Morgunblaðið - 11.07.2003, Blaðsíða 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ljóst hvað olli slysinu en sjón-
arvottar sögðu rútuna hafa lent í
árekstri við flutningabíl. Að sögn
lögreglu bentu bremsuför á slys-
staðnum til þess að árekstur hefði
orðið. Talsmaður fyrirtækisins sem
rak rútuna sagði hana hafa verið
nýja og hafa verið skoðaða fyrir
fáeinum dögum.
AÐ MINNSTA kosti 22 fórust og
20 slösuðust í gær þegar tveggja
hæða fólksflutningabíll fór út af
brú á hraðbraut í Hong Kong og
féll um 50 metra niður í dalverpi.
Að sögn talsmanns lögreglunnar í
borginni er þetta eitthvert mesta
umferðarslys sem þar hefur nokk-
urn tíma orðið. Ekki var fyllilega
AP
22 fórust í
Hong Kong
YFIRVÖLD í Moskvu sögðu í gær
að búast mætti við hrinu hryðju-
verka í borginni eftir að tétsensk
kona reyndi að sprengja veitingahús
í miðborginni í loft upp, nokkrum
dögum eftir sprengjuárásir sem
kostuðu sextán manns lífið.
Þótt árás konunnar hefði mistek-
ist beið sprengjusérfræðingur bana
þegar hann reyndi að gera sprengj-
una óvirka.
Lögreglan í Moskvu skýrði enn-
fremur frá því í gær að hún hefði
fengið upplýsingar um að hópur tét-
senskra uppreisnarmanna hefði und-
irbúið hrinu sprengjutilræða um
miðjan mánuðinn. Talið var að upp-
reisnarmennirnir hygðust beita
sömu aðferð og palestínskar hreyf-
ingar sem hafa staðið fyrir sjálfs-
morðsárásum á Ísraela.
Júrí Shúvalov, aðaltalsmaður
rússneska innanríkisráðuneytisins,
sagði að sprengjutilræðin á laugar-
dag og misheppnuð árás konunnar í
gær gætu verið upphafið að þessari
hryðjuverkahrinu. „Við fengum upp-
lýsingarnar frá heimildarmönnum á
Norður-Kákasus svæðinu en við vit-
um ekki nákvæmlega hvar þessir
glæpir verða framdir,“ sagði hann.
Skildi eftir sprengju í bakpoka
Fjórir viðskiptavinir voru í veit-
ingahúsinu laust fyrir miðnætti að
staðartíma þegar dyraverðir í veit-
ingahúsinu tóku eftir því að konan
skildi eftir bakpoka nálægt inngangi
hússins. Hún var handtekin skömmu
síðar og lögreglan lokaði götunni.
Sprengjusérfræðingar fóru á stað-
inn og einn þeirra beið bana í mikilli
sprengingu tæpum þremur klukku-
stundum síðar þegar hann reyndi að
gera sprengjuna óvirka.
„Allar rúður veitingahússins
brotnuðu og jafnvel rúður í húsi
handan götunnar,“ sagði Sergej Ger-
asímov, sem rekur veitingahúsið.
„Sprengjusérfræðingurinn sprakk í
loft upp og líkamshlutarnir féllu nið-
ur nálægt veitingahúsinu.“
Veitingahúsið er um þrjá km frá
Kreml. Sjónarvottur sagði að lög-
reglan hefði reynt fimm sinnum að
nota vélmenni til að gera sprengjuna
óvirka áður en sprengjusérfræðing-
urinn reyndi það sjálfur.
Konan var færð í traust fangelsi,
Lefortovo, og yfirheyrð. Hún er 22
ára ekkja manns sem féll í stríðinu í
Tétsníu. Lögreglan handtók einnig
hugsanlegan vitorðsmann, Tétsena á
þrítugsaldri.
Lögreglan sagði að konan kynni
að tengjast tveimur tétsenskum kon-
um sem sprengdu sig í loft upp á úti-
tónleikum í Moskvu á laugardag.
AP
Rússneskur sprengjusérfræðingur nálgast hér sprengju sem hann reyndi að gera óvirka við veitingahús í Moskvu í fyrrinótt. Hann beið bana í sprengingu sem sést á myndinni til hægri.
Óttast hrinu
hryðjuverka
í Moskvu
Moskvu. AFP.
BRESKA ríkisútvarpið, BBC, hefur
á fréttavef sínum eftir „mjög háttsett-
um“, breskum embættismönnum að
þeir telji ekki lengur mjög líklegt að
gereyðingarvopn finnist í Írak. Telji
þeir að vopnin hafi verið til, en hafi
verið eyðilögð áður en stríðið hófst.
