Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Jafnréttismál innflytjenda Munur milli Norðurlanda RÁÐSTEFNANFjölmenning ogjafnrétti kynjanna á Norðurlöndum var hald- in í Malmö nýlega. Til- gangurinn var að skoða samband milli jafnréttis- mála og innflytjendamála. Ísland sendi 19 fulltrúa þangað og var Valgerður H. Bjarnadóttir ein þeirra. Litið var á þátttöku Ís- lands sem eins konar und- irbúning fyrir það verkefni að styrkja stöðu erlendra kvenna á Íslandi og á ráð- stefnunni kom meðal ann- ars fram að staða nýbúa- kvenna hér og í Finnlandi væri hugsanlega betri en á hinum Norðurlöndunum. Af hverju stafar þessi munur? „Samsetning hópanna er mis- munandi. Það er fólk frá öðrum löndum sem býr hér og í Finn- landi en í Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku. Í Finnlandi er áberandi hópur innflyjenda frá Sómalíu og það er mikið af Afríkubúum. Hér á landi er aftur á móti mjög mikið um Austur-Evrópubúa og Asíu- búa, en nánast ekki til Tyrkir og Norður-Afríkubúar sem meira er af á hinum Norðurlöndunum. Múslimar eru meira áberandi þar og það hefur áhrif á stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Margar konur koma hingað til lands til þess að vinna, mennta sig eða þá til að kynnast nýjum aðstæðum. Austur-Evr- ópukonurnar eru margar með há- skólamenntun og sumar hverjar hafa fengið störf við hæfi. Það er samt almennt þannig að þessar konur fá ekki starf við sitt hæfi og það sama gildir um karla sem koma til landsins.“ Ná þau áhrifum í samfélaginu? „Það að þau eru útlend er ákveðin hindrun til að ná áhrifum. Staðreyndin er sú að erlendir rík- isborgarar eiga mjög erfitt með að ná áhrifum í þessum löndum. Það er helst að einstaka karlmenn nái frama í atvinnulífinu en það er mjög sjaldgæft að þau nái áhrifum í pólitík. Hér á landi er staðan sú að það eru miklu frekar konur sem eru talsmenn útlendinga og þeir einstaklingar sem hafa komið nálægt pólitík eru konur.“ Hvernig stendur á því? „Það geta verið margar ástæð- ur, en ég held að það sé meðal annars það að konur eru stór hóp- ur meðal innflytjenda. Þær koma hingað oft sem sjálfstæðir ein- staklingar, á meðan þær koma oft sem eiginkonur og eru hluti af fjölskyldu til hinna Norður- landanna.“ Hvernig hafa innflytjendur tek- ið því að verið sé að skoða jafn- réttismál á meðal þeirra? „Það er gaman að finna að um leið og við réttum fram litla fing- urinn í áttina til útlendingasam- félagsins með það að ræða jafn- réttismálin, þá á jákvæðan hátt, var gripið í alla höndina. Áhuginn var mikill, sérstaklega á meðal kvenna, því við höfðum fyrst og fremst samband við konur. Það var líka gaman að því að það voru nokkrir karlmenn sem sýndu þessu mik- inn áhuga og meðal annars Tosh- iki Toma. Hans reynsla er sú að annarsvegar sýni íslenskar konur málefnum útlendinga miklu meiri áhuga og stuðning en íslenskir karlar og hinsvegar séu útlendar konur miklu duglegri við að vinna að því að bæta stöðu sína en út- lendir karlar. Hvernig koma Íslendingar fram við nýbúa? „Það var samdóma álit allra sem komu frá Íslandi og sérstak- lega þeirra sem búið hafa hér lengi að fjandskapur í þeirra garð hefur farið mjög vaxandi á und- anförnum árum.“ Hvernig stendur á því? „Það er hægt að geta sér þess til að þegar útlendingum fjölgar þá fari einhverjir að upplifa þá sem ógn. Ég held að það sé stór hluti ástæðunnar. Nýbúar eru orðnir sýnilegir í þjóðfélaginu og breytingin hefur gerst mjög hratt. Það er kannski eðlilegt að það verði einhver andstaða sem bygg- ist fyrst og fremst á vanþekkingu og fordómum. Hér á landi er í gangi tvennskonar viðmót. Ann- ars vegar mjög opið viðmót þar sem þeim er tekið fagnandi og hinsvegar fordómaviðmót.