formaður Bif-
reiðastjórafélagsins Frama, segir
marga leigubílstjóra endurnýja
bíla sína örar en á þriggja ára
fresti og því sé þetta sanngjörn
krafa.
Hann bendir einnig á að bíla-
leigur geti endurnýjað sína bíla á
18 mánaða fresti og fengið vöru-
gjöld lækkuð að þeim tíma liðnum.
Þessi mismunun skerði stöðu
leigubílstjóra í samkeppni við fyr-
irtæki sem leigi út bíla.
Fjármálaráðuneytið hafnaði
þessu erindi Bandalags íslenskra
leigubílstjóra með þeim rökum að
umræddar atvinnugreinar, leigu-
bílstjórar og bílaleigur, störfuðu
ekki á sama markaði. Því væri
ekki um samkeppni að ræða á milli
þeirra og engin mismunun fælist í
fyrrgreindum reglum.
Vildu vita hvort ákvörðun
stæðist samkeppnislög
Þessari niðurstöðu áfrýjuðu
leigubílstjórar til Samkeppnis-
stofnunar og óskuðu eftir áliti á
því hvort umrætt svar ráðuneyt-
isins stæðist samkeppnislög.
Samkeppnisstofnun komst að
sömu niðurstöðu; þ.e. að þessi
þjónusta væri ekki veitt á sama
samkeppnismarkaði. Ekki sé full-
nægjandi staðganga á milli þess að
leigja bílaleigubíl og kaupa þjón-
ustu leigubílstjóra. Vísaði stofnun-
in í samkeppnislög þar sem gert er
ráð fyrir að staðgengdarþjónusta
sé þjónusta sem að fullu eða veru-
legu leyti geti komið í stað ann-
arrar.
Bentu á samkeppni
í auglýsingu
Aftur sendi Bandalag íslenskra
leigubílstjóra Samkeppnisstofnun
bréf þar sem óskað var eftir því að
hún tæki á ný til skoðunar áð-
urgreint málefni í ljósi nokkurra
auglýsinga frá bílaleigunni Hertz.
Þar er fólk hvatt til að taka bíla-
leigubíl í stað leigubíls.
Þessu erindi hafnaði Samkeppn-
isstofnun og var sú ákvörðun kærð
til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála 26. maí sl. Í úrskurði nefnd-
arinnar frá 3. júlí sl. segir að
Bandalag íslenskra leigubílstjóra
hafði með beiðnum sínum til Sam-
keppnisstofnunar aðeins óbeinna
hagsmuna að gæta af málsúrslitum
þar sem um álitsbeiðni var að
ræða.
Því verði að gera talsverðar
kröfur til áfrýjanda að hann styðji
málatilbúnað sinn með fullnægj-
andi rökum til þess að skylt sé að
hrinda af stað rannsókn í málinu.
Staðfesti því áfrýjunarnefndin
höfnun Samkeppnisstofnunar.
Fundur á næstunni hjá
Frama með lögfræðingi
Daníel Björnsson segir að
Frami muni halda fund á næstu
dögum með lögfræðingi félagsins.
Þá verði þetta mál skoðað betur og
ákveðið hvernig brugðist verði við
þessari niðurstöðu.
Leigubílstjórar og bílaleigur
Starfa ekki á
sama markaði
ÞESSI skemmtilega mynd var tekin í Drangey við upp-
haf lundavertíðarinnar í sumar. Hér veiðir Steinar Pét-
ursson fyrsta lundann sinn í sumar sem virðist frekar
ósáttur við að vera stöðvaður á flugi sínu.
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
Fangar fyrsta lunda vertíðarinnar
STARFSMAÐUR Impregilo hjá
Kárahnjúkavirkjun slasaðist þegar
hann fór of snemma ofan í frárennsl-
isgöng sem nýbúið var að sprengja í
með þeim afleiðingum að hann and-
aði að sér hættulegum gufum frá
sprengingunni.
Fyrst um sinn fann maðurinn ekki
fyrir óþægindum en nokkrum
klukkustundum seinna fór hann að
kenna verkja og var honum þegar í
stað komið í hendur hjúkrunarfræð-
ings á staðnum. Þar var honum gefið
súrefni og lagaðist ástand hans mik-
ið við það. Hann var svo fluttur til
Reykjavíkur þar sem hann fór á
lungnadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss til frekari aðhlynningar í
nokkra daga. Maðurinn náði sér að
fullu og hefur snúið aftur til starfa.
Leó Sigurðsson, heilsu-, öryggis-
og umhverfisfulltrúi Impregilo á
virkjanasvæðinu, staðfestir að slys
hafi orðið og að maðurinn hafi nú
jafnað sig. Hann sagði að um leið og
maðurinn fór að finna til óþæginda
hafi farið af stað skipulagt ferli við að
koma starfsmanninum undir lækn-
ishendur.
„Þetta er áhættusöm framkvæmd
og því miður geta svona slys orðið og
til að geta brugðist við þeim þá höf-
um við komið upp öryggiskerfi á
svæðinu. Það sýndi sig í þessu tilviki
að kerfið virkar mjög vel. Í kjölfar
slyssins var farið yfir öryggisatriði
með starfsmönnum og brýnt fyrir
þeim að gæta fyllsta öryggis við
sprengingar,“ segir Leó.
Starfsmaðurinn fór of
snemma ofan í göngin
ÞRIGGJA ára drengur varð fyrir
alvarlegu eitrunarslysi um miðjan
júní á sveitabæ á Norðurlandi.