Robin Cook, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra í ríkisstjórn Tonys Blairs,
forsætisráðherra Bretlands, sagði í
gær að þetta væru „mikil tíðindi“.
Sjálfur teldi hann einnig ólíklegt að
herir bandamanna, sem nú leita að
gereyðingavopnum Íraka, muni finna
miklar birgðir af þeim.
Blair gerði þá meintu ógn er stafaði
af gereyðingavopnum Íraka að meg-
inréttlætingu þess að Bretar tækju
þátt í herförinni til Íraks. Hann sætir
nú auknum þrýstingi vegna þess að
engin slík vopn hafa komið í leitirnar,
en hann sagði þingnefnd fyrr í vik-
unni að hann væri þess fullviss að vís-
bendingar um gereyðingavopnaáætl-
un myndu finnast í Írak.
Cook, sem sagði af sér í mótmæla-
skyni við stefnu Blairs í Íraksmálinu,
tjáði BBC að sér þætti það ekki sér-
lega trúlegt að í Írak væri „stórt og
mikið vopnabúr sem enn hefur ekki
fundist“.
Segir að vísbendingar um
vopnaáætlanir dugi ekki
Cook sagði ennfremur að ekkert
nema vísbendingar um að Saddam
Hussein, fyrrverandi Íraksforseti,
hefði framleitt vopn í trássi við bann
Sameinuðu þjóðanna, gæti réttlætt
ákvörðun breskra stjórnvalda að fara
í stríð. Vísbendingar um vopnaáætl-
anir dygðu ekki til.
„Þingið samþykkti að fara í stríð
vegna þess að því var sagt að Saddam
ætti raunveruleg gereyðingarvopn,“
sagði Cook. „Okkur var tjáð að svo
mikið lægi við að hefja herförina að
ekki væri tími til að gefa Hans Blix og
vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna nokkra mánuði til viðbótar
eins og þeir báðu um til að ljúka verki
sínu.“
„Ólíklegt“ að gereyð-
ingarvopn finnist
London. AP.
BANDARÍSKIR sérfræðingar
í afvopnunarmálum segjast vera
undrandi á ummælum Donalds
Rumsfelds, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, um að
Bandaríkin hefðu ekki hafið
stríðið í Írak vegna nýrra sann-
ana fyrir því að Írakar réðu yfir
gereyðingarvopnum, heldur
vegna þess að Bandaríkjastjórn
hefði séð gögnin, sem þegar
voru til, í nýju ljósi eftir hryðju-
verkin 11. september 2001.
Joseph Cirincione, sem
stjórnar baráttu Carnegie En-
dowment for International
Peace gegn útbreiðslu gereyð-
ingarvopna, kvaðst vera
„hneykslaður“ á þessum um-
mælum Rumsfelds, sem hann
viðhafði þegar hann bar vitni
fyrir hermálanefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings í fyrra-
dag. Cirincione sagði að emb-
ættismenn stjórnar George W.
Bush forseta hefðu ítrekað hald-
ið því fram að til væru nýjar
sannanir fyrir gereyðingar-
vopnaáætlunum Íraka.
Fréttavefur BBC hafði enn-
fremur eftir Cirincione að sú
staðreynd að bandaríska her-
námsliðið hefur ekki fundið nein
gereyðingarvopn í Írak sýndi að
vopnaeftirlit Sameinuðu þjóð-
anna í landinu hefði verið árang-
ursríkara en áður var talið.
Skýrslur „rangfærðar“
BBC hafði eftir Greg Thiel-
mann, fyrrverandi yfirmanni
hermálasviðs leyniþjónustu- og
rannsóknadeildar bandaríska
utanríkisráðuneytisins, að
stjórn Bush hefði „rangfært“
leyniþjónustuskýrslur um Írak
með „villandi útdráttum“ og
„ónákvæmri framsetningu“ í
mikilvægum yfirlýsingum.
Thielmann, sem lét af emb-
ætti í október, tók fram að Colin
Powell utanríkisráðherra hefði
ekki endurtekið staðhæfingar
Bush forseta um kjarnavopna-
áætlun Íraka þegar ráðherrann
ávarpaði öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna í febrúar.
Thielmann kvaðst hafa verið
„undrandi og hneykslaður“ þeg-
ar hann heyrði Bush halda því
fram í stefnuræðu sinni að Írak-
ar hefðu reynt að þróa kjarna-
vopn.
Embættismenn í Hvíta hús-
inu viðurkenndu á þriðjudag að
ásakanir um að Írakar hefðu
reynt að kaupa úran í Afríkurík-
inu Níger hefðu byggst á föls-
uðum skjölum.
Hneyksl-
aðir á um-
mælum
Rumsfelds