“ Eru til hagsmunasamtök nýbúa á Íslandi? „Nei, en átak sem fór í gang fyrir ráðstefnuna kveikti löngun hjá mörgum til þess að fara að gera eitthvað meira í því að fara að skipuleggja sig og stofna hags- munasamtök. Staðreyndin virðist vera sú að erlendar konur hér á landi og í Finnlandi virðast vera kröftugri, miðað við karlana, í að koma sér áfram. Á hinn bóginn eru konur á hinum Norðurlönd- unum duglegri við að skipuleggja sig. Þar hafa þær stofnað samtök sem eru mjög virk og öflug. Það er full ástæða til þess að gera átak hér á landi í málefnum útlendinga. Þá þarf að skoða þau út frá kynja- sjónarmiði, vegna þess að hér á landi sem og annars staðar kemur kynjamunurinn mjög vel í ljós á meðal nýbúa. Ástæður þess að konur koma til nýs lands eru oft aðrar en ástæður karla. Nýbúar koma inn í samfélag þar sem oft er meira formlegt jafnrétti en þar sem þeir voru áður. Þetta er já- kvætt fyrir konur en það er oft erfitt fyrir karla að sætta sig við þetta, það verður flókin breyting fyrir þá.“ Valgerður H. Bjarnadóttir  Valgerður H. Bjarnadóttir fæddist á Akureyri í janúar 1954 og ólst þar upp. Hún útskrifaðist sem félagsráðgjafi í Noregi árið 1980 og starfaði við það í nokkur ár. Síðan leiddist hún út í pólitík og kvennabaráttu og frá 1985 hefur hún unnið að jafnréttis- málum og fullorðinsfræðslu. Hún fór í háskóla í San Fransisco þar sem hún fór í BA-nám í heildræn- um fræðum og lauk síðan mast- ersnámi í femínískri trúarheims- speki við sama skóla árið 2001. Hún er nú framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Nýbúakonur frjálsari hér en erlendis? MIKIÐ rigndi í gær í Mýrdalnum en hópur af ferðamönnum lét það ekki á sig fá og hélt áfram sinni för. Þetta var hópur starfsmanna frá fyrirtækinu Medcare Flaga sem var að fara í árlega göngu- ferð. Jón Gauti Jónsson, leið- sögumaður hjá Íslenskum fjalla- leiðsögumönnum, sagði að hópurinn hefði lagt af stað frá Öldufelli á Álftaversafrétti farið yfir jökul og komið niður í Höfða- brekkuafrétti og gengið síðan frá tjaldstæðinu í Þakgili og endað í Vík. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Á göngu í ausandi rigningu Fagradal. Morgunblaðið. EKKERT veggjald verður inn- heimt vegna umferðar um Hval- fjarðargöngin í dag, frá klukkan 7 að morgni til klukkan 7 í fyrra- málið laugardaginn 12. júlí. Til- efnið er að fimm ár eru liðin frá því að göngin voru formlega opn- uð. Í dag mun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sækja heim forsvarsmenn Spalar sem rekur göngin, og mun samgönguráð- herra taka formlega í notkun nýtt fjarskiptakerfi Spalar sem notað verður við göngin. Nýja fjar- skiptakerfið á að auka enn á ör- yggi vegfarenda um göngin. Á vefsíðu Spalar kemur fram að gera megi ráð fyrir mikilli um- ferð um göngin í dag, enda ber af- mælið upp á föstudag. „Ætla má að verðmæti gjafar afmælis- barnsins, til þeirra vegfarenda sem hennar fá notið, verði á bilinu 7–10 milljónir króna,“ segir í vef- síðunni. Umferðarmetið frá opn- unardegi 1998 óhaggað 11.800 bílar fóru um Hvalfjarð- argöng á fyrsta sólarhringnum eftir að þau voru tekin í notkun í júlí 1998. Um er að ræða umferð- armet sem hefur staðið óhaggað síðan. „Mesta umferð í