Drengurinn saup á þvottaefni fyrir
mjólkurkerfi en efnið, sem er mjög
ætandi, brenndi hann illa í vélinda.
Hann var fluttur á Barnaspítala
Hringsins í Reykjavík þar sem
hann var meðhöndlaður.
Drengurinn, sem heitir Angantýr
Máni Gautason, var í rannsókn á
sjúkrahúsinu í gær og eftir hana
þykir ljóst að hann muni ná sér að
fullu, að sögn foreldra drengsins,
þeirra Írisar Gunnarsdóttur og
Arnars Gauta Finnssonar.
„Honum líður ofsalega vel núna,“
sagði Íris í gær er fjölskyldan var á
heimleið norður í land eftir rann-
sóknina. „Við rannsóknina kom í
ljós að engar þrengingar eru í vél-
indanu, en læknarnir höfðu búist
við því og jafnvel að það myndi
lokast. Allt lítur rosalega vel út.
Þetta er alveg ótrúlegt.“
Haldið sofandi fyrstu dagana
Angantýr litli var á fljótandi fæði
í viku fyrir rannsóknina og stóð sig
eins og hetja að sögn móður sinnar.
„Við fórum suður föstudaginn 13.
júní og honum var haldið sofandi
fram á mánudag, þá var hann vak-
inn,“ útskýrir Íris. „Við fengum svo
að fara norður í leyfi í síðustu viku.
Svo var hann útskrifaður í dag [í
gær] því þetta leit allt svo vel út.“
Íris segir erfitt að útskýra hvern-
ig sér og manni sínum hafi orðið
við er slysið varð. „Manni nátt-
úrulega dauðbregður, ég get ekki
lýst því. Það er hræðilegt að lenda í
þessu. En einhvern veginn reyndi
maður að vera bjartsýnn á þetta
allt saman, við vorum ótrúlega
bjartsýn að þetta yrði allt í lagi, þó
að læknarnir hafi verið mjög svart-
sýnir á það.“
Angantýr er enn með slöngu út
úr maganum en hún verður tekin
19. ágúst nk. Hann verður svo í eft-
irliti í ár til viðbótar, þá á öll hætta
að vera liðin hjá, að sögn Írisar.
„Við sluppum alveg ótrúlega vel
með þetta allt saman,“ sagði hún að
lokum. Jafn alvarleg eitrun af völd-
um ætandi efna hefur ekki orðið
síðan 1985 en þá varð eins árs gam-
all drengur fyrir lífshættulegri
eitrun í Hafnarfirði. Sá tók inn eina
sléttfulla teskeið af þvottaefni fyrir
uppþvottavélar. Afleiðingar þess
slyss voru skelfilegar en vélinda og
stór hluti maga hans eyðilögðust.
Í tilkynningu frá Árvekni er fólk
hvatt til að huga að hættulegum
efnum á og við heimili sín. „Lítil
börn eru hvatvís og ein leið þeirra
til að kanna umhverfi sitt er að
setja hluti í munninn, það er því
æskilegt að geyma öll hættuleg efni
í læstum hirslum,“ segir í tilkynn-
ingunni. Hægt er að finna ítarlegar
upplýsingar um hvernig koma má í
veg fyrir eitranir á heimasíðu Ár-
vekni, www.arvekni.is.
Þriggja ára drengur varð fyrir alvarlegu eitrunarslysi
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
Fjölskyldan komin heim. Arnar Gauti Finnsson heldur á Aþenu Sól og Íris
Rún Gunnarsdóttir heldur á Angantý Mána.
Saup á
þvotta-
efni fyrir
mjólkur-
kerfi
SVEINBJÖRN Sveinbjörnsson
Keflvíkingur er eins og bræður
hans tveir áhugamaður um
gamla BMW-bíla. Hann hefur
undanfarin þrjú ár nostrað við
einn slíkan, árgerð 1977, og fékk
bræður sína, sem eru bílamál-
arar, til að sprauta bílinn fyrir
sig fallega sægrænan.
„Síðan, þegar þeir sprauta
hann loksins, þá breyta þeir litn-
um til að stríða mér,“ segir
Sveinbjörn. Útkoman varð eins
og sjá má á myndinni; bíllinn
varð alllangt frá því að vera sæ-
grænn og þess í stað æpandi eit-
urgrænn.
Sveinbjörn tók þetta þó ekki
nærri sér og hafði gaman af
glensi bræðra sinna. Þess utan
var grikkurinn honum að kostn-
aðarlausu og bræður hans hafa
boðist til að sprauta bílinn aftur
seinna, í réttum lit.
Auk þess sá Sveinbjörn nýtt
tækifæri með þessum nýja lit:
„Fyrst hann var svona skrambi
grænn þá fannst mér tilvalið, þar
sem kvikmyndin Hulk var að
fara í sýningar hér á landi, að
setja á hann auglýsingaborða
upp á gamanið.“ Hann setti sig
því í samband við aðstandendur
myndarinnar sem tóku vel í til-
lögu Sveinbjörns.
„Bíllinn vekur vissulega at-
hygli á götum, “ segir Svein-
björn. „Og í sjálfu sér er ekkert
að þessum lit. Honum verður
samt breytt þótt hann fái ef til
vill að vera svona næstu mán-
uðina.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Allsérstæður litur og áberandi: Sveinbjörn Sveinbjörnsson á bílnum
góða og hann tekur ekki nærri sér hrekk bræðra sinna.
Hulk á fjór-
um hjólum
Hrekkur varð að auglýsingu