göngunum frá því byrjað var að innheimta veggjald, 20. júlí 1998, var hins vegar föstudaginn fyrir verslun- armannahelgi 2001, alls 9.100 bílar á sólarhring. Til samanburð- ar má geta þess að á sunnudögum núna í júnímánuði 2003 fóru að jafnaði um og yfir 6.000 bílar um göngin á einum sólarhring,“ segir á heimasíðu Spalar. Ókeypis um Hval- fjarðargöngin í dag TUTTUGU og eins árs gamall mað- ur hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðs- dómi Reykjaness og gert að greiða fórnarlambi sínu 300.000 krónur í skaðabætur og 140.000 krónur í eigin málskostnað og brotaþola. Árásin átti sér stað við veitinga- hús við Strandgötu í Hafnarfirði í október í fyrra. Afleiðingar hennar voru þær að efri kjálki, botn augn- tóftar og hliðarveggur augntóftar brotnuðu auk þess sem brotnaði úr aftasta jaxli í neðri góm. Í niðurstöð- um dómara kom fram að árásin hafi verið hrottafengin og hefði hæglega getað leitt til stórkostlegra líkams- meiðsla og örkumla. Af refsingunni er fullnustu helm- ings hennar, þriggja mánaða, frestað til þriggja ára og fellur hún niður að þeim tíma liðnum haldi maðurinn skilorðið. Hálfs árs fangelsi fyrir árás JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segist hafa fullan hug á að svara spurningum þeim sem Krist- ín Michelsen varpar fram í bréfi sínu til Morgunblaðsins hinn 26. júní sl. undir yfirskriftinni „Ís- lenska réttar- og heilbrigðiskerfið eins og það birtist mér og mínum.“ Bréfritari beinir spurningum sínum til heilbrigðisráðherra, félagsmála- ráðherra og Alþingis. Forsaga málsins er sú að þá 19 ára sonur Kristínar hlaut varanleg- an heilaskaða eftir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur árið 1998. Er hann nú 75% öryrki og lýsir Kristín langri þrautagöngu innan kerfisins í kjölfar slyssins og segir að réttur sonar hennar og foreldranna hafi verið fótum troðinn á ýmsan hátt. Jón Kristjánsson sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki telja að það stæði upp á heilbrigðisráðherra að svara öllum spurningum Kristínar, en þau atriði myndi hann aftur á móti láta kanna sem heyra undir verksvið síns ráðuneytis. „Ég get látið fara yfir þau atriði sem að mér snúa í þessu, þ.e. varð- andi tryggingastofnun og læknis- vottorð,“ segir Jón. Kristín spyr m.a. hvers vegna Tryggingastofnun geri ekki upp mál sjálfkrafa, þegar örorkumat liggur fyrir og segist ekki hafa vitað það fyrr en í desem- ber 2001 að fjölskyldan sjálf ætti að biðja um örorkubætur. Ennfremur spyr hún: „Læknisvottorð geta kostað allt að 70.000 kr., er þetta eðlilegt? Og fyrir þessu þarf að leggja út og allsendis óvíst hvort þetta fæst endurgreitt.“ „Ég hef ekki slík dæmi í hönd- unum en ég mun kanna hvað liggur að baki,“ segir Jón Kristjánsson. Kristín segist ennfremur í bréfi sínu hafa viljað þiggja áfallahjálp ef hún hefði verið boðin. „Þegar fólk lendir í svona aðstæðum er maður gjörsamlega ófær um að hugsa um eitthvað annað. Höfuðið tæmist einhvern veginn og verður dofið. Það þarf að segja manni sömu hlut- ina aftur og aftur,“ segir í bréfi hennar. „Við erum með áfallahjálpar- teymi á spítölunum og áfallahjálp er í boði í heilbrigðiskerfinu,“ segir Jón. „Það mál hlýtur þá að snúa til kynningar á þeirri þjónustu sem fyrir hendi er.“ Jón mun fara yfir bréf Kristínar og svara fljótlega. Heilbrigðisráðherra kannar réttindamál öryrkja Kveðst svara fyrir at- riði um heilbrigðismál